Morgunblaðið - 19.10.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
29
Aðför sjálfstæðismanna að
fræðslustjóranum í Reykjavík
- eftir Gerði
Steinþórsdóttur
Á síðasta fundi borgarstjórnar,
6. október, gerði ég að umræðuefni
framkvæmd á „tilraunakennslu" 5
ára barna í Álftamýrarskóla sem
ég taldi dæmigerða fyrir vinnu-
brögð núverandi meirihluta.
Á fundi fræðsluráðs tæpum
hálfum mánuði áður hafði rri.a.
komið fram að formleg heimild lá
ekki fyrir frá menntamálaráðu-
neyti en Ragnar Júlíusson, skóla-
stjóri og fraéðsluráðsmaður, sagð-
ist hafa munnlega heimild ráð-
herra. í lok ræðu minnar í borgar-
stjórn varpaði ég fram spurningu
til Ragnars hvort hann hefði núna
bréfið frá ráðuneytinu. Ragnar
varði sig á stórmannlegan hátt.
Hann hefði ekkert bréf fengið en
það væri vanrækslu fræðslustjór-
ans í Reykjavík að kenna. Van-
rækslan átti að vera fólgin í því að
hafa ekki fylgt eftir samþykkt um
kennslu 5 ára barna þar sem ekki
var eining um hana í fræðsluráði.
Hér er um yfirvarp að ræða eins
og sýnt verður fram á.
Formaður fræðsluráðs, Markús
Örn Antonsson, tók í sama streng
og Ragnar og ásakaði Áslaugu
Brynjólfsdóttur fræðslustjóra
fyrir það að hafa ekki falið um-
sjónarkennara forskóladeildar
umsjón með kennslu 5 ára barna.
Mér er spurn: Bar fræðslustjóra
að gera það meðan engin formleg
heimild var fengin fyrir rekstri
deildarinnar? Hefði það ekki verið
brot í starfi?
Tvö ólík mál
Nú hefur Markús örn Antons-
son ritað grein í Morgunblaðið 13.
október þar sem hann leggur út af
hluta af svari Áslaugar Brynj-
ólfsdóttur í Tímanum 8. okt. Til-
efnið var tvö bréf sem hún skrifaði
ráðuneytinu og Ragnar Júlíusson
hampaði á fundi borgarstjórnar,
annað um kennslu 5 ára barna,
hitt um blindradeild.
Markús telur að svar fræðslu-
stjóra sýni að hún fylgi ekki eftir
af fullum þunga samþykktum
sjálfstæðismanna við ráðuneytið,
nema fulltingi alls fræðsluráðs
komi til. Reyndar segir Áslaug í
viðtalinu — sem er ekki tekið upp
UNDANFARIN ir hefur Bifreiðaeft-
irlit ríkisins staðið fyrir námskeiðum
í Ijósaskoðun bifreiða.
Iðnskólinn í Reykjavík hefur
einnig um árabil kennt nemum sín-
um í verknámsdeild bifvélavirkja
Ijósaskoðun. Hefur sú kennsla þró-
í grein Markúsar — að hún hafi
ítrekað gengið eftir samþykki
menntamálaráðuneytis varðandi
kennslu 5 ára barna.
Staðreyndin er sú að hér er um
tvö ólík mál að ræða og vinnuregla
núverandi fræðslustjóra engan
veginn ný af nálinni i fræðsluráði
Reykjavíkur.
Blindradeildin var þegar sam-
þykkt í ráðuneytinu. Hér var ekki
um nýjung að ræða, heldur leitað
staðfestingar á flutningi milli
skóla og greiðslu ráðuneytis vegna
breytinga á húsnæði. Varðandi 5
ára deildina sendi fræðslustjóri
tillöguna til ráðuneytisins tveimur
dögum eftir samþykkt hennar i
fræðsluráði, og má segja að
fræðslustjóri hafi brugðist skjótt
við. Almenn vinnuregla fræðslu-
stjóra er að senda tillögur
fræðsluráðs athugasemdalaust til
ráðuneytisins, hvort sem þær eru
samþykktar samhljóða eða ekki en
fylgja þeim síðan eftir í ráðuneytinu.
Vil ég taka sem dæmi samhljóða
samþykkt í fræðsluráði um III.
áfanga Hólabrekkuskóla. Þetta
sama vinnulag hafði fyrrverandi
fræðslustjóri, Kristján J. Gunn-
arsson, þ.e. að senda tillögur
fræðsluráðs hlutlaust til ráðu-
neytisins, og var hann þó ekki
sakaður um vanrækslu í starfi. Vil
ég nefna bréf Kristjáns til
menntamálaráðuneytis í sept.
1982 um aukið kennslumagn 6 ára
barna.
Núverandi og fyrrverandi
fræðslustjórar hafa haft sama
hátt á í samskiptum við ráðuneyt-
ið.
Nú loks hefur fengist formleg
heimild ráðherra „að umrædd
kennsla fari fram i tilraunaskyni
skólaárið 1983—1984.“ Furðulegt
má teljast hversu langan tima það
tók hinn dugmikla fræðsluráðs-
fulltrúa, Ragnar Júlíusson, að fá
skriflegt svar eftir að munnleg
heimild var fengin. Þegar haft er í
huga að Sjálfstæðisflokkurinn
hefur haft menntamálaráðherra í
fjóra mánuði vekur tregða ráðu-
neytisins þá hugsun að fleira komi
til en „vanræksla fræðslustjóra".
Getur verið að ráðuneytið hafi ef-
ast um ágæti tilraunar sem engin
tilraun er?
Kjarni málsins er hins vegar sá
að sjálfstæðismenn þola enga
embættismenn í kringum sig
nema þeir séu sjálfstæðismenn.
ast þannig að Bifreiðaeftirlitið viður-
kennir nú sveinspróf í bifvéiavirkjun
sem rétt til Ijósaskoðunar.
Að tilstuðlan Bílgreinasam-
bandsins og Bifreiðaeftirlits ríkis-
ins hafa námskeið í ljósaskoðun
fyrir eldri bifvélavirkja og
„Sjálfstæöismenn reka
Reykjavíkurborg eins
og einkafyrirtæki
flokksins, en með meiri
hörku en áður hefur
tíðkast, eins og glögg-
lega kemur fram þessa
dagana í aðförinni að
Áslaugu Brynjólfsdóttur
og Björgvini Guð-
mundssyni, forstjóra
Bæjarútgerðarinnar.“
Þess vegna veitast þeir nú að Ás-
laugu Brynjólfsdóttur með lág-
kúrulegum hætti. Aldrei fyrr
höfðu slík ummæli um embætt-
ismann fallið í borgarstjórn.
Hefði yfirstjórn
verið breytt ...
Markús Örn Antonsson telur
bréfaskriftir fræðslustjóra og svör
í Tímanum besta rökstuðninginn
fyrir því að ráðherra staðfesti til-
lögur um breytta yfirstjórn
fræðslumála í Reykjavík, en til-
lögurnar lágu fyrir í marslok.
Bæði Markús Örn og Ragnar Júlí-
usson áttu þátt í mótun þeirra og
mæltu síðan með þeim í fræðslu-
ráði þegar umsagnar ráðsins var
leitað! Borgarstjórn samþykkti
síðan tillögurnar fyrir sitt leyti
þrátt fyrir það að fyrir lá álit
virtra lögfræðinga þess efnis að
tillögurnar stæðust ekki að lögum.
Meirihluti fræðsluráðs skaut
sér á bak við þessar tillögur þegar
ráðuneytið óskaði eftir umsögn
um skipun Áslaugar Brynjólfs-
dóttur í embætti fræðslustjóra.
Bragi Jósepsson, sem átti aðild að
mótun tillagnanna, viðurkenndi
að þessi tvö mál væru aðgreind og
lét bóka: „Ég tel að fyrirhugaðar
breytingar á skipulagi Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur gefi ekki
tilefni til frestunar á skipun
fræðslustjóra í embætti."
Nú væri gaman að velta fyrir
sér hvernig málið hefði verið af-
bifreiðasmiði nú einnig verið flutt
inn í Iðnskólann. Verða þau fram-
vegis haldin á vegum skólans und-
ir handleiðslu bifreiðaeftirlitsins.
Fyrsta námskeið Iðnskólans af
þessu tagi var haldið laugardag-
inn 17. sept. 1983.(Fréttatilkynning.)
Geróur Steinþórsdóttir
greitt eftir hinu nýja skipulagi.
Tillagan hefði komið fram í skóla-
nefnd. Þar sem hún hefur kostnað
í för með sér sem ríkið greiðir,
hefði orðið að vísa henni til
fræðsluráðs Reykjavíkurumdæm-
is — sem í sitja sömu menn — og
fræðslustjóra sem framkvæmda-
stjóra þess. Breytingin hefði því
ekki einfaldað málið eins og for-
maður fræðsluráðs lætur í veðri
vaka
Dæmalaus undirbún-
ingur við kennslu
5 ára barna
Formaður fræðsluráðs ræðir í
grein sinni um tilteknar aðgerðir
„í skólamálum Reykvíkinga sem
til nýjunga og framfara horfa" og
hefur þá í huga 5 ára deildina I
Álftamýrarskóla.
Tillaga sjálfstæðismanna um
þessa kennslu var samþykkt með 5
atkvæðum gegn 2 í fræðsluráði 28.
mars, viku eftir að hún var lögð
fram þar. í ljósi eftirleiksins
hljómar tillagan eins og hver önn-
ur skrýtla. Hún hefst svo:
„Fræðsluráð samþykkir að á
hausti komanda verði gerð tilraun
með skólastarf 5 ára barna í
a.m.k. einum af grunnskólum
borgarinnar." Orðið tilraun hefur
valdið margháttuðum misskiln-
ingi. Á síðari stigum hefur for-
maður fræðsluráðs talað um nýj-
ung og nýbreytni, enda greiðir
ráðuneytið almenna kennslu að
fullu, en aðeins að hálfu sé um
tilraun að ræða. Nýjung er ekki
heldur rétt orð því að 5 ára deildir
hafa verið starfræktar um árabil í
tveimur skólum. Síðan kemur:
„Skólatími þessara barna verði
hinn sami og í deildum 6 ára
barna. Jafnframt felur fræðsluráð
nefnd þeirri er fjallað hefur um
málefni forskólanema að gera
starfsáætlun fyrir þennan hóp
nemenda og leggja fyrir til sam-
þykktar. Þá felur fræðsluráð
skólastjóra Álftamýrarskóla —
þar sem gert er ráð fyrir að til-
raun þessi fari af stað — umsjón
með henni af sinni hálfu.“ Raunin
varð sú að nefndin kom aldrei
saman og lýsti einn nefndarm-
anna því yfir á fræðsluráðsfundi í
sept. að hann hefði ekki haft
hugmynd um þessa samþykkt. í
bréfi úmsjónarkennara forskóla-
deildar kemur fram að nota átti
námsefni 6 ára deildar fyrir 5 ára
börnin, en umsjónarkennarinn
hafði neitað. Lokaorð tillögunnar
Nemendur á fyrsta Ijósaskoóunarnimskeiði Iðnskólans ásamt kennara og fulltrúum Bifreiðaeftirlitsins, Bílgreina-
sambandsins og Iðnskólans.
Fyrsta Ijósaskoðunarnámskeið Iðnskólans
eru: „Fræðsluráð samþykkir að
óska heimildar borgar og ríkis til
þessarar tilraunar og jafnframt
að ríkið greiði kennslulaun með
sama hætti og í deildum 6 ára
barna.“ Tillagan hafði aðeins hlot-
ið samþykki borgarstjórnar.
Framkvæmd þessa máls er því öll
með eindæmum.
í bókun kennarafulltrúanna
þriggja við afgreiðslu málsins í
fræðsluráði segir m.a.: „Nefnd
sem starfaði á vegum mennta-
málaráðuneytisins að úttekt og
tillögugerð varðandi forskólastarf
hér á landi, komst að þeirri niður-
stöðu að vandlega athuguðu máli,
að eðlilegt væri að skilja milli
grunnskóla og dagvista við 6 ára
aldurinn." Undir þessi sjónarmið
tóku stjórnir Fósturfélags íslands
og Kennarasambands Islands í
bréfi til borgarráðs. Athygli vekur
að Markús greinir hvergi í grein
sinni frá þessu áliti.
Á fundi fræðsluráðs í september
vísaði ég ásamt Elínu Ólafsdóttur
kennarafulltrúa til 74. greinar
laga um grunnskóla þar sem fjall-
að er um forskóla: „Heimilt er
sveitarfélögum að setja á stofn við
grunnskóla og undir sömu stjórn
forskóla fyrir 6 ára börn, eða 5 og
6 ára börn, enda samþykkir
menntamálaráöuneytið starfsáætl-
un, húsnæði og annan búnað skól-
ans.“ Ragnar Júlíusson lét rita í
fundargerð að bókunin bæri „vott
um algjört þekkingarleysi"! Var
þó aðeins vitnað í ákvæði laga.
Ég lét það álit í ljós á borgar-
stjórnarfundi að ég teldi fram-
kvæmd við undirbúning kennslu 5
ára barna lýsandi dæmi um vinnu-
brögð núverandi meirihuta sem
hirti ekki um lög né reglur nema
honum sýndist svo heldur böðlað-
ist áfram í krafti meirihlutavalds.
Sjálfstæðismenn reka Reykja-
víkurborg eins og einkafyrirtæki
flokksins, en með meiri hörku en
áður hefur tíðkast, eins og glögg-
lega kemur fram þessa dagana í
aðförinni að Áslaugu Brynjólfy-
dóttur og Björgvini Guðmunds-
syni, forstjóra Bæjarútgerðarinn-
ar.
Gerður Steinþórsdóttir er borgar-
fulltnii Framsóknarflokksins í
Kejkjarík.
Eigum á lager allt
milliveggjaefni
í húsið og
klæðningar í loft
og á útveggi.
M4Tf
VERKSMIÐJULAGER
ÁRMÚLA 7
SÍMAR 31600-31700
OPIÐ TIL SJÖ í KVÖLD
Vöromarkaðurinn M.
EIÐISTORG111
mánudaga — þriðjudaga