Morgunblaðið - 21.06.1983, Qupperneq 40
Simi 44566
RAFLAGNIR
samvirki
BILLINN
BlLASALA SIMI 79944 SMIÐJUVEGI 4 KÓPAVOGI
I»RIf)JUDAGUR 21. JUNI 1983
MorgunblaAið/Cuðjón.
Yfirgefið fálkasetur
AI.LT bendir til aö þrjú fálkahreið-
ur á Noróurlandi hafi verið rænd í
vor. Olafur Karl Nielsen fugla-
fræðingur kom að þessum hrciðr-
um um 20. maí og voru þau þá tóm
þrátt fyrir að öll ummcrki bentu til
að þar hefði fálki orpið í vor. Sá
Olafur spor í snjónum við öll þessi
hrcióur og einnig við nokkur hreið-
ur sem ekki hefur verið orpið í á
þessu vori.
Lögrcglan á Húsavík hefur
tekið skýrslu af Ólafi vegna
þessa máls og vinnur nú að
rannsókn þess. Þröstur Brynj-
ólfsson yfirlögregluþjónn sagði í
samtali við Mbl. að lögreglunni
hefði enn ekkert orðið ágengt og
því miður væru litlar líkur til að
nokkuð spyrðist til mannaferða
á þessum slóðum þar sem þessir
staðir væru mjög afskekktir og
um mánuður síðan þessir menn
voru þarna á ferð.
Sjá viðtal við Olaf Karl
Nielsen á bls. 20.
Vilmundur Gylfa-
son alþm. látinn
VILMIINDUR Oylfason, alþingismaður og fv. ráðhcrra, lést í Reykjavík á
sunnudag 24 ára að aldri. Hann var sonur hjónanna Gylfa Þ. Gíslasonar,
prófessors og fyrrum alþingismanns og ráðhcrra, og Guðrúnar Vilmundar-
dóttur.
Vilmundur fæddist í Reykjavík 7.
ágúst 1948. Hann varð stúdent frá
Mcnntaskólanum i Reykjavík 1968
og lauk B.A.-prófi í sagnfræði frá
háskólanum í Manchester 1971 og
M.A.-prófi í sagnfræði frá háskól-
anum í Exeter 1973. Hann var
kennari við Menntaskólann í
Reykjavík frá 1973 til 1978 er hann
var kjörinn á þing fyrir Alþýðu-
flokkinn. Vilmundur var dóms- og
kirkjumálaráðherra og mennta-
málaráðhcrra i minnihlutastjórn
Bcnedikts Gröndal frá því í október
1979 fram í febrúar 1980.
Vilmundur sagði sig úr þing-
flokki Alþýðuflokksins í nóvember
á liðnum vetri og gekkst fyrir
stofnun Bandalags jafnaðarmanna
í janúar 1983. Hann var kunnur
dálkahöfundur og um skeið dag-
skrárgerðarmaður við Ríkisútvarp-
ið og fréttamaður hljóðvarps, rit-
stjóri Alþýðublaðsins og stóð
sumarið 1981 fyrir útgáfu viku-
ritsins Nýtt land, sem hann rit-
stýrði. Hann var höfundur tveggja
Ijóðabóka, Myndir og ljóðbrot
(1970) ogLjóð (1980).
Vilmundur Gylfason var kvænt-
ur Valgerði Bjarnadóttur. Hann
lætur eftir sig tvö börn.
Naflilaust neyd-
arkall heyrðist
SLYSAVARNAFÉLAGI íslands barst tilkynning
frá Siglufjarðarradíói laust fyrir kl. 9 í gærmorg-
un þess efnis, að frá skuttogaranum Apríl frá
Hafnarfirði hefði verið látið vita að um borð
hefði heyrzt á neyðartíðninni frá einhverjum
báti, að eldur væri þar laus um borð og viðmið-
unin væri
Hornbjarg. Nafn bátsins heyrðist
ekki. Staðfcsting kom síðan frá skuttogaranum
Sólbergi frá Ólafsfirði um að þar hefði heyrzt
slíkt hið sama. Þcssi hjálparbeiðni var það veik
að hún heyrðist hvorki á strandstöðinni á ísa-
firði né í Siglufirði.
Slysavarnafélag Islands kom
strax boðum til skipa á svæðinu með
beiðni um að leita og hlusta vel.
Einnig var haft samband við Land-
helgisgæsluna og fór varðskipið Þór,
sem statt var norður af Kögri, þegar
af stað í átt til svæðisins. Einnig fór
flugvélin TF SÝN strax á loft til
leitar. Hannes Hafstein fram-
kvæmdastjóri SVFÍ sagði Mbl., að
um klukkan 9.20 hefði Slysavarnafé-
laginu svo borizt boð frá Bjarna
Ólafssyni AK um að þeir væru
komnir að Gunnjóni GK 506 frá
Garði og að eldur væri laus um borð
í honum. Skömmu síðar bárust
fregnir um að skipverjar á Gunnjóni
væru að fara um borð í gúmmí-
björgunarbáta til að fara yfir í
Bjarna Ólafsson og síðar fréttist að
áhafnir beggja skipanna ynnu að
slökkvistörfum.
Það hefði svo verið laust fyrir há-
degið að Slysavarnafélaginu bárust
boð um að mikill eldur væri í aft-
urhluta bátsins, í íbúðum skipverja,
og að þriggja skipverja væri saknað.
Þá væru fimm skipverjanna komnir
um borð í Bjarna Ólafsson, sem tek-
ið heföi Gunnjón í tog og haldið til
móts við varðskipið Þór. Skipstjóri
og fyrsti stýrimaður væru hinsvegar
heilir á húfi um borð í Gunnjóni.
Skipin mættust um klukkan 14.30
og fóru þá reykkafarar frá Þór um
borð í Gunnjón og gerðu tilraun til
að komast undir þiljur, en urðu frá
að hverfa vegna elds og reyks, eins
og skipverjar bátanna höfðu þurft
að gera. Þá var tekið til við að dæla
froðu á eldinn með dælum sem kom-
ið var með frá varðskipinu, til að
reyna að ráða niðurlögum hans.
Þannig var haldið áfram í allan
gærdag og fram á nótt því eldur
gaus upp öðru hverju í klæðningu í
bátnum. Um klukkan 17 voru menn-
irnir þrír taldir af og eftir klukkan
18 komust reykkafararnir niður í
íbúðirnar og fundu líkin, en tókst
ekki að ná þeim upp vegna hita og
eiturgufu sem gaus upp niðri í skip-
inu.
Gunnjón GK 506 er í eigu
Gauksstaða hf. í Garði. Það er
stálskip, rúmar 200 lestir að stærð,
smíðað í Noregi og Njarðvík árið
1981.
> .*.-**'♦ j' ,/.•* ■
***** > 'T ‘ l ^ i
Ljósm.: KrÍHlinn Árnason.
Mynd þessi var tekin í gærmorgun eftir að Bjarni Ólafsson AK var kominn að Gunnjóni GK 506, en eldur kom upp
í Gunnjóni þar sem hann var aö rækjuveiðum norður af Hornbjargi.
Verða innflutningsgjöld
bifreiða lækkuð um 8%?
Vilmundur Gylfason.
TIL umræðu er innan ríkisstjórnar-
innar samkvæmt hcimildum Morg-
unblaðsins að lækka innflutnings-
gjöld bifreiða. Fjármálaráðherra
mun hafa lagt til að innflutnings-
gjöldin lækkuðu um 8% að meðal-
tali, en þau eru nú á bilinu 7—37%
eftir stærðar- og gæðaflokkum bif-
reiöa. Þá mun vera til athugunar í
fjármálaráðuneytinu lækkun á verði
neyzluvara ýmiss konar. Mbl. er
einnig kunnugt um að áhugi er mcð-
al ráðherra Sjálfstæðisflokksins á
niðurfellingu flugvallarskatts og
breytingu á sérstöku álagi á
ferðamannagjaldeyri og hefur það
verið til athugunar með tilliti til
stöðu ríkissjóðs og hugsanlegra ann-
arra tekjuöflunar- og/eða sparnað-
arleiða.
Fjármálaráðherra mun hafa
lagt tillögu fyrir ríkisstjórnina um
lækkun bifreiðainnflutningsgjalda
í gærmorgun en Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra farið
fram á frestun afgreiðslu. Tillögur
um lækkun aðfiutningsgjalda
Fjármálarádherra
vinnur einnig að til-
lögum um lækkun á
verði neyzluvara
neyzluvara eru samkvæmt heim-
ildum Mbl. í vinnslu í fjármála-
ráðuneytinu. Er Mbl. ræddi við
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra í gærkvöldi sagðist hann
ekki vilja fjalla um málin á þessu
stigi.
Innan ríkisstjórnarflokkanna
og ríkisstjórnar hefur fram-
kvæmd stjórnarsáttmálans verið
til umræðu. Mbl. er kunnugt um
að meðal þess sem er á næsta leiti
er skipan nefndar til endurskoð-
unar á málefnum landbúnaðarins.
Fyrirhugað er að endurskoða
framleiðsluráðslögin og verð-
myndunarkerfi landbúnaðarins og
mun ríkisstjórnin skipa nefnd til
þess á næstu dögum.