Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983
39
Sigurður Þór Friðriks-
son — Minning
Fæddur 26. mars 1928.
Dáinn 3. júní 1983.
Ég kynntist Sigga snemma á
unglingsárum mínum, er ég flutt-
ist tii höfuðstaðarins. Reyndist
hann trúr og dyggur vinur, sem
alltaf var boðinn og búinn að
hjálpa, ef hann gat því mögulega
við komið.
Þeir voru og ófáir bíltúrarnir,
sem Siggi lagði á sig fyrir okkur
unga fólkið sem vorum honum
samferða. Siggi var ungur í anda
og þvi mikill félagi okkar, sem í
þann tíð héldum hópinn saman.
Tók hann jafnan fullan þátt í gleði
okkar og leik í sínum tómstund-
um.
í öll þau 16 ár sem ég þekkti
Sigga man ég aldrei eftir að hafa
séð hann skipta skapi. Lífsgleðin
var hans aðal.
Siggi ferðaðist mikið erlendis í
sínum sumarfríum og kynntist
þar mörgu sem hann hafði síðar
yndi af að miðla okkur af sem
heima sátum. Alltaf á þessum
ferðalögum sínum sendi hann mér
kort, eða stutt bréf og lýsti þar
hvernig ferðalagið gengi fyrir sig.
Þegar við hjónin kvöddum suð-
vesturhorn landsins fyrir tæpu ári
og hófum sveitabúskap austan
fjalls, fækkaði eðlilega heimsókn-
um Sigga á okkar heimili, en sím-
inn bætti að nokkru leyti okkur
þennan fjarlægðarmismun. Við
hringdum gjarnan í hvort annað
og spjölluðum um heima og geima.
Einnig um landsins gagn og gæði,
því Siggi var vel heima í mörgum
hlutum. Gátum við því vel rætt
saman um búnaðarstörf. Eins
ræddum við oft um lífið og dauð-
ann og var Siggi sannfærður um
eilífa lífið og kveið ekki dauðan-
um. Síðast talaði ég við Sigga dag-
inn fyrir andlát hans. Lék hann þá
á ais oddi, eins og hann átti vanda
til. Talaði hann við mig um að
sennilega gæti hann komist í sína
fyrstu heimsókn til okkar hingað
um næstu helgi. Kvaðst hann
mundu hringja til mín næsta
kvöld og binda þetta fastmælum.
En hann hringdi ekki. Mér þótti
það í meira lagi undarlegt, því allt
sem Siggi sagði stóð eins og stafur
á bók. Það varð mér þungt áfall
þegar ég lét seint og um síðir
verða af því þetta umrædda kvöld
að reyna að ná sambandi við
Sigga, að frétta að hann hefði lát-
ist þá fyrr um daginn. En þannig
er víst lífsganga okkar allra. Við
fæðumst hingað í þennan heim,
Gísli Loftsson
Kveðjuorð
Ég vil fyrir hönd Félags ís-
lenskra gullsmiða fara nokkrum
orðum um Gísla Loftsson, letur-
grafara.
Ekki þarf að hafa mörg orð um
hann, því að allir sem hann þekktu
vissu að hann var einstakur mað-
ur. Gísli var frábær fagmaður, og
eru margir hlutir fagurlega
skreyttir eftir hann.
Hann starfaði fyrir flesta
gullsmiði í Reykjavík og úti á
landi, og er mikill eftirsjá að hans
frábæru vinnu og er starf hans
vandfyllt.
Gísli var ávallt léttur í lund og
skemmtilegur í umgengni og er nú
einhvert tóm í huga mínum, eftir
15 ára vináttu okkar Gísla.
Með þessum fáum línum kveð ég
Gísla með miklum söknuði, og ég
veit að það gera allir sem hann
þekktu.
Blessuð sé minning hans.
Leifur Jónsson,
formaöur Félags
íslenskra gullsmiða.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir,
ÓLAFUR R. EINARSSON,
menntaskólakennari,
Þverbrekku 2,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 22. júní nk.
kl. 13.30. Þeim er vildu minnast hans er bent á líknarsjóði.
Jóhanna Axelsdóttir,
Gísli Rafn Ólafsson, Þorvarður Tjörvi Ólafsson,
Sigríöur Þorvarösdóttir, Einar Olgeirsson,
Guörún Gísladóttír, Axel Jónsson,
Sólveig Einarsdóttír,
Krossaskilti
Sendum í póstkröfu
um allt land.
SKILTAGERDIN
MARKG
Dalshrauni S, Hafnarfirði,
•fmi 54833.
dveljum hér aðeins skamman tíma
og kveðjum síðan.
Þó finnst mér það alltaf jafn
óréttlátt, þegar fólk sem er í fullu
fjöri og nýtur lífsins, hverfur héð-
an snögglega. En aílt er þetta í
hendi hins alvalda guðs, sem gefur
okkur lífið. Fyrir slíku ofurvaldi
ber okkur mannanna börnum að
beygja okkur í auðmýkt, þótt
vissulega sé það oftast allt annað
en auðvelt. Siggi var trúaður og
virkur í kirkjusöfnuði sínum, þar
sem hann starfaði sem meðhjálp-
ari.
Ég er viss um það að nú er Siggi
heima hjá Frelsara sínum, Jesú
Kristi, sem eitt sinn sagði. „Faðir,
ég vil að þeir sem þú hefur gefið
mér, verði einnig hjá mér, þar sem
ég er, til þess að þeir megi sjá dýrð
mína.“ Með þessum fátæklegu orð-
um mínum um vin minn Sigurð
Þór Friðriksson kveð ég hann nú í
bili. Ég er þess fullviss að þegar
mín kveðjustund héðan rennur
upp, munum við hittast á himnin-
um hjá Guði.
Systrum Sigurðar, öðrum vinum
hans og vandamönnum votta ég
mína dýpstu og innilegustu samúð
og bið góðan Guð um að styrkja og
hugga.
Sigrún Sigurjónsdóttir.
Ævar Geir
grímsson -
Fæddur 24. september 1976.
Dáinn 2. júní 1983.
Hann Ævar Geir er dáinn, þessi
litli fallegi drengur sem var öllum
svo góður. Hann hefði orðið 7 ára í
september.
Það sló okkur kunningjakonurn-
ar mikið fyrir 3 árum, þegar okkur
var sagt frá veikindum hans. En
þegar stundir liðu gekk allt svo
vel, allir urðu bjartsýnir. En Guð
einn ræður eins og við allar sögð-
um börnunum okkar, sem voru
leikfélagar Ævars. Nú líður hon-
um vel. Nú geymir Guð hann. Það
stakk mig alltaf þegar ég fylgdist
með leik strákanna hvað Ævar
Geir gat í rauninni lítið fylgt þeim
eftir, en viljinn og dugnaðurinn
var alveg ótrúlegur.
Við sendum ykkur, Stína mín og
Steini, og sonum ykkar innilegar
samúðarkveðjur með þessari litlu
kveðju frá mér og fjölskyldu
minni.
Lilja Smáradóttir
„öll viA skulum eitl sinn mælnst
í Guðsborg Jerúsalem4*
Þegar allar þrautir enda
þegar líf þitt búid er
þá mun Jesús sínar senda
sveitir engla eftir þér.
Viltu mæta vinur kcri
vinum sem þú hefur misst.
Þá ég fréttir þessar f*ri
þú skalt elska Jesúm Krist.
Er vió missum okkar drengi
öll meó tregja syrgjum þá.
En vió grátum ekki lengi
því öll við mætumst himnum á.
(Garðar Sigurgeirsson,
Kristur konungur minn.)
Fæddur 24. september 1976.
Dáinn 2. júní 1983.
Þegar heit vorsólin er í óða önn
að bræða snjó og kulda vetrarins
berst harmafregn. Hann Ævar
Stein-
- Minning
Geir er dáinn. Enn einn sólargeisl-
inn horfinn úr þessum heimi. Sjö
ár eru ekki langur tími, en skilja
eftir sig sögu og ótal minningar.
Innilegar samúðarkveðjur sendum
við foreldrum, bræðrum og öðrum
aðstandendum Ævars Geirs, og
megi góður Guð styrkja þau á
þessari raunastund.
Mætumst vér á Ijóssins landi,
Ijúf þar báran hlær við strönd
þar um helga himingeima
hrelling nein ei þjáir önd?
Munum vér þar hólpnir hittast
herferð þegar lokið er,
og þar láta akker falla
öðrum hjá, sem þekkjum vér?
Ilittum vér þá hjarta kæru,
bér sem vorum skilin frá?
Fáum vér um eilífð alla
aftur þeim að dvelja hjá.
(H.L. Hastings, sálmur.)
Ollý og Birna.
ÚTVEGGJAKLÆÐNING
EINSTÖK KLÆÐNING SEM EINANGRAR
Ambit útveggjaklæöning, unnin úr trétrefja-
plöntum, hjúpuöum asfalti og steinsalla, náttúru-
efnum sem upplitast ekki og eru sérstaklega veöur-
þolin. Klæöningin er auk þess bæöi hljóöeinangr-
andi og eldtefjandi.
Ambit útveggjaklæöning hefur veriö notuö í meira
Söluumboö:
LÆKJARKOT SF.,
Lækjargötu 32, Hafnarfirði.
en 50 ár um víöa veröld og uppfyllt ströngustu
.kröfur um slíka klæöningu. ísland bætist nú í hóp
ríkja Noröur-Ameriku, Kanada, Noröurlanda og
Færeyja, þar sem hús klædd Ambit útveggja-
klæöningu fegra umhverfiö og veita húseigendum
örugga vörn gegn válegri veöráttu.
Kaimar
SKEIFAN 8 - 108 REYKJAVÍK - SlMI 82011