Morgunblaðið - 21.01.1984, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984
19
febrúar 1982. (Sjá töflu). Ef aðeins
er litið á niðurstöður án tillits til
þeirra rannsókna sem að baki
liggja, virðast 9% þorska hafa
verið sýkt af „selormi" um 1937.
Tvær kannanir voru gerðar á ár-
inu 1973 og sýnir önnur könnunin
55% sýkingu, en hin gefur 72%
sýkingartíðni. Samkvæmt niður-
stöðum Erlings Haukssonar, líf-
fræðings hringormanefndar, frá
1980—1981 var sýkingartíðni þá
71%. Hér er þó ekki öll sagan
sögð, því aðferðirnar sem notaðar
voru við gagnaöflun í ofangreind-
um rannsóknum voru mismun-
andi. Enginn munur kemur fram á
annarri könnuninni frá 1973 og
þeirri frá 1980—1981, en ekki er
ólíklegt að þessar tvær kannanir
séu einna sambærilegastar.
Erlingur Hauksson slær þann
varnagla í ofangreindri skýrslu,
að mismunandi söfnun og úr-
vinnsla sýna gæti haft veruleg
áhrif á þær niðurstöður sem hér
um ræðir, og hann telur ennfrem-
ur að niðurstöðurnar bendi til
þess að hringormasýking hafi að-
eins lítillega aukist allra síðustu
árin (sem þó verður að telja vafa-
samt, sbr. það sem að ofan er
sagt). Öllu þessu er þó sleppt, þeg-
ar upplýsingum er komið í fjöl-
miðla, en fullyrðingar um hina
geysilegu aukningu á hringorma-
sýkingu þorsks síendurteknar. Hið
rétta er að ekki hafi verið færðar
óyggjandi sannanir fyrir aukn-
ingu hringorma í þorski, hins veg-
ar er ljóst, að vandamál fiskiðnað-
arins vegna hringormasýkingar
fisks er gífurlegt.
Þáttur sela í hring-
ormasýkingu þorsks
Talsmenn hringormanefndar
fullyrða, að hringormasýking hafi
aukist og að aukninguna megi
rekja beint til fjölgunar sela. Á
sama hátt og draga má í efa full-
yrðingar um aukna hringorma-
sýkingu, má vefengja fullyrðingar
um aukinn fjölda sela. Gögnin sem
að baki liggja eru hvorki fullnægj-
andi né afgerandi. Þá fullyrðir
formaður hringormanefndar, að
beint samband sé á milli sela-
fjölda og hringormatíðni á hverju
svæði, hérlendis og erlendis. í
þessu sambandi er fróðlegt að
bera saman aðstæður við Island
annars vegar og við Grænland og
Bretland hins vegar. Við Græn-
land er mikill selur en hringormur
finnst þar vart í fiski. Hringorma-
sýking þorsks við Bretland virðist
miklu minni en hér vð land, þótt
selastofnar þar séu margfalt
stærri. í grein, sem gefin var út
árið 1977 af Alþjóðahafrann-
sóknaráðinu og skrifuð er af
tveimur skoskum vísindamönnum,
kemur fram hve sel hefur fjölgað
við Bretland. Um miðjan sjöunda
áratuginn voru við Bretland um
20.000 útselir en um 18.000 land-
selir. Nálægt tíu árum síðar var
talið að útselir væru orðnir 69.000
en landselir 15.000. Rannsóknir
Hafrannsóknastofnunarinnar í
Aberdeen sýna, að sýking þorsks
af „selormi" er svipuð og hún var á
sjöunda áratugnum, þrátt fyrir
meira en þreföldun á fjölda útsela.
Skosku vísindamennirnir taka
líka fram, að ekkert bendi til að
hringormasýkingin skaði fiskinn
eða valdi dauða hans. í greininni
kemur fram, að mikil aukning hef-
ur orðið á Anisakis hringormasýk-
ingu í fiski í kring um Bretland.
Sú sýking kemur sel ekkert við,
vegna þess að selir eru ekki loka-
hýslar Anisakis hringorma.
Hér við land benda rannsóknir
Erlings Haukssonar til þess að
minnst hringormasýking í þorski
sé við suðurströnd landsins, en
annars staðar við landið er hún
meiri og lítill sem enginn munur á
milli landshluta (sjá mynd 2).
Þetta er svo þrátt fyrir það, að
selir eru mjög misalgengir við
strendur landsins og mun algeng-
ari við suðurströndina en við
norður- og austurströndina. Útsel-
ir, sem jafnan eru taldir mestir
Lífsferill „selormsins“ er flókinn. Ormurinn verður kynþroska í sel og egg
hans ganga niður af seinum með saur. Talið er, að eggin berist í krabbadýr
og klekist þar út, berist í fiska þegar fiskarnir éta krabbadýrin og síðan í sel
þegar selur étur fiskinn. Hringormanefnd einblínir á selinn sem orsakavald
hringorma í fiski, en „gleymir" hinum hluta lífsferilsins. Mjög lítið er vitað
um þau krabbadýr sem hringormurinn notar sem millihýsla, en þau dýr
verður þorskurinn að éta til að í hann berist ormur.
Úr skýrslu Erlings Haukssonar febr. 1982, bls. 28: Prósentuvís sýking ald-
ursflokka þorsks af selormslirfum í fiskholdi. Svæðaskiptingin er sýnd á
mynd 3. 0-merkin sýna sýkingu við Suðurland, en þar er fullorðinn þorskur
mun minna sýktur en annars staðar við landið, þrátt fyrir mikinn fjölda sela,
sjá svæði 7 á næstu mynd. □ og ★ eru merki á Austur- og Norðausturlandi.
Hringormasýking þar er svipuð og á öðrum hafsvæðum, þrátt fyrir að þar sé
mun minna af sel en annars staðar við landið (sjá næstu mynd). Heila línan
sýnir prósentusýkingu aldursflokka af þorski á íslandsmiðum, en hringorma-
sýking eykst með aldri upp í 4—5 ára en minnkar þá, líklega vegna gangna
hringormalausra þorska frá Grænlandi. Ef enginn grænlenskur fiskur geng-
ur til landsins og aðeins veiðist íslenskur, sýktur fiskur þá ætti hringorma-
sýking að fylgja brotnu línunni. Það hversu mikill hringormur er í afla
íslenskra skipa er háð stærð þorskanna í aflanum og hvort fiskurinn er af
íslenskum eða grænlenskum uppruna. Á hvoru tveggja geta orðið sveiflur
sem koma fram í breyttri hringormatíðni, án tillits til fjölda sela við landið.
Útbreiðsla landsels og útsels við strendur landsins.
sökudólgar hér við land, eru t.d.
langalgengastir við vestan- og
norðvestanvert landið (sjá mynd
3).
Selir eru ekki nema einn þáttur
af mörgum sem gætu haft áhrif á
tíðni hringorma í fiski. í skýrslu
sinni frá febrúar 1982 nefnir Erl-
ingur Hauksson aðra þætti sem
þarna gætu haft áhrif s.s. haf-
strauma og gerð strandarinnar.
Síðan segir orðrétt á bls. 16:
„Millihýslar þurfa að vera fyrir
hendi, helst í miklu magni. Þeir
þurfa að safna í sig lirfum hring-
ormanna vegna fæðuvals síns og
vera sjálfir mikilvæg fæða fyrir
aðra millihýsla og lokahýsla.
Fæðuval þeirra tegunda, sem taka
þátt í hringrásinni, gegnir því lyk-
ilhlutverki í hringrásinni."
Sami maður og þetta skrifaði
var í útvarpsfréttum 3. des. sl.
spurður hver væri ástæðan fyrir
því að hringormur breiddist út og
svaraði þá orðrétt:
„Þetta er hinn s.k. selormur sem
er í þessum fisktegundum og það
má rekja hann beint til sela og það
er þá fjölgun sela, sérstaklega út-
sela, hér við land sem gerir það að
verkum að hann verður algengari í
þorski og öðrum fisktegundum."
Hér fullyrðir líffræðingurinn
miklu meira en tiltæk gögn gefa
tilefni til og hefur gleymt því sem
hann hafði áður ritað.
Rannsóknir Erlings Hauksson-
ar benda til þess að hringorma-
sýking þorsks vaxi eftir því sem
hann eldist og nái hámarki um 5
ára aldur, en eftir það dragi jafn-
vel úr henni (sjá mynd 2). Er þetta
talið stafa af því að hringorma-
laus þorskur gengur frá Græn-
landi og blandast hinum sýkta ís-
lenska stofni. Göngur þorsks frá
Grænlandi eru bæði misstórar og
stopular. Ljóst er, að bregðist slík-
ar göngur, þannig að hærra hlut-
fa.ll veiðist af íslenskum fiski en
áður, þá eykst hringormasýking í
aflanum. Hið sama gæti gerst ef
breyting verður á stærð veiddra
fiska. Ef meira veiðist af 4—5 ára
fiski en minna af 7—8 ára fiski en
áður, má búast við hækkun á
hringormatíðni í aflanum, þar
sem sóknin hefði aukist í þá
þorska, sem að jafnaði eru sýkt-
astir af hringormi. Á þennan hátt
má vænta verulegra breytinga á
hringormasýkingu þorsks í afla,
án þess að þær megi rekja á nokk-
urn hátt til sela.
Hringormar og
vöxtur físka
í Morgunblaðinu 9. des. sl. er
haft orðrétt eftir formanni hring-
ormanefndar:
„Það getur dregið úr vexti fiska
að sýkjast stöðugt af selormum,
en þeir hringormar, sem þrífast í
innyflum, hafa meiri áhrif á vöxt-
inn samkvæmt rannsóknum."
Ekki er Náttúruverndarráði
kunnugt um neinar rannsóknir,
sem benda til þess að „selormur"
dragi úr vexti fiska. E.t.v. er for-
maður hringormanefndar hér að
vitna til margra áratuga gamalla
athugana á allt öðrum hringormi
(Contracoecum aduncum) en hér
um ræðir, og er ekki vitað til þess
að sá ormur sé til vandræða hér.
„Vísindalegar rannsóknir“
Formaður hringormanefndar
hefur tekið það fram í fjölmiðlum
að mikið vísindastarf hafi verið
unnið hérlendis áður en aðgerð-
irnar hófust til fækkunar sel og að
allir hefðu getað fylgst með þeim
rannsóknum. Hvað þessi atriði
varðar skal bent á eftirfarandi:
Hringormanefnd var skipuð í
ágúst 1979 og í nóvember sama ár
skilaði líffræðingur nefndarinnar
skýrslu: „Staða rannsókna varð-
andi hringormavandamálið i árs-
lok 1979 og áætlanir um frekari
rannsóknir". Lokakafli skýrslunn-
ar hefst á eftirfarandi hátt (bls. 9,
leturbreytingar Náttúruverndar-
ráðs):
„Eins og fram hefur komið hér
að framan, eru rannsóknir varð-
andi hringormavandamálið yfir-
gripsmiklar og munu krefjast
mikils tíma, en slíkt er nú yfirleitt
einkennandi fyir vistfræðilegar
rannsóknir. Vegna fyrirhugaðra að-
gerða til fækkunar sel, er vert að
hafa það í huga að öll mál sem varða
sel og selarannsóknir verða í brenni-
punkti. Selir eru þau sjávarspen-
dýr sem allur almenningur kemst
í hvað nánasta snertingu við, úti í
náttúrunni eða í sædýrasöfnum.
Allar aðgerðir gagnvart sel sem
ekki eru studdar vísindalegum
rökum af niðurstöðum rannsókna
á líffræði íslenskra sela, munu því
væntanlega hljóta talsverða gagn-
rýni Náttúruverndarráðs, nátt-
úruverndarsamtaka og jafnvel
þorra almennings í landinu. Þetta
gerir það að verkura að nauðsynlegt
er að stunda alhliða líffræðirann-
sóknir á selastofnunum hér við land,
svo mögulegt sé að veita haldbær
svör við gagnrýni andstæðinga að-
gerðanna."
Þessi tilvitnun sýnir glögglega,
að þegar á árinu 1979 var búið að
ákveða að fækka seium. Selarann-
sóknir þær, sem hringormanefnd
hefur staðið fyrir hófust í sama
mánuði og ofangreindri skýrslu
var lokið. Má því nánast halda, að
rannsóknirnar hafi verið aukaat-
riði.
Nokkrar skýrslur hafa verið
settar saman á vegum hringorma-
nefndar um þær rannsóknir sem
gerðar hafa verið. Furðu vekur
hversu mikil tregða er í dreifingu -
skýrslnanna. Náttúruverndarráð
hefur þó fengið aðgang að skýrsl-
unum, en ýmsar rannsóknastofn-
anir hins vegar ekki. Óheimilt er
að vitna til þessara skýrslna nema
með leyfi höfundar, starfsmanns
nefndarinnar. Það leyfi fékkst til
þess að vinna þá grein, sem hér er
birt, en ein skýrsla var þó undan-
þegin.
Spurningar hljóta að vakna.
Hvað er verið að fela? Er eðlilegt
að nefnd, sem skipuð er af opin-
berum aðilum, geti neitað lands-
mönnum um aðgang að rannsókn-
um á náttúru landsins, rannsókn-
um sem hún byggir umdeildar að-
gerðir á, aðgerðir á náttúrunni
sem koma öllum landsmönnum
við?
Ný lög og auknar
rannsóknir
Náttúruverndarráð vill ítreka
þá skoðun sína, að brýna nauðsyn
ber til að sett verði hið fyrsta lög
um selveiðar við ísland, er tryggi
fullnægjandi stjórnun þessara
veiða. Ráðið telur rétt í því sam-
bandi, að sjávarútvegsráðuneytið
hafi yfirumsjón mála er selveiðar
varða. Þá er eðlilegt að Hafrann-
sóknastofnun annist rannsóknir á
selum að öðru jöfnu, en fylgist að
öðrum kosti náið með rannsókn-
um, er aðrir kunna að hafa með
höndum. Hyggilegt væri að koma
á fót sérstakri nefnd er væri til
aðstoðar sjávarútvegsráðuneytinu
um allt er varðar stjórnun og
skipulag selveiða, en í slíkri nefnd
ættu m.a. að sitja fulltrúar Nátt-
úruverndarráðs, Hafrannsókna-
stofnunar og hagsmunaaðila.
Ofangreint fyrirkomulag mundi
stuðla að því að selveiðar yrðu
undir ströngu eftirliti. Jafnframt
tryggði það ítarlega umfjöllun um
þessi mál, bæði frá fræðilegu sjón-
armiði og frá sjónarmiði náttúru-
verndar, en á hvort tveggja hefur
verulega skort frá því að hring-
ormanefnd hóf afskipti sín af sel-
veiðum.
Náttúruverndarráð vill að lök-
um taka það fram, að það er að
sjálfsögðu ekki andvígt skynsam-
legri nýtingu sela hér við land.
Hins vegar vill ráðið enn vara við
ótímabærum og hæpnum aðgerð-
um til fækkunar sela. Eins og
fram hefur komið hér að framan
er þörf miklu meiri rannsókna á
fjölmörgum atriðum, er snerta
hringormavandamálið. Þegar haft
er í huga hversu gífurlegir hags-
munir eru hér í húfi verður það og
að teljast nauðsynlegt að veita
miklu fjármagni til hnitmiðaðra
rannsókna.