Morgunblaðið - 30.09.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1983
49
fclk í
fréttum
Simon og Garfunkel
með tónleika og plötu
stytti þó upp. Hljómburðurinn
var víst ekki nógu góður, en fólk
skemmti sér konunglega. Þeir
léku mest gömul lög: Cecilia,
Mrs. Robinson, E1 Condor Pasa
og annað því um líkt, en einnig
lög af nýju plötunni, sem er að
koma út í V-Evrópu um þessar
mundir. Einn gagnrýnandi skrif-
aði eftir tónleikana að það hefði
virst fara vel á með þeim félög-
um. Hann hélt þó jafnvel að það
hefði verið sett á svið og þeir
hefðu komið fram saman fyrst
og fremst til að vekja athygli á
og ýta undir sölu nýju plötunnar.
ab.
Paul Simon og Art Garfunkel eru komnir af léttasta skeiði og flest
lögin þeirra voru samin á sjöunda áratugnum. En það virðist ekki draga
úr vinsældum þeirra. Þeir voru nýlega í Vestur-Evrópu og héldu tónleika
í Basel og Nizza. Rúmlega 50.000 miðar á tónleikana sem voru haldnir á
íþróttaleikvanginum í Basel seldust upp á svipstundu. Sérstakar lestar-
ferðir voru farnar með áheyrendur víðs vegar að á tónleikana og þýsku-
mælandi útvarpsstöð í Sviss gerði sér lítið fyrir og lýsti yfir „Simon og
Garfunkel degi“ og spilaði músík með þeim í marga klukkutíma.
Þeir félagar voru upp á sitt komu fram í Central Park í New
besta í kringum 1970. Platan
Bridge Over Troubled Water
kom þá út og seldist í milljónum
eintaka. Þeir fóru skömmu eftir
það hvor í sína áttina og reyndu
fyrir sér í kvikmyndum og á
sólóplötum. Eftir um tíu ára hlé
tróðu þeir aftur upp saman og
York fyrir tveimur árum. Tón-
leikarnir gengu svo vel að þeir
fóru í Evrópuferð ári seinna og
undirbjuggu nýja plötu.
Það rigndi daginn sem þeir
héldu tónleikana í Basel, að
þessu sinni frá morgni til kvölds.
Þegar þeir stigu fram á sviðið
Þúsundir Frakka svara
fyrir leynileg bankahólf
París, 28. aeptember. AP.
FRANSKA tollgæslan hefur kom-
ist yfir lista yfir meira en 5.000
franska ríkisborgara sem eiga
ólöglegar innistæður í leynilegum
bankahólfum í Sviss. Það var
franska blaðið Le Canard Encha-
ine sem greindi frá þessu í síðasta
vikublaði sínu.
Greinarhöfundur franska blaðs-
ins gat ekki um hvaðan hann hefði
heimildir sínar, en lögregíu- og
tol lgæsluyf i rvöld í Frakklandi
neituðu að svara því hvort frétt
blaðsins væri röng. Sagði blaðið að
tollgæslan hefði fengið eftir leyni-
legum leiðum þrjá dulmálslista
með nöfnunum. Bætti blaðið jafn-
framt við, að þegar hefði verið
haft samband við marga þá sem á
listunum voru og hefðu flestir við-
urkennt að eiga hlut að máli.
Reglur í Frakklandi varðandi
flutning gjaldeyris úr landi eru
mjög strangar og viðurlögin við
brotum einnig. Loks boðaði blaðið
að fleiri myndu flækjast í málið
áður en yfir lyki, því enn ætti eftir
að leysa hluta dulmálsins.
Talsmenn svissneska seðlabank-
ans hafa látið hafa eftir sér, að
það sé gersamlega útilokað að list-
arnir séu ófalsaðir. „Listar sem
þessir eru ekki til, því hljóta um-
ræddir listar að vera falsaðir,"
sögðu þeir og staðfestu að sögn
blaðsins að lögreglan hefði eitt-
hvað í höndunum sem réttlætti
rannsókn.
Talið er að þetta mál sé mikið
reiðarslag fyrir svissneska banka-
kerfið, sem hefur stært sig af því
og dafnað á leynd og aftur leynd
varðandi viðskiptavini sína.
+ TennLsstjarnan Martina Navratilova, heldur hér á bikarnum, sem
hún hlaut fyrir að sigra í einliðaleik kvenna í Opna bandaríska
meistaramótinu í tennis. Er þetta í fyrsta sinn, sem Navratilova vinnur
til þessara verðlauna, en heita má að hún hafi verið ósigrandi í tennisn-
um að undanfornu.
OPIÐ TILKL.10
cRAiieir
GRÆNMETISBLANDA
frá K. Jónssyni
30% AFSLÁTTUR.
KAABER KAFFI
i 24 kr. pk.
HANGIFRAMPARTUR
71,80 Kr/k<
UNGHÆNUR 5 stk.
73.50 Kr/kg.
SMJÓRVI
56,80 Kr
HREINDÝRAKJÖT
í ÚRVALI.
Nýtt ófrosii líiminikjot.
NÝTT KINDAHAKK
99.00 kr.
ÚTHAFSRÆKJA
99.50 kr.
HELGARRÉTTURINN:
Kryddaður (amba-framhrvqqur
98.00 krJkq.
SLATUR:
3 slátur á 336 kr.
5 stk. í kassa: 498.- kr.
M/S kytmir nýju sósunutr.
ELDHÚSRÚLLUR
2 stk. 38.00 kr.
WC PAPPÍR
4 H. 27,25 kr.
Vörumarkaöurinn hf.
ÁRMÚIA 1a EIÐISTORG111