Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 29

Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 37 Fyrir nokkrum dögum var mér tilkynnt, að Jón E. Ragnarsson hrl. hefði orðið bráðkvaddur að heimili sínu. Mig setti hljóðan. Að vísu var það vitað að Jón var hjartveikur og hann hafði í fyrra- vetur gengist undir erfiðan upp- skurð erlendis. En fáum datt þó í hug að dauða hans myndi bera að með svo skyndilegum hætti. Hér er þó hollt að hafa jafnan i huga orð þjóðskáldsins: Líf mannlegt endar skjótt. Hér verður ekki rakin ævisaga Jóns E. Ég ætla hins vegar í fáum orðum að greina frá kynnum mín- um af honum. Er ég var í Háskóla íslands átti ég margar ánægju- legar stundir með Jóni E. Hann var oft hrókur alls fagnaðar og mér er enn minnisstætt hve vel og skemmtilega hann sagði frá. Hann var þá þegar víðlesinn og smekk- maður á mál. Jón var höfðingi heim að sækja, einkar gestrisinn og veitull. Leiðir okkar Jóns lágu saman á ný haustið 1981 en þá tók Jón við formennsku í Stúdentafélagi Reykjavíkur. í hans tíð jukust mjög tengsl félagsins við Háskóla íslands. Jón átti og frumkvæði að því að stofna Háskólasjóð Stúd- entafélags Reykjavíkur og átti sæti í stjórn hans. Tilgangur sjóðsins er einkum sá að styrkja ýmis verkefni Háskóla íslands, svo og stúdenta við skólann. Mál- efni þetta var Jóni afar hugleikið og hann batt miklar vonir við framtíð sjóðsins. Þótt Jón E. léti af formennsku Stúdentafélags Reykjavíkur sl. haust studdi hann félagið enn með ýmsum hætti. Það fékk margvís- lega aðstöðu á skrifstofu Jóns og hann vann að undirbúningi full- veldisfagnaðar og annarra mála. Fyrir hönd Stúdentafélags Reykjavíkur vil ég nú að lokum þakka fyrir allt það sem Jón E. gerði fyrir þetta félag. — Sjálfur mun ég minnast hans sem hins glaðværa, heillandi stúdents og einnig og ekki síður sem góðs drengs, sem gott var að leita til í vanda. Guð geymi nú Jón E. Ragnars- son. Olafur Oddsson Þegar Jón hringdi til að kveðja var hann mjög alvarlegur í tali og ákveðinn. — Það gæti alveg eins verið að ég kæmi ekki aftur, og komi ég aftur, verður það aðeins í stuttan tíma, sagði hann. Þetta var óvenjulangt símtal. Hvorugum okkar datt í hug að grínast. Sennilega var þetta í eina skiptið sem við létum ekki eins og bjánar hvor við annan. Við vissum báðir og skildum alvöruna og vin- áttuna, sem lá að baki. Það er fátt betra í þessum heimi en sannur vinur. Vinur, sem kann að gleðjast, þegar vel gengur. Vin- ur, sem lætur traust sitt í ljós, þegar á bjátar. Þannig vinur var Jón. Við brölluðum margt saman sem skátadrengir, bulluðum sam- an sem unglingar, brösuðum ým- islegt á trúlofunaraldrinum og reyndum á allan mögulegan og ómögulegan hátt að ganga fram af hvor öðrum í félagsmálabaráttu sem ungir JC-félagar. Á námsár- um mínum erlendis fékk ég ná- kvæmar skýrslur um sameiginlega kunningja, menn og málefni, sem Jón skrifaði af frábærri ritleikni og frásagnargleði. Þá æstist heim- þráin upp um allan helming. Seinna, þegar við vorum orðnir „fullorðnir menn“, létum við það alltof sjaldan eftir okkur að grín- ast saman. Þegar slíkt kom fyrir, skemmtum við okkur konunglega, eins og lög gera ráð fyrir, þótt öðr- um hafi ef til vill þótt þetta grín okkar hrútleiðinlegt. Við áttum þetta saman, og svo vináttuna sem aldrei bar skugga á. Þessar línur eru ekki skrifaðar í þeim anda, sem Jón hefði kallað „mátuleg" eftirmæli. Slík eftir- mæli skrifar enginn einn saman. Nú vantar innskotin, hláturinn og gleðina. Nú vantar botninn, sem Jón hafði alltaf tilbúinn. Ég kveð síðan vin og þakka fyrir símtalið. Óli Steph. Kynni okkar af Jóni E. Ragn- arssyni, hæstaréttarlögmanni, voru ekki