Morgunblaðið - 19.10.1983, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.10.1983, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983 Verðbólgan niður... verðbólgu, telur ríkisstjórnin ofangreind markmið raunhæf. Ef forsendur þjóðhagsáætlunar 1984 standast, er hvorki nauðsynlegt né eðlilegt að skerða kaupmátt frek- ar en orðið er á síðustu mánuðum þessa árs. Nú er viðfangsefnið að leggja grundvöll að framförum. Launahlutföll hljóta hins vegar að ráðast í kjarasamningum. Ég vona að jöfnun kjara verði höfð að leið- arljósi í væntanlegum samning- um. Ríkisstjórnin mun áfram leggja áherslu á gott samráð við aðila vinnumarkaðarins um þróun efna- hags- og þjóðmála. Samráðsfundir hafa verið haldnir í sumar og haust, og m.a. hefur verið tekið upp það nýmæli að kveðja saman til fundar efnahagssérfræðinga allra aðila, ásamt sérfræðingum ríkisstjórnarinnar og Þjóðhags- stofnunar. Hefur sú nýbreytni mælst vel fyrir. Þessu mun fram haidið og áhersla á það lögð, að aðilar vinnumarkaðarins geti fylgst náið með allri þróun mála. Framtíðin Við íslendingar verðum að vinna okkur út úr þeim erfiðleik- um, sem íslenskt efnahagslíf á nú við að stríða, með aukinni fram- leiðslu og hagvexti, en án þess að til verðbólgu komi að nýju. í því skyni mun ríkisstjórnin leggja áherslu á hagkvæma fjárfestingu og hagræðingu á öllum sviðum, bæði hins opinbera og atvinnuveg- anna. Ríkisstjórnin mun kappkosta að styðja nýjar og álitlegar fram- leiðslugreinar, bæði stórar og smáar. í þessu sambandi verður að sjálfsögðu fyrst og fremst byggt á framtaki einstaklinganna, sem við eðiilegar aðstæður í efnahagslífi eiga að geta gert öruggari áætlan- ir en verið hefur. Lögð verður áhersla á að virkja rannsókna- og þjónustustofnanir hins opinbera til þess að veita þá þjónustu, sem þær mega í þessu sambandi. Lokaorð Þegar ríkisstjórnin tók við völd- um, blasti við stöðvun atvinnu- vega og atvinnuleysi, og reyndar var sjálft efnahagsiegt sjálfstæði þjóðarinnar í mikilli hættu vegna hraðvaxandi verðbólgu og erlendr- ar skuldasöfnunar. Með róttækum og samstilltum aðgerðum hefur tekist að bjarga þjóðinni frá þess- um voða. Vegna mjög erfiðrar stöðu atvinnuveganna eftir verð- bólgu undanfarinna ára, hafa launþegar orðið að bera miklar byrðar af þessu átaki. Enda má segja, að þeir hafi ekki síst átt til mikils að vinna — atvinnuöryggis. Mikill árangur hefur náðst. Verðbólgan mun í lok ársins verða komið niður fyrir 30 af hundraði, fjármagnskostnaður fer ört lækk- andi, atvinnuvegirnir eru all- traustir og atvinna næg. Þannig hefur verið brotið í blað í íslensku efnahagslífi. Með staðfestu og aðgæslu á næsta ári má tryggja þann mikla árangur, sem hefur náðst, og koma verðbólgunni niður undir það, sem er f helstu viðskiptalönd- um okkar. Til þess að það megi takast, hefur ríkisstjórnin mótað nýja stefnu í efnahagsmálum með því að ákveða umgjörð, sem aðil- um vinnumarkaðarins og atvinnu- vegunum og einstaklingunum er ætlað að starfa innan án íhlutun- ar ríkisvaldsins. Því verður aldrei neitað, að fyrir þjóð, sem svo mjög er háð óviðráð- anlegum duttlungum náttúrunnar og þróun efnahagsmála í umheim- inum sem við Islendingar, geta ætíð verið hættur á næsta leiti. Til þess að geta brugðist við slíku og tryggt lífskjörin, er nauðsynlegt að efnahagslífið sé heilbrigt, og markvisst að því unnið að auka framieiðsluna og hagvöxtinn. Þannið verða lífskjörin og mannlífið sjálft bætt, því að auður þessa lands og hugvit einstakl- inganna er næsta óþrjótandi og ber ríkulegan ávöxt, ef rétt skil- yrði eru sköpuð. Nýir ráðherrar — nýir þingmenn í bakgmnni eni fjórir nýir ráðherrar: Ragnhildur Helgadóttir, Halldór Ásgrímsson, Sverrir Hermannsson og Alexander Stefínsson. Þá sjást þrír nýir þingmenn: Sigfús J. Steingrímsson, Björn Dagbjartsson (varamaður Halldórs Blöndal) og Árni Johnsen. Lengst til hægri er Guðmundur Bjarnason. í forgrunni sést aftan á Þorstein Pálsson og Friðrik Sophusson. Ný þingmál Dragnótaveiðar heimilaðar fyrir Suðurlandi Margrét Frímannsdóttir (Abl.) flytur frumvarp, svohljóðandi: »Við 13. gr. laga nr. 81/1976 um veiði í fiskveiðilandhelgi Is- lands bætist: „Á árunum 1984 og 1985 skulu dragnótaveiðar heimilaðar fyrir Suðurlandi á svæði sem markast að austan af línu réttvísandi suður frá Lundadrang (vms. 28) að línu réttvísandi suðvestur frá Reykjanesaukavita (vms. 34). Heimildin nær til skipa sem eru 23 m að lengd eða minni og gildir fyrir tímabilið 15. júni til 31. desember. Hafrannsóknastofnun skai hafa eftirlit með veiðum þessum, en sjávarútvegsráðuneytið setur reglur varðandi veiðarnar og veitir leyfi. Þau fiskiskip, sem skrásett eru á Suðurlandi og leggja upp afla sinn þar, skulu hafa forgang til veiðanna." Kostnaður við tannviðgerðir frá- dráttarbær til skatts Jóhanna Sigurðardóttir (A) flyt- ur frumvarp ásamt þingmönnum úr fjórum þingflokkum, þess efnis, að frádráttarákvæði 66. gr. skattalaga verði færð út og nái til tannviðgerða, „ef maður hefur haft veruleg útgjöld" í þessu sambandi „og gjaldþol hans skerðist verulega af þeim sökum". Lög um lokunartíma sölubúða falli niður Kjartan Jóhannsson (A) flytur ásamt þingmönnum úr þremur þingflokkum frumvarp sem felur í sér, ef samþykkt verður, að lög nr. 17/1936 um samþykktir um lokunartíma sölubúða falla úr gildi. I greinargerð segir m.a., efnislega, að hagsmunir neyt- enda hafi breyzt verulega frá því þessi lög voru sett. Við skulum byrja að taka til á Alþingi: Samráð og samvinna eru lykillinn að árangri Kaflar úr fyrstu þingræðu Guðmundar Einarssonar (BJ) á Alþingi Hér fer á eftir kafli úr þingræðu Guðmundar Ein- arssonar, þingmanns Banda- lags jafnaðarmanna, sem hann flutti í fyrri viku í utan- dagskrárumræðu um sam- komudag Alþingis. Þetta var hans „jómfrúrræða“. „Ég held að menn hljóti að skilja að það er dálítið undar- leg líðan hjá okkur þessa dag- ana, því ýmislegt hefur gerst. í fyrsta lagi er náttúrlega framfylgt stjórnarstefnu sem menn kannski ekki beinlínis kusu um. í öðru lagi var þing ekki kallað saman, þrátt fyrir yfirlýstan vilja meirihluta þess og fimm þingflokksfor- manna af sex. Nú, þar til við- bótar hefðu náttúrlega yfir- lýsingar stjórnmálamanna og embættismanna um bágan efnahag landsins átt að vera næg ástæða til að kalla þing saman frekar en hitt. Nú, í þriðja lagi hefur verið stjórn- að bráðabirgðalögum, eins og hér hefur komið fram, bæði um fíkjur og fiskverð. í fjórða lagi var þingmönnum, a.m.k. þeim sem eru í stjórnarand- stöðu, ekki kynútar aðgerðir stjórnarinnar eða nokkrar þeirra forsendur. Þetta lýsir fyrir okkur framferði þing- bundinnar ríkisstjórnar, sem þó álítur Alþingi flækjast fyrir sér og kemur í veg fyrir að óskir meirihluta þess nái fram að ganga. Það var spurt hérna áðan: Hvert er þá hlutverk þings- ins? Og ég spyr aftur: Hvert er orðið hlutverk þessa þings? Þar hefur raunar hver sína skoðun. Einn þingmaður hef- ur nýlega lýst sinni skoðun í fjölmiðlum, þar sem kemur fram að þingmennska sé skotsilfur til að öðlast upp- hefð a öðrum vettvangi. Þá voru einnig fróðlegar yfirlýs- ingar fjármálaráðherra um tómar skúffur og va3a í sínu ráðuneyti, og ekki þýði að flytja tillögur sem hefðu í för með sér kostnað. Mér er spurn hvort eggið sé hérna farið að kenna hænunni. Morgunblaðið hafði líka ný- verið í leiðara áhyggjur af fjölgun þingflokka og að fjór- skipt stjórnarandstaða yrði til þess að umræður lengdust á þingi og afgreiðsla mála því tafsamari. Það hefur svo sem heyrst áður að lýðræðið sé seinvirkt. í sumum löndum hefur stjórnlyndum ráðherr- um svo ofboðið seinagangur- inn að þeir senda þingið heim um lengri eða skemmri tíma. Og þær stjórnir köllum við síðan á okkar forsíðum ein- ræðisstjórnir. Rökstuðningur þeirra er gjarnan eitthvað á þá leið, að hrun efnahagslífs- ins hafi blasað við, að þjóðlífið hafi verið í upplausn og þess fornu dyggðir, að verðbólgan hafi verið komin á þjóðhættu- legt stig og taka hafi þurft hlutina föstum tökum. Ég held við höfum raunar heyrt þessi rök á heimaslóðum. Guðmundur Einarsson Nú er ég ekki að segja að hæstv. ríkisstjórn hafi vísvit- andi vondar tilhneigingar til lýðræðis. En ráðherrarnir eru börn síns tíma og þess stjórn- arfars sem mótar þá. Og veik- leiki íslenskra stjórnarfars- hugmynda kemur einmitt skýrast fram i því að ríkis- stjórn sem stendur frammi fyrir stórkostlegum erfiðleik- um, að því er hún sjálf og að- rir segja, hún telur það væn- legra að sundra þinginu og sundra þjóðinni frekar en að sameina og leita samvinnu. Og þessi veikleiki lýsir sér einnig í því að stjórnarskrá, þing og þjóð skuli hafa liðið þetta þó svo lengi sem raun ber vitni. Ef óskað er styrkrar stjórnar vegna aðstæðna í lífi þjóðar, sem af einhverjum hlutum skapast, þá hlýtur að vera að samráð og samvinna séu lykillinn að árangri. Stjórn verður aldrei styrk með því að setja andstæðinga sína í stofufangelsi. Nú, þetta undarlega and- rúmsloft sem ríkir í kringum okkur, sem í raun og veru, ef vel er að gáð, afneitar lýðræð- islegum aðferðum, það krefst þess að við hugsum á nýjan leik hvernig við viljum skipa störfum og ábyrgð í þessu þjóðfélagi. Og við skulum byrja á Alþingi, — við skulum hyrja að taka þar til. Aðferð- irnar í sumar byggðust á meira en aldagömlum ákvæð- um um bráðabirgðalög og raunar líka þingrof. Þessi ákvæði bera merki. þess um- hverfis sem þau eru sprottin úr. Bráðabirgðalagaheimildin er svar við samgöngu- og sam- bandsleysi milli landa og landshluta á síðustu öld. Og það er algjörlega ósamboðið ríkisstjórn að nota þessa heimild núna. Þingrofsheim- ildin er arfur frá einræðis- herrum fyrri alda og fer hreint ekki saman við lýðræð- islega hugsun dagsins í dag.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.