Morgunblaðið - 07.03.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
63
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
(is, TIL FÖSTUDAGS
Enn um „Nýjustu fréttir af Njálu“
„Kæri Velvakandi.
Umræða hefur farið fram í dálkum
þínum undanfarið um ofangreindan
laugardaKsþátt í Ríkisútvarpinu, og
langar mig til að leggja þar nokkur
orð í belg, þar sem málefnið er mér
hugstætt.
Ég hef hlustað á þennan þátt laug-
ardag eftir laugardag, og það verður
að segjast eins og er, að ég hef orðið
fyrir vonbrigðum með þáttinn, því að
ég hef ekki orðið aðnjótandi þess efn-
is, sem ég hafði vænzt og beðið eftir.
Það virðist ætla að verða djúpt á
nýju fréttunum af Njálu, sem við eig-
um von á, þ.e.a.s. ef um slíkar fréttir
er þá yfirleitt að ræða i þættinum.
Þótt vissulega sé gaman á sinn hátt
að hlusta á upplestur úr Njálu eða
heyra farið með Gunnarshólma Jón-
asar Hallgrímssonar, þá finnst mér
það ekki vera efni þáttarins, ef ég
skil nafn hans rétt. Hér vantar eitt-
hvað bragðmeira og bitastæðara,
sem þátturinn virðist ekki búa yfir.
Svo við tökum samlíkingu: Hvað
segðu t.d. sjónvarpsáhorfendur um
það, ef umsjónarmaður þáttarins
Nýjasta tækni og vísindi væri sífellt
að klifa á aldagömlum uppfinningum
og tæki menn tali til að spyrja þá um
hvaða gildi gufuvélin eða ljósaperan
hefðir fyrir líf fólks, eða einhverjar
ámóta spurningar? Það þætti ekki
vel gott. Nei. Þetta eru ekki nýjustu
fréttir af Njálu, svo mikið er víst.
Útvarpsþættir eiga að fjalla um það
efni, sem þeim er ætlað að fjalla um,
en ekki eitthvað allt annað. Það kalla
ég að blekkja hlustendur.
I grein Jóns A. Stefánssonar 3.
þ.m. í dálkum þínum um þennan út-
varpsþátt bendir Jón réttilega á rit-
safn Éinars Pálssonar, þar sem sett-
ar eru fram nýstárlegar kenningar
varðandi Njálu. Þetta leiddi huga
minn að löngu og merkilegu viðtali í
tímaritinu STORÐ (3. 1983 1. árg.)
þar sem Illugi Jökulsson ræddi við
Halldór Laxness á heimili hans á
Gljúfrasteini. Gefum Illuga orðið: —
„Áður en ég, með fangið fullt af
spumingum, komst að vildi hann
(H.I.) þó segja mér frá bókinni, sem
hann var að blaða í, þegar mig bar að
garði: það var nýjasta verk Éinars
Pálssonar, Arfur Kelta, sem lá á
hringlaga smáborði innan um Kristni-
haldið á japönsku, taó á spænsku og
fleiri rit. Haildór hefur ekki fremur
en Einar farið troðnar sióðir i skrif-
um sínum um íslenska menningu."
Síðan hefst viðtalið með orðum 111-
uga: „Þeir eru ekki hrifnir af Éinari
uppi í háskóla.“ Og H.L. svarar: „Nei,
þeir hafa víst ekkert af þessari hugs-
un; þetta er alveg sérstök tegund af
krítík á Landnámuna og sögubók-
menntirnar. Einar kemur náttúrlega
úr allt annarri átt, hann hefur öðru-
vísi menntun en þessir menn, og mér
þykir margt í afstöðu hans og niður-
stöðum afar merkilegt —
— „Þessar athuganir Éinars ljúka
upp fyrir manni vissum ákaflega
þýðingarmiklum og grunnlægum
hlutum, sem ég held að íslendingar
séu ekkert of góðir til að kynna sér
svolítið —— „En Einar tekur til
dæmis Njálu fyrir alveg sérstaklega
en Njála er eins og þú veist með öllu
óskiljanleg bók. Maður hefur látið
sér nægja að hafa unað af sögu-
ganginum og stílnum en Éinar tekur
upp mjög furðuleg dæmi um svokall-
aða kabbalistiska aðferð í því hlut-
verki að boða andleg efni. Við skulum
ekki fara nánar út í þetta núna, en ég
les bækur hans alltaf mér til mikillar
ánægju —.“
Þetta voru orð Nóbelsskáldsins
okkar, Halldórs Laxness, um Éinar
Pálsson og kenningar hans.
Tilgátur og niðurstöður Einars
Pálssonar um Njálu eru í senn heill-
andi og afar spennandi og skemmti-
legar. Þær opna fyrir lesandanum
nýjan og áður óþekktan heim í sögu
okkar, einskonar þriðju víddina, og
gefa þessari merku og torráðnu bók,
Njálu, aukið gildi í augum okkar.
Éinar leitast við að skýra Njálu og
atburðarás hennar eftir merkilegum
kenningum sínum og uppgötvunum,
sem aldrei hafa verið settar fram
fyrr.
Ég tek því undir með Jóni A. Stef-
ánssyni í áðurnefndri grein hans 3.
þ.m., að í ritverkum og kenningum
Éinars Pálssonar sé að finna „Nýj-
ustu fréttir af Njálu“ og hvergi ann-
arstaðar. Það eru þesskonar fréttir,
sem ég hafði vænzt að heyra í sam-
nefndum þætti útvarpsins, því að í
þeim fréttum væri svo sannarlega
mergur.“ Baldur Bragason
Innflutningur
norska
sjónvarpsins
— er leitað langt yfir skammt?
Ingó hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: „Þær fréttir sem
bárust á öldum ljósvakans hinn 2.
þ.m. um beinar útsendingar
norska sjónvarpsins eru góðar
fréttir. Ekki vegna þess að hinir
norsku frændur okkar hafi fengið
sérstakt lof fyrir gott sjónvarps-
efni heldur vegna þess að líklegt
má telja að stjórnendur þessarar
þjóðar hafi nú komist að því að
Islendingar séu nú orðnir nægj-
anlega andlega þroskaðir til að
meðtaka sér að skaðlausu efni,
sjónvarpsefni sem er tilreitt af
öðrum útvarpsráðsmönnum. Efni
það er við bætist við tilkomu
norska sjónvarpsins, er eins og
okkar ágæti fréttamaður Atli R.
Halldórsson tíundaði, aðallega
fræðsluefni fyrir börn (á norsku
sem fæst börn hér skilja), íþrótta-
þættir (þriggja klukkustunda
langar skíðagöngur í beinni út-
sendingu t.d.) og greftrunarþættir
þjóðarleiðtoga (í beinni útsend-
ingu).
Um annað láðist Atla að geta,
enda varkár í fréttaflutningi og
hefur ekki viljað vera að sverta
málið með því að geta um alla við-
ræðu- og vandamálaþættina sem
með fylgja, og verða að sjálfsögðu
óþýddir og víst er um það að
margir eiga í erfiðleikum með að
skilja norskuna sér að fullu gagni.
Fjármálastjóri sjónvarpsins, sem
er þekktur fyrir allt annað en að
vera í vandræðum með að eyða
þeim fjármunum sem stofnunin
hefur úr að spila, taldi vart vanda
að reisa hér einn Skyggni f viðbót
til móttöku á norsku sjónvarps-
efni. Varla finnst slíkur sjóður
innan veggja sjónvarpsins, og öll-
um finnst víst símagjöldin nógu
há, svo varla verður brúsinn borg-
aður af Pósti og síma.
En viti menn. Sjónvarpsfram-
kvæmdastjórinn sá lítil vand-
kvæði á að punga út tveim til
þrem milljónum til að reisa mini-
skyggni til móttöku á norsku sjón-
varpsefni. Einn galli er þó mestur
á þessari norsku viðbót að hún
verður send út á sömu tíðni og
íslenska sjónvarpið, sem einfald-
lega þýðir hálfa þætti og hluta úr
þeim, fyrir og eftir útsendingar-
tíma íslenska sjónvarpsins. Frek-
ar vil ég engan þátt en hálfan.
Okkur Islendingum er nokkuð
tamt að leita langt yfir skammt,
og leita dýrari leiða þegar ódýrari
fást. Og þegar við höfum öðlast
þennan þroska fyrir augum ráða-
manna að mega horfa á það sem
okkur langar til í sjónvarpi eins og
í útvarpi, er kominn tími til að
horfa sér nær. Suður á Miðnes-
heiði er rekið nokkuð sem vart
hefur mátt nefna — þ.e. sjón-
varpsstöð, sem er án efa sú allra
besta í Evrópu og þarf enginn að
bera kinnroða fyrir að viðurkenna
það. Fyrst á annað borð er farið að
opna glufu í sjónvarpsmálum, því
Íá ekki að ieyfa okkur, þroskuðum
slendingum, að horfa á það sem
boðið er uppá hjá hinni sjón-
varpsstöðinni á íslandi."
Kiss á
Listahátíð
K.S. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: „Ég mæii eindreg-
ið með því að hljómsveitin KISS
verði fengin á Listahátíð '84.
Hljómsveitin KISS er afar vin-
sæl meðal krakka hér á landi og
hefur verið valin besta hljóm-
sveit Bandaríkjanna. Hvað varð-
ar hljómsveitir svo sem Duran
Duran eða Culture Club eru þær
auðvitað ágætar, en standa þó
KISS langt að baki.“
Um Lesbók
og lesara
7391—2873 hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: „Ég hef
verið óánægð með Lesbók Morg-
unblaðsins síðan hún stækkaði
og finnst mér efni hennar síst
hafa batnað við breytinguna.
Hér áður fyrr las ég Lesbókina
venjulega spjaldanna á milli, nú
er eiginlega ekkert í henni sem
ég nenni að lesa — það er frekar
föstudags- og sunnudagsblaðið
sem maður les.
Þá var það annað sem mig
langaði að minnast á. Ólæsi ís-
lendinga er orðið hörmulegt. Nú
er ekki fluttur 20 mínútna þátt-
ur í útvarpi að ekki sé sérstakur
lesari stjórnanda til aðstoðar og
reyndar oftar tveir en einn.
Þetta er afturför. Hér í gamla
daga voru karlarnir ekki í vand-
ræðum með að buna út úr sér
heilu ræðunum og þurftu enga
lesara með sér í útvarpsþáttum."
f--------------------------------------------------------------
Á fegursta staönum við Breiða-
fjörð er til sölu jörðin Hnúkur
Tilvalið tækifæri fyrir ungan, duglegan bónda, sem vill stofna
stórt kúabú.
Góður vélakostur fylgir meö í kaupunum.
Mjög hagstæöir greiösluskilmálar koma til greina.
Upplýsingar gefnar í síma 26217.
V_____________________________________________________________/
ERGO-STYŒ
stóllinn frá
DRABEPT heldur
þérfgóöu skapi
allandaginn
í Drabert
siturðu rétt
VÉLA-TENGI
7 1 2
Allar gerðir
Öxull — í — öxul.
Öxull — í — flans.
Flans — í — flans.
Tengið aldrei stál — í — stál,
hafið eitthvað mjúkt á milli,
ekki skekkju og titring milli
tækja.
Allar stærðir fastar og frá-
tengjanlegar
SötunrÐmflgKLOtf'
Vesturgötu 16, sími 13280
HALLARMÚLA 2
/\pglýsinga-
síminn er 2 24 80
Hugmynda-
samkeppni um
aukna hagsýni í
opinberum rekstri
Ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga
vilja auka hagsýni í opinberum rekstri.
Markmiðið er að bæta þjónustu hins
opinbera við borgarana en lækka kostnað
við hana.
Málið varðar alla landsmenn. Þess vegna
hefur verið ákveðið að efna til hugmynda-
samkeppni, þar sem öllum er heimil
þátttaka og veita þrenn verðlaun fyrir
áhugaverðustu tillögurnar sem nefndinni
berast. Verðlaunin verða aðfjárhæð
10.000 kr., 7.500 kr. og 5000 kr.
Skilafrestur er til 1. júní nk.
Hagræöingartillögurnar skal senda:
Samstarfsnefnd um hagræðingu í opinberum
rekstri
pósthólf 10015130 Reykjavík eða i
Fjármálaráðuneytið, Fjárlaga- og
hagsýslustofnun Arnarhvoli 101 Reykjavík.