ýkja löng f árum mæld, en vináttan við hann traust eigi að síður. Fundum okkur bar fyrst saman er við vorum við nám í lagadeild háskólans, en hann hafði þá verið starfandi lögmaður í Reykjavík í um 15 ára skeið. Hann hafði einstakan hæfileika til þess að laða að sér ungt fólk og umgangast það sem jafningi. Kannski var það vegna þess, hversu mikill strákur hann var í sér, eins og stundum er sagt. Með Jóni var gaman að vera. Hann gat tekið upp á ýmsu, bæði í leik og starfi, sem engum öðrum datt í hug. Kom sífellt á óvart til þess að krydda tilveruna. öll slík uppátæki voru þó í gamansemi og góðvilja gjörð, að baki þeim leynd- ist aldrei annað en glettni og spaug, ekki hrekkir. Þannig voru málflutningsræður Jóns oft. Hann var markviss og beinskeyttur málflytjandi, sem braut til mergj- ar kjarna hvers máls og kom til skila aðalatriðunum, en oft þó i bland með dálítilli kímni. Hann var vel að sér í bókmenntum og sagnfræði og þangað sótti hann oft líkingar, þegar hann flutti mál fyrir dómi. Stundum átti hann það til, þegar sá var gállinn á honum, að seilast ofurlítið lengra i gam- anseminni en aðrir gjörðu. Slíkt var þó auðvelt að fyrirgefa honum, vegna þess að hugsunin, sem að baki bjó, var góð og velviijuð. Jón var skemmtilegur ferðafé- lagi, kannski aldrei eins skemmti- legur og á ferðalögum. Starfs síns vegna þurfti hann oft að ferðast út um land í þinghöld, samninga- gerðir eða sáttaviðræður. Þá sótt- umst við, sem yngri vorum, eftir því að fá að fara með. Komust þá oft færri með en vildu. Okkur langaði þá bæði til þess að njóta samvista við skemmtilegan félaga og vin og kannski ekki síður til þess að fá að læra af góðum lög- manni. Jón var ekki bara skemmtilegur og spaugsamur. Hann var okkur líka hjálpsamur og hollráður. Til hans var gott að leita, þegar vanda bar að höndum. Hann var fljótur að hugsa og benda okkur á það, sem hann taldi vera réttar leiðir hverju sinni, óþreytandi við að leggja okkur lífsreglurnar og stappa f okkur stálinu. Bjó hann þó orðum sínum stundum gaman- saman búning, en þó alltaf þannig, að við skildum, að á bak við gam- anið leyndist alvara. Jón samein- aði það öðrum betur að vera hvort tveggja í senn skemmtilegur og al- vörugefinn. í hægra munnvikinu var pípan, sem hann tottaði stöð- ugt og var nær óaðskiljanlegur hluti hans sjálfs. Þeim megin bjó alvaran. Um vinstra munnvikið lék góðlátlegt bros. Þeim megin bjó gamansemin og glettnin. Nú, þegar Jón er allur, söknum við vinar og félaga. En það er huggun harmi gegn, að áfram lifir minningin um mann, sem var okkur allt í senn, traustur og skemmtilegur félagi, hjálpsamur og hollráður, og síðast en ekki síst góður drengur. Þannig lifir Jón í minningu okkar. Pétur Guðmundarson. Þorgeir Örlygsson. Við tveir, sem hér í örfáum orð- um minnumst vinar okkar, Jóns E. Ragnarssonar, áttum því láni að fagna að kynnast honum náið síð- ustu ár hans. Þótt þau kynni yrðu ekki löng í árum talið má þó full- yrða að þau kynni voru með þeim hætti að minningin um Jón mun lengi lifa með okkur. Jón var alla tíð mjög bókhneigður og vel lesinn ekki sízt í fræðigrein sinni, lög- fræðinni. Þá þekkingu hafði hann jafnan á hraðbergi og minni hans var með ólíkindum. Margra stunda er að minnast er hann miðlaði okkur félögunum af þeim fróðleiksbrunni og hann kryddaði oft frásögnina með hnyttilegum athugasemdum og kímni. Oft koma þær stundir í starfi lögmannsins að hann eygir ekki skóginn fyrir trjánum í frumskógi lagareglna og margslunginna at- vika hvers máls. Á þeim stundum var gott að leita til Jóns, því að hann var manna fljótastur að átta sig á kjarna hvers máls. Komu þar til hinar skörpu gáfur hans og traust þekking á lögum, einkum réttarfari. Oft kom það fyrir að eitthvert vafaatriði sem lengi hafi valdið vafa í huga manns varð ljóst þegar það hafði verið borið upp við Jón. Jón ferðaðist mjög víða á þeim árum er hann var í námi og sinnti félagsmálum af sem mestum krafti. í þeim ferðum var hann jafnan fulltrúi þeirra félaga sem hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir, og það höfum við sannfrétt að hann hafi jafnan reynzt verð- ugur fulltrúi hinna ýmsu félaga, enda eignaðist hann fjölda vina erlendis, sem minnast góðra stunda með Jóni. Jón unni listum og átti ágætt bóka- og málverkasafn. Hann hafði mjög fágaðan smekk í þeim efnum. Á seinni árum lagði hann einkum stund á söfnun lögfræði- rita og var þar bæði um að ræða gömul og fágæt rit svo og innlend og erlend samtímarit. Jón gerði sér far um að fylgjast með því helsta sem ritað var um lögfræði og eftir hann sjálfan liggja ágæt- ar ritgerðir um lögræðileg efni. Jón lét sér annt um hagsmuna- mál lögmanna og tók virkan þátt i störfum Lögmannafélags íslands. Hann sat í stjórn félagsins 1977—1979 og átti sæti í kjara- nefnd félagsins frá upphafi. Hags- munamál lögmanna voru honum mjög hugleikin og áttum við félag- arnir oft fjörugar og gagnlegar umræður um þau mál. Þá má minnast ýmissa stunda með Jóni þegar lögmennskan var lögð til hliðar og tekið var upp léttara hjal. Ekki sízt naut Jón sín í góðra vina hópi og hafði gjarnan orðið, enda hafði hann frá mörgu skemmtilegu að skýra og vildi frekar hafa orðið en hlýða á aðra, og sættu menn sig fúslega við það. Nú þegar Jón er fallinn frá langt um aldur fram minnumst við hans með söknuði, og vitum að þar gekk góður drengur. Sigurður Georgsson, Stefán Pálsson. Skólabróðir okkar og félagi, Jón Edwald Ragnarsson, er látinn fyrir aldur fram, aðeins 46 ára gamail. Við, sem vorum samferða Jóni um ganga og stofur Mennta- skólans í Reykjavík, söknum hans og minnumst. Jón var Reykvíkingur í orðsins fyllstu merkingu, fæddur þar hinn 24. desember 1936, kjörsonur Ragnars H.B. Kristinssonar, for- stjóra, og eiginkonu hans Matt- hildar Eðwaldínu Edwald, en þau bjuggu að Frakkastíg 12. Ragnar stjórnaði fyrirtækinu Vagna- smiðju Kristins Jónssonar, ásamt Þóri bróður sínum, um árabil, og muna flestir Reykvíkingar, sem komnir eru um miðjan aldur, vel þetta gamla fyrirtæki, sem starf- aði tímana tvenna, fyrst að vagna- smíði, er hesturinn var enn þarf- asti þjónninn, en lagaði sig að breyttum tímum og gerðist leið- andi aðili í smíði bílayfirbygginga. Afi Jóns, sem þekktur var undir nafninu Kristinn vagnasmiður, var öllum sem til þekktu minnis- stæður sem einstakur elju- og dugnaðarmaður, þar sem ná- kvæmnin og reglan sátu í fyrir- rúmi. Kristinn starfaði við fyrir- tækið til hárrar elli. Matthildur, móðir Jóns, var ættuð frá ísafirði, dóttir Jóns Samúelssonar Edwald, kaupmanns og ræðismanns. Er Jón hafði lokið venjulegu skólanami, þreytti hann lands- próf, en að því loknu settist hann eitt ár í Menntaskólann á Akur- eyri, en kom þá suður aftur og settist í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík. Jón varð strax áber- andi í skólalífinu og komst enginn hjá því að taka eftir honum. Jón var lágur vexti og grannholda á þessum árum, ákaflega nettur og fínlegur, svipurinn bjartur og glaðlegur. Hann var ágætur náms- maður og hafði afbragðs minni. En það var fyrst og fremst fyrir glaðlega framkomu og áberandi mælsku, sem við munum Jón E. Ragnarsson. Hann vakti athygli allra, nemenda sem kennara, fyrir fljúgandi, meðfædda mælsku, hafði mótaðar skoðanir á svo til öllum málum, en fléttaði mál sitt óvenjulegum skemmtilegheitum. Þær voru margar ræðurnar, sem Jón flutti í málfundafélagi skól- ans, „Framtíðinni", og segja má, að þeir sem voru á annarri skoðun en Jón, hafi ýmsar kárínur hlotið þótt allt væri í góðu, en á þessum vettvangi þreyttu margir sína frumraun við að verja eða and- mæla skoðunum og stefnum. Jón var ákaflega hress og kátur ungur maður í skóla og bar með sér slík- an frískleika, að aðrir hrifust með. Segja má að alltaf hafi verið skemmtilegt, þar sem Jón var, enda varð hann strax ákaflega vinamargur. Stundum lá við að um ærsl væri að ræða, jafnvel í kennslustundum, og gekk okkar virðulegu lærifeðrum misjafnlega að átta sig á hinu græskulausa, en sennilega tímaskakka gamni, þótt allt færi vel að lokum. Jón var vel ritfær, skrifaði mik- ið í skólablaðið og var framarlega í öllum félagsmálum. Hann las mikið utan námsefnis, hafði lif- andi áhuga á bókmenntum, sagn- fræði og stjórnmálum. Á undan flestum öðrum á þessum aldri átt- aði hann sig á fegurð æðri tónlist- ar og átti gott hljómplötusafn sjálfur. Hann varði miklum tíma við að njóta sígildrar tónlistar. Á þessum árum kom MR sér upp vísi að hljómplötusafni, þar sem hægt var að fá lánaðar heim plötur. Jón beitti sér mjög fyrir framgangi þessa máls, og var hann allra manna duglegastur við að fá hljómplötur heim og leyfa öðrum að njóta með, en hann átti þá strax hljómflutningstæki, en á þessum árum þekktist vart að fá- tækt námsfólk hefði slíkan búnað undir höndum. Húsið Frakkastígur 12, þar sem Jón bjó ásamt foreldrum og systk- inum sínum, var eitt myndarleg- ast íbúðarhús í Rvík á þessum tíma, og hafði Jón fyrir sig sjálft turnherbergi hússins, sem varð nú vinsæll samkomustaður okkar. Jón var einstaklega greiðvikinn og opinn. Má segja að turninn hans Jóns hafi ætíð verið opið hús vin- um hans og félögum. Og þar stóð plötuspilarinn góði, húsráðandinn réð reyndar lagavalinu, en þarna kviknaði og smitaðist áreiðanlega út sá tónlistaráhugi og smekkur, sem dugað hefur og enst. Hjá Jóni voru dægurmál og alvarlegri mál rædd fram og aftur, oft deilt fast, en húsráðanda tókst oftast að sannfæra þá, er á móti mæltu. í þessu sambandi er ekki hægt að láta hjá líða að minnast for- eldra Jóns, sem umbáru okkur ætíð jafnvel, Ragnars, sem var einstakur „sjentilmaður", ætíð í góðu skapi, aldrei önugur þótt full ástæða hafi eflaust oft verið til er setur drógust fram um þann tíma, er fólk gengur venjulega til náða, auk þess sem við vorum all-fyrir- ferðarmiklir á þessum árum. Eða ínu sem var alltaf blíð og góð og skildi okkur svo vel. En Ina varð hálfgerð uppeldismóðir okkar margra, var ætíð til viðtals, hafði alltaf tíma til að tala við okkur þótt hún væri húsmóðir á stóru heimili og hefði stórt hús að hugsa um. Á heimili Ragnars og ínu nut- um við góðs viðurgjörnings, þann- ig að í dag skilur maður helst ekk- ert í þessu, t.d. þegar við sátum uppi hjá Jóni, klukkan langt geng- in að miðnætti, er létt bank heyrð- ist á hurðina, þar sem ína var komin með rogafullt fat af fínu brauði, sem var rennt inn með orðunum: „Þið hljótið að vera orðnir svangir, strákar mínir." í þessu húsi var ekkert til sem hét streita og allir hlutir voru svo eðlilegir að ekkert rúm var til fyrir alvöru vandamál, sem eru víst orðin heil vísindagrein í dag. Á sumrum dvöldu foreldrar Jóns gjarnan í notalegu sumarhúsi, sem stóð á ártungunni neðan Reykjalundar í Reykjadal. Við fórum marga ferðina þangað að sumarlagi með Jóni, og þar voru móttökurnar nákvæmlega eins og á Frakkastíg 12. Enn minnumst við veizlunnar góðu sem Ragnar og ína buðu fjölda skólasystkina Jóns til að heimili sínu fyrir rétt liðlega 26 árum, er Jón lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Rvík í júní 1957. Að stúdentsprófi loknu gerðist Jón framkvæmdastjóri Heimdall- ar og sat auk þess í stjórn félags- ins 1958—60. Hann innritaðist í lagadeild Háskóla Islands og lauk embættisprófi 1966. Jón skipaði sér í raðir lýðræðissinnaðra stúd- enta, var ritstjóri Vöku 1958—9, auk þess sem hann ritstýrði Úlf- ljóti, blaði laganema, á árunum 1960—61. Formaður stúdentaráðs var Jón árin 1962—63 og fulltrúi stúdenta í háskólaráði 1963—64. Með námi var Jón blaðamaður við Morgunblaðið 1960—65. Hann sótti námskeið í fræðigrein sinni við Kölnarháskóla 1958 og lauk auk þess prófi í þýzku. Ennfremur sótti Jón námskeið í Svíþjóð og Bandaríkjum Norður-Ameríku. Að embættisprófi loknu gerðist Jón fulltrúi borgarstjórans í Rvík til ársins 1969, er hann varð fram- kvæmdastjóri Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar allt til ársins 1970. Árið 1969 opnaði Jón eigin lögmannsskrifstofu í Rvík og starfaði alfarið sem slíkur til dauðadags. Árið 1973 hlaut Jón réttindi til málafærslu við hæsta- rétt. Ungur skipaði Jón sér í þá sveit manna, sem vilja veg sjálfstæð- isstefnunnar sem mestan. Hann var einlægur lýðræðissinni og sá strax gildi einstaklingsins fyrir þjóðfélagsheildina. Með sannfær- ingarkrafti sínum, mælsku og léttu sinni vakti Jón hvarvetna at- hygli. Hann valdist því ungur til ábyrgðarstarfa fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Fyrr er getið starfa hans fyrir Heimdall, félag ungra sjálfstæðismanna, en árin 1962—69 var hann í stjórn SUS og gegndi þar varaformennsku um skeið, auk þess sem hann var í flokksráði Sjálfstæðisflokksins. Jón var áhugamaður um vest- ræna samvinnu og var áfram um að íslendingar skipuðu sér þétt í sveit þeirra þjóða, sem næstar okkur standa að menningu og stjórnarfari og gegndi for- mennsku og varaformennsku í fé- laginu Varðberg árin 1970—72. Auk þessara starfa hlóðust á Jón ýmis félagsstörf, sem ekki verður getið hér, nema hann var varafor- seti og landsforseti Junior Cham- ber of Commerce árin 1971—73. Ritstörf lágu vel fyrir Jóni, hann átti jafn auðvelt með að tjá sig, hvort sem var í ræðu eða riti. Ekki verður þeirra nákvæmlega getið hér, en þau fjalla að mestu um fræðigrein hans og um þjóð- mál. Árið 1969 kvæntist Jón eftirlif- andi eiginkonu sinni, Sigríði Ingv- arsdóttur. Þau slitu samvistir og varð ekki barna auðið. Þetta er í stuttu máli lífshlaup vinar okkar og félaga Jóns Edwalds Ragnarssonar. Nú fækk- ar gleðihlátrum um stund. Það er sjónarsviptir að Jóni E. Ragnars- syni gengnum. Hann sem var allt- af jafn hress og kátur, hvenær sem var, og hvar sem var. Af fund- um við Jón fórum við ætíð léttari í lund, en er við gengum til fundar. Og enginn vissi betur en að Jón byggi við góða heilsu, þar til fyrir um tveim árum, er Jón kenndi sér þess meins er hann varð að lúta í lægra haldi fyrir. Á sl. ári gekkst hann undir erfiða hjartaaðgerð í Bretlandi, og var nýkominn heim er við fögnuðum 25 ára stúdents- afmæli. Ékki varð annað séð en að hann væri á góðum batavegi. En það var ekki að hans skapi að kvarta, lundin var létt sem fyrr og hann hafði gamanmál á hrað- bergi. En líkamlega heilsan var ekki í samræmi við andlega hressleikann og dvaldi Jón á sjúkrahúsum öðru hverju undan- farna mánuði, uns hann lést á heimili sínu hinn 10. þ.m. Við sem eftir erum, minnumst góðs og skemmtilegs félaga. Hans verður minnst í okkar hópi svo lengi sem við komum saman. Að endingu vottum við aðstand- endum öllum innilega samúð okkar, um leið og við þökkum föllnum félaga samferðina, sem nú verður hlé á í bili. Skólafélagar úr Mennta- skólanum í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.