Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 36

Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 GA lv\A N rv\ÁL- „þó ert mfti ffóf i' helrAilísMagrjeÆir^gUfinívnmA, 03 dg i' heimspelci.11 Ást er... ... að uera hjá honum þegar hann vaknar eft- ir uppskurð. TM R*q U.S P*t Off.—»M rlghts r«s«ry*d «1983 Los Angales Tlims Syndicste Á ad greiða hárin tvö til hægri, eda annað til hægri og hitt til vinstri? Þú átt aðeins að mæla hemlaförin! HÖGNI HREKKVÍSI Eru ekki vísindi og listir ávextir frjálsrar hugsunar? Húsmóðir skrifar: „Þeir sem reka áróður fyrir marxismann geta aldrei nefnt af- leiðingarnar af þessari helstefnu. Þeir verða að halda sig við teórí- urnar, en þær ganga þvert á fram- kvæmdirnar. Kaldhæðnislegasta frétt, sem heyrst hefur í útvarp- inu, var frá Tass ekki alls fyrir löngu. Fréttastofan sagði, að stjórnvöld í fran hefðu tekið sex kommúnista þar í landi, og með því að nota miðaldapyntingar, þá loksins játuðu þeir á sig njósnir fyrir Rússa. Aldrei hafa Vesturveldin þurft að grípa til slíkra aðgerða, þegar þau hafa náð í njósnara í störfum fyrir Kremlarherrana. Og manni hefur skilist að þeir væru bara að sinna skyldustörfum sínum, því að þeirra hjörtu slá á Volgubökkum. Svo að íranagarmarnir hafa sennilega ekki verið sannir komm- únistar, varla eins og þeir gerast bestir í lýðræðisríkjunum. Pyntingasögu veraidarinnar hljóta stjórnendur Rússlands að kunna utanbókar, því að engin stjórnvöld hafa notfært sér þau fræði meira. Ég var svo heppin að geta talað við gallharðan stalín- ista, meðan frægustu réttarhöld Stalíns stóðu yfir, og í sál hans var enginn efi um réttmæti þeirra. Og að þarna kæmi ekkert fram nema sannleikurinn. Enda lofaði hann Stalín. Þessi réttarhöld voru eins vel á svið sett eins og besta uppfærsla á heimsfrægu leikriti, en þar þurfti enginn að greiða fyrir miða á sýninguna, því að öll- um áhorfendunum var boðið. Og boðsmennirnir voru ekki valdir af verri endanum. Þar sátu frægir menn fyrir lærdóm og önnur and- leg afrek, en þeir áttu að borga aðganginn með því að lofa Stalín og allar stjórnaraðgerðir hans. Þeir svikust heldur ekki um það, en alþýða Rússlands, hún græddi ekki á þeim. Það á að vera óskilj- anlegt, að lærðir menn, að maður nefni nú ekki skáld, skyldu gleypa við hungurhugmyndafræði Karls Marx, kerfi sem skyldi vera troðið upp á frjálsan saklausan almenn- ing, með manndrápum, eins og skáldið sagði, og þar sem frjáls hugsun er forboðin. Eru ekki öll vísindi og listir í veröldinni ávext- ir frjálsrar hugsunar? Ekki getur hinn frjálsi heimur sótt til Sovét- ríkjanna nýjungar í tækni og vís- indum. Ekki er hægt að fá andlega uppörvun hjá skáldunum, því að þau eru undir lás og slá hjá stjórnvöldum. Og frægasta tón- skáld á Stalínstímabilinu flúði þegar Stalín gaf út uppskriftina handa honum til þess að semja tónverk eftir. Ég varð furðu losin, þegar stalínistinn varð alltaf glaðari og glaðari, þegar játningarnar urðu hrikalegra og þegar það kom betur og betur í ljós, að allar hetjurnar hans úr byltingunni urðu meiri glæpa- og hryðjuverkamenn í eig- in landi. Þá fannst mér ég ekki vera neinn Farísei, þótt ég þakk- aði fyrir að trúa ekki á það, að ofbeldið í sinni verstu mynd gæti bjargað heiminum. Örlög pólsku þjóðarinnar verða alltaf hlutskipti hverrar þjóðar sem lifir við marx- isma. Þetta vissu verkamennirnir og smábændurnir hans Nikulásar keisara og börðust í fjögur ár, þar til hungrið og svo matarsendingar frá hinum frjálsa heimi til Leníns komu marxismanum á í Rúss- landi. Þeir skriftlærðu, sem voru fullir aðdáunar á pyntingum Stal- íns, hafa aftur á móti gert Rúss- land að stærsta nýlenduveldi heims, þar sem „pólskar" her- stjórnir ráða.“ Lengsta dagleiðin? E. Kr. J. skrifar 12. júní: ,Velvakandi. I dag er göngudagur fjölskyld- unnar og er honum ætlað að auka áhuga fólks á útivist og göngu- ferðum. Margir skokka að stað- aldri og nokkrir ætla að skokka þvert yfir landið í sumar, um 25 km á dag. Aðrir hlaupa lengri leið- ir, allt að maraþonhlaupi, 42 km. Dagleiðir margra hafa orðið lang- ar og oft erfiðar. En veit nokkur, hver er lengsta dagleið, sem ís- lendingur hefur farið milli nátt- staða, hestlaus og skíðalaus og án allra hjálpartækja? Og það jafn- vel með „allþunga byrði“? Ég fór að velta þessu fyrir mér eftir að hafa lesið bókina „Töfrar liðins tíma“, en hún er skrifuð af Austur-Skaftfellingi um Austur- Skaftfellinga. Þar segir höfundur frá 22ja ára gömlum vinnumanni, sem fór á jólaföstunni úr Suður- sveit til Djúpavogs til að sækja tóbak og fleira fyrir jólin. Sá létt- fætti hefir tekið daginn mjög snemma, því að hann náði opinni búð á Djúpavogi um kvöldið og gisti þar síðan á Hrauni, æsku- heimili Eysteins og sr. Jakobs Jónssona. Og aftur tók hann dag- inn snemma, þvi að hann nam ekki staðar fyrr en heima í Suður- sveit. Og aðra sögu segir höfundur af ungri húsfreyju, sem fór á þorran- um að heiman frá sér í Geithellna- dal, til að hitta systur sína, sem bjó í Suðursveit. Leið beggja þess- ara ferðamanna lá um sömu fjall- vegi, Lónsheiði og Almannaskarð; bæði völdu sér gott ferðaveður, nokkurt frost og árnar á ís. Þess er getið, að húsfreyjan kom við á einum bæ og þáði góðgerðir, en vinnumaðurinn stoppaði aldrei, heldur maulaði nesti sitt á göng- unni. Vegalengdin sem þessir ferðalangar lögðu að baki í einum áfanga er sú mesta, sem ég hef heyrt um hjá langferðamönnum, en bókarhöfundur telur leiðir þeirra svipað langar, eða um 140 kíiómetra. Ef við flytjum þessa vegalengd nær þorra íslendinga, samsvarar þetta vegalengdinni frá Lækjar- torgi, um Hellisheiði og austur að Eyjafjöllum. Þessi vegalengd er meiri en ég get búist við að nokkur maður leggi að baki í dag, jafnvel þótt þjálfaður sé. Eg þykist vita, að Velvakandi hefði gaman af að heyra af lengri dagleiðum, ef einhver vissi þeirra deili." Auglýsingin missir marks — ef verðið fylgir ekki með Birna Hafliða skrifar: „Heill og sæll Velvakandi. Mig langar til að biðja þig að koma áleiðis ábendingu til auglýsenda Morgunblaðs- ins og blaða almennt. Þeir auglýsa vörur sínar hvort sem um er að ræða fatnað eða ferðalög, í smáauglýsing- um eða heilsíðuhlemmum, og gefa oft á tíðum upplýsingar um alla skapaða hluti sem varða vöruna — nema verð- ið. Já, meira að segja kjörin. T.d. er talað um að greiða megi helminginn eða einn þriðja út og eftirstöðvar á svo og svo löngum tíma, án þess að minnst sé á verðið. Þetta verkar á mig, og sjálfsagt marga fleiri, eins og verið sé að pukrast með eitthvað. Þannig missir aug- lýsingin marks, því að það er nú einu sinni svo, að verðið skiptir ekki hvað minnstu máli. Kærar þakkir." \ í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.