Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 21.01.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1984 23 Myndin sýnir endastöð gasleiðslunnar miklu frá Síberíu í Obergaebach í norðaustur Frakklandi. Leiðslan er 4.451 km að lengd, og samkvæmt upplýsingum franskra yfirvalda var hún tekin í notkun 1. janúar sl. Hún tekur á degi hverjum á móti 4 milljónum rúmmetra af gasi sem notað er víðs vegar í Frakklandi. Námuslysið f Japan: Sýndi fyrirtækið glæp samlega vanrækslu? Takada, Japan, 20. janúar. AP. LÖGREGLUMENN og námusér- træðingar hófu f dag rannsókn á slysinu í Miike-námasvæðinu, en þar fórust í gær 83 menner eldur kom upp í kolanámu. Rannsóknin beinist aðallega að því hvort Mitsui- námufélagið hafa vanrækt að hafa samband við lögreglu í tíma og hefja björgunarstarf. Talsmaður lögregl- unnar sagði að hugsanlega yrði fyrir- tækið kært fyrir glæpsamlega van- rækslu. Fulltrí námufélagsins viður- kenndi í gær að ekki hefði verið haft samband við lögreglu fyrr en fimm klukkustundum eftir að eld- ur varð laus í námunni. Hann sagði að yfirmenn á staðnum hefðu talið að björgunarsveit fyrirtækisins sem fór niður í nám- una 15. mín. eftir að heyrðist í viðvörunarbjöllum mundi geta ráðið við eldinn og bjargað öllum út. Veður víða um ! heim Akureyri 2 alskýjaó Ameterdam 5 heióskirt Aþena 15 Skýjað Bangkok 32 heiðskfrt Berlin 2 skýjað Brtlsael 5 heióakirt Buenos Alres 28 heiðekfrt Chicago 4 heiðskfrt Dubtin 3 skýjað Genf 1 anjókoma Helsingfors 1 skýjað Hong Kong 16 skýjað Honolulu 28 heiðskfrt Jakarta 30 skýjað Jenisalem 12 skýjað Jóhannesarborg 29 heiðskfrt Kiev 0 skýjað Lissabon 15 rigning London 4 heiðskirt Los Angeles 19 heiðskfrt Madrid 13 rigning Mexíkóborg 21 akýjað Míami 29 skýjað Montreal +8 skýjað Moskva +2 skýjað New Vork 0 helöskirt Osló -8 hefðakfrt París 2 skýjað Peking +2 heiðekfrt Reykjavik 1 snjóél Rió de Janeiró 40 heiðskirt Róm 11 skýjað Santiago 30 heiðskfrt Seoul -3 heiðskfrt Stokkhóimur -9 hálfskýjað Sydney 25 hefðskirt Tel Aviv 16 skýjað Tókýó 3 heiöskfrt Toronto -12 skýjað Vancouver 3 skýjað Vinarborg 6 skýjað Varsjá 2 skýjað Þórshðtn -1 snjóát Efnahagsbatinn í Bandaríkjunum segir til sín: Fjórar milljónir nýrra starfa á einu ári í FRÉTT í franska blaðinu Le Monde fyrir fáum dögum er skýrt frá því, að atvinnuástandið í Bandaríkjunum hafi batnað til mikilla muna á undanförnum 12 mánuðum. Ef fjöldi atvinnulausra í desember 1982 og 1983 er bor- inn saman kemur í Ijós, að þeim hefur fækkað um rösklega tvær og hálfa milljón. í desember 1982 voru 10,7% verkfærra Bandaríkja- manna atvinnulausir, en í des- eraber 1983 hafði hlutfall þeirra lækkaö niður í 8,2%. f desember hafði atvinnulausum fækkað um 230.000 frá mánuðinum þar á undan. Þessi árangur segir sína sögu, en þó ber ekki að líta á hann einvörðungu. Það sem mesta at- hygli vekur er sú staðreynd að fjöldi launþega í Bandaríkjun- um hefur aukist á einu ári frá 98,98 milljónum upp í 102,94 milljónir. Þar af leiðir að fjórar milljónir nýrra atvinnutæki- færa hafa skapast, og er það skýrasta dæmið um efnahags- batann í Bandaríkjunum. Þar í landi gera menn sér minni rellu út af högum annarra en víðast tíðkast. Menn sigra ýmist eða eru sigraðir og hananú! í ljósi þess ber nær einvörðungu að skoða batnandi atvinnuástand í ljósi efnahagslífsins. Á síðustu tveimur ársfjórðungum var gert stórátak gegn atvinnuleysi og komst þá mikill fjörkippur í bandarískt athafnalíf, eftir að lengi hafði sigið á ógæfuhliðina. Kom þá í ljós, hversu undra- fljótt Bandaríkjamenn geta rétt úr kútnum. Iðnframleiðsla hafði dregit saman um 8% á síðasta ári með þeim afleiðing- um að atvinnuleysi jókst, en á síðasta ári tók hún að aukast skyndilega og nam aukningin $ 6% á árinu. Samkvæmt spám OECD, Efnahags- og framfara- stofnunar Evrópu, mun fram- leiðslan aukast ennþá meira á næstunni. Til að ná þessum árangri hef- ur Ronald Reagan forseti áreið- anlega haft að engu ýmis kosn- ingaloforð sín, þar á meðal að ríkissjóður verði hallalaus árið 1984. (í lok síðasta árs var hall- inn á ríkissjóði 200 milljónir dollara eða snöggtum lægri en næstu ár á undan.) En hann hefur staðið við þau orð sín að stuðla að efnahagsframförum, en viðhalda jafnframt stöðugu verðlagi. í viðtali við franska tímaritið Figaro Magazine, 7. janúar, sagði hann eftirfarandi: — Sú stefna okkar að draga úr verðbólgu en stuðla að aukinni framleiðslu er í raun réttri áhrifaríkasta úrræðið til að byggja upp traustan efnahag og velsæld — og jafnframt eina úr- ræðið, sem dugir, þegar til lengdar lætur. E1 Salvador: Sókn stjórn- arhers í aðsigi San Salvador, E1 Salvador. 20. janúar. AP. Háttsettir embættismenn innan stjórnarhers El Salvador, sögðu í gær, að í undirbúningi væri stórsókn á hendur vinstri sinnuðum skærulið- um í landinu. Væri sóknin hugsuð sem síðari liður sóknar sem hófst í júní á síðasta ári. Markmið sóknarinnar er að reka skæruliðana úr landbúnað- arhéruðunum í Usulatan, fyrir austan San Vicente, þar sem fyrri liður sóknarinnar stóð lengst af yfir. Ætla stjórnarhermennirnir að þræða þorpin, reka skærulið- ana á brott og standa síðan vörð meðan íbúar þorpanna setjast að á ný og hefja búskap. Gjald- þrota- met sett í Noregi Osló, 20. jan. AP. TÓLF hundruð þrjátíu og sex fyrir- tæki í Noregi urðu gjaldþrota í fyrra, að því er Hagstofan í Osló greindi frá í dag. Til samanburðar er þess að geta að árinu 1982 fóru 955 fyrirtæki á hausinn. Gjaldþrot fyrirtækja í Noregi hafa ekki verið fleiri í rúma sex áratugi, eða síðan 1920. Flest fyrirtækin, sem gjaldþrota urðu, starfa á sviði verslunar, og hafa færri en 10 starfsmenn í vinnu. írakar hóta Svíum Stokkhólmi, 20. janúar. Frá Erik Liden, frétUritara Mbl. ÍRAKAR hafa gengið á fund sænskra stjórnvalda í Stokkhólmi og sagt þeim að þeir skyldu ekki kippa sér upp viö það þó írakar sprengdu í loft upp verksmiðju sem Svíar eiga aðild að í íran og sænskir verka- menn vinna við. Það var sænska Dagblaðið sem greindi frá þessu í gær. Verk- smiðjan er enn í smíðum og starfa við smíðina 100 sænskir verka- menn. Ræðismaður írak í Stokk- hólmi sagði yfirvöldum í Svíþjóð að ef byggingu verksmiðjunnar yrði ekki hætt umsvifalaust, þá myndu írakar sprengja hana í loft upp. Hér er um efnaverksmiðju að ræða 50 kílómetra fyrir utan Te- heran. írakar halda því fram að Svíar styðji íran í stríði íran og írak, og eru gramir þeim fyrir það. Svíar eru því ekki sammála, segjast vera hlutlausir í þessu máli. írakar segja á móti að þátttaka Svía í verksmiðjubyggingunni í íran geri þá fullyrðingu að engu. Opiöídagkl.9-16 TT K TT ITip Skeifunni 15 llAVJliAU 1 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.