Morgunblaðið - 22.07.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 22.07.1983, Síða 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLl 1983 Ferðin atvikaðist þanmgað Við fengum að líta í dagbók þeim barst fréttabréf frá Siglingaleiðin Antibes - Bodrum tveggja ferðalanga, sem fóru ævintýralega ferð á seglskútu FRAKK ; LAND f Antibes breskum sigiingaklúbbi, „Yacht Cruising Association sem þau eru meðlimir í, þar frá Antibes í Frakklandi Korsíka til Bodrum í Tyrklandi síðast sem auglýst var eftir fólki til að sigla 7 skútum frá Frakklandi til Tyrklands fyrir enska bátaleigu „Yachttours Sardinía glefsur úr ferðasögunni. Fólkið sem á þessar skemmtilegu TYRKLAND Tyrrenahaf ^VGRIKK Jónahaf Eyjahaf Liparí ^rstrombolí. .MessínaJjw /r minningar eru hjónin Ólöf Erla Óladóttir og Ari Bergmann. Þau hafa stundað siglingar í mörg Patmos <5 Mykonos Kalimnos . * t ✓ -7.Y „ . ...—“>/* Bodrum Það varðúr aðþau slógust í PelópsskaRÍ AFRIKA Austurríkismönnum og 3 Ameríkönum, en skúturnar siglingaklúbbnum Brokey, áttu samflot alla leiðina Reykjavík 1 i : > Ferðalög Hildur Einarsdóttir Farkosturinn, skúta byggö úr trefjaplasti í Svíþjóö, var al- veg ný og bar nafniö „Meth- ana“ eftir eyju í Eyjahafinu. Mál þessarar dömu hafsins voru 10,75 m aö lengd, 3,40 m á breidd og seglflöturinn var 75 m2. Hjálparvél- in var 26 ha, Volvo Penta PS. Svefnpláss var fyrir 8 manns í 3 vistarverum, þ.e. stefniskáetu, aö- alkáetu og afturkáetu. i bátnum voru tvö salerni og 2 sturtur. i áhöfn skútunnar voru auk Ollu og Ara, 2 Austurríkismenn og 3 Bret- ar. Að sögn þeirra hjóna vann fólk- iö sem ein samhent fjölskylda og hélst þessi góöa samvinna alla feröina. En hvaö dreif á daga þeirra frá því aö lagt var af staö þann 3. apríl og þangaö til akkeri var kastaö á ákvöröunarstaö þann 24. apríl? „Föstudagurinn 3. apríl rann upp og var ekki annaö aö sjá en veöriö héldist hiö besta áfram, en þarna búa sæfarar í stööugum ótta viö „mistral“-vindinn, sem getur blásiö stööugt svo dögum og vik- um skiptir. Reyndar var veöurstof- an búin aö spá miklum vindi af norövestan, sem geröi þaö aö verkum, aö viö ákváöum aö sigla noröur fyrir Korsíku til Elbu þar sem norövestanáttarinnar mundi ekki gæta eins austur af Korsíku og því hægara um vik aö leita vars. Við höföum varla veriö á siglingu í meira en klukkutíma, þegar skyndilega byrjaöi að hvessa. Áhöfnin haföi veriö að drekka te í mestu makindum, þegar diskar og bollar og annaö lauslegt tók aö rúlla til á borðinu. Var þá farið í aö rifa segl og gera klárt fyrir slæmt veöur. Um nóttina versnaöi veöriö enn. Lööurrákir tóku aö myndast í öld- urnar og holskeflur gengu yfir bát- inn. Ööru hverju blossuöu eldingar og lýstu allt upp. Þaö var sem sagt kominn versta norðanbræla á Miö- jaröarhafinu meö 9—10 stiga vindhraöa og nístingskulda af Alpafjöllunum. Ekki var laust viö, aö menn fyndu fyrir sjóveiki, eng- inn þó svo alvarlega aö hann yröi óvinnufær. Erfitt var aö lesa á kompás vegna kvikunnar, en stjörnubjart var svo viö gátum stýrt eftir stjörnunum og lánaöist okkur þannig aö halda stefnu. Viö vorum nú komin noröur fyrir Kors- íku og sigldum hraöbyri meö vind- inn fyrir aftan þvert undir lítilli fokku einu segla og stefndum á Elbu. Það kom sór vel, aö báturinn var útbúinn rúllufokku þannig aö viö þurftum ekki aö fara fram í predikunarstólinn til aö minnka forsegl. Undir morgun. Annan í páskum, þegar veörinu slotaöi, fórum viö yfir búnaö bátsins og öfluöum frétta í talstöðinni. Bæöi kurteisis- fáninn og „Q“-flaggiö voru horfin úr krosstrjánum í mastrinu og olli þetta okkur nokkrum áhyggjum þar sem þaö yröi mjög óvinsælt aö sigla inn í höfn á Elbu án þessara fána. Til þess aö komast hjá þrasi viö ítölsk yfirvöld var ekki um ann- aö aö ræöa en búa til fána og þaö strax. Hannyröir voru með í ferö- inni frá íslandi og þannig gátum viö meö nál og tvinna breytt gulum afþurrkunarklút í „Q“-flagg og meö rauöum þrottapoka, hvítu visku- stykki, sem límt var yfir að hálfu meö grænu límbandi, tókst okkur aö búa til ítalska fánann. Flotinn hafði splundrast. Þrír bátanna uröu aö snúa við rétt utan viö höfnina í Antibes vegna tækja- bilana og notaöi þá einn Bretinn tækifæriö, tók poka sinn og kvaddi. Hann haföi víst fengiö alvarlega sjóveiki strax á ytri höfn- inni í Antibes. Tveir bátar voru komnir til hafnar á Korsíku og sjöundi báturinn hafði snúiö við til Mónakó. Viö komumst ekki hjá aö senda þeim heilræöi þess efnis, aö varla yröi kampavíniö í Mónakó til þess aö lækna í þeim sjóveikina. Um sama leyti og viö vorum aö fá fréttir af samferöamönnum okkar, varö allt rauðglóandi í tal- stööinni. Var tilkynnt aö skipstjóri á svissneskri skútu heföi falliö út- byröis og bát hans með lítt reyndri áhöfn ræki stjórnlaust. Öll skip og bátar voru beöin aö hafa útkikk, þar sem „björgunarbátar" Frakka höföu oröiö aö snúa við vegna haf- róts. Skútan fannst fljótlega, en því miöur fannst skipstjórinn aldrei. Viö gátum ekkert aðhafst. Þaö var fariö aö skyggja þennan dag, þegar viö sigldum inn á höfn- ina í Porto Ferrario, sem er vina-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.