Morgunblaðið - 23.10.1983, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983
Formannskosning á iandsfundi:
Frambjóðendur
svara
Morgunblaðið hefur snúið sér til þeirra þriggja þingmanna, sem nú
þegar hafa tilkynnt framboð sitt til formennsku í Sjálfstæðisflokkn-
um og lagt fyrir þá nokkrar spumingar í því skyni að kynna viðhorf
þeirra til nokkurra þátta, sem varða embætti formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Fara spumingar þessar og svör þingmannanna hér á eftir:
Birgir ísl.
Gunnarsson
• — Hvaða kröfur telur þú, að
formennska í SjálfsUeðisflokknum
geri helzt til þess sem henni gegnir?
• — Hann þarf að hafa þekkingu
á stjórnmálum, bæði á málefnum,
svo og á innviðum Alþingis,
stjórnkerfisins og flokksins.
Stjórnmálareynsla er honum
nauðsynleg. Hann þarf að hafa
forystu um stefnumótun, svo og
um framkvæmd stefnunnar og
vera öflugur málsvari út á við.
Hann þarf að hafa sterka þræði
inn í hina ólíku flokkshópa, vera
mannasættir og geta laðað fólk til
samstarfs. Hann þarf að hafa
þrek til að fylgja fram málstað
sínum og flokksins.
• — Hvaða þáttur í náms-, starfs-
og stjórnmálaferli þínum hefur að
þínum dómi bezt undirbúið þig til að
taka við forystuhlutverki í Sjálfstæð-
isflokknum?
• — Ég nefni fyrst erindrekstur
á skólaárum, þar sem ég ferðaðist
víða um landið á vegum Sjálfstæð-
isflokksins, kynntist högum og
störfum fólks um land allt og
stofnaði til vináttu við fjölda
góðra manna. Forysta í samtökum
ungra sjálfstæðismanna var ómet-
anleg reynsla, svo og þátttaka f
flokksstarfi á nánast öllum svið-
um þess. Störf sem borgarfulltrúi
í Reykjavík í 20 ár og borgarstjóri
í sex ár voru harður og góður
skóli. Síðast vil ég nefna þá ómet-
anlegu lífsreynslu að hafa unnið
stóra sigra í stjórnmálum, einnig
þurft að taka ósigri. Slíkt dýpkar
skilning á eðli og vanda stjórn-
málanna.
• — Á undanförnum árum hafa
harðar deilur staðið í Sjálfstæðis-
Nú heldur tölvuvæðingin
innreið sína í hljómtækn-
ina. Akai 84 hljómtækja-
línan er stórkostleg.
flokknum. Telur þú, að þeim sé lok-
ið, eða má búast við því, að þær
haldi áfram í einhverri mynd?
• — Sjálfstæðisflokkurinn er lif-
andi afl ólíkra þjóðfélagshópa,
sem oft munu hafa mismunandi
viðhorf til manna og málefna. Það
sem sameinar eri grundvallar-
hugsjónir flokksmanna. Til að
mismunandi sjónarmið verði ekki
að ófriðarbáli, svo að til tjóns
verði, ríður á miklu að forystan
hafi traust hinna mismunandi
hópa og laði þá til samstarfs, en
sundri ekki. Ég mun leggja höfuð-
áherzlu á að halda hinum ýmsu
hópum saman innan Sjálfstæðis-
flokksins, svo að flokkurinn geti
áfram verið brióstvörn borgara-
legs lýðræðis á íslandi.
• — Hver á stefna íslendinga að
vera í utanríkis- og öryggismálum?
• — Markmið okkar utanríkis-
stefnu er að sjálfsögðu að vernda
sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar.
Það gerum við bezt með því að
halda áfram í Atlantshafsbanda-
laginu, varnarbandalagi vest-
rænna þjóða, og tryggja varnir
landsins með samstarfi við Banda-
ríkin og aðrar bandalagsþjóðir
eins og verið hefur.
• — Munt þú beita þér fyrir ein-
hverjum breytingum í flokksstarfi
og stefnumörkun Sjálfstæðisflokks-
ins, verðir þú kjörinn formaður og ef
svo er, þá hverjum?
• — Sjálfstæðisflokkurinn hlýt-
ur að endurmeta störf sín og
stefnu á hverjum tfma í ljósi sí-
breytilegra viðhorfa. Ég mun
beita mér fyrir nútímalegri vinnu-
brögðum, ekki sízt í samskiptum
við almenning. Á dagskrá hjá mér
eru ekki grundvallarbreytingar á
stefnu flokksins. Það sem ég legg
höfuðáherzlu á er að Sjálfstæðis-
flokkurinn verði víðsýnn og frjáls-
lyndur flokkur, en ekki þröngur og
íhaldssamur. I þeim anda mun ég
vinna að stefnumörkun flokksins.
• — Gefur þú kost á þér sem vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins, náir
þú ekki kjöri sera formaður?
• — Ég keppi eftir sæti for-
manns og þurfi ég að svara spurn-
ingunni, mun ég gera það á fund-
inum.
Þorsteinn
Pálsson
• — Hvaða kröfur telur þú, að
formennska í Sjálfstæðisflokknum
geri helzt til þess sem henni gegnir?
• — Fengi ég ráðið veganesti
mér til handa í þessu starfi, kysi
ég stefnufestu, áræði, auðnu til
þess að leiða saman hópa ólíkra
hagsmuna og þekkingu á þeim
málefnum þjóðarbúskaparins,
sem mest reynir á í stjórnmála-
baráttunni. í þessu sambandi
verða menn þó að gera sér grein
fyrir því, að það er ekki til upp-
skrift að formanni Sjálfstæðis-
flokksins. Það eru engir algildir
eiginleikar, sem unnt er að gera
kröfur til. Það fer eftir mönnum,
hvaða kostir nýtast best og það
getur breyst frá einum tíma til
annars.
• — Hvaða þáttur í náms-, starfs-
og stjórnmálaferli þínum hefur að
þínum dómi bezt undirbúið þig til að
taka við forystuhlutverki í Sjálfstæð-
isflokknum?
• — í raun og veru hygg ég, að
sérhver þáttur í lífshlaupi manns
sé jafn mikilvægur. Ég geri í þessu
sambandi ekki upp á milli starfa
að félagsmálum stúdenta, stjórn-
málaskrifa í Morgunblaðinu, rit-
stjóraára á Vísi og afskipta af
margvíslegum málefnum vinnu-
markaðarins. Það eru tímar mik-
illa breytinga í Sjálfstæðisflokkn-
um og þjóðlífinu. Einmitt við slík-
ar aðstæður dugar það ef til vill
best að hafa ekki i einu og öllu
farið troðnar slóðir að því marki
sem nú er að stefnt.
• — Á undanförnum árum hafa
harðar deilur staðið í Sjálfstæðis-
flokknum. Telur þú, að þeim sé lok-
ið, eða má búast við því, að þær
haldi áfram í einhverri mynd?
• — Þeim er lokið. Það hefur
glöggt komið fram í undirbúningi
fyrir landsfundinn, að það er al-
mennur vilji fólksins í Sjálfstæð-
isflokknum að láta þessa innbyrð-
is erfiðleika heyra sögunni til.
Undanfarnar vikur hafa starfað
með mér menn úr fylkingum inn-
an flokksins, sem áður stóðu gráar
fyrir járnum. Þetta hefur sann-
fært mig um, að nýtt skeið er i
vændum. í stórum stjórnmála-
flokki verður hreyfiaflið ævinlega
til í störfum um margt ólíkra
hópa. Það á ekkert skylt við klofn-
ing. Miklu fremur má segja, að
það sé sjálft líf flokksins.
• — Hver á stefna íslendinga að
vera í utanríkis- og öryggismálum?
• — Sjálfstæðisfiokkurinn hefur
öðrum fremur mótað afstöðu ís-
lendinga í utanríkismálum. Hún á
hér eftir sem hingað til að byggj-
ast á samstöðu og samstarfi við
lýðræðisþjóðirnar. Aðild okkar að
Atlantshafsbandalaginu er mikil-
vægasti þátturinn í þeirri stefnu. f
öryggismálum hefur varnarsam-
starfið við Bandaríkin haft mesta
þýðingu. Því á að halda áfram.
Varðandi þær umræður, sem nú
fara fram um friðarviðleitni í
heiminum, verðum við að hafa
hugfast að friður verður ekki
greindur frá frelsi og mannrétt-
indum. íslendingar eiga því ekki
að stíga einhliða skref, er veikt
gætu hagsmuni og stöðu frjálsra
friðelskandi þjóða, sem veitt hafa
hluta mannkynsins mannréttindi.
• — Munt þú beita þér fyrir ein-
hverjum breytingum ( flokksstarfi
og stefnumörkun Sjálfstæðisflokks-
ins, verðir þú kjörinn formaður og ef
svo er, þá hverjum?
• — Allt starf flokksins hlýtur
að mótast af forystu hans á hverj-
um tíma. Breytingar eru því eðli-
legur fylgifiskur umskipta í
flokksforystunni. I innra starfi
flokksins hefur smám saman verið
unnið að umbótum, bæði að því er
varðar rekstur og málefnalegt
starf. I því efni má ekki koma til
stöðvunar. Þar verður nýsköpun
að eiga sér stað eftir því sem að-
stæður krefja hverju sinni. Um-
fram allt þarf að treysta tengsl
flokksforystunnar, þingflokksins
og miðstjórnarinnar við fólkið í
flokknum. Ég boða enga breytingu
á grundvallarhugmyndum Sjálf-
stæðisflokksins. Þar er byggt á
traustum grunni, sem tengt hefur
saman stéttir og byggðir. Á hinn
bóginn blasa við ný verkefni í ís-
lensku þjóðlífi, þar sem ný tækni
er orðin mikil. Nýir tímar kalla á
ný viðhorf. I efnalegum og menn-
ingarlegum efnum skiptir höfuð-
máli, að við tökumst á við ný verk-
efni í atvinnumálum af einurð á
grundvelli sjálfstæðisstefnunnar.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf 1 öllum
málflutningi að sýna festu og
ábyrgð. Hann á að standa vörð um
frelsi, öryggi og menningu þjóðar-
innar.
• — Gefur þú kost á þér sem vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins, náir
þú ekki kjöri sem formaður?
• — Þessi kosning er um for-
mann Sjálfstæðisflokksins. Það
verður aðeins einn maður valinn
til þess starfs. Mikilvægt er að góð
samstaða náist að loknu þessu
kjöri. Að öðru leyti hefur spurn-
ingin ekki raunhæft gildi fyrr en
að loknu kjöri formanns.
Friðrik
Sophusson
• — Hvaða kröfur telur þú, að
formennska í Sjálfstæðisflokknum
geri helzt til þess sem henni gegnir?
• — Formaður Sjálfstæðisflokks-
ins þarf að hafa til að bera ár-
vekni, sveigjanleika og festu, ef
honum á að takast að leiða flokk-
inn, halda honum saman og afla
honum fylgis.
Þegar ég var fyrst kjörinn í
miðstjórn flokksins var Bjarni
Benediktsson formaður hans.
Hann lýsti því eitt sinn í ræðu
hverjir eiginleikar forystumanna
ættu að vera. Aðrir hafa ekki
orðað það betur, og ég er sammála
honum í öllum atriðum. Hann
sagði meðal annars: „Stjórnmála-
maðurinn verður m.a. að þekkja
land sitt, gæði þess og torfærur,
þjóð sína, kosti hennar og galla,
viðskipti hennar við aðrar þjóðir
og geta gert sér grein fyrir, hver
áhrif atburðir með þeim muni
hafa á hag hennar. Svo verður
hann að þekkja sjálfan sig, mann-
legt eðli, veilur þess og styrk-
leika... Ekki er nóg að gera sér
grein fyrir möguleikum og hafa
skyn á að velja þann rétta. Til
viðbótar veröur að hafa kjark til
að standa með því, sem maður tel-
ur rétt, og þora að framkvæma
það, hvað sem tautar."
• — Hvaða þáttur í náms-, starfs-
og stjórnmálaferli þínum hefur að
þínum dómi bezt undirbúið þig til að
taka við forystuhlutverki í Sjálfstæð-
isflokknum?
• — Ég lít svo á, að forystuhlut-
verk í flokknum sé ekki bundið við
formannsembættið. Miðstjórnar-
menn, þingmenn, formenn lands-
samtaka, kjördæmisráða og sjálf-
stæðisfélaga eru allir í forystu-
hlutverki i Sjálfstæðisflokknum.
Hvað varðar undirbúning undir
flokksformennsku aftur á móti, þá
tel ég leiðtogastarf meðal ungra
sjálfstæðismanna í fjögur ár og
varaformennsku um tveggja ára
Kirkjuþing íslensku þjóðkirkjunnar:
Tekjur fámennra safnaða duga ekki
fyrir upphitun og viðhaldi kirkjuhúsa
Kirkjuþingi íslensku þjóðkirkj-
unnar var fram haldiö sl. Töstudag.
Þá kom fram tillaga um að annað
prestsembættið í Vestmannaeyjum
verði lagt niður sem slíkt, en verði
hinsvegar nýtt sem embætti far-
prests í þjónustu kirkjunnar frá og
með næstu áraraótum. Vestmann-
eyingar hafa samþykkt þá ráðstöf-
un að prestur þeirra verði einn,
enda samgönguerfiðleikar og ein-
angrun ekki lengur forsenda þess
að tveir prestar séu þar, eins og
segir í greinargerð frá aðalfundi
safnaðarins þar.
Margir aðilar, bæði kirkju-
legir og innan heilbrigðisgeir-
ans, hafa bent á hina nauðsyn
þess að ráðinn verði sjúkra-
hússprestur í Reykjavík. Það
embætti er til samkvæmt lögum,
en ekki hafa verið veitt til þess
tilskilin fjárframlög
Kirkjuþing samþykkti, enn
einu sinni, tilmæli til kirkju-
málaráðherra um að prestur
verði ráðinn í þessa þjónustu. Á
sama tíma fagnaði þingið því að
íslenskur prestur hefur verið
ráðinn til bráðabirgða til þjón-
ustu við íslenska sjúklinga í
London. Treysti þingið að stjórn-
völd haldi því mikilvæga starfi
áfram.
Sóknargjöld voru einnig til
umræðu á föstudag, en hið opin-
bera ákveður sóknargjöld til
safnaðanna. Kom fram að það
hefur lengi verið vandamál fá-
mennra safnaða að tekjur þeirra
duga ekki fyrir upphitun og
viðhaldi kirkjuhúss eða eðli-
legum kostnaði af safnaðar-
starfi. Samþykkti kirkjuþing að
könnun færi fram á fjárhags-
stöðu og fjárþörf einstakra
kirkna, sérstaklega þeirra
kirkna sem að lögum hafa svo
bága aðstöðu að það lamar safn-
aðarstarfið.
Nokkrar umræður hafa verið í
fjölmiðlum að undanförnu um
beygingu orðsins „Jesús" á ís-
lensku. Mál þetta var rætt á
föstudag, en frá því árið 1972
hefur beyging þess verið prentuð
í sálmabók, biblíu og handbók
kirkjunnar, þannig að nefnifall
er Jesús, en aukaföllin Jesú.
Þótti eðlilegra að einfalda beyg-
ingar og fella að íslenskum nöfn-
um. Á kirkjuþinginu kom fram
tillaga um að horfið verði aftur
að aldargamalli hefð, sem sé í
ávarpsfalli Jesú, þolfalli Jesúm,
en í öðrum föllum Jesú. Sagði
flutningamaður að eðlilegt sé að
nafn Jesú hafi aðra beygingu en
önnur mannanöfn vegna sér-
stöðu hans.
Næsta ár eru 400 ár liðin frá
því að Guðbrandsbiblia var
prentuð á Hólum. Hefur því ver-
ið lýst yfir að árið 1984 verði ár
Biblíunnar hérlendis. Hvetur
kirkjuþing til þess að unnið sé að
útbreiðslu biblíunnar á afmælis-
árinu og notkun hennar aukin
með því annars að stofna um-
ræðu- og leshópa um efni Biblí-
unnar.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
2ttúT0ttnI»Inbií>