Morgunblaðið - 08.03.1984, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1984
ísrael:
Sprenging í
strætisvagni
Ashod, ísrael. 7. mars. AP.
SPRENGJA SPRAKK í strætisvagni
sem var í áætlunarferð í hafnarborg-
inni Ashod í dag og létu tveir lífið en
tíu til viðbótar særðust illa. Fjöldi
ungra araba var færður til yfir-
heyrslu, en engar handtökur áttu sér
stað.
Þeir sem létust voru roskin karl
og kona. Aðkoman var ljót, fjórar
rúður vagnsins höfðu kastast úr
honum og sæti rifnað upp. Út-
varpið í Tel Aviv greindi frá at-
burðinum og kallaði hann hryðju-
verk. Lögreglustjórinn í Ashod
vildi ekki tjá sig, sagði ástæður
fyrir tilræðinu ókunnar og ekkert
hægt að segja að svo stöddu, 30
ungir arabar hefðu verið yfir-
heyrðir, en lögreglan væri litlu
nær. Þetta er í fyrsta skipti sem
íbúar Ashod verða fyrir barðinu á
hryðjuverkum sem verið hafa al-
geng í Jerúsalem lengi vel.
Lík konunnar sem lést í sprenging-
unni. Búið var að fjarlægja aðra far-
þega er myndin var tekin.
Símamynd AP.
Hernaðarsérfræðingar um sænsku kafbátaleitina:
Michael Jackson
Jackson fer í
skurðaðgerð
Los Angeles, 7. mars. AP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að popp-
söngvarinn heimskunni, Michael
Jackson, gangist undir skurðaðgerð
á höfði vegna brunasára, sem hann
hlaut fyrir rúmum mánuði er kvikn-
aði í hári hans, þar sem hann var að
leika í auglýsingu.
Jackson hlaut slæm brunasár á
höfuðleðri og er aðgerðinni ætlað
að lagfæra þau að fullu. Aðgerðin
mun ekki vera mjög umfangsmikil
og verður poppstjarnan aðeins
skamma stund á sjúkrahúsi vegna
hennar.
Falin sovézk kjarnorkuherstöð
Rússar áforma að fela kafbáta
í sænskum og norskum fjörðum
FYRRVERANDI aðstoðarframkvæmdastjóri Rússa hjá Sameinuðu þjóðunum,
Arkady N. Shevsjenko, skýrði frá því fyrir nokkrum dögum, að stjórnvöld í
Moskvu hefðu unnið að áætlunum um að koma fyrir sovéskum kjarnorkukaf-
bátum í sænskum og norskum fjörðum, ef hættuástand skapaðist á alþjóða-
vettvangi. Er frá þessu sagt í danska blaðinu Berlingske Tidende á þriðjudag.
Shevsjenko fékk hæli á Vestur- telji, að Bandaríkjamenn muni
löndum sem pólitískur flóttamaður
fyrir þremur árum. Hefur Berl-
ingske Tidende það eftir honum, að
stjórnmálaráð kommúnistaflokks-
ins hafi í upphafi síöasta áratugar
samþykkt að láta gera uppdrætti
af sænskum og norskum fjörðum.
Segir Shevsjenko, að sovéskir kaf-
bátar fari að minnsta kosti annan
hvern mánuð inn á þessi svæði.
Rússar geri sér grein fyrir því, að
kafbátar þeirra séu veikari fyrir en
kafbátar Bandaríkjamanna og
hika við að senda kjarnorku-
flaugar gegn kafbátum, sem hafi
aðsetur djúpt inni í norskum og
sænskum fjörðum.
Haft er eftir háttsettum hernað-
arsérfræðingi í London, að sænsku
firðirnir séu frábært æfingasvæði
fyrir Rússa. Hann telur, að frétt-
irnar frá Karlskrona bendi til þess,
að um æfingar sovéskra sérsveita
sé að ræða, sem jafnframt sé ætlað
að afla upplýsinga um aðstæður á
sjávarbotni á þessu svæði.
Brotið blað í
baráttunni
gegn krabba
SUnford, Kaliforníu. 7. mars. AP.
HÓPUR VÍSINDAMANNA við Stanford-háskólann hefur einangrað erfða-
vísi (gen) sem talið er að stjórni viðbrögðum líkamans við tilfærslu á
líkamsvefjum og illkynja æxlum. Telja vísindamennirnir að þeir hafi nú í
höndunum lykilinn að stjórnun á ónæmiskerfi mannslíkamans.
Dr. Mark Davis, talsmaður
hópsins, sagði í samtali við frétta-
menn að þetta væri brotið blað í
baráttunni gegn krabbameini. „Að
skilja hvernig heilt ónæmiskerfi
virkar gerbreytir að sjálfsögðu
öllu saman þegar að er gáð að
vandkvæði í baráttunni gegn
krabbameini eru svo oft að við
höfum ekki skilið sem skildi
hvernig stendur á því að ónæmis-
kerfið bregst og ekki vitað í kjöl-
farið hvernig ætti að bregðast við
því,“ sagði David.
Upphaflega fundu vísindamenn-
irnir erfðavísinn í mús og síðan
samsvarandi í manni. Með því að
einangra það fundu vísindamenn-
irnir annað af tveimur próteinum
kjarnans. Sem fyrr segir er um
aðra af tveimur gerðum að ræða
sem ræður viðbrögðum líkamans
gegn ýmsum hlutum, í þessu til-
viki vírusum, líffæraflutningum,
æxlum og ýmsum tegundum af
krabbameini í kirtlum. Með tím-
anum mun uppgötvunin hjálpa
læknum að ákvarða krabbamein
bæði betur og fyrr, einnig að finna
hina réttu lækningu með hliðsjón
af viðbrögðum líkamans.
Forsíöa danska blaösins Berlingske Tidende, þar sem sagt er frá áform-
um Rússa um aö fela kjarnorkukafbáta í sænskum og norskum fjöröum.
BERLINGSKE TIDENDE
Mllltar-ekspert om det svenske u-bidsdrama:
Skjult Sovjet atom-base
Et de
og flc
Kronik
Værdií
iJapar
Fréttir í stuttu máli
Sovétmenn
fordæmdir
Montreal, Kanada. 7. mars. AP.
Alþjóða flugmálanefndin
greiddi í dag atkvæði um tillögu
þar sem Sovétríkin eru harðlega
fordæmd fyrir að skjóta niður far-
þegaþotu frá Suður-Kóreu sem
villtist inn í sovéska lofthelgi 1.
september síðastliðinn, en með
henni fórust 269 manns. Fulltrúar
nefndarinnar eru 33 talsins og
greiddu 20 fulltrúar tillögunni at-
kvæði sitt, en tveir voru á móti.
Einn fulltrúi var fjarverandi og
annar greiddi ekki atkvæði. Hinir
lýstu sig hlutlausa. Það voru sov-
ésku og tékknesku fulltrúarnir
sem greiddu atkvæði gegn tillög-
unni, þeir eru einu fulltrúar
Austur-Evrópu í nefndinni.
Kunnur fridar-
sinni allur
Wiesbaden, 7. mars. Al*.
Einn af kunnustu friðarsinnum
Vestur Þýskalands lést í dag, það
var presturinn Martin Niemöller
og var hann 92 ára gamall. Nie-
möller kom víða við sögu, hann
var kafbátaforingi í þýska hernum
í fyrri heimsstyrjöldinni, en var
varpað í fangabúðir nasista við
Dachau árið 1937, eftir að hafa
gagnrýnt stefnu þeirra. 1945 frels-
uðu bandarískir hermenn hann
þaðan. Hann gerðist síðan mót-
Martin Niemöller Símamynd AP.
mælendaprestur og þjóðkunnur
friðarsinni. Voru honum veittar
hinar ýmsu orður, meðal annars
friðarverðlaun Leníns 1967.
Treholt fluttur
Osló, 7. mars. Frá Jan Erik
Lauré, fréttar. Mbl.
KGB-njósnarinn Arne Treholt
var í dag fluttur um set, úr fanga-
klefa sínum á lögreglustöðinni í
Osló í fangageymslur í borginni
Drammen, sem er skammt utan
Oslóborgar.
Treholt er vaktaður allan sól-
arhringinn í einangrunarklefa
sínum, sem er auk þess afskekktur
frá öðrum fangageymslum húss-
ins. Öryggisráðstafanir eru meiri
en nokkru sinni fyrr. Þetta er
sama fangelsið og njósnarinn
Gunvor Galtung Haavik var
geymd í á sínum tíma. Hún var
keyrð til yfirheyrslu dag hvern til
Osló, en ólíklegt er að Treholt fái
sömu meðferð. Hann verður yfir-
heyrður á staðnum.
BorgaÖi ekki skatta
Osló, 7. mars. Frá Jan Erik
Lauré, fréttar. Mbl.
Norski þingmaðurinn og skipa-
smiðurinn Oddvar Majala hefur
verið dæmdur til að greiða 25.000
krónur í bætur eftir að hafa orðið
uppvís að því að telja ekki rétt
fram til skatts. Nam það um 2
milljónum króna.
OpwtilkU9
mánudaga
þriðjudaga
miðvikudaga
fimmtudaga
TT h /1T7’ ITTn Skeifunni 15
nAVrliAU 1 Reykjavík