Morgunblaðið - 08.03.1984, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 08.03.1984, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1984 „ fjóia, viltu. elcki' athugoL hv/ört pað er eilttwJad um þetta í Sjö-trétbunum " Ast er ... ... að fara aftur í búð- ina og kaupa það sem hún gleymdi. TM Rea U.S Pat. Off. -all rights reserved •1984 Los Angetes Times Syncícate J 4 (f'ÍÁ'tZ&ífjlÍ Ég smurði allt scm hægt var og það ætti aö vera léttara að ýta ’onum. Með morgunkaffinu HÖGNI HREKKVISI TdNJL/SWK T/MAf^ I rirmnnmnm/ KeyNUM j?ETTA AFT/JR, AGGI . u Að vopnast er að bjóða hættunni heim Til Vekvakanda. Árelíus Níelsson skrifar: „Tveir ágætis menn, sem ritað hafa skynsamlegar greinar í blöð á liðnum árum, þeir Björn Bjarna- son og Halldór Jónsson, hafa nú birt skoðanir, sem gefa í skyn, að íslendingar ættu að vopnast sem fyrst og best. Ég varð agndofa. Geta þessir greindu og góðu drengir skrifað þessa fjarstæðu? Aðeins nokkrar spurningar: Höfum við eignast sjálfstæði og frelsi úr fjötrum liðinna alda með vopnum? Hvað höfðu Norðmenn uppúr vopnaskarki sínu gegn sjálfum brjálæðingnum Hitler í síðari heimsstyrjöld? Var ekki betri aðferð, sem Danir beittu þar? Hvaða smáþjóð hefur sigrað með vopnum gegn ofurefli stór- veldis? Hvaða vopn ættum við fyrst að fá? Fallbyssur, sprengjur, atóm- vopn? Er ekki stærsta sigurvon og helsti heiður íslendinga einmitt það að vera friðarins faðmur, án hermanna, án kennslu i mann- drápum og morðum, án atóm- vopna og eitursprengna? Væri ekki réttara hjá þessum ungu ágætu mönnum, Birni og Halldóri, að hlusta með athygli á Séra Árelíus Níelsson „Góda“ hljómsveit á Listahátíð ’84 Kæri Velvakandi. „Þar sem mikið hefur verið skrifað um hvaða hljómsveit verði fengin hingað á Listahátíð langar mig til að leggja orð í belg. Það finnst mér algjör fjarstæða að fá tískufyrirbrigði eins og Duran Duran hingað til lands. Það getur verið að sú hljómsveit sé vinsæl í augnablikinu, en þær vinsældir gilda aðeins í vissum aldurshópi. (Ég myndi nú reyndar teljast til þess hóps sjálf.) Ég bendi því Listahátíðarnefnd á að reyna frekar að fá einhverja „góða“ hljómsveit hingað til lands, sem hefur haldið vinsældum sín- um í nokkur ár. Sem dæmi má nefna: The Clash, Talking Heads, Genesis og fl. Eða jafnvel stór- hljómsveitir (stórstjörnur) á borð við: Queen, Kiss, David Bowie, Peter Gabriel og fl. en auðvitað eru ekki miklar líkur á að það sé gerlegt. Þetta eru hljómsveitir sem í gegnum árin hafa átt trygga að- dáendur og alltaf bætast nýir við.“ HJ.Þ. lestur Passíusálmanna á kvöldin og taka vel eftir, þegar einn helsti úr hópi lærisveina Jesú, vissulega til foringja fallinn, brá sverði, helsta vopni þeirrar aldar og ætl- aði þannig að verja vin sinn og meistara (vissulega aðdáunarvert í þeirri andrá) en mætti augum meistarans, sem sagði: „Slíðra þú sverð þitt, Símon. Þeir, sem með vopnum vega, munu fyrir vopnum falla.“ Svo gekk hann fram í krafti kærleikans og bjó um sárið, sem veslings Pétur hafði veitt óvinin- um eða árásarmanninum." Þesslr hríngdu . . . Hvers vegna voru engar fréttir af danskeppninni á Hótel Sögu? Móðir hringdi: „Ég er ein af þessum þögla meirihluta í land- inu, sem sjaldan lætur til sín heyra í fjölmiðlum — skammast bara í eldhúsinu heima hjá mér en það dugir víst skammt. En nú er ég svo reið út í sjónvarpið og fréttamenn yfirleitt að ég næ varla upp í nefið á mér. Éngar fréttir hafa sést frá danskeppni, sem Nýi dansskólinn og Þjóð- dansafélagið stóðu fyrir á Hótel Sögu hinn 26. febrúar sl. Ég bjóst við að sjá eitthvað um hana í blöðum eða sjónvarpi en þáð hefur ekkert komið. Þarna kepptu börn og ungl- ingar og svo fullorðnir um kvöld- ið. Húsið var alveg troðfullt, þarna voru um 700 manns og komust færri að en vildu. Ég tel danskeppni sem þessa alveg jafn áhugaverða og fótbolta eða ein- hverja af þessum íþrótta- greinum, sem alltaf er verið að slá upp fréttum af. Þá er líka gott að vekja áhuga unglinga fyrir dansi áður en vínneyslan kemur til sögunar hjá þeim. Mér hefur þótt miður að sjá engar fréttir af þessari danskeppni, sem fór eins vel fram í alla staði og hugsast gat. Ef þarna hefði verið brennivínsþamb og slagsmál er öruggt að frétta- menn hefðu ekki látið á sér standa." Efnisval í sjón- varpi og hljóð- varpi ósamræmt Guðrún hringdi: „Mér þykir það einkennilegt að forráða- menn útvarpsins skuli ekki reyna að hafa meiri samræm- ingu á efnisvali sjónvarps og út- varps. Ég var búin að hlusta á tvo þætti í útvarpi þar sem fjall- að var um sr. Jónmund Hall- dórsson, prest á Stað í Grunna- vík, og hafði mikla ánægju af. Þriðji og síðasti þátturinn var hins vegar fluttur á nákvæmlega sama tíma og ómar Ragnarsson talaði við elsta fslendinginn, konuna sem er orðin 105 ára gömul. Mikið óskaplega hleypti þetta illu blóði í mig. Þá finnst mér furðulegt að ekki skuli vera reynt að vanda meira til fimmtudagskvölddagskrár hljóðvarps þegar sjónvarp er ekkert.“ Kolaportið fáránleg nafngift — hvernig væri „Undirheimar“ 9831-6124 hringdi: „Alveg finnst mér þessi nafngift á nýju bílageymslunni við Kalkofnsveg fáránleg; að þeir ætli að kalla hana Kolaportið. Þegar var verið að leita eftir nöfnum á sínum tíma datt mér í hug nafnið Und- irheimar. En hvað sem því líður finnst mér að þetta undirfurðu- lega nafn Kolaportið alveg ótækt — það væri miklu íslenskara að kalla bílageymsluna einfaldlega Taðkofann!"

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.