Morgunblaðið - 19.10.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.10.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983 21 iu þriðja árið í röð óðhagsspár 1983 og þjóðhagsáætlunar 1984. Milljaröar króna á vcrðlagi hvors árs t'jóðhags- Spá áa-tlun 1983 1984 34 240 41420 6 575 7 670 13 300 15 140 1 (K) 0 54 215 64 230 27 500 33 030 28 650 33 130 - I 150 - KMI Magnhrcytingar frá fyrra ári. %') Þjóðhags- Spá áictlun 1983 1984 - 9.0 - 4.0 0.0 - 2.0 - 10.0 - 5.5 - 3.3 - 0.2 - 10.9 - 4.3 7.8 3.5 - 6,2 - 0.3 53 065 64 130 - 5.5 - 2.4 56 425 68 230 - 4.3 -.1.7 1.6 0.0 - 3.9 - 2.4 rið 1983 cru miðaðar við fast vcrðlag ársins 1982 cn magnbrcytingar í rðlag ársins 1983. igar varða mismun brcytinganna milli ára og cru rciknaðar scnt hlutlöll af ra árs. (þ.e. að halda aukningu peninga- magns og útlánum banka innan eðlilegra marka), hófsemd í erlend- um lántökum og verulegum sam- drætti í ríkisútgjöldum. Staða atvinnuvega verður áfram erfið, ekki sízt sjávarútvegs, sem m.a. á rætur í því „að afkastageta flotans er mikiu meiri en samsvarar aflabrögðum nú. Leitað er leiða til lausnar á þeim vanda", segir i þjóð- hagsáætlun. ís í Banda- st frá í fyrra ari okkar aðalafurð á Bandaríkja- markaði, en ég er hræddur um að arftakarnir hafi ekki náð að feta í hans fótspor. Og ég þykist geta full- yrt, að stórmikilvægir markaðir sem hefði verið ástæða til að vinna mikið á hafa verið látnir lönd og leið, eins og til að mynda Vestur- Evrópu-markaðurinn. Ég er þá ekki sérstaklega að tala um eylandið England, þeir hafa hreyft sig þar. Eg sagði í ræðu minni að þeir myndu þá hrekja ummæii mín ef þeir hefðu rök til, en enn sem komið er verð ég lítt var við annað en þess- ar upphrópanir. Ég krefst þess að umræða verði um þessi mál og við fáum skilgóðar skýringar á allri stöðu mála og að við hefjum nýja sókn því salan á fiskframleiðslunni er okkar mikilvægasta verkefni. Við þurfum að hefja nýja sókn, því menn hafa sofið á verðinum. Sverrir var í lokin spurður hvort stjórnvöld hygðust hefja viðræður við þessa aðila, og hvernig umræður hann hefði í huga. „Ég hef engar ráðagerðir um það nú. Ég ætla að sjá hvernig umræðan snýst, í hvaða farveg hún fellur og hvort hún verð- ur ekki til góðs," sagði Sverrir Her- mannsson að lokum. Ljósm. Mbl. Friðþjófur Helgason. Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra t.h. gengur með Ragnari Halldórssyni for- stjóra ÍSAL í kerskála álversins f Straumsvík. Sverrir heimsótti álverið sl. föstudag, daginn eftir.að starfsmaður ÍSAL hvatti hann á stjórnmálafundi í Hafnarfirði til að koma í heimsókn, þó ekki væri nema til að kynnast menguninni af eigin raun. 1 Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson lestuð áburði og grasfræi fyrir næsta flug. MorgunbUðið/ kee. Áburðardreifing Landgræðslunnar: Gekk illa í sumar vegna óhagstæðs tíðarfars ÁBURÐARDREIFING Landgræðslunnar gekk afar illa f sumar vegna óhagstæðs tíðarfars, að sögn Stefáns H. Sigfússonar landgræðslufulltrúa. Sagði Stefán að ekki hefðu verið flugskilyrði dag eftir dag og hefði tekið jafn langan tíma að dreifa þeim áburði sem dreift var í sumar og tekið hefði að koma út helmingi meira magi fyrir nokkrum árura. Landgræðslan er með tvær flug- vélar í áburðardreifingunni, TF- NDK (Páll Sveinsson) og TF-TUN sem er minni vél af Piper-gerð. Páll Sveinsson dreifði 1.088 tonnum af áburði og fræi á tímabilinu 13. júní til 3. ágúst en minni vélin dreifði 461 tonni á tímabilinu 19. maí til 22. júlí. Fyrir Blönduvirkjun var dreift 236 tonnum af áburði og fræi en um 40% af áburðar- og frædreifingunni er á friðuð landgræðslusvæði sem Land- græðslan kostar að öllu leyti upp- græðslu á, en um 60% er önnur upp- græðsla sem í flestum tilvikum er unnin í samvinnu við bændur og sveitarfélög og er þá algengt að við- komandi aðili greiði 50—100% áburðarins en Landgræðslan leggur ávallt flugið til. Stefán sagði að áburðarmagnið sem hægt væri að dreifa færi alltaf minnkandi vegna þess að úr minni peningum væri að spila en áður, auk þess sem áburðurinn hefði hækkað mikið í verði. Atvinnuflugmenn flugu Páli Sveinssyni í sjálfboða- vinnu í sumar eins og þeir hafa gert síðan Landgræðslan eignaðist vélina og tóku um 30 flugmenn þátt i starf- inu í sumar. Eggert Jónsson borgarhagfræðingur: Atvinnuleysi á íslandi mun aukast á næstu árum — Hvort sem fjöldi starfa svarar til fjölda fólks á vinnumarkaði eða ekki ATVINNULEYSI hér á landi mun fara vaxandi á næstu árum, hvort sem fjöldi starfa á vinnumarkaðnum svarar til fjölda vinnufærra manna hverju sinni eða ekki, kom meðal annars fram í erindi er Eggert Jónsson, borgarhagfræðingur, flutti á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Borg- arhagfræðingur kvaðst byggja þessa skoðun sína á því, að á næstunni muni afköst vaxa hraðar en störfum fjölga hægar en ráð hafl verið fyrir gert, auk þess sem atvinnulíflð verði fjölbreyttara og flóknara með þeim afleiðingum að fólk geti ekki í jafn ríkum mæli og áður gengið í hvers annars störf. Ræðu sína nefndi Eggert Jónsson „Ný viðhorf í atvinnumálum á höf- uðborgarsvæðinu", og sagði hann reynslu sína í störfum fyrir atvinnu- málanefnd Reykjavíkur síðan 1971 gera sér kleift að halda því fram að ný viðhorf væru nú uppi í atvinnu- málum. Ný og breytt viðhorf væru að skapast á grundvelli nýrrar tækni í grónum atvinnugreinum, aukinna afkasta og tækifæra til nýsköpunar. Eggert sagði, að vafalaust héldu margir, að ekki væri mikið svigrúm til breytinga, þegar illa árar eins og nú, en staðreyndin væri þó sú að þessu væri þveröfugt farið. Aldrei sé að vænta meiri breytinga en þegar illa ári, vegna þess að örugg lífsaf- koma hvetji menn yfirleitt ekki til að leita nýrra leiða til að bæta stöðu sína. Þegar úr örygginu dragi, þá þurfi menn á hinn bóginn á öllu sínu að halda, öllu sínu frumkvæði til að halda stöðu sinni og hreinlega til að bjarga sér. Eggert sagði, að enginn mætti skilja orð sín á þann veg að hann væri að fagna slíku eða að hvetja til þess að gripið yrði til „frumskógarlögmála" í einni eða annarri mynd, heldur væri það stað- reynd, hvort sem mönnum líkaði betur eða verr, að sú tækni, sem nú er að ryðja sér til rúms í atvinnulíf- inu með notkun hvers kyns rafeinda- búnaðar til sjós og lands, yrði fyrr á ferðinni en orðið hefði í góðu árferði. Afköst muni því vaxa hraðar en störfum fjölga hægar og atvinnulffið verða flóknara með þeim afleiðing- um að fólk muni eiga erfiðara og erfiðara með að flytja sig milli starfa, eftir því sem eftirspurn er í einstökum atvinnugreinum frá ein- um tíma til annars. Þetta muni leiða til aukins atvinnuleysis á næstu ár- um, án tillits til þess hvort fjöldi starfandi fólks á vinnumarkaði svari til lausra starfa. Þessi þróun sé þeg- ar vel þekkt erlendis, og rétt sé að vekja athygli á að atvinnuleysi í nágrannalöndum okkar, svo sem Þýskalandi, Bretlandi og á Norður- löndum, sé yfirleitt meira en tölur gefi til kynna. Þróunin sé þegar komin hingað til lands, því skráð atvinnuleysi sé meira á þessu ári en verið hafi, eink- um meðal verslunarfólks. Á sama tíma fáist ekki fólk til fiskvinnslu, en það sé eðlilegt, að fólk á miðjum aldri eigi erfitt með að taka sig upp eftir áratuga störf í verslunargrein- um og fara í fiskverkun. Þetta sé upphaf þróunar sem sé vel þekkt er- lendis, og lítið sé unnt að gera til að sporna við fótum, en vonandi sé að atvinnuleysið bitni ekki ætíð á hin- um sömu. Verðtrygging eftir sem áður bezta ávöxtunin — segir Bjarni Bragi Jónsson, hagfræðingur Seðlabankans „ÞAÐ ER MJÖ(i villandi að tala um að verðtryggðir innlánsreikningar séu slæm ávöxtun. Hún verður eftir sem áður hagstæðasta ávoxtunin," sagði Bjarni Bragi Jónsson, hagfræðingur Seðlabanka íslands, í samtali við Morg- unblaðið, er hann var inntur álits á þeim ummælum Tómasar Tómassonar, sparisjóðsstjóra í Keflavík, að mistök hefðu átt sér stað við framkvæmd vaxtalækkunar á dögunum og verðtrygging væri orðin versta ávöxtunarleið- in. „Ef málið er skoðað í heild sinni kemur í ljós, að lánskjaravístala hækkaði um 8,1% í ágúst, sem jafngildir um 154,6% ávöxtun á ársgrundvelli. Síðan minnkaði verðbólgan verulega í september og hækkun lánskjaravísitölu var um 1,4%, sem jafngildir um 18,2% ávöxtun á ársgrundvelli," sagði Bjarni Bragi ennfremur. „Hækkun lánskjaravísitölunnar verður síðan væntanlega um 3,1% í október, sem jafngildir um 44,3% ávöxtun á ársgrundvelli, sem er betri ávöxtun, en hún getur bezt orðið á almennum innlánsreikn- ingum. Þá bendir allt til þess, að hækkun lánskjaravísitölunnar í nóvember verði eitthvað liðlega 2,2%, sem jafngildir liðlega 30% ávöxtun á ársgrundvelli," sagði Bjarni Bragi. Bjarni Bragi sagði að vextir á almennum sparisjóðsbókum væru 35%, vextir á 3ja mánaða reikn- ingum 40,4% og vextir á 12 mán- aða reikningum 42,8%. „Síðan má reikna með enn frekari lækkun vaxta á næstunni í samræmi við stefnu þá, að aðlaga vexti að lækk- uðu verðbólgustigi," sagði Bjarni Bragi Jónsson, hagfræðingur Seðlabankans ennfremur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.