Morgunblaðið - 08.03.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1984
37
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
, TIL FÖSTUDAGS
Haldi áfram
að sýna Dallas
Kæri Velvakandi.
„Eftir að hafa lesið komandi
sjónvarpsdagskrá í Morgunblað-
inu sá ég, að hætta á að sýna
Dallas. Ekki var minnst á það,
hvort ráðgert væri að kaupa
fleiri þætti til sýninga.
Ég er ein úr þeim hópi, sem
hefur gaman af Dallas og vona
ég því að sjónvarpið kaupi fleiri
þætti. Margir hafa skrifað í les-
endadálka dagblaðanna og lýst
neikvæðu áliti sínu á Dallas og
„Dallas-sjúklingunum". En því
þarf fólk alltaf að finna að hlut-
unum? Getur það ekki leyft
okkur sem höfum gaman af
Dallas, að horfa á þáttinn. Ég tel
að sjónvarpið bjóði upp á mjög
fjölbreytt og ólíkt efni, þ.e.
eitthvað fyrir alla. Sem dæmi
má nefna að ekki höfðu allir
gaman af Derrick, en þeir voru
ekki skrifandi og kvartandi um
það í lesendadálkunum.
Því ekki að halda áfram að
sýna þætti sem stór hópur fólks
hefur gaman af? Við vitum að
það er aldrei hægt að gera öllum
til hæfis. S.Ó.“
Mannúðin í hinu
marxíska kerfi
Til Velvakanda.
Húsmóðir skrifar:
„Ég ætlaði ekki að trúa mín-
um eigin eyrum þegar frétta-
maður hjá útvarpinu spurði for-
sætisráðherrann hvernig við-
brögð fólks í Rússlandi hefðu
verið við útför Andropovs. Ég
hélt að allir vissu, að það er
sama stjórnarfarið í Rússlandi í
dag og það var á dögum Leníns
og þar sem ekkert er tjáningar-
frelsið þar eru engin viðbrögð
fólks.
Útvarpið er alltaf að reyna að
koma því inn hjá almenningi, að
það sé sáralítill munur á lífs-
kjörum fólks í lýðræðisríkjum og
alræðisríkjum kommúnista.
Munurinn er eins og maðurinn
sagði: „Kommúnisminn er svona
útbreiddur á Vesturlöndum
vegna þess að það er ekki ennþá
fæddur sá maður, sem getur
ímyndað sér hvað hann er
hræðilegur í framkvæmd." Ég
gleymi aldrei þegar stalínisti
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur les-
endur til að skrifa þætt-
inum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til
— eða hringja milli kl.
11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og
orðaskipti, fyrirspurnir
og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrit-
uð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að
fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir
ástæða til að beina því
til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins,
að þeir láti sinn hlut
ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
sagði fyrir mörgum árum að
hann legði að jöfnu kjör almenn-
ings í Moskvu og London. Ég
hvæsti á hann og spurði hverjir
væru pólitískt ofsóttir í Eng-
landi, hvar væru Gúlagbúðirnar
og hvort skortur á lífsnauðsynj-
um væri almennur í London.
Þegar maður heyrir svona yfir-
lýsingar þá á manni að skiljast,
að það að vera kommúnisti, þýð-
ir að maður verður að loka aug-
unum fyrir augljósum stað-
reyndum og dansa bara á línunni
frá Moskvu.
Það væri fróðlegt ef útvarpið
sýndi með dæmum í hverju „um-
bótastefna Andropovs" fólst.
Hann er kallaður umbótamaður
í útvarpinu og það á maður að
hafa fyrir satt. í fréttum var
sagt að Andropov hefði rekið
stjórnmálaráðherrann og fleiri
fyrir spillingu, og drykkjusýki
þjóðarinnar átti hann að hafa
læknað með því að láta reka þá
úr vinnu sem drukku (en hvað
tók þá við fyrir konur og börn
sjúklinganna). Mannúðin í hinu
marxíska kerfi er alltaf söm við
sig.
Sannar sögur fara af því, að
aldrei hafi vöruskorturinn verið
meiri en núna í Sovétríkjunum
og þegar pest gengur þurfa
menn að ganga milli lyfjabúða í
leit að meðulum. Er þá ekki
betra fyrir almenning að lofa ap-
ótekurum að græða á sér, því þá
eru þó lyfin til þegar á þarf að
halda. Þeir eru nauðbeygðir til
að taka tillit til þarfa fólksins,
sem ætla sér að græða á náung-
anum. Það fólk sem aftur á móti
vinnur á ríkisskrifstofunum þarf
ekki að taka tillit til alþýðunnar
— enda gerir það það ekki. Strax
og apótekin í Svíþjóð voru þjóð-
nýtt kom lyfjaskorturinn.
Núna eru ýmsir stjornmála-
menn komnir á þá skoðun að
heimurinn eigi ekki lengur að
horfa aðgerðalaus á svívirðilega
kúgun allra þeirra sem við
marxismann búa. Lýðræðisríki,
sem halda uppi áróðri fyrir
kommúnismann, sýna fyrirlitn-
ingu bæði lýðræðinu og hinu
kúgaða fólki í marxísku ríkjun-
um, sem ekkert getur aðhafst sér
til bjargar.
Þakkir fyrir þátt-
inn „Ótroðnar slóðir“
Alfons Hannesson hringdi:
„Mig langar til að koma á
framfæri þakklæti til stjórnanda
rásar 2 fyrir þáttinn Ótroðnar
slóðir. Sem betur fer er stór hóp-
ur sanji-kristinna manna og
kvenna hér á landi, en lítið sem
ekkert hefur verið gert af því að
&> SIG&A V/öGÁ S IilveRAW
Hamar og sög
er ekki nóg
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ^
Vegg- og loftklæðning
í glæsilegu úrvali
úr eik, aski, beiki, gullálmi, furu,
antikeik, mahogany, palesander og
10 tegundir til viöbótar.
Verö frá aöeins kr. 75 pr ms.
MILLIVEGGJA
PLOTUR
Stærðir:
50x50x 5
50x50x 7
50x50x10
spila músík við þeirra hæfi, hvað
þá að það sé heill þáttur eins og
var 4. mars. Við höfum okkar
ákveðnu tónlistarlegu þarfir sem
aðrir — það væri því mikið þakk-
arefni ef þessum þörfum okkar
væri sinnt með fleiri svona þátt-
um.“
VANDAÐAR PLÖTUR
VIÐRÁÐ ANLE GT VERÐ
B |y| yjyjjjH Fáanlegar úr gjalli eða vikri
PANTANIR:
Bíldshöfða 3, sími: 91-85833 og hjá
Iðnverk h/f Nóatúni 17, 105 Rvk.
Símar: 91-25930 og 91-25945