Morgunblaðið - 21.01.1984, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984
Fimm Presley-
upptökur komnar
í leitirnar
New Y'ork, 20. janúar. AP.
FUNDIST hafa upptökur með fimm lögum rokkkóngsins Elvis Presley, í
útvarpsstöð í Louisiana og munu þau verða gefin út á hljómplötu fljót-
lega. Upptökurnar fóru fram árin 1955 og 1956.
Hljómplatan ber heitið „Elvis
— the first live recordings“ og á
henni verður einnig kynning
stjórnanda útvarpsþáttarins
sem Elvis söng lögin í á sínum
tíma. Þetta eru lögin „Hound
dog“, „I wanna play house with
you“, „Maybelline", „Tweedle
dee“ og „That’s all right mama“.
Það var maður að nafni
Marshall Sehorn, eigandi upp-
tökufyrirtækis í New Orleans,
sem fann spólurnar í útvarps-
stöðinni í Louisiana. Hann var
að grúska í gömlum skápum og
fann þær í öskju sem var ekki
einu sinni merkt Elvis. Orðróm-
ur var á kreiki um að spólurnar
væru til, en enginn vissi hvar
þær voru niður komnar. Tvö lag-
anna, „Maybelline" og „Tweedle
dee“, hafa aldrei áður verið á
hljómplötum Presleys.
Hl
Elvis Presley
Eþíópía:
Sakharov biðlar til ör-
yggisráðstefnumanna
Stokkhólmi, 20. janúar. AP.
SOVÉSKI andófsmaðurinn andrei
Sakharov, hefur smyglað sendibréfi
til allra sendinefnda þeirra sem sitja
öryggismálaráðstefnuna í Stokk-
hólmi þcssa dagana, eftir því sem
sænska dagblaðið Expressen greindi
frá í gær. í bréfinu hvetur hann þjóð-
irnar til að hjálpa sér að fá brottfar-
arleyfi frá Sovétríkjunum fyrir eig-
inkonu sína, sem þurfi að komast
undir læknishendur á Vesturlönd-
um.
Bréfið er dagsett í Gorky 12.
janúar síðastliðinn, og þar segir
hann að eiginkona sín hafi fengið
hvert hjartaslagið af öðru og
heilsa hennar sé afar slæm. En
vegna þess hversu ofsótt þau hjón
hafa verið vegna stjórnmálaskoð-
ana sinna, hefur Jelena ekki feng-
ið þá aðhlynningu sem henni er
nauðsynleg.
„Ég þrábið alla erlenda fulltrúa
á ráðstefnunni að styðja kröfu
okkar hjóna um að eiginkona mín
fái að leita lækninga á Vestur-
löndum og þrábið þá jafnframt að
reyna að koma þeim skoðunum
sínum á framfæri við yfirvöld í
Sovétríkjunum. Ellegar verður
það bani eiginkonu minnar og þá
Mannránið var
uppspuni frá rótum
Schwaebi»ch-(>muend, V-Pýskalandi, 20. janúar. AP.
BANDARÍSKI hermaðurinn sem sagði að vestur-þýskir kjarnorkuandstæð-
ingar hefðu rænt sér á dögunum, hefur nú viðurkennt fyrir þýsku lögregl-
unni, að allt væri þetta uppspuni. Lögregluyfirvöld staðfestu fregnina í gær,
en gáfu ekki upp frekari málavöxtu.
Hermaðurinn, Liam Fowler,
hringdi til eiginkonu sinnar
snemma á laugardaginn var og
virtist mikið niðri fyrir. Sagði
hann að sex kjarnorkuandstæð-
ingar hefðu dregið sig spriklandi
út úr bíl sínum og hefðu sig í
haldi. Síðar á laugardaginn
hringdi hann aftur og var þá rórri,
en sagði konu sinni að gera þarl-
endum og bandarískum fjölmið-
lum skiljanlega andúð vestur-
þýsku þjóðarinnar á meðaldrægu
kjarnorkuflaugunum. Á sunnu-
dagsmorguninn fannst Fowler svo
heill á húfi í hlöðu eigi langt frá
Skartgripum rænt frá Christies í London:
Þýfið metið á
40 milljónir
januar.
VOPNAÐIK menn brutust í morg-
un inn í húsnæði Christies-upp-
boðsfyrirtækisins í London og
rændu skartgripum úr safni Flor-
ence J. Gould að verðmæti um
fjörutíu milljónir króna.
Stolið var eyrnarlokk og dem-
antsarmbandi úr safni Gould, og
tveimur hálsmenum úr safni,
sem ekki er eins verðmætt. Safn
Florence J. Gould átti að fara á
uppboð í New York í apríl.
Myndavélar sem faldar voru í
húsnæði Christies sýna að ræn-
ingjarnir voru fjórir grímu-
klæddir menn með skotvopn. Að
sögn lögreglunnar fóru þeir á
brott í flutningabifreið, sem þeir
skildu eftir í kílómetra fjarlægð.
Þar fóru þeir í aðra bifreið, sem
ekki hefur fundist.
Ræningjarnir neyddu alla þá
sem í sýningarsal Christies voru,
öryggisverði, dyraverði og sýn-
ingargesti sem voru aðeins tveir
til að leggjast á gólfið á meðan
þeir hrifsuðu skartgripina og
komu sér burt.
Schwaebisch-herstöðinni.
Vestur Þýska lögreglan var frá
upphafi vantrúuð á að um mann-
rán hefði verið að ræða og er
gengið var á manninn kom í ljós
að það var rétt. Bandarísk heryfir-
völd í Vestur-Þýskalandi vildu
ekkert um málið segja í gær, en
haft var eftir háttsettum manni
sem ekki vildi láta nafns síns get-
ið, að Fowler yrði látinn sæta geð-
rannsókn. Að sögn umrædds
manns, var ferill Fowlers flekk-
laus og pottþéttur þar til fyrir
skömmu, að hann var handtekinn
fyrir afbrigðilega hegðun á al-
mannafæri.
Þá tilkynnti lögreglan, að ör-
uggt væri að Fowler hefði staðið
einn að gabbinu. Á hinn bóginn
getur hún ekki útskýrt síiptal sem
til hennar barst, þar sem þýsku-
mælandi maður tilkynnti ránið á
Fowler. Og bifreið hans er enn
ófundin.
Kúbumenn fækka
í herliði sfnu
minn bani einnig, því ég get ekki
án hennar verið," segir Sakharov í
bréfi sínu.
Washington, 20. janúar. AP.
Háttsettir bandarískir embætt-
ismenn sögðu í gær, að svo virtist
sem Kúbumenn væru loks að fækka
í herliði sínu í Eþíópíu, í fyrsta skipti
í sex ár, en þá fluttu þeir þangað
sína fyrstu hermenn.
Embættismennirnir, sem ekki
vildu láta nafns síns getið, sögðust
ekki vissir enn sem komið væri,
hvort Kúbumennirnir yrðu sendir
heim til Kúbu, eða hvort þeir yrðu
sendir til Angóla, 20.000 öðrum
kúbönskum hermönnum til halds
og trausts. Sögðust þeir ekki hafa
nákvæmar tölur á reiðum hönd-
um, en líklegt að nú væru um
10.000 Kúbumenn í Eþíópíu, en
flestir hefðu þeir verið 12.000 til
13.000. Liðsflutningarnir hófust
fyrir um mánuði. Embættismenn-
irnir bættu við, að ekkert benti til
þess að Kúbumenn ætluðu að kalla
allt herlið sitt heim.
Kúbumennirnir komu fyrst til
Eþíópíu árið 1978, til þess að að-
stoða hina marxísku stjórn lands-
ins við að halda Sómalíumönnum í
skefjum, en þeir gerðu tilkall til
Ogaden-héraðsins í austurhluta
Eþíópíu, þar sem margir Sómalir
búa. Eþíópía hefur nú hernaðaryf-
irburði yfir Sómalíu þannig að
ERLENT
ófriður er ekki lengur í Ogaden. Á
hinn bóginn logar allt í óeirðum í
norðurhluta Eþíópiu þar sem ýms-
ar fylkingar berjast fyrir eigin
sjálfstæði í Eritreu og Tigre.
Kúbumenn hafa ekki viljað blanda
sér í þau átök, því þau eru óskyld
upprunalegu hlutverki þeirra í
Eþíópíu. Þá telja fyrrgreindir
embættismenn, að peningaspurs-
mál kunni að standa að baki flutn-
ingi kúbanskra hermanna frá
Eþíópíu. Þannig er nefnilega mál
með vexti, að Eþíópíustjórn borg-
ar Kúbu fyrir hermennina og
efnahagur landsins er afar bág-
borinn.
Heseltine á Falk-
landseyjum
Port Stanley, Falklandseyjum. 20. janúar. AP.
DAVID Heseltine, varnarmálaráó-
herra Bretlands, kom í gær í heim-
sókn til Falklandseyja. Er það fyrsta
ferð hans þangað síðan að Bretar og
Argentínumenn börðust um eyjarnar
og Bretar höfðu betur.
Heseltine mun hitta að máli yf-
irmann hinna 4.000 bresku her-
manna sem á eyjunum hafa dvalið
allar götur síðan í stríðinu. Þá
mun hann líta eftir framkvæmd-
um við nýjan og endurbættan
flugvöll á eyjunum. „Ég er þó fyrst
og fremst að sjá með eigin augum
hvort að Bretland rækir skyldur
sínar á eyjunum og hvort fé okkar
til þeirra megi verja betur en gert
er,“ sagði Heseltine við komuna.
Heath snýst gegn Thatcher:
Greiddi atkvæði gegn
stjórnarfrumvarpi
Loodon, 20. janúar.
UPPREISN Edwards Heath og tólf
annarra þingmanna íhaldsflokksins
gegn Margréti Thatcher í vikunni
hefur vakið mikla athygli. Þing-
mennirnir sem teljast til svonefndra
„heybróka“ í flokknum (en ein-
dregnir stuðningsmenn stjórnar-
stefnu Thatcher eru nefndir „harð-
jaxlar") greiddu atkvæði gegn
stjórnarfrumvarpi sem fól í sér að
réttur sveitarstjórna til aö ákveða
fasteignaskatta í eigin umdæmum
væri af þeim tekinn og færður í
hendur ríkisstjórninni. Frumvarpið
náði engu síður fram að ganga því
íhaldsflokkurinn hefur drjúgan
meirihluta í neðri málstofunni.
Heath hefur sætt mikilli gagn-
rýni fyrir að bregðast stjórninni í
svo þýðingarmiklu máli, en hann
vísar henni á bug. „Við búum í
lýðræðisríki og menn eiga rétt á
því að hafa ólíkar skoðanir," segir
hann.
Uppreisn Heath kom ekki mjög
á óvart, því hann hefur ekki farið
leynt með skoðanaágreining sinn
við Thatcher á undanförnum ár-
um. Þetta er hins vegar í fyrsta
sinn sem hann greiðir atkvæði
gegn henni á þingi.
hers-
Hræringar í forystuliði Kólombíu:
Ráðherra og þrír
höfðingjar hætta vegna
ágreinings við forsetann
EBE-ríkin herða eftirlit
með innfluttum rækjum
BrUssel, 20. janúar. AP.
FLEST ríki Efnahagsbandalags Evr-
ópu hafa annaðhvort bannað inn-
flutning á rækjum frá Suðaustur-
Asíu eða hert eftirlit með slfkum
innflutningi í kjölfar eitrunarmáls-
ins í Hollandi þar sem 14 létust eftir
að hafa borðað rækju sem flutt var
inn frá Bangladesh, að því er tals-
maður EBE greindi frá í dag.
Vestur-Þýskaland, Ítalía, Hol-
land og Danmörk hafa bannað
innflutning á allri rækju frá Suð-
austur Asíu. Frakkland, Bretland,
Belgía og Lúxemborg hafa aukið
eftirlit með innfluttum rækjum.
Ekki hefur frést um svipaðar
aðgerðir á Italíu og í Grikklandi,
en talsmaður EBE sagði að öllum
aðildarríkjum bandalagsins hefði
verið greint frá hættunni.
BogoU, Kólombíu, 20. janúar. AP.
FJORIR af æðstu yfirmönnum herafla Kólombíu hafa sagt upp störfum eftir
ágreiningsmál við forsetann, Belisario Betancur. Þótti þeim hann ganga of
langt til móts við vinstrisinnaða skæruliða í landinu auk þess að ætla sér að
auka samskipti viö Kúbu.
semi sinni um stjórnsýslu lands-
ins og minnti hann á, að forsetinn
væri æðsti yfirmaður hersins og
réði því sem hann vildi í þeim efn-
um. Sagði ráðherrann þá umsvifa-
laust af sér.
Skæruliðarnir, sem fyrr er
greint frá, eru um 15.000 talsins
og Betancur er fyrsti forseti
landsins í 34 ár sem reynir að
finna friðsamlega lausn á málinu.
Ýmsir eru þeirrar skoðunar að
hann gangi of langt til móts við
Herforingjarnir sem um ræðir
voru yfirmenn landhersins og
flughersins, auk yfirmanns alls
heraflans. Þeir hættu allir í gær,
en á miðvikudaginn sagði varn-
armálaráðherra landsins einnig af
sér vegna sömu ágreiningsmála.
Varnarmálaráðherrann, Fern-
ando Landazabal, kom fram í
sjónvarpi í síðasta mánuði og
gagnrýndi stefnu Betancurs. Á
miðvikudaginn sagði forsetinn
ráðherranum að láta af afskipta-
þá. Þá hefur Betancur viljað auka
stjórnmálaleg tengsl við Kúbu, en
fyrrum forseti Kólombíu, Julio
Ceser Turbay, sleit stjórnmála-
sambandi landanna árið 1981 er
hann taldi sig hafa sannanir fyrir
því að her Kúbumanna hefði þjálf-
að sveitir hinna vinstrisinnuðu
skæruliða í landinu.
Nýi varnarmálaráðherrann er
Gustavo Matamoros. Hann tók við
embætti á fimmtudag og að því
loknu sagði hann við fréttamenn,
að hann myndi hlýða forsetanum í
einu og öllu, og her landsins viður-
kenndi Betancur sem æðsta yfir-
mann sinn.