Morgunblaðið - 21.01.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 21.01.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 45 VELVAKANDI SVARAR f SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS i) ir Ráðhús í Grjótaþorpi Þessir hringdu . . . Egill Sigurgeirsson skrifar: „Góði Velvakandi. Eg var að lesa fróðlega grein hjá þér frá Valdimar Kristinssyni, þar sem hann tekur undir það að Morgun- blaðshúsið verði keypt undir skrifstofu borgarinnar og viðbygging gerð upp af húsinu fyrir fundarsali og þessháttar. Þessi hugmynd er mjög at- hyglisverð. Er alveg óviðun- andi að borgin eigi ekki allt sitt skrifstofuhúsnæði. Hinsvegar vil ég benda á, að mjög athugandi væri hvort ekki ætti að rífa Fjalaköttinn og byggja þeim megin við Morgunblaðshúsið fullkomna ráðhúsbyggingu, með falleg- ustu hliðina í suður að Bröttu- — og fengið flutt í hljóðvarpi? Ragnar Lár skrifar á Akur- eyri 16. janúar: „Til Velvakanda Morgun- blaðsins. Getur hver sem er klambrað saman erindi um stórviðburði og stórmenni sögunnar og fengið það flutt í Ríkisútvarp- inu/hljóðvarpi? Tilefni þessarar spurningar er það, að sunnudaginn 15. janúar síðastliðinn var flutt erindi í Hljóðvarpinu, um John heitinn Kennedy, fyrrum Bandaríkjaforseta, uppruna hans og ævistarf. Tveir menn, Árni Sigurðs- son og Jóhann Hafsteinsson, voru skrifaðir fyrir erindinu og fluttu það. Margt hefur að undanförnu Bæði fróð- legur og skemmtileg- ur þáttur Elín Guðjónsdóttir skrifar: „Heiðraði Velvakandi. Ég vil taka undir óskir um að þáttur Péturs Gunnarsson- ar, sem fluttur var á nýársdag, verði endurfluttur. Ég hlust- aði á þennan þátt í góðu næði og þótti hann bæði fróðlegur og skemmtilegur, og að auki vel fluttur. Með kveðju.“ Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Mcðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisróng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. götu, enda er að mínu áliti sjálfsagt að rífa, eða flytja burtu ef einhverjir vilja það, alla kumbaldana sem eru sunnanvert við Bröttugötu út af Túngötu og hafa á því svæði torg með gosbrunnum og skemmtigarði. Væri hægt að gera úr Grjótaþorpinu fallegt opið svæði. Virðist mér nauð- synlegt að koma í veg fyrir að svæði þetta verði gert að eins- konar ruslahaug í miðborg- inni, og útungunarstöð fyrir rottur. Verður með öllu móti að hindra það, að Bernhöfts- torfuslysið verði endurtekið á þessu svæði, sem gera mætti að einu fallegasta svæði í gömlu miðborginni." verið rætt og ritað um forset- ann fyrrverandi, enda voru á síðastliðnu hausti liðin 20 ár frá þeim hörmulega atburði, er þessi ungi forseti var myrt- ur í Dallas í Texas. En betur hefðu þeir félagar Árni og Jóhann látið það ógert að flytja þetta erindi sitt, svo villandi sem það var, illa sam- ið og illa flutt. Því spyr ég, sem almennur útvarpshlust- andi: Er erindi sem þetta ekki lesið yfir af neinum málsmet- andi manni hjá Hljóðvarpinu, áður en það er samþykkt til flutnings? Og ég endurtek þá spurn- ingu sem skrif mín hófust á: Getur hver sem er klambrað saman erindi um stórviðburði og stórmenni sögunnar og fengið það flutt í Hljóðvarp- inu? Auk þeirra ágalla sem fyrr er getið var erindið og flutn- ingur þess morandi í málvill- um og hortittum og skulu hér tilfærð nokkur dæmi: ... að ætla sér að gera manninum tæmandi skil í stuttum út- varpsþætti ... sökum upp- skerubrests og annars óárans ... bjó alla tíð við illan kost... en í æ ríkara mæli en áður hafði verið ... mundu skaða hann og flokk sinn ... verði iengi minnst sem leiðtoga glæsileika og vona. Þetta eru aðeins nokkur dæmi af mörgum. Það er von min að forráðamenn Ríkisút- varpsins/Hljóðvarps lesi yfir svo viðamikil erindi sem það sem hér hefur verið til um- fjöllunar. Nóg er að hafa þær málvillur og hortitti sem dag- lega má heyra hjá ýmsum þáttagerðamönnum Hljóð- varpsins, en það er önnur saga. Það mundi æra óstöðug- an að ætla að elta ólar við alla þá ambögusmiði." Virðist vera takmarkið að losna við mann 5254—1573 hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég er nú búinn að vera atvinnulaus í fimm vikur og skipið mitt liggur fast við bryggju. Ég veit ekkert hvenær landfestar verða leystar og fór því í Borg- artún á skráningarskrif- stofuna til að láta skrá mig atvinnulausan. Svo þegar ég fer með pappírana að viku liðinni niður í sjó- mannafélag, ásamt launa- miðum, er mér tjáð, að ég sé ekki kominn með nógu marga tíma til að eiga þar nein réttindi: þetta er mér sagt eftir alla fyrirhöfnina og eftir að hafa átt pappír- ana uppi í Borgartúni í heila viku. Mér finnst eins og reynt sé að gera manni erfitt fyrir í þessum mál- um. Það stendur aldrei á að maður fái að borga í þessa sjóði; þá er ekki ves- enið eða fyrirhöfnin. En þegar illa gengur hjá manni og maður ætlar að leita aðstoðar, þá virðist takmarkið að losna við mann með einhverju móti. Þetta kom fyrir hjá mér í fyrra líka. Ég þurfti að fá undirritun hér og undirrit- un þar. Ég gafst upp og þá var ég líka búinn að vera atvinnulaus í mánuð. Svo er það hins vegar þannig með þá sem nenna frekar að standa í þessu þjarki en vinna, að þeim verður mest ágengt. Skyti skökku viö Ingólfur Hauksson vöru- bifreiðastjóri, Rvík, hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Ég hef heyrt það á förnum vegi, að það eigi að hækka þunga- skatt af díselbifreiðum, mælagjald svokallað, um hvorki meira né minna en 60% frá og með 10. febrú- ar. Mig langar að beina þeirri fyrirspurn til fjár- málaráðuneytisins og toll- stjóraembættisins hvort þetta eigi við rök að styðj- ast og þá á hvaða forsend- um sé byggt. Þegar allt er frekar niður á við skyti skökku við, finnst mér, að skella á slíkri hækkun. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Það er rétt að láta hver annan vita af þessu. Rétt væri: Það er rétt að hver láti annan vita af þessu. Getur hver sem er klambrað saman erindi um stórviðburði og stórmenni sögunnar Dagatal fylgibladanna ATJiTAF Á ÞRIÐJUDÖGUM «3» ALLTAF Á FIMMTUDÖGUM Alltaf á föstudögum ALLTAF A LAUGARDÖGUM ALLTAF Á SUMNUDÖGUM stóA OG EFNISMEIRA BLAÐ! Fimm sinnum í viku fylgir auka fróóleikur og skemmtun Mogganum þínum! JltoiQgtisiIiIftttfe

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.