Morgunblaðið - 19.08.1983, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.08.1983, Blaðsíða 10
HVAD ER AD GERAST UM HELGINA? 42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 SÝNINGAR Kjarvalssýningin framlengd Um helgina lýkur sýningunni á nýjum listaverkum í eigu Reykja- víkurborgar í vestursal Kjarvals- staöa. Sýningin á málverkum Kjar- vals frá Þingvöllum í Kjarvalssal veröur hins vegar opin ögn lengur, eöa fram í miðjan september. Sú sýning hefur vakiö mikla athygli og veriö mjög vel sótt, enda getur þar aö líta ýmsa þá helstu dýrgripi sem Kjarval lét eftir sig. Sýningar eru opnar daglega frá kl. 14.00—22.00. Yfirlitssýning í Ásmundarsafni Síöastliðna mánuöi hefur staöiö yfir í Ásmundarsafni viö Sigtún yf- irlitssýning á höggmyndum eftir Ásmund Sveinsson myndhöggv- ara. En eins og kunnugt er ánafn- aöi listamaöurinn Reykjavíkurborg safn sitt og fjölda stórfenglegra listaverka eftir sinn dag. Sýningunni lýkur 31. ágúst næstkomandi og er því hver og einn aö veröa síöastur til aö skoöa jjetta merkilega yfirlit yfir listferil Ásmundar, sem er einnig gjöf lista- mannsins til Reykvíkinga. Ásmundarsafn er opiö daglega nema mánudaga frá kl. 14—17. Safniö veröur lokaö í septem- ber, en þá veröur unniö aö upp- setningu á nýrri sýningu á verkum eftir Ásmund. Áætlaö er aö sú sýn- ing opni 1. október. Sýningu Valtýs framlengt Sýningu myndlistarmannsins Valtýs Péturssonar í Þrastarlundi í Grímsnesi hefur nú verið framlengt til sunnudags. Á sýningunni, sem er sölusýning, eru tuttugu verk unnin úr olíulitum. Sýningin er tí- unda einkasýning Valtýs og er hún opin frá kl. 09.00—23.00. FERÐALÖG Feröir á vegum Úti- vistar Kl. 20 í kvöld veröa farnar þrjár helgarferöir á vegum Útivistar: 1. Lagagígar, 2. Hólmsárbotnar — Strútslaug — Emstrur og Þórs- mörk. Gist í nýja Útivistarskálan- um á Goöalandi. Á sunnudaginn veröa eftirfar- andi dagsferðir: Kl. 8.00 Þórs- mörk. Stansaö góöa stund í Mörk- inni. Kl. 9.00 Línuvegurinn. Ekiö um nýja öræfaleiö, sem liggur af Kaldadalsvegi noröan Skjaldbreið- ar og Hlööufells aö Gullfossi. Kl. 13.00 Hverakjálki — Grændalur. Létt ganga um litríkt svæöi austan viö Hengilinn. Ferðafélag íslands Á vegum Feröafélags Islands laugardaginn 20. ágúst kl. 09.00 veröur farin ökuferö um Þingvelli, Uxahryggi, Línuveginn aö Gullfossi og þaðan til Reykjavíkur. Sunnu- daginn 21. ágúst kl. 08.00 veröur gengiö á Kaldbaksfjall og í Hruna- krók, en fyrst er ekiö aö bænum Kaldbak í Hrunamannahreppi. Kl. 13.00 á sunnudaginn verður gönguferð aö Djúpavatni og Vig- dísarvöllum í Reykjanesfólkvangi og er þaö létt ganga. Farþegar mæta á Umferöarmiöstöðina og kaupa farmiöa viö bílinn. NVSV: Lágplöntur í nágrenni Reykjavíkur Sjöunda laugardagsferö Nátt- úruverndarfélags Suövesturlands veröur farin til kynningar á grasa- fræöisal fyrirhugaös Náttúrugripa- safns íslands. Skoöaöar veröa svokallaöar lágplöntur, þ.e. svepp- ir, fléttur og mosar. Þessum lífver- um hefur almenningur lítlnn gaum gefiö, enda hefur veriö erfitt aö afla fróöleiks um þær vegna þess Una Elefsen, sópransöngkona. Agnss Lðvs, pfanólsikari. Tónleikaferð um Norðurland Sópransöngkonan Una Elefsen og Agnes Löve, píanóleikari, fara um helgina í tónleikaferö um Noröurland. Halda þær tónleika á Siglufiröi á morgun, laugardag, kl. 17.00 í kirkjunni, en á Ólafsfiröi veröa þær meö tónleika í félagsheimilinu á sunnudag kl. 17. Mánu- daginn 29. ágúst halda þær síöan tónleika í tónlistarskólanum á Akureyri kl. 20.30. Auk ferðarinnar um Noröurland er fyrirhuguö ferö um Austurland seinna í sumar. Hallgrímskirkjumynd unnln úr sldspýtum. Eden: Steina- og eldspýtnaverk í Listamannaskálanum Nú stendur yfir í Listamannaskálanum í Eden í Hverageröi sýning Ragnheiöar Skarphéðinsdóttur frá Grundarfiröi. A sýningunni eru 37 myndir unnar úr litríkum steinum úr íslenskri náttúru, en einnig eru á sýningunni myndir geröar úr eldspýtum. Sýningin, sem er sölusýning, er önnur einkasýning Ragnheiöar og stendur hún til 29. ágúst. Light Nights í Tjarnarbíói Feröaleikhúsiö er nú í fullum gangi meö Light Nights-sýningar sínar og eru sýningarkvöld fjögur í viku, þaö er á fimmtudags-, föstu- dags-, laugardags- og sunnu- dagskvöldum. Hefjast sýningarnar kl. 21.00. Light Nights-sýningarnar eru færöar upp til fróðleiks ensku- mælandi feröamönnum. Efniö er íslenskt, en flutt á ensku, aö und- anskildum þjóölagatextum og kveönum lausavísum. Á milli atriöa eru sýndar skyggnur af verkum þekktra listamanna og jafnframt eru fluttar upptökur af íslenskri tónlist. Allt talaö efnl er flutt af Krlstínu G. Magnús leikkonu. að viö eigum ekki fullkomlö náttúrugripasafn. Leiösögumaður veröur Höröur Kristinsson grasafræöingur. Ferö- in veröur farin kl. 1.30 frá Norræna húsinu. Verö 150 kr., frítt fyrir börn. LEIKSÝNINGAR íslenska óperan: Síöustu sýn- ingar á sumarvöku Síöasta sýningarhelgi á sumar- vökum Islensku óperunnar er nú um helgina. Kór íslensku óper- unnar syngur íslensk þjóölög undir stjórn Garðars Cortes. Tveir ein- söngvarar koma fram og syngja nokkur lög eftir íslenska höfunda, þau Kristinn Sigmundsson og Signý Sæmundsdóttir. i hléi er myndlistarsýning á efstu hæö opin. Landslagsmyndir eftir þá Ásgrím Jónsson, Jón Stefáns- son og Jóhannes Kjarval. Á stiga- göngum er vefnaöur eftir Vigdísi Kristjánsdóttur. Á efstu hæö er einnig sala á kaffi og rjómapönnu- kökum í hléi. Eldeyjan, kvikmyndin „Days of Destruction", sem Kvik hf. gerði áriö 1973 um Heimaeyjargosið. Auk þessarar kvöldvöku eru kvikmyndir á föstudögum og laug- ardögum kl. 18 og sunnudaga kl. 21. Auk myndarinnar frá Heima- eyjargosinu eru sýndar kvik- myndirnar „Three Faces of lce- land“ eftir Magnús Magnússon, frá árinu 1974 og „From the lce Cold Deep“, gerö áriö 1981 af Lifandi myndum hf. „Blumen“ í Ásmundarsal Gríski listamaöurinn Michou sýnir um helgina tvo „performanc- es“ svokallaöa, þ.e. gjörninga með blómum. Veröa sýningarnar á morgun og sunnudag kl. 17.00. Honum til aöstoöar er Pétur Ein- arsson. Stúctentateikhúsið: Þrjár sýningar á Elskendunum um helgina Stúdentaleikhúsiö sýnir nú leik- rit Jean Tardieu „Elskendurnir í Metró“ í þýöingu Böðvars Guö- mundssonar. Leikritiö gerist á neöanjaröarlestarstöö og i lestar- vagni. Dregur höfundur upp ýkta mynd af þeim persónum sem þar mætast. Og í miöju mannhafinu kljást svo elskendurnir. Leikendur eru 18, en alls standa um 40 manns aö sýningunni. Leik- stjóri er Andrés Sigurvinsson, Karl Aspelund geröi leikmynd og bún- inga. Leikhljóö og tónlist samdi Kjartan Ólafsson, en þeir Lárus Björnsson og Egill Arnarson önn- uöust lýsingu. Þrjár sýningar veröa á Elskend- unum um helgina, í kvöld, á morg- un, laugardag, og á sunnudags- kvöld. Hefjast þær allar kl. 20.30. sýnir í Djúpinu í Djúpinu stendur yfir sýning Jóns Þórs Gíslasonar á 17 olíumál- verkum sem öll eru unninn á þessu sumri. Þetta er fyrsta einkasýn- ing Jóns Þórs, en hann hefur áöur tekiö þátt í fjölda samsýninga. Sýningin er opin alla daga frá kl. 11—23.30 og er sölusýning. Henni lýkur þann 4. september.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.