Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 1
Myndlist/Tónlist 44 Sveitarfélög á Vesturlandi 46/47 Rannsóknir á Islandi 48 Brunavarðafélagið 40 ára 50 Álrækt 51 Fjalakötturinn 52/53 Réttur dagsins 53 Miðvikudagur 7. mars Þingfréttir 54 Draumabúseta 56 Myndasögur 58 Fólk í fréttum 59 Dans/bíó/leikhús 60/61 Velvakandi 62/63 Búnaðarþing 62/63 við skiptum liði, tveir gengu í einu ' á meðan hinir tveir vöktuðu far- angurinn. Þetta gerðum við til að fyrirbyggja hugsanlegan þjófnað, því við höfðum heyrt að argent- ínsku hermennirnir væru mikið á ferðinni og stælu öllu steini létt- ara. Hitinn í dalnum var nánast óbærilegur, hann fór upp í 41 gráðu á Celsíus og það voru mis- tök hjá okkur að hvílast ekki yfir miðjan daginn, eða sofa siesta, eins og það er kallað þar um slóð- ir. En þetta var mistakanna ferð, og við gengum eins og asnar allan daginn. Á nóttunni fór hitastigið hins vegar allt niður í fimm stiga frost. Við vorum sjö daga að komast yfir í aðaltjaldbúðirnar, sem eru í 4.200 metra hæð við rætur fjalls- ins. Þá höfðum við tekið hækkun upp á 1.800 metra, því byrjunar- staðurinn var í 2.395 metra hæð. í aðaltjaldbúðunum hvíldumst við í einn dag, en hefðum auðvitað átt að vera þar lengur til að aðlagast hæðinni betur. En við vorum á strangri tímaáætlun og ætluðum okkur ekki að eyða tíma í hangs sem var vitaskuld tóm vitleysa, því við máttum vita að hæðarveik- in yrði okkar versti óvinur." Grýlukerti á hvolfi, mætti kalla þessa ísnjóla, sem þeir Pétur og Bill eru að brjótast í gegnum á leið upp í tjaldbúðir tvö. A sokkaleistunum upp Aconcagua Rætt við Hermann Valsson um fjallgönguleiðangur hans og þriggja félaga hans upp hæsta fjall Ameríku Fjórir íslenskir fjallagarpar gerðu sér ferð til Argentínu í janúar sl., og gengu þar á hæsta fjall í Suður- og Norður- Ameríku, hið 6.959 metra háa Aconcagua, sem liggur skammt frá landamærum Chile, við þjóðbrautina á milli Mendoza og Santiago. Fjórmenningarnir heita Hermann Valsson, Pétur Ásbjömsson, William Gregory og Þorsteinn Guðjónsson, allt vanir menn, sem meðal annars hafa klifið Mount Blanc, hæsta fjall Vestur-Evrópu (4.809 m). Piltarnir voru á mjög strangri tímaáætlun, þar sera hvergi var gert ráð fyrir óhöppum eða eðlilegum aðlögunartíma. Þeir voru reyndar heppnir með veð- ur og urðu ekki fyrir neinum teljandi skakkaföllum, en hæðaveikin gerði þeim gramt í geði og kom í veg fyrir að þeim tækist að komast alla leið á tindinn. En einn þeirra, Her- mann Valsson, reyndi aftur eft- ir annarri leið og komst á leið- arenda. Hann hefur því komist á leiðarenda. Hann hefur því komist hæst íslendinga með fast land undir fótum. Morgun- blaðið spjallaði við Hermann um ferðalagið og fer lýsing hans hér á eftir. Stöðvaðir af hernum „Við lögðum af stað frá tslandi sunnudaginn 8. janúar, flugum fyrst til London, daginn eftir til Madrid og áfram um kvöldið til Las Palmas og þaðan til Buenos Aires. Til Buenos Aires komum við klukkan sjö að morgni þriðju- dags. Þann sama dag fórum við til Mendoza, þar sem við gistum um nóttina og keyptum mat fyrir ferðina. Innkaupin voru mikið ævintýri. Við keyptum mat fyrir fjóra í tuttugu daga fyrir aðeins tvö þúsund krónur íslenskar! Seinni part miðvikudags var okkur ekið frá Mendoza til Punkta De Vagas, en þaðan var meiningin að leggja af stað í gönguna. Á leið- inni lentum við í útistöðum við herinn. Við höfðum fengið öll nauðsynleg leyfi frá argentínskum yfirvöldum, auk þess sem við höfð- um gefið okkur fram á lögreglu- stöð og látið vita um ferðir okkar. En eigi að síður stöðvaði herinn okkur, sem kostaði okkur klukku- stundar þjark. Við fengum aldrei að vita hvers vegna við vorum stöðvaðir, en kannski vildu þeir hafa föðurlega umhyggju með hverjir legðu á fjallið. Annars kom það manni gríðarlega á óvart hve útbúnaður hermannanna var fátæklegur. Þeir voru í rifnum föt- um og byssurnar voru greinilega gamlar og slitnar. Þetta sýnir kannski betur en margt annað hve fátæktin er mikil í Argentínu, því þetta voru landamærahermenn, sem er aðeins skipuð úrvalsher- mönnum." „Á fimmtudegi lögðum við af stað inn langan dal sem liggur að fjallinu, um 60 kílómetra langa leið, sem við fjórlöbbuðum áður en yfir lauk. Við þurftum að selflytja farangurinn, sem var yfir 200 kíló- grömm, eða á milli 50 og 60 á mann. Við höfðum þann hátt á að Hæöarveikin „Það er kannski rétt að útskýra það áður en lengra er haldið hvað hæðarveiki er: Eftir því sem ofar dregur minnkar súrefnismagnið í andrúmsloftinu og í 7.000 metra hæð er súrefnismagn andrúms- loftsins fimm sinnum minna en við sjávarmál. Líkaminn bregst við þessu með því að framleiða meira af rauðum blóðkornum, en það tekur hann nokkurn tíma. Ef menn fara of geyst og gefa líkam- anum ekki tækifæri til að laga sig að hæðinni þá skellur hæðarveikin á. Hún lýsir sér þannig að menn fá gríðarlega slæman hausverk og ógleði. Menn verða sljóir, mátt- lausir og missa alla framtakssemi. Hæðarveikin getur heltekið menn svo gjörsamlega, að einföldustu athafnir verða sem ókleifur tind- ur. Ef ekki er brugðist skjótt við undir slíkum kringumstæðum og farið strax niður, geta menn átt það á hættu að fá heila- eða lungnabjúg og deyja drottni sín- um á sex til tíu tímum. Súrefnisskorturinn fer að segja til sín strax í 3.500 metrum, en fólk getur aðlagast hæðinni og bú- ið allt upp í 5.000 metra hæð, eins- og til dæmis Inkarnir eða Serp- arnir í Himalaja. Mannslikaminn Aconcagua, hæsta fjall í Suður- og Norður-Ameríku. Nafn fjallsins er úr indíánamáli og merkir sá sem yfir gnæfír og verndar. Hermann sagði að þeir félagar hefðu kallað það sín á milli Útvörðinn, sem er vel við hæfí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.