Morgunblaðið - 16.03.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1984
57
fólk í
fréttum
Rifist um heiður til
handa Bítlunum
+ Bítlarnir voru nýlega gerðir að heið-
ursborgurum í Liverpool, fæöingarbæ
þeirra, en það gekk þó ekki hljóöa-
laust fyrir sig. Sumir frammámenn í
borginni sögöu nefnilega, að það væri
hin mesta hneisa aö heiöra Bítlana,
sem heföu síöur en svo gefiö unga
fólkinu gott fordæmi.
Þegar gengið var til atkvæöa í borg-
arstjórninni var það samþykkt meö 56
atkvæðum gegn 11 aö heiöra Bítlana
fyrir „framúrskarandi framlag þeirra til
borgarinnar sem tónlistarmenn og tón-
skáld" en einn borgarfulltrúa, sem þykir
lítiö koma til lífsháttu Bítlanna, sagöist
vera hissa á samþykktinni. Bitlarnir
heföu lengi veriö kunnastir fyrir eitur-
lyfjaneyslu og fyrir aö eiga í útistööum
viö lögin og meö þessu væru verið aö
heiöra menn, sem „ekki heföu lagt neitt
af mörkunum til Liverþool og samfé-
lagsins þar“.
Bítlarnir þúa ekki lengur í Liverþool
og hafa ekki hug á aö setjast þar aö.
Þeir þrír, sem eftir lifa, ætla hins vegar
aö þiggja þennan heiöur, en hann er
aðeins táknrænn og fylgja honum engin
réttindi eöa annað.
Bítlarnir á hátindi frægöarinnar. Nú
er einn horfinn úr hópnum og lífs-
máti hinna þykir svona og svona.
COSPER
— I>ad vill enginn gestanna „Sérrétt kokksins“ svo þú verður að
borða hann sjálfur.
Faldi húninn
í tvo mánuði
+ Þaö er ekki bara fólk sem er í fréttunum. Stund-
um eru dýrin þaö líka, t.d. þessi ísbjörn í dýragarð-
inum í Louisville í Bandaríkjunum. Zaleska heitir
birnan og hún vann sér þaö til frægöar aö ganga
meö án þess nokkur vissi og leyna auk þess húnin-
um í tvo mánuöi. Starfsmenn dýragarösins rak aö
sjálfsögöu í rogastans þegar þeir sáu húninn allt í
einu, og viö athugun kom í Ijós, aö hann var
tveggja mánaöa gamall.
Þau hjónin Karl prins og Díana,
sem nú eiga von á sínu ööru
barni, hafa í meira en nógu aö
snúast sem fulltrúar konungs-
fjölskyldunnar. Þessi mynd var
tekin af þeim fyrir nokkrum dög-
um þegar þau sátu boð hjá „Vel-
feröarstofnun gyöinga" en þaö
var haldiö á 125 ára afmæli
stofnunarinnar, sem er sú elsta
sinnar tegundar í Bretlandi. Ekki
fylgdu aörar upplýsingar um kjól-
inn en aö hann væri rauöur og
hlírunum líkt viö skóþvengi.
Alifuglakvöld
í Blómasal
17. og 18. mars
Forréttur:
Hænsnakjötseyði Florentine
eða
Kjúklingalifur í smjördeigsbotni.
Aðalréttur:
Djúpsteiktur kjúklingur Boltimore
eða
steikt aligrágæs Chasseur
eða
aligæs pon Pariseanne
eða
steikt aliönd Bigarrade.
Eftirréttur:
Jarðaberjarjómarönd.
Matur framreiddur frá kl. 19.
Borðapantanir í síma 22322 — 22321.
Verið velkomin
HÚTEL LOFTLEKMFt
FLUGLEIDA /S HOTEL
r
/í #V\ /•'0 rl x \ ■3 / U x I J O K ~ri Kynnist töfratónum
kristalsins...
\vl' \ \7 ^ V/ Heimsþekktur
X^erJx v tékkneskur kristall
'5' Glös fleiri gerðir, skálar og vasar. Greiðsluskilmálar.
Hiö vinsæla
Hvíta matarstell
frá Tékkóslóvakíu.
Fjöldi aukahluta fylgir.
Gott verö — Greiösluskilmálar
^ijörtur^ U/\
KRISTALL OG POSTULINSVÖRUR "
TEMPLARASUNDI 3 SIMI 19935
Sérverslun með áratuga þekkingu.
— I hjarta horgarinnar.