Morgunblaðið - 22.06.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.06.1984, Blaðsíða 4
19. júní var síðastliðinn þriðjudag. Þessi dagur er merkur í sögu jafnréttis á íslandi, því 19. júní árið 1915 fengu íslenskar konur kosningarétt til Al- þingis. Við ræddum við ungt fólk um viðhorf þess til jafnréttis kynjanna og spurðum þau meðal annars, tiver staðan væri nú að þeirra áliti. „Kvennabaráttan í mörgu á rangri braut“ Kvennabaráttan hefur um margt lent á rangri braut. Við höfum í mörgu fórnaö meiru en viö höfum áunniö, sagöi Guöný Waage, vélgæslumaöur í Áburðarverksmiöjunni í Gufunesi, þegar blaöamaöur baö um álit á stööu jafnréttismála. „Viö höfum kastaö okkar kyn- einkennum og tekiö upp ýmsa ósiöi frá körlunum. Viö höfum reynt aö breyta okkur í karlkonur. Ef þú ætlar aö veröa eitthvaö verö- uröu aö aö verða eins og léleg út- gáfa af karlmanni. Konur hafa of mikiö viljaö einangra sig í sérhóp- um, sem vonandi er tímabundiö. Konur eiga aö vinna meö karl- mönnunum, þær eiga aö sækjast eftir störfum, sem veriö hafa heföbundin karlastörf. Ég get tekiö sem dæmi að í mínu starfi, sem vélgæslumaöur, sit ég og les af mælum. Fram til þessa hafa karlar gegnt þessu starfi. Konur eru ný- farnar aö vinna í þessu á sumrin. Þetta var ekki taliö kvennastarf. Fyrst fannst körlunum svolítiö skrítiö aö stúlkur væru aö sækjast eftir svona störfum. Þetta átti eink- um við um eldri mennina, sem hafa í raun tekiö okkur betur en yngri mennirnir. Mér finnst þó ýmislegt jákvætt hafa gerst einkum hjá konum, sem eru fráskildar. Þær eru jákvæöari en hinar, þær þurfa aö standa fyrir sínu. Sjálfstæöi þeirra birtist meira i því sem þær gera en því, sem þær segja. Þó er það ólíkt meö þeim og yngra fólki, aö hin hefö- bundnu störf, sem unnin eru á heimilinu eru enn í huga þeirra kvennastörf. Þaö hefur líka mikið breyst hjá ungum stúlkum, þær eru ekki lengur taldar ætla aö pipra þó þær séu ekki komnar í sambúö um tvítugt. Mér finnst raunar aö þær passi sig betur t.d. hvaö varöar barneignir, þaö geti beöiö þar til námi er lokið. Stúlkur fá þó ennþá minni hvatningu en piltar til aö halda áfram námi. Strákur, sem klárar stúdentspróf, jafnvel þó þaö sé lélegt, fær hvatn- ingu til aö halda áfram. Sú hvatn- ing birtist oft í því aö þaö er tekiö sem sjálfsagöur hlutur aö þeir haldi áfram. Stúlkur, sem eru meö toppeinkunnir, fá ekki slíka hvatn- ingu. Sem betur fer eru stúlkur farnar aö líta sjálfar á þaö sem sjálfsagöan hlut aö Ijúka stúd- entsprófi. Þaö er mjög jákvætt hve karlar eru farnir aö sinna betur uppeldi barna sinna. Þó eru þeir hetjur ef þeir fá börnin viö skilnaö, konan eitthvaö skrítin ef hún telur sig hafa lakari aöstæöur til þess. Til þess aö tekiö sé mark á konu er ekki nóg aö hún standi jafnfætis karlmanninum heldur þarf hún beinlínis aö skara fram úr. Kvennabarátta á aö beinast meira aö því aö byggja konur upp jákvætt viö hliö karla, og þá um leiö aö brjótast út úr þeirri einangrun sem þær eru í. Karlar eiga aö fá aukna hvatningu til aö ganga inn í heföbundnar stööur kvenna bæöi á heimilunum og á vinnumarkaönum. Jafnrétti er ekki hvaö síst aö eiga sömu möguleika og karlar án þess aö þurfa aö tileinka sér lífs- viöhorf þeirra, aö þurfa aö breyta sér í karl,“ sagöi Guöný aö lokum. bj. Ljósm./ Friðþjófur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.