Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 38

Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 Viðstödd afhendinguna voru f.v. Ludwig H. Siemsen aðalneðismaður, Sigriður Siemsen, Jóhanna Jónmundsdóttir eiginkona Hans Ploder, Þuríður Billich, Hans Ploder fagottleikari, Carl Billich píanóleikari, og Hans Georg Rudofsky, sendiherra Austurríkis á íslandi. Carl Billich og Hans Ploder heiðraðir ÞANN 16. júní afhenti sendiherra Austurríkis á íslandi, Dr. Hans Georg Rudofsky, í viðurvist aðalræð- ismanns Austurrfkis, Ludwig H. Siemsen, og nokkurra gesta, þeim Carl Billich og Hans Ploder austur- ríska heiðursmerkið „Das goldene Ehrenzeichen“, sem forseti Austur- ríkis veitti þeim nýlega. Carl Billich hefur verið búsettur á íslandi síðan 1933 og er öllum landsmönnum að góðu kunnur fyrir tónlistarstörf sfn. Sem dæmigerður Vínarbúi hefur hann með starfi sínu aukið menningar- tengsl Austurríkis og íslands. Hans Ploder, fagottleikari, kom til Islands árið 1952 og hefur verið búsettur hér síðan. Hann var einn af stofnendum austurrísk-íslenska vináttufélagsins AUSTRIA og hefur verið formaður þess frá upp- hafi. Félagið AUSTRIA á 10 ára afmæli á þessu ári. Tilboðsverð Skýringar á hækkunum á vörum og þjónustu HÉR FARA á eftir skýringar á hækkunum vöru og þjónustu, sem ákveðnar voru á fundi verðlagsráðs 15. júní 1983. 1. Unnar kjötvörur (vínarpylsur, kindabjúgu, kindakæfa, kjötfars) Hækkun 17,2%—22,7% Vegna hækkunar á hráefn- um aðallega kjöti. 2. Kvikmyndahús Hækkun 25% Vegna launahækkana 5,4% Hækkun hitakostnaðar, sem stafar af gengisbreytingu 13,3% Orkuhækkun 6,3% 3. Leigubifreiðir Hækkun 22,3% Vegna launahækkana 2,4% Vegna hækkunar á tilkostnaði vegna gengisbreytinga 11,5% Vegna hækkunar á bensíni, olíum o.fl. 8,4% 4. Vöruflutningabifreiðir Hækkun 26,3% Vegna launahækkana 1,2% Vegna hækkana á olíum, hjólbörðum, viðgerðum o.fl. 11,3% Vegna hækk. á öðrum tilkostn. 13,8% Afgreiðslugjald hækkar um 17,4% einkum vegna auk- ins húsnæðiskostnaðar og reksturskostn. bifr. Fastagj. hækkar um 9,3% aðallega vegna launahækkunar. Innanlandsflug Hækkun 7,5% Öll hækkunin stafar af hækkun erlends tilkostnaðar vegna gengisbreytingarinn- ar. 6. Olíufarmgjöld innanlands Hækkun 20,6% Vegna launahækkana 0,8% Vegna erlendra kostnaðar- hækkana vegna gengisbr. 13,8% Ýmsar innlendar kostn.h. 6,0% 7. Möl og sandur Hækkun 14,7% Vegna launahækkana 2,4% Vegna hækk. olíu og viðgerða 7,1% Vegna annars tilkostnaðar 5,2% 8. Steypa (án sements) Hækkun 13,4% Vegna launahækkana 1,4% Vegna hækkunar á möl og sandi og vegna reksturs bifr. 7,3% Vegna hækk. á öðrum tilkostn. 4,7% 9. Vinnuvélar Hækkun 38,4% Vegna hækkunar á vara- hlutum og viðgerðum 11,3% Vegna annarra hækkana á tilkostnaði 25,5% Vegna hækkunar á olfum 1,6% 10. Gengisálag í verðútreikningi Varðandi gengisálag í verðútreikningi vöru, sem flutt er inn með erlendum gjaldfresti, verður eftirfar- andi regla viðhöfð: „Innflytjendum verði heimilað að reikna áhrif formlegrar gengisfellingar með í útreikningi á gengis- álagi, samhliða því að óheim- ilt væri að endurmeta óseld- ar birgðir í vörugeymslu, sem fluttar eru inn með er- lendum greiðslufresti." Þessa reglu var samþykkt að nota eftir gengisbreyting- una í janúar og mun hún gilda áfram. Eigum til örfá „dönsk furusófasett á sérstaklega hagstæöu verði. Aðeins kr. 11.900.- Prestastefna hefst í dag PRESTASTEFNAN 1983 hefst í Reykjavík í dag og taka störf þar mið af því að í ár er minnst 500 ára afmælis Marteins Lúters um allan heim, en aðalefni stefnunnar er: Hinn lúterski arfur kirkju samtím- ans. Fundarstaður prestastefnunnar í ár er Háskóli íslands. Flexibo hillusamstæöan er framleidd úr valinni massífri furu og lökkuö með sýruhertu lakki. Hillusamstæðan er hentug fyrir heimiliö eöa sumarbústað- inn. Seld í einingum, auöveld og fjölbreytileg uppsetning. Þrjár framsögur verða um aðal- efni prestastefnunnar. Séra Jónas Gíslason dósent fjallar um siðbót- armanninn Martein Lúter, séra Þorbjörn Hlynur Árnason ræðir um guðfræði Marteins Lúters, sér- ílagi hugmyndina um hinn al- menna prestsdóm, og séra Þor- bergur Kristjánsson fjallar um stöðu kirkjunnar f íslenzku þjóð- lífi. Tvö erindi verða flutt í útvarpi á vegum prestastefnunnar. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir fjallar á laugardag um Lúterska heims- sambandið, en hún er þar í stjórn. Á sunnudag flytur séra Guðmund- ur óli ólafsson erindi sem hann nefnir: Góðverkið mikla. Velflestir prestar landsins verða við prestastefnuna, sem stendur í þrjá daga. Henni lýkur á fimmtudag. FCIRCIHÚSÍÐ HF. SUOURLANDSBRAUT30 105 REYKJAVÍK • S: 86605 Hinn 19. mars sl. urðu eigendaskipti á nýlenduvöruversluninni á Njálsgötu 26, á horni Njálsgötu og Frakkastígs. Við rekstrinum tók Lilja Kristjánsdótt- ir og hefur hún á boðstólum kjöt og nýlenduvörur. Myndin hér að ofan var tekin í „Liljubúð" fyrir skömmu, er þar fór fram vörukynning; með Lilju (t.h.) er Lovísa Tómasdóttir, fulltrúi Holtakex.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.