Morgunblaðið - 27.06.1984, Blaðsíða 20
20
—
MORGÍJNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNl 1984
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 275 kr. á rrtánuði innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö.
Áhugi á álveri
að hlýtur að vekja athygli
hve áhugi erlendra aðila á
byggingu álvers hér á landi er
mikill. Áttu fáir á því von eftir
fimm ára forustu Hjörleifs
Guttormssonar í iðnaðarmál-
um svo mjög sem hann lagði
sig fram um að draga úr
áhuga erlendra aðila á sam-
vinnu við íslendinga á þessu
sviði. í þessu efni eins og .svo
mörgum öðrum hafa mál ekki
gengið eftir eins og hann ætl-
aði og nú þegar nýr skriður
virðist vera að komast á stór-
iðjuviðræður landsmanna
hafa andstæðingar samvinnu
íslendinga við útlendinga að
sjálfsögðu risið upp til and-
mæla. Þrátt fyrir reynsluna úr
álverinu heyrast enn þær
röksemdir að með stóriðju sé
verið að skapa sérstakan lág-
launahóp verkamanna. Þess-
um sömu röksemdum beittu
andstæðingar álversins í
Straumsvík á sjöunda ára-
tugnum en eins og vænta
mátti hafa þær reynst rangar.
Fáir launþegar eru jafnvel
launaðir og þeir sem þar
vinna. Það hefur sannast að
með samvinnu við erlenda að-
ila hafa lífskjör batnað og
geta orðið enn betri ef rétt er á
málum haldið. Meginþorri ís-
lendinga gerir sér ljóst að ein-
angrun í samfélagi þjóðanna,
kemur verst niður á þeim
sjálfum. Fáir hafa hins vegar
veikt stöðuna meira út á við en
þeir vinstrimenn sem staðið
hafa fyrir myndun erlendu
skuldasúpunnar síðustu ár.
í umræðum um smíði nýrr-
ar álverksmiðju hefur helst
verið talað um Eyjafjarðar-
svæðið og standa nú yfir rann-
sóknir á hugsanlegri mengun-
arhættu ef af því verður, en
niðurstöður liggja ekki enn
fyrir. Það vekur því furðu þeg-
ar hópur manna tekur sig
saman og myndar samtök
gegn álveri við Eyjafjörð með
þeim rökum að mengunar-
hætta sé of mikil. Þetta er enn
furðulegra í ljósi þess að sum-
ir þessara manna hafa tekið
virkan þátt í málefnum Akur-
eyrarbæjar, en þar hefur at-
vinnuástand verið slæmt um
árabil.
Eyjafjörðurinn er gróður-
sælt og fallegt hérað og því
eru áhyggjur manna vegna
hugsanlegrar mengunar skilj-
anlegar. Auðvitað á ekki að
ráðast í byggingu verksmiðju
sem stefnir í voða fallegri
náttúru og góðu landbúnað-
arhéraði. Um þetta geta allir
verið sammála, en á meðan
niðurstöður rannsókna liggja
enn ekki fyrir þjónar andstaða
af þessu tagi engum tilgangi,
síst framtíð íbúa Akureyrar.
Þeir menn sem hvað harðast
ganga fram í mótstöðu við
byggingu álvers, gera það ekki
af einskærri hugulsemi við
móður náttúru. Þar liggja aðr-
ar ástæður að baki, eins og
sumir þeirra viðurkenna.
Samvinna við útlendinga í at-
vinnumálum er eitur í þeirra
beinum og skiptir engu hvort
íslendingar hagnast á henni
eður ei. Og ef andstaða við ál-
ver við Eyjafjörð fær hljóm-
grunn meðal heimamanna
verður ekkert af byggingu
þess, hvort sem mengunar-
hætta er mikil eða hverfandi.
En ætli Eyfirðingar sér að
renna styrkari stoðum undir
atvinnulíf byggðarlagsins
verða þeir hins vegar að fylgja
málinu fast eftir. Álver við
fjörðinn er ekki keppikefli
annarra, aðrir staðir koma
einnig til álita þar sem heima-
menn eru samhuga.
Stroku-
maður laus
Til þess eru engin lögleg úr-
ræði fyrir íslensk yfirvöld
að ná Miroslav Peter Baly,
eggjaþjófi, aftur i sína vörslu.
í því efni verða þau að sjálf-
sögðu að fara að gerðum
samningum sem eiga að
tryggja rétt einstaklinga og
veita þeim þá vernd sem felst í
því að vera borgari í réttar-
ríki. Vonandi vekur mál Miro-
slav P. Baly svo mikla athygli
að þeir sem hafa kynnu í
hyggju að koma hingað til
lands í sömu erindagjörðum
og hann forðist landið af ótta
við ströng viðurlög. Líklegt er
að Baly sjálfur, þó bíræfinn sé,
láti íslenska fálka framvegis í
friði.
Á þessu máli er önnur hlið.
Má þar fyrst nefna framferði
skipstjórans á Elizu Heeren.
Hann hlýddi að vísu tregur
fyrirmælum um að fara til
Esbjerg en gerði ekkert þar til
að stuðla að því að íslensk
réttvísi næði fram að ganga.
Hið sama má segja um full-
trúa þýskra stjórnvalda sem
létu undir höfuð leggjast að
vera til staðar þegar skipið
kom til Esbjerg, en fjarvera
þeirra réð úrslitum um að
danska lögreglan hélt að sér
höndum. Þessu framferði þarf
að svara með viðeigandi hætti.
Hafskip ætti að hætta að
skipta við fyrirtækið sem gerir
út Elizu Heeren og utanríkis-
ráðuneytið ætti að bera fram
hörð mótmæli við þýsk gtjórn-
völd.
Þyrlubjörgunarsveit vamarliðsins:
Heiðruð fyrir að ha
bjargað 200 mannslíf
Þyrlubjörgunarsveit varnarliðsins
(Detachment 14) var í gær afhent á
Keflavíkurflugvelli viA hátíAlega at-
höfn heiAursskjal frá íslensku þjóA-
inni fyrir aA hafa bjargaA 200
mannslífum hér viA land og á landi
undanfarin ár. Geir Hallgrímsson,
utanríkisráAherra, afhenti Joseph
M. Nall, ofursta og yfirmanni þyrlu-
sveitarinnar, skjaliA, þar sem sveit-
inni var þakkaA þaA hugrekki og
ósérhlífni sem hún hefur sýnt í sínu
starfi.
Athöfnin fór fram í flugskýli
þyrlusveitarinnar á Keflavíkur-
flugