Morgunblaðið - 07.03.1984, Qupperneq 10
Þessi mynd var tekin í afmælishóri Brunavarðafélagsins þann 13. febrúar síðastliðinn af mönnum
sem gegnt hafa formannsembætti félagsins. f efri röð eru talið frá vinstri: Ármann Pétursson,
núverandi formaður, Arnþór Sigurðsson, Jóhannes S. Jóhannesson, Sigurður Kristjánsson og Tryggvi
Ólafsson. f neðri röð eru talið frá vinstri: Finnur Richter, Bjarni Bjarnason, Leó Sveinsson og Óskar
Óiafsson.
Stjórn Brunavarðafélagsins. f efri röð eru talið frá vinstri: Gunnar Jónsson, Sigurður Á.
Sigurðsson og Friðrik Þorsteinsson og í neðri röð eru talið frá vinstri: Erlingur Lúðvíksson,
Stefán Steingrímsson, Ármann Pétursson, formaður, og Gunnar Örn Pétursson.
Brunavarðafélag Reykjavíkur 40 ára
BRUNAVARÐAFÉLAG Reykjavíkur varð 40 ára hinn 13.
febrúar síðastliðinn, en félagið var stofnað þann sama dag
árið 1944. Félagar brunavarðafélagsins minntust þessara
tímamóta í húsakynnum slökkviliðsfélagsins við Öskjuhlíð á
afmælisdaginn og buðu til veislu félögum í Brunavarðafélagi
Hafnafjarðar og Keflavíkur auk brunavarða á Reykjavíkur-
flugvelli, Davíð Oddssyni borgarstjóra, Haraldi Hannessyni
formanni Starfsmannafélags Reykjavíkur og fyrrverandi fé-
lögum í Brunavarðafélagi Reykjavíkur.
Rúnar Bjarnason slökkvi-
liðsstjóri heiðraði 14 fyrr-
verandi starfsmenn slökkvi-
liðsins og færði þeim minja-
gripi að gjöf. Núverandi
formaður brunavarðafélags-
ins er Ármann Pétursson og
sagði hann í spjalli við blm.
Mbl. að félaginu hefðu borist
margar gjafir í tilefni þess-
ara tímamóta, meðal annars
frá slökkviliði Hafnafjarðar,
Starfsmannafélagi Reykja-
víkurborgar, slökkviliði
Keflavíkur og fleiri aðilum.
Stofnfélagar brunavarða-
félagsins voru 20 talsins og
var fyrsti formaður félagsins
Anton Eyvindsson.
Fyrrverandi starfsmenn slökkviliðsins, sem voru heiðraðir. 1 aftari röð eru frá vinstri: Gunnar Sigurðsson, Ólafur
Kjartansson, Finnur Richter, Sigurgeir Benediktsson, Jón Guðjónsson og Óskar Ólafsson. f fremri röð eru talið frá
vinstri: Bjarni Bjarnason, Sveinn Ólafsson, Leó Sveinsson og Valur Sveinbjörnsson.
Davíð Oddsson flytur ávarp í afmælishófinu. Vinstra megin við hann sitja Ármann Pétursson form.
Brunavarðafélags Reykjavíkur og Rúnar Bjarnason, slökkviliðsstjóri.
Ljósmyndir: Jón Svavarsson.
Frá afmælishófinu. Á þessari mynd má meðal annars sjá þá Sigurð Þórðarson varaslökkvi-
iiðsstjóra í Hafnarfirði, Tryggva Ólafsson, skrifstofustjóra slökkviliðs Reykjavfkur, og Helga
ívarsson, slökkviliðsstjóra Hafnarfjarðar.
Norræn kennslugagnasýning
KgilHHtoóum, 19. febrúar.
f G/ER lauk hér á Egilsstöðum nor-
fænni kennslugagnasýningu er
Fræðsluskrifstofa Austurlands
gekkst fyrir í samvinnu við kennslu-
miðstöð Námsgagnastofnunar.
Sýningin var opnuð á föstudag
og voru þá haldin fræðsluerindi í
tengslum við sýninguna — og
munu hartnær 60 kennarar víðs
vegar af Austurlandi hafa sótt
sýninguna og fræðsluerindin.
Fyrir hádegi á föstudag hélt
Hólmfríður Arnadóttir, talkenn-
ari, erindi um heyrnarþjálfun í
byrjendakennslu, en eftir hádegi
ræddi Kristján Guðjónsson,
námsstjóri í stærðfræði, um
stærðfræðikennsluna almennt.
Auk þess gafst kennurum tæki-
færi til kennslugagnagerðar.
Forsvarsmaður þessarar sýn-
ingar hér var Jónína Rós Guð-
mundsdóttir, kennari á Hall-
ormsstað, sem jafnframt er sér-
stakur leiðbeinandi í stærðfræði
fyrir grunnskólakennara á Aust-
urlandi.
Sýning þessi var í kennslumið-
stöð Námsgagnastofnunar í
Reykjavík siðastliðið haust.
— Olafur