Morgunblaðið - 21.01.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984
5
Arinbjörn
seldi í
Cuxhaven
ARINBJÖRN RE seldi í gær 114,9
lestir, mest karfa, í Cuxhaven.
Heildarverð var 3.112.700 krónur,
meðalverð 27,09. Fleiri skip seldu
ekki í gær og er verðið nú heldur
lægra en það varð hæst fyrr í vik-
unni.
o
INNLENT
1929
i
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
lanaa;
Aukatónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í dag:
Sigrún Eðvaldsdóttir og Sigríð-
ur Gröndal ljúka burtfararprófi
Miðfjarðarskersviti:
Óákveðið með
endurbyggingu
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur aukatónleika í Há-
skólabíói klukkan 14.00 í
dag. Þær Sigríður Gröndal og
Sigrún Eðvaldsdóttir koma
fram með hljómsveitinni að
þessu sinni og Ijúka með því
lokaáfanga burtfararprófs
frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík.
Á efnisskrá hljómleikanna er
Sinfónía í D-dúr eftir J.C.Bach,
Exultate jubilate, mótetta eftir
Mozart, Skosk fantasía fyrir fiðlu
og hljómsveit eftir Bruch og Aka-
demískur forleikur eftir Brahms.
Verð aðgöngumiða að hljóm-
leikunum er kr. 150.
Borgarnesi, 20. janúar.
VITINN á Miðfjarðarskeri í mynni
Borgarfjarðar er eini vitinn sem
brotnað hefur niður undan brimi að
sögn Aðalsteins Júlíussonar, vita- og
hafnarmálastjóra, en eins og sagt
var frá í Morgunblaðinu í dag hvarf
Miðfjarðarskersviti í miklu brimi
fyrr í mánuðinum.
Aðalsteinn sagði aðspurður að
ekki væri búið að taka ákvörðun
um hvort eða hvenær Miðfjarð-
arskersviti yrði endurbyggður.
Málið yrði tekið fyrir á fundi í
Vitanefnd eftir hálfan mánuð og
myndi skýrast upp úr því. Sagði
hann að vitinn hefði verið byggður
árið 1939 og hefði hann verið um 6
metrar á hæð. Þá sagði Aðalsteinn
að hlutverk vitans hefði fyrst og
fremst verið við innsiglinguna til
Borgarness, en einnig hefði hann
verið notaður til siglinga í fjarð-
armynninu.
- HBj.
Sigrún Eðvaldsdóttir og Sigríður
Gröndal
Áárunum 19ó5til 1975varFIATíforystuíframleiösluálitl-
um bílum til almenningsnota. FLATbílar hlutu titilinn ,,bíll
ársinsíEvrópu'' þrisvar sinnum ásexárum. FIAT124 áriö
1967, FIAT 128 áriö 1970 og hinn margrómaöi og sívin-
sœli FIAT127 hlaut þennan eftirsótta titil áriö 1972. Nú er
FIAT aftur kominn í forystusœtiö meö framleiöslu FIAT
UNO, sem kjörinn hefurveriö bíll ársins 1984. Óhemjufé,
tíma og fyrirhöfn var eytt í undirbúning oghönnun áöur
en framleiösla hófst á þessum frábœra bíl. FIAT verk-
smiöjurnar lögöu 700 milljónir dollara íþetta verkefni og
hafa augljóslega variö þvífé skynsamlega því útkoman,
sjálfur UNO bíllinn, er einstaklega vel hannaöur og er af
sérfræöingum talinn vera e.t.v. besti smábíll sem nokkru
sinni hefur veriö smíöaöur (' þossibly the best small car
ever made"). \
Þó lof og hrós hlaöist á UNO bjóöum viö hann
enn á sama frábœra veröinu. UNO er dýr og
vandaöur bíll en vegna hagstœörar gengis-
þróunar undanfarnamánuöi kostarhann ekki
fleiri krónur en raun ber vitni.
FIAT UNO 45, 3 DYRA
FIAT UNO 45, ES, 3 DYRA
FIAT UNO 45, SUPER, 3 DYRA
OPIÐ LAUGARDAG 10—17
SUNNUDAG 13—17
kr. 219.000.-
kr. 238.000,-
kr. 249.000.-
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202
FIAT TEKUR FORYSTUNA
FRÁBÆRT FIAT-UNO-VERÐ
Þingeyri:
Atvinna
með lak-
ara móti
Þingeyri, 20. janúar.
ATVINNA hefur verið með
lakara móti hér síðan fyrir jól
og kemur tvennt til. Sléttanes-
ið þurfti að fara í ábyrgðar-
skoðun og var frá veiðum frá
30. nóvember til 7. janúar.
Tregur afli var hjá Framnes-
inu en síðan vikustopp hjá því
í janúar vegna bilunar, en
skipin eru nú bæði á veiðum.
Sléttanesið sem fór út að-
faranótt sunnudags er komið
með 54 tonn af þorski sam-
kvæmt viðtali við Bjarna
Einarsson útgerðarstjóra.
Framnesið, sem fór út á
laugardag er komið með 85
tonn, þar af 60 tonn af karfa,
en það er væntanlegt inn
með aflann á mánudaginn.
Hulda