Morgunblaðið - 25.05.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.05.1984, Blaðsíða 7
MORGTJNBLAÐfÐ, PÖSTODAGOR 25. MAl lð84 °39 Smáþorpið Todtmoo* i Svsrtaakógi. Tóti á Titisee. trjánna og vinaleg villisvín heilsa upp á fólk, sem hættir sér út úr bílnum. Þá heimsóttum viö vtðfræga klukkuverk- smiöju, sem framleiöir og sendir kirkjuklukkur út um allan helm, en leyndarmáliö að málmblöndunni hefur geymst í sömu ættinni í margar aldir, og erfinginn aö uppskriftinni er nú 22 ára gömul stúlka, sem herra Jung full- yrti aö veriö heföi í kránni kvöldiö áö- ur. Margt fleira mætti nefna og óhætt er aö fullyrða, aö enginn ætti aö veröa í vandræðum meö aö verja tímanum skemmtilega í Daun-Bfel. Andstæóurnar í Baden-Baden Næsti viökomustaöur var borgin Baden-Baden, sem víöfræg er fyrlr fegurö og glæsileik. Borgin stendur í fögru umhverfi undir vesturhliöum Svartaskógar og er vegna staösetn- ingar sinnar einhver veöursælasti staöur i öllu Þýskalandi. Þaö vakti at- hygli okkar, að meirihluti íbúanna, sem á ferfi voru á götum útl, voru komnir af léttasta skeiöi og fengum viö þá skýr- ingu, aö efnafóik í Þýskaiandi, sem komiö væri á eftirlaun, sæktist mjög eftlr aö eyöa þar síöustu árum ævinn- ar. i Baden-Baden er einnig aö flnna viöfræg heilsuböö og heilsubótastööv- ar, sem hafa mikiö aödráttarafl. Rómverjar uröu fyrstlr til aö upp- götva heilsulindirnar i Baden-Baden og má þar enn finna leifar af baöklef- um, sem þeir byggöu af mikHli hugvit- semi. Yfir rústum rómversku baöklef- anná rís nú hin glæsilega „rómversk- irska baöhöir, einhver þekktasta stofnun sinnar tegundar í heimlnum. En í Baden-Baden er skammt and- stæöna á milli, eins og svo víöa annars staöar. Þar er einnig aö finna tákn spillingarinnar, spilavíti. sem er eitt hlö frægasta og auöugasta í Evrópu. Þar vann maöur nokkur eitt sinn þrjár milljónir marka á einu kvöldi og var greitt út hið sama kvökf i reiöufé. Mun þaö vera einsdæmi og sýnir glöggt traustan fjárhag þessarar stofnunar. Aö loknum Ijúffengum kvöldveröi meö Peter Schulze, markaösstjóra ferðamálaráös Baden-Baden, heim- sóttum vö spilavitiö til aö losa okkur viö örlitiö af naumt skömmtuöum gjaldeyrinum, enda dugir ekki annaö en aö bera höfuöið hátt þegar maöur er í útlandinu. Heimsóknin í spllavitiö var raunar kapítuli út af fyrir sig og gat þar aö líta ýmsa kynlega kvisti. Viö eitt borðið sat þrekvaxinn Ameríkani og spilaöi „Black Jack“ (tuttugu og einn), sveittur og rjóöur í framan. Fyrir aftan hann sat kona hans, meö skjóöu i kjöltu sér og i hvert sinn sem hann gaf merki, dró hún spilapeninga upp úr skjóöunni og rétti honum til aö kasta í botnlausa hít spilabankans. t Eftirminnilegasti gesturinn þetta kvöld var þó eldri dama, skreytt dem- öntum, sem spilaöi „rúllettu" af mikilli fíkn og uröum viö vitni aö því, er hún tapaði 50 þúsund mörkum á tveimur tímum. Var þaö í senn kyndug sjón og óhugnanleg, aö fylgjast meö svip- brigðum konunnar á meöan gæfuhjól- iö snerist henni í óhag. Viö næsta borö sátu nokkrir Arabar og einn Þjóöverji og var boröiö girt af meö kaöli svo „pöpullinn“ kæmist ekki of nærri. Er ekki aö efa aö þar hefur veriö spilaö um fjárhæöir, sem numiö hafa marg- földum íslensku fjárlögunum. Morguninn eftir gengum viö um i gamla miðbænum í Baden-Baden i blíðskaparveöri og skoðuöum meðal annars fagran skrúögarö, sem auöug- ur greifi haföi gefiö borginni og maöur fann til ómótstæöilegrar löngunar til aö ftytja þennan staö meö sér heim til Islands. Margt fleira mætti nefna, sem gerir borgina einkar aölaöandi, og þrátt fyrir tiltölulega háan meöalaldur íbúanna, er Baden-Baden einn þeirra staöa, sem maður lofar sjálfum sér aö heimsækja einhvem tíma aftur. Undraheimur Svartaskógar Leiöin lá nú upp í fjallahéruö Svarta- skógar og veröur landslaginu þar vart meö orðum lýst. Þéttvaxnir risaskógar teygja sig upp hliðarnar og í dalbotn- um gtíttlr í spegilslétt stööuvötn. Er viö höföum komiö okkur fyrlr á Todtmoo- ser Hof-hótetínu, sannfæröumst viö erm betur um snilli Þjóöverja i upp- byggingu feröamannastaöa. Hótel- byggingarnar falla einkar smekklega inn í hið náttúrulega umhverfi, í brattri fjallshlíö fyrlr ofan þorpiö Todtmoos. Salarkynni hótefslns eru öll hln gtæsi- legustu og ibúöimar i sérftokki. Sumar þeirra voru á tveimur hæöum, meö stofu og eldhúsi á neöri hæö og svefnskála í baðstofu á efrl hasö, en húsin eru öll byggö i alpastíl. Á Todt- mooser Hof gistum vlö í tvær nætur og höföu sumir á oröi að hálf elnmanaiegt væri aö ráfa einsamall um i hlnum rúmgóöu íbúðum, þar sem með góöu móti heföi mátt halda fjölmennt sam- kvæmi. En það var notaleg tltfinning aö koma út í góöa veðriö um morgun- inn og heilsa sumrinu meö jarmandi sauöahjörö í hlíölnni fyrir ofan. I þjónustumiðstöö hótelsins er veit- ingahús, sundlaug, sauna, nuddstofa og aöstaöa fyrfr íþróttir og heilsurækt, aö ógleymdum skemmtilegum bar, Iþar sem menn geta stlgiö dans á kvöldin. Fyrsta kvöldiö fórum vlö i skoöunarferö um þorpiö og snæddum Bladburðarfólk óskast! Úthverfi Seiðakvísl „Á felgunni" 19 feröalög Pottþéttur ferðafélagi á aöeins kr. 349.- Bílsnælda ársins! „VARADEKKIГ sem styttir stundir. Dreifing Fálkinn hf. fáir standast MAXIS er burðarmikil og sterk samstæða. Tilvalin sem skilrúm, þar sem MAXIS er jafnfullkomin í bak og fyrir. Með MAXIS má byrja smátt og byggja upp MAXIS er meiriháttar Hönnuður Pétur B. Lúlhersson Axei Eyjólfsson SMtDJUVEGI 9 - SÍMI 4350« Útsölustaðir: Bláskógar Bjarg Bústoð Vörubær Verzlunarfélag Reykjavík Akranesi Keflavík Akureyri Austurlands Egilsstöðum (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.