Morgunblaðið - 21.01.1984, Page 40

Morgunblaðið - 21.01.1984, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÍIAR 1984 Hótel Saga: Kabarettinn ’84“ sýndur „SÖGUSPAUG ’84“ er nafnið á nýrri kabarettdagskrá sem frum- sýnd verður í Súlnasal Hótel Sögu í kvöld. Efnið, sem byggir á atburðum líðandi stundar, er flutt af „grín- urum hringsviðsins", þeim Ladda, Jörundi, Erni Árnasyni og Páima Gestssyni. Þeir syngja, dansa og leika á sviðinu í Súlna- „Söguspaug í kvöld salnum undir stjórn leikstjór- ans, Gísla Rúnars Jónssonar. Hljómsveitarstjóri er Vil- hjálmur Guðjónsson og hljóm- band og lýsingu annast Gísli Sveinn Loftsson. Sýningin hefst klukkan 22.30 og að henni lok- inni leikur Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar fyrir dansi. (Úr íréttalilkynningu.) Frumsýning á íslandi laugardagskvöld! með „Grínurum hringsviðsins“ Stórkostleg söng- og skemmtidagskrá með spaugurum spaugaranná. Ladda, Jörundi, Erni Árna og Pálma Gests. Leikstjóri' Gísli Rúnar Jónsson Hljómsveitarstjóri: Vilhjálmur Guðjónsson Hljómband og lýsing: Gísli Sveinn Loftsson Sérstakur matseðill í tilefni kvöldsins. húsið opnað kl. 19:00. Peir sem vilja ekki missa af frumsýningunni komi fyrir kl. 22:30. Aðgangseyrir aðeins kr. 150,00. Húsið opnað öðrum en frumsýningargestum kl. 23:30, en þá hefst frumsýningardansleikur með Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar. Borðapantanir í síma 20221. Pantið strax! Framhalds- stofnfundur Samtaka kvenna á vinnu- markaöi SAMTÖK kvenna á vinnumarkaði halda framhaldsstofnfund sinn á morgun, sunnudag kl. 13.30 í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi, Breið- holti. Á fundinum verður m.a. fjallað um hið alvarlega ástand sem er að skapast í atvinnumálum þjóðar- innar. Fjöldauppsagnir launafólks síðustu daga eru nú þegar orðnar þjóðfélagslegt vandamál. Þrjú prósent launafólks eru nú þegar atvinnulaus. Uppsagnir síðustu daga hafa einkum bitnað á konum. Samtök kvenna á vinnumarkaðinum mót- mæla harðlega þeirri pólitík að aðeins á þessu sviði gangi konur fyrir. Samtök kvenna á vinnumarkaði eru stofnuð með það í huga m.a. að berjast fyrir: — jöfnun launum kvenna og karla, félagslegum úr- bótum, svo sem aukningu dag- vistarrýma, að kjör kvenna verði ætíð miðuð við það sem best ger- ist, varðandi lífeyrismál, veikinda- rétt, fæðingarorlof og uppsagnar- frest, að endurheimta kjaraskerð- ingar síðustu mánaða og koma í veg fyrir frekara kauprán. Samtökin átelja harðlega að ekki hefur enn verið kosið í samn- inganefnd ASÍ. Samtökin beina þeim eindregnu tilmælum til laun- þega að þeir stuðli að því að konur veljist í auknum mæli f samninga- nefndir. Samtökin benda á að það eru nær eingöngu karlar sem semja um kjör kvenna þó að 86% kvenna á íslandi séu útivinnandi og jafnframt að laun karla eru 52% hærri en laun kvenna miðað við ársverk. (Úr fréiutilkjnninini). BBIalalsHalalalala BÉgíftii! " Bingó ” Kol E1 ÍHl IÖ1 Eol kl. 2.30 í dag, laugardag. _ Aðalvinningur: □T Vöruúttekt ffyrir kr. 01 7.000. 131 Hótel Borg Dansleikur frá kl. 10—03 Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.