Morgunblaðið - 27.06.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.06.1984, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 144. tbl. 71. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Jackson hittir Castro Jesse Jackson og Fidel Castro, leiðtogi Kúbu, á flugvellinum í Havana í gær. Jackson, sem keppir að útnefningu sem forseti bandariskra demókrata, hefur að undanförnu sótt heim nokkur ríki í Mið-Ameríku og kvaðst vonast til þess að fundur sinn með Castro gcti orðið til þess að bæta sambúð Bandaríkjanna og Kúbu. Sjá: „Jackson og Castro hittast" á bls. 18. Verkfóllin í Vestur-Þýskalandi: Lausn virðist nú í sjónmáli Ludwigsburg, 26. júní. AP. SÁTTANEFNDIN, sem reynir að finna lausn á deilu málmiðnaðar- manna og vinnuveitenda þeirra í Vestur-Þýskalandi, kom saman síð- degis í dag til að ræða miðlunartil- lögu sáttasemjara, en treysti sér ekki til að taka afstöðu til hennar og kemur aftur saman í fyrramálið, miðvikudagsmorgun. Vinnudeilan, sem snýst um kröfu verkalýðssamtakanna um styttingu vinnuvikunnar um fimm stundir, úr 40 í 35, hefur lamað bifreiðaiðnað í Vestur-Þýskalandi og leitt til þess að um 400 þúsund manns eru án atvinnu. Sáttatil- laga, sem Georg Leber, sáttasemj- ari, hefur sett fram, felur í sér að vinnuvikan verði stytt um hálfa aðra klukkustund frá 1. apríl nk. og til 1. október 1986, en þá verði samkomulagið endurskoðað. Leber sagði við fréttamenn eftir sáttafundinn í gær að hann vonað- ist til að endi yrði bundinn á vinnudeiluna fyrir lok þessarar viku. Kvað hann ástæðu til að ætla að sú von sín yrði að veru- leika. Fulltrúar málmiðnaðarmanna og vinnuveitenda hafa einnig gefið í skyn að lyktir deilunnar, sem nú hefur staðið í sjö vikur, væru í sjónmáli. Lambsdorff segir af sér 26. jnní. OTTO Lambsdorff efnahagsmála- ráóherra Vestur-Þýskalands sagði af sér embætti í dag og hefur Helmut Kohl kanslari fallist á afsögn hans. Ástæðan fyrir afsögninni eru ásakanir á hendur Lambsdorff um að hafa þegið mútur frá Flick- auðfélaginu og standa nú yfir rétt- arhöld i því máli. Lambsdorff kveðst saklaus af öllum ákærum, en telur afsögn sína auðvelda rannsókn málsins. Kjósa Natta sem leiðtoga Róm. 26. júní. AP. ALESSANDRO Natta var f dag kjör- inn leiðtogi Kommúnistaflokks Ita- líu á fundi miðstjórnar flokksins í Róm. Hann hlaut öll greidd atkvæði, 227 að tölu, en 11 sátu hjá. Að kjöri loknu lýsti Natta því yfir að hann mundi fylgja áfram sömu stefnu og hinn látni leiðtogi flokksins, Enrico Berlinguer, sem kunnur var fyrir sjálfstæða af- stöðu gagnvart Sovétríkjunum, svonefndan „Evrópukommún- isrna". Natta er 66 ára að aldri og var um árabil náinn samstarfsmaður Berlinguers. Hann hefur starfað í kommúnistaflokknum frá 1945, á Alessandro Natta Simamynd AP. sæti í miðstjórn og er formaður hinnar áhrifamiklu eftirlitsnefnd- ar flokksins. Leiðtogar ríkja Efnahagsbandalagsins fyrir utan höllina í Fontainebleau í Frakklandi þar sem þeir hafa setið á rökstólum undanfarna tvo daga. Undarlegt skeyti frá Sakharov og Bonner Parú, 26. iúní. AP. SrJÚPDOTTIR sovéska eðlisfræð- ingsins Andrei Sakharovs kvaðst í dag hafa fengið skeyti, sem undirrit- að væri af Sakharov og móður henn- ar, Yelenu Bonner, og sent frá borg- inni Gorkí í Sovétríkjunum þar sem þau hafa búið. Tatiana Yankelevitch sagði að skeytið væri dagsett föstudaginn 22. júní og virtist hafa verið mót- tekið í Bandaríkjunum í gær. Hún kvaðst efast um að skeytið væri ófalsað. í skeytinu segir orðrétt: „Móðir, börn. Verið áhyggjulaus. Við erum á lífi og okkur líður vel. Bestu af- mæliskveðjur til Efrem. Ástar- kveðjur. Mamma og Andrei." Efrem er eiginmaður frú Yank- elevitch og móðirin, sem ávörpuð er, Ruth, móðir frú Bonner. Tatiana Yankelevitch kvað und- arlegt að fá í hendur skeyti með þessu orðalagi þegar allar aðstæð- ur væru hafðar í huga. Ef þau hjón gætu á annað borð sent frá sér skeyti væri kynlegt að þau hefðu ekki gert það fyrr. Ekkert hefur spurst til Sakh- arov-hjónanna í nærri tvo mánuði, en 2. maí sl. fór Sakharov í hung- urverkfall til að mótmæla því að eiginkona hans hefur ekki fengið að leita sér læknishjálpar utan Sovétríkjanna. Hafa ýmsir látið í ljós ótta um að þau væru látin. Thatcher kveðst fagna úrslitum FoDtainebleau, 26. júnf. AP. MARGRÉT Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, hefur fagnað sam- komulagi því, sem tókst í dag, um fjárframlög Breta til Efnahags- bandalags Evrópu. Ágreiningurinn um framlög Breta hefur valdið mikl- um erfiðleikum í samskiptum bandalagsríkjanna og hafði nærri riðið efnahagssamstarfi þeirra að fullu. Samkomulagið er talið mikill póli- tískur sigur fyrir Francois Mitt- errand, forseta Frakklands, sem lagt hefur mikla vinnu í að útkljá deiluna. Hann sagði í dag að nú væri ekki lengur um nein misklíð- arefni að ræða innan bandalags- ins. Það var í gær sem leiðtogar hinna tíu aðildarríkja Efnahags- bandalags Evrópu komu saman í Fontainebleau í Frakklandi til að ræða ágreiningsefni sín og laust fyrir hádegi í dag náðu þeir sam- íranska vélin í Egyptalandi Doha, Qatar, 26. júní. AP. ÍRANSKRI farþegaflugvél af gerðinni Boeing 727 var rænt í innanlandsflugi í dag og snúið til Doha í furstadæminu Qatar þar sem farþegunum 136 og sex af níu manna áhöfn var leyft að fara frá borði. Vélin hélt síðan í loftið á ný með flugræningjana, sem talið er að séu tveir, og þrjá úr áhöfninni, og lenti á flugvellinum í Kaíró í Egyptalandi laust fyrir kl. 19 í kvöld. Þar var hún enn, sam- kvæmt heimildum AP, þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt. ítalskir kommúnistar: komulagi. í samkomulaginu felst að Bretar fá endurgreitt jafnvirði 24 milljarða ísl. króna af framlagi sínu til bandalagsins á þessu ári og á næstu árum fá þeir endur- greitt tvo þriðju af þeim mismun sem er á framlögum þeirra til bandalagsins og beinum greiðslum sem þeir fá frá því í formi niður- greiðslna á landbúnaðarvörum og annarra styrkja. Fjárlög Efnahagsbandalagsins á þessu ári nema jafnvirði 720 milljarða íslenskra króna og að- eins Bretar og Vestur-Þjóðverjar hafa greitt meira í sameiginlega sjóði bandalagsins en þeir hafa fengið úr þeim. Samkomulagið, sem tókst í dag, þýðir að á næstu árum verða viðskipti Breta og bandalagsins á sléttu, en á þessu ári verður enn halli sem nemur jafnhárri upphæð og þeir hafa nú fengið endurgreidda. A fundinum i Fontainebleau náðist einnig samstaða um að hækka úr 1% í 1,4% þann hluta af virðisauka- og söluskatti í banda- lagsríkjunum, sem rennur í sjóði EBE, en þessi framlög eru aðal- tekjur bandalagsins. Ef ekki hefði náðst eining um þessa hækkun var greiðsluþrot fyrirsjáanlegt i október á þessu ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.