Morgunblaðið - 25.05.1984, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
41
Úr spílavítínu fræga í Baden-Baden.
180 þúsund í Saarbrucken. Sveitirnar
umhverfis þéttbýlissvæöin eru hinar
fegurstu og sáum viö margt athyglis-
vert, þar á meðal stórkostlega kalk-
steinshella undir kastalahæöinni í
Homburg, en þangaö leituöu íbúar
borgarinnar á meðan bandamenn
sprengdu upp heimili þeirra í seinni
heimsstyrjöldinni.
í Saarbrúcken var okkur komiö fyrir
á hinu glæsilega hóteli „Kongress Hot-
el“ og þar var okkur haldinn kokteill aö
viöstöddum forráðamönnum hótelsins
og fulltrúa úr borgarstjórninni og einn-
ig var þar mættur Ijósmyndari frá sjón-
varpinu. Að vonum furöuöum við
okkur á þessum mikla áhuga kollega
okkar í Saarlandi og einhverjum lót sér
detta í hug að skýringin væri sú, aö
þeir héldu aö viö hefðum á reiðum
höndum lausn á efnahags- og atvinnu-
vandamálinu og myndum skýra þeim
frá „islensku aðferöinni" viö lausn
slíkra mála. Visar hefur þaö þó fremur
verið forvitni yfir þessum norrænu
ferðalöngum, sem vakiö hefur áhuga
fjölmiöla í Saarlandi.
Aö lokinni skoöunarferö um borgina
snæddum viö kvöldverö í glæsilegu
veitingahúsi Ráöhússkjallarans ásamt
herra Hánschke og konu hans. Mat-
seöillinn var sérstaklega merktur
okkur og var þar boöiö upp á sýnis-
horn af ýmsum gómsætum róttum
héraösins, sannkölluö „milliríkjamál-
tið“, sem stóö yfir i tæpa fjóra klukku-
tíma samfleytt. Meltingarfæri sumra í
hópnum voru þá farin aö gefa sig og
einn ferðafélaganna sagöi síöar svo
frá, að honum heföi oröiö svo brátt
undir borðum, líkast þvi sem hann
sæti á kjarnorkusprengju er gæti
sprungið þá og þegar. Hann harkaði
þó af sér, blessaöur karlinn.
Þeir sem enn stóöu uppréttir eftir
máltíöina litu örlítið á næturlífiö í Saar-
brúcken og lentu m.a. fyrir tilviljun inni
á almennum dansleik í „Þórscafé"
þeirra Saarbrúckenbúa. Var þaö hin
merkilegasta reynsla. Saarbrúcken er
um margt skemmtileg borg aö sækja
heim. Hún er mátulega lítil til aö vera
ekki yfirþyrmandi, en þó nógu stór til
aö bjóöa upp á flest þaö sem borgir
geta boöið upp á, fjörugt næturlíf og
hagstæöa verslunarmöguleika.
Síðasta morguninn fórum viö í inn-
kaupaleiöangur um borgina og því
næst fór herra Hánschke með okkur í
skoðunarferð í þjóögarðinn Saar-
schleife. Var för sú fyrirhafnarinnar
viröi, því þar komum við á fegursta
útsýnisstaöinn í allri ferðinni. Hesta-
skálin var svo drukkin á „Hotel Zur
Saarschleife" í boöi hótelstjórans, en
þetta glæsilega hótel stendur í þjóö-
garðinum miöjum. Á þaö skal minnt,
að þessi staöur er aðeins um klukku-
stundarakstur frá Luxemborg og er
margt vitlausara hægt aö gera í orlofi
en eyða tímanum í þessu fagra um-
hverfi.
Hér hefur aöeins veriö stiklaö á
stóru um þessa eftirminnilegu ferð og
ekki þarf aö taka fram, aö hér er að-
eins um aö ræöa nokkra möguleika af
mörgum, sem ferð um Suöur-Þýska-
land býöur upp á. Ástæöulaust er aö
tiltaka hér verö á gistingu og uppihaldi,
enda er þaö mismunandi eftir feröa-
máta, tíma og hópum. Fulltrúar Flug-
leiða munu þó eflaust veröa mönnum
innan handar í þeim efnum, svo og
þeir fulltrúar þýska feröamálaráösins,
sem hér hafa verið nefndir. Og ef
marka má móttökurnar, sem við feng-
um í þessari ferö, eru Þjóðverjar
manna bestir heim aö sækja.
Vegna fjölda áskorana framlengjum við
tilboðinu til laugardagsins 26. maí nk.
30% staðgreiðsluafsláttur
af öllum vörum verslunarinnar
OPIÐ:
alla daga frá kl. 9—6 laugard. 26.5. frá kl. 10—3 e.h.
ath, k.M. Húsgögn
Tilboöiö verður ekki endurtekiö Langholtsvegur 111 — Símar 37010 — 37144 — Reykjavík.
mm
Vorsýning íþróttafélagsins Gerplu, verö-
ur í Digranesi, íþróttahúsinu viö Skála-
heiöi, laugardaginn 26. maí kl. 11.30.
Stórgóö sýning, fyrir alla fjölskylduna.
FORSALA
aðgöngumiða er í íþróttahúsi Gerplu
veröur húsiö opiö fyrir öllum þeim
hugmyndum sem koma fram í
sambandi viö hreyfingu, dans og
leiklist.“
Kramhúsiö verður meö ýmislegt
annaö á dagskrá nú í sumar. Um
hvítasunnuna kemur hin kunna
látbragösleikkona Maria Lexa, en
hún hefur áöur komiö hingaö til
Aðstandendur Kramhússins og nokkrir þeirra sem eru byrjaöir aö
stunda staöinn. Hafdís Árnadóttir er önnur frá hægri.
lands, sýndi við miklar vinsældir í
Félagsstofnun stúdenta fyrir
nokkrum árum. María Lexa veröur
meö leiksmiöju fimm tíma á dag í
fimm daga, og ef leikhóp hennar,
Drekaleikhúsinu, tekst aö komast
hingaö meö henni veröa sýningar
hér bæöi fyrir börn og fullorðna,
en Drekaleikhúsiö varö einmitt til
upp úr einni leiksmiöjunni. Þann
5.—9. júní verður Jytte Kjöbek svo
hér meö leiksmiöju, en hún hefur
sérhæft sig í aö dansa fyrir mynd-
listarsöfn. 5.—9. júlí veröur svo
hér hópur sem kallar sig Interna-
tional Humanistic Physical Educa-
tion, og á þeirra yegum veröa
haldin fjögur mismunandi nám-
skeiö, kennarar veröa þau Betty
Toman, Thomas Malling, Þóra
Óskarsdóttir og Olav Ballisager.
„Þessi hópur hefur vakiö mikla
athygli erlendis. Þóra Óskarsdóttir
sem er búsett i Danmörku og mað-
ur hennar, Olav Ballisager, eru
bæöi íþróttakennarar og hafa
ásamt fleiri íþróttakennurum viljaö
leggja áherslu á að gera íþróttirnar
mannlegri. i hópnum, sem starfaö
hefur í fimm ár, eru bandarískir og
danskir íþrótta- og danskennarar
og fræðimenn, m.a. félagsfræð-
ingar og mannfræðingar. Þau eru
ekki endilega á móti keppnisíþrótt-
unum sem slíkum, heldur vilja þau
vinna á móti ýmsu sem fylgir þeim,
svo sem því aö börn séu tekin frá
foreldrum sínum og allt aö því sett
í búr, þar sem þjálfaöur er upp
einn hæfileiki á kostnað annarra.
Þetta er það helsta sem viö
verðum meö í sumar, en viö von-
umst til aö húsiö hérna verði
miðstöö fyrir ýmsar spennandi
hugmyndir."