Morgunblaðið - 08.03.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.03.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1984 29 Kjartan Hjálmars- — Kveðjuorð son Fæddur 7. september 1920 Dáinn 20. febrúar 1984 Miðvikudaginn 29. febrúar var til moldar borinn Kjartan Hjálm- arsson. í Morgunblaðinu þann dag og sl. sunnudag er hans minnst og koma þar fram hlýhugur nemenda og samkennara og vei samin mannlýsing, sem ég kann ekki um að bæta en get kannski aukið ein- hverju við. (Vegna þeirra sem styðjast við minningargreinar sem heimildir eftir ár og áratugi, er rétt að geta leiðréttingar í blað- inu 1. mars, bls. 29.) Kvæða- manninum Kjartani eru gerð góð skil, en það brást að kaþólskir menn minntust hans þannig. Drengir hafa öðruvísi þörf fyrir að tjá trúarlega lotningu sína en stúlkur, ekki minni eða meiri, heldur öðruvísi. Við þessu kann kaþólska kirkjan það ráð að hún gerir þá að kórdrengjum. Minn- ingarnar frá þeim árum við altar- ið verða meðal ljúfustu æsku- minninga fram til hinsta dægurs. Þannig var um Kjartan. Það var gaman að heyra hann rekja þessar minningar af þeirri skemmtilegu frásagnarlist sem hann var gædd- ur. Lotning fyrir guðdómnum og trúrækni voru sterkur þáttur í skapgerð hans, svo sterkur að án þess er líklega erfitt að gera sér rétta grein fyrir sálarlífi hans. Kennarinn og fræðarinn yfirleitt, listamaðurinn og löggæslumaður- inn, allir þessir þættir byggðust á réttlætiskennd og mannskilningi sem voru ávöxtur af trúarlífi og tilbeiðslu. Kjartan nærðist á and- legum fjársjóðum kaþólsku kirkj- unnar án þess að láta gallana á þjónum hennar villa um fyrir sér. Faðir Kjartans var mikill lista- maður og einkum orðlagður fyrir tréskurð. Mun mega telja hann meðal helstu listamanna þjóðar okkar á því sviði, og það ekki ein- göngu meðal samtíðarmanna sinna, en fátæktin lék hann illa eins og svo marga listamenn. Hún neyddi hann til þess að láta allt frá sér og dreifðust gripirnir víðs- vegar, ókomnum kynslóðum til mikils skaða. Meulenberg biskup í Landakoti hafði miklar mætur á Hjálmari og talar það sínu máli. Kjartan kvæntist Vilhelmínu Einarsdóttur 9. júní 1945. Börn þeirra eru Hjálmar B., fæddur 13. september 1947, Tómas, fæddur 13. apríl 1949, og Ingibjörg, fædd 10. júní 1953. Þau systkinin eiga hálfbróður, Ævar Kjartansson dagskrárfulltrúa. Vilhelmína er stórmannleg í lund og hreinskipt- in, segir hiklaust meiningu sína um það sem skiptir verulegu máli, en hefur lag á að láta ekki mikið á sér bera. Þessi ráðahagur varð Kjartani mikið gæfuspor. Þegar komið er inn á heimili þeirra finnur maður til sérstaks hlýleika. Þetta stafar ekki aðeins af hlýlegu hugarfari húsráðenda, heldur blasir hvarvetna við mynd- arlegt handbragð á öllum hlutum. Húsfreyja er snillingur í höndun- um, en hannyrðir og aðrir listgrip- ir eru ekki aðeins eftir hana eða mann hennar, heldur einnig eftir móður hennar. Þannig standa að börnunum listamenn og hagleiks- fólk í marga ættliði báðum megin frá, og það hefur líka komið fram í svo ríkum mæli að orð er á haft. Þau hjónin voru samtaka í rausnarskap sínum, en annars ólík um margt í lunderni. Vilhelmína ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. hafði áður staðið fyrir matsölu og fyrir veitingum með ýmsu móti. Þetta kom sér vel þegar Kjartan kenndi úti á landi og hún annaðist heimavist. Þau hafa heldurekki hikað við að taka gesti inn á heim- ilið, jafnvel í langan tíma, og veitt rausnarlega — og matsár er hún Vilhelmína ekki, það veit ég sjálf- ur. Það var ekki ætlunin að gera þetta að samstæðri minningar- grein, heldur aðeins að bæta nokkrum atriðum við til fyllri skilnings á því, sem sagt hefur verið í fyrri greinum. Ég stend í ævinlegri þakkar- skuld við þau hjónin. Hann hefur nú flutt um set yfir í annað sam- félag eða öllu heldur annan hluta sama samfélagsins. Hin alúðlega tilbeiðsla hans á guðdómnum hérna megin tekur nú á sig nýtt form, sem hafið er upp í æðra veldi en orðið getur í efnisheimin- um einum sér. Hér á jarðríki eru þeir margir sem blessa minningu hans. Sæmundur F. Vigfússon t Þökkum innilega auösýnda samúö og hluttekningu viö andlát og útför RÖGNVALDARGUDJÓNSSONAR, búfræöings, Huldulandi 1, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki Landakots- spítala fyrir hjúkrun og umönnun í veikindum hans. Fyrir hönd fjölskyldu og annarra vandamanna hins látna. Bodil Katrín örsted. t Þökkum innilega samúö og vináttu viö andlát og útför móöur minnar, tengdamóöur og ömmu, SIGRÍÐAR HALLDÓRSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á heilsuhæli Náttúrulækningafélags Islands, Hveragerði, fyrir alla vinsemd og ómetanlega hjálp á liönum árum. Kolbeinn Ingi Kristinsson, Þorbjörg Siguröardóttir, Siguröur Kristinn Kolbeinsson. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför K APITOLU SIGURJÓNSDÓTTUR, Auönum, Vatnsleysuströnd. Kolbeinn Guömundsson, Árný Kolbeinsdóttir, Ásgeir Ingvarsson, Rósa Kolbeinsdóttir, Magnús Kolbeinsson, Margrét Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. DiGfTAL EINKflTðlVA . lEKURHIilTHL SERMRfA HVERSOGEINS Við teljum að það sé liðin tíð að fólk sætti sig við takmarkanir einkatölvu (personal computer), sem hönnuð er til að henta sem flestum, án þess að taka tillit til sér- þarfa hvers og eins. Þess vegna býður DIGITAL 3 tegundir af einkatölvum; Rainbow 100 og Professional 325 og 350. DIGITAL einkatölvur er mjög auðvelt að tengja saman í net eða nota sem útstöðvar við stærri tölv- ur. DIGITAL býður fullkomið kerfi fyrir einkatölvun (personal com- puting), kerfi sem sameinar vélbún- að af hæsta gæðaflokki og hugbún- að af bestu gerð. DIGITAL einka- tölva er afkastameiri, einfaldari í notkun og betur búin að flestu leiti en nokkur önnur einkatölva á markaðnum. hvorki á viðbótarrými, né kaup á aukahlutum sem margar aðrar tölv- ur krefjast. Þú getur fengið 132 stafi í línu í stað 40 eða 80 eins og á öðrum tölvum. Þetta gerir þér kleift, t.d. þegar þú notar MULTIPLAN áætl- unarforritið, að sjá allt árið á skerminum. DIGITAL einkatölvan hefur forrit sem kennir þér á nokkrum mínútum, hvernig nota á tölvuna. Þú þarft því ekki lengur að fletta mörg hundruð blaðsíðna bækling- um til þess að læra á tölvu. T - KOS (Tölvudeild Kristján Ó. Skagfjörð h.f.)leggur áherslu á að DIGITAL einkatölva hefur fengið hin eftirsóttu verðlaun fyrir hönnun, rekstraröryggi og þægi- lega notkun, frá Die Gute Industrie- form í Hannover. _______ Húnerauð- ...... i veld í notkun. í V/ Vi 'i 't 't *< ‘i S *« *i Lítill skermur ; ' " ' ' y J * " 1 * * 1 og létt lykla- borð eru fyrir- **<<<<« i » » i i J 1 J ferðalítil á skrifborðinu og kalla öll þjónusta við vél-og hugbúnað DIGITAL tölva, uppfylli til fulls þær kröfur sem gerðar eru á íslensk- um tölvumarkaði. KRISTJÁN Ó SKAGFJÖRD HF Tölvudeild, Hólmaslóö4.101 Reykjavík s 24120

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.