Morgunblaðið - 19.08.1983, Blaðsíða 18
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983
Raunir föður vegna
tískuglaðrar dóttur
í aprílhefti bandariska tískublaösins „Vouge“ birt-
ust myndir af all nýstárlegum klæðnaöi, sem mörgu
venjulegu fólki fannst sem skopmynd af fatnaði, svo
ekki sé meira sagt.
Um þaö vitnuðu bréf sem útgefendum barst frá
lesendum úr öllum áttum og birt voru í næsta blaði
á eftir. Druslutíska, ræflatíska eöa hvað ætti helst aö
kalla þetta fyrirbrigöi?
En í júlíblaöi sama tímarits birtist bréf frá föður,
sem segir farir sínar ekki sléttar og telur fjölskylduna
hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni, sem rakiö er í smá-
atriðum, vegna tilrauna heimasætunnar til aö líkjast
fyrirmyndunum í blaðinu.
Þaö sem fór í aö búa til klæönaöinn voru t.d. fjögur
góö lök, sem lituð voru steingrá og síöan klippt á þau
allskonar göt samkvæmt fyrirmyndinni og þykir mann-
inum slæmt aö þurfa aö endurnýja þau. En þaö sem
verra var, konan í næsta húsi fékk áfall þegra hún sá
stúlkuna svona klædda í rökkrinu viö hús sitt, hélt
þetta væri vera frá öörum hnetti, býst hann jafnvel viö
málshöföun á hendur þeim. Til aö kóróna þetta allt
saman réöst hundur nágranna hans á stúlkuna þegar
hún gekk fram hjá á leið til mannfagnaöar um kvöldiö.
Faöirinn telur sig bóta þurfi og er aö hugsa um aö
senda tímaritinu sundurliðaðan reikning viö fyrsta
tækifæri!
Eitthvað í þessa átt hefur unga
stúlkan, sem fjaðrafokinu olli, lit-
ið út. Það er von að manninum
hafi þótt nóg um.
Rabarbaraterta
Sumarkökur
Margir eru þeir sem frysta
rabarbara í pokum og taka fram
þegar nota þarf, þessi kaka þarf
því ekki að miöast við sumar-
tíma eingöngu.
Rabarbaraterta
Hnoðað deig:
300 gr. hveiti
200 gr. smjörlíki
100 gr. flórsykur
2 eggjarauður
Gerið ykkur dagamun
og njótið kvöldsins
í Nausti
Kvöldverður Dinner 19. ágúst 1983.
FORRÉTTUR:
Gratíneraður hörpuskelfiskur með ristuðu brauði og
sítrónu.
AÐALRÉTTIR:
Ofnsteikt Peking-önd. með rósakáli, Parisarkartöfl-
um og appelsínusósu.
— eða —
Hvítlaukskryddtað lambalœri með bakaðri kartöfiu
og rjómalagaðri piparsósu.
EFTIRRÉTTUR:
Blandaður ís með kirsuberjalíkjör og þeyttum rjóma.
Hljómsveitin Haukar
leikur fyrir dansi
60 ára afmælishátíð
Sambandsiðnaðarms
á Akurcyri
laugardagmn 20. ágúst 1983
Hátíðarhöld á verksmiðjulóðinni, veitingar og skemmtiatriði í Félagsborg á vegum
Iðnaðardeildar Sambandsins og Starfsmannafélags verksmiðja Sambandsins.
Dagskrá:
Kl. 12.30-14.45 Kl. 15.30
Verksmiðjukynning fyrir almenning, þar sem ullar-
iðnaður, skinnaiðnaður og fataiðnaður opna upp á
gátt og sýna „hvernig farið er að þessu".
Kl. 14.30
Veitingar bornar fram i Félagsborg.
Tískusýningar með starfsfólk í aðalhlutverkinu og
myndbandasýning um starfið í verksmiðjunum sem
tekin var í þessum mánuði.
Lúðrasveit Akureyrar leikur við Þorsteinsklett. Kl. 12.30 — 17.00
Kl. 15.00
Hátíðin sett: Júlíus Thorarensen form. Starfsmanna-
félags verksmiðjanna.
Hátíðarræða: Hjörtur Eiríksson, framkv.stj. Iðnaðar-
deildar.
Vígsla Þorsteinslundar og afhjúpun koparskjaldar
þar, í vírðingarskyni við starfsfólk verksmiðjanna, fyrr
og síðar.
Kveðjur fluttar.
Reiptog verkstjóra úr ullar- og skinnaiðnaði, en sig-
urvegarar keppa síðan við félaga sína úr fataiðnaði.
Þá má ekki gleyma keppni ráðamanna í ullar-,
skinna-, fata og fjármáladeildum í því, hver teygir
lopann lengsti! Um þessi atriði duga ekki fleiri orð.
Sjón verður sögu ríkari.
Börnin verða heiðursgestir á þessari hátíð. Áætlað er
að loka götunni milli gömlu og nýju Sútunar og setja
þar upp ýmis leiktæki. Trúðar bregða á leik jafnt á
jörðu niðri, sem þökum uppi og 60 gasfylltum blöðr-
um verður sleppt.
í Félagsborg verða myndbandasýningar á ýmsu efni
við smekk smáfólksins og veitingar við hæfi.
Við heitum á starfsfólk verksmiðjanna, fjölskyldur
þeirra, aðra Akureyringa og bændur og búalið úr
nærsveitum að fjölmenna á þessa afmælishátíð iðn-
aðarins okkar allra og gera þetta í leiðinni að veglegri
fjölsky Iduhát íð.
UNDIRBUNINGSNEFND
STARFSMANNAFÉLAGS
OGIÐNAÐARDEILDAR