Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjúní 1983næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    2930311234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    262728293012
    3456789

Morgunblaðið - 21.06.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.06.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS „Svo er það annað, að þegar venjulegt fólk fær nokkur hundruð krónur til að mæta verðhækkunarskriðunni, fá hátekjumenn kannski 5—10 þúsund króna hækkun, sem sé allt upp í mánaðarlaun verkakonu." Öllum má ofbjóða 9499-4624 skrifar: „Velvakandi. Eg sá mynd af bifreiðastjórum ráðherranna í blaðinu á dögunum. Þetta vekur mann til umhugsunar um allt það bruðl sem hér við- gengst hjá hinu opinbera. Manni finnst, að þessir háu herrar ættu að geta borið sig um sjálfir. Senni- lega bæru landsmenn þá meiri virðingu fyrir mbnnunum, ef þeir ækju sjálfir um í sínum eigin bíl- um, svona rétt eins og venjulegt fólk. Svo er annað, að þegar venjulegt fólk fær nokkur hundruð krónur til að mæta verðhækkunarskrið- unni, fá hátekjumenn kannski 5—10 þúsund króna hækkun, sem sé allt upp í mánaðarlaun verka- konu. Allir sjá að þetta er ljótur leik- ur og verður aðeins til að vekja reiði almennings. Auðvelt hefði verið að sleppa þessari prósentu- hækkun á hæstu laun, því að fólk sem hefur 50—60 þúsund og þaðan af meira á mánuði, þarf ekki hækkun. Sá sem kemur og segir við landslýð: „Þið verðið að spara," verður líka að spara og sýna þar með gott fordæmi. Við, þetta svokallaða venjulega fólk, erum þolinmóð og þrautseig, en athugið það, háu herrar, að öll- um má ofbjóða. Og til þess að þið „þrífist" verðum við að lifa. Þökk fyrir birtinguna. Þessir hringdu . . Eru sjómenn ekki nógu fínir? Sjómannsekkja hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mörg undanfarin skipti, sem forsetaembættið hefur deilt orðum, hef ég beðið spennt að vita, hvort einhver sjómaður þætti orðunnar verður, en svo hefur ekki verið. Fyrir aðeins fáum árum var alltáf einhver sjómaður meðal orðuriddara. Eru þeir ekki lengur nógu fín- ir? Eiða hvað veldur? Hafa aldrei sýnt meira frumkvæði en að opna launaumslögin sín f^usuíss^öfnunmnUoktö: S00 92 kr. söfnuðust Ivvv^ __NettókoMnaAur v,ð söfnun.na lAndvirði 38.468 [kíló- vattstunda í Alusuisse sftfnur' I sjónarmið stóðu fyrlr I S000.92 - nmm púsut Inlnliuostv.ir.u""^ |i, .odvirOi M.M* Iþvi verði sem L»nd>vlr I raforku lil AlusuiMe. Þe lfram í skýrslu um sófnui Isamtökin Ný sjónarmið I |fr* sér um sófnunma. en l lnú lokið. Af því fé sem safnaöist kom tnest inn á giróreikmng samtakan kr. 3.73117. Af**-' aðist einku^ ' Vo^ asrs«sr- ins‘?einsogsegnifrí..«t>ky""; i „ - . sínum vi» Alusuisse Z skrifar: „Kæri Velvakandi. Nú er lokið „Alusuisse-söfnun", sem nokkrir „tottarar" gengust fyrir. Svo nefni ég þá hvítflibba- menn, sem hreiðrað hafa um sig við ríkisjötuna, hvar þeir taka sitt á þurru. Þeir „söfnunarmenn" hafa aldrei sýnt meira frumkvæði í lífsbaráttu þjóðarinnar en opna launaumslög sín, sem flytja þeim hluta af vinnutekjum (skattpen- ingum) almennings, m.a. þeirra sem vinna hörðum höndum í ál- veri og við járnblendiverksmiðju. Eins og vænta mátti varð kostn- aðurinn við söfnunina meiri en Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — cða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal cfnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. tekjurnar, enda er verksvit. og framtak „tottara" ekki meira en Guð gaf. Þess var því ekki að vænta að útgerð þeirra aflaði fyrir kostnaði. Ekki vantar þó kok- hreystina: „Vér teljum oss hins- vegar borgunarmenn fyrir þeim lítilfjörlega kostnaði sem orðið hefur af þessu stórbrotna átaki.“ Þeir eru drjúgir yfir greiðslugetu sinni, ríkisjötumenn. Þeir heimta og sinn skatthlut af vinnutekjum starfsfólksins í álverinu, þó þeir vilji gjarnan loka því, samanber fleyg orð fyrrverandi orkuráð- herra. Aulafyndni hefur aldrei átt upp á pallborðið hjá Islendingum. Þess vegna duttu þeir, ríkisjötumenn, ofan í kjaftinn á sjálfum sér, eins og stundum er sagt á alþýðumáli. En þeir hafa þó, enda þjóðræknir menn, sviðsett gamlan orðskvið á leiksviði samtímans: „Fíflinu skal á foraðið etja.““ GÆTUM TUNGUNNAR Heyrst hefur: Hann hlaut bæði verðlaunin. Rétt væri: Hann hlaut hvortveggju verðlaunin. (Orðið verðlaun í eintölu (eitt verðlaun, verðlaunið), er ekki til.) Dagatal fylgiblaðamia ALLEAF Á ÞRIÐJUDÖGUM mqmv ALLTAF Á FIMMTUDÖGUM Alltaf á föstudögum ALLTAF A LAUGARDÖGUM ALLTAF A SUNNUDÖGUM OG EFNISMEIRA BLAÐ! Fimm sirmum í viku fylgir auka fróóleikur og skemmtun Mogganum þinum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 137. tölublað (21.06.1983)
https://timarit.is/issue/119198

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

137. tölublað (21.06.1983)

Aðgerðir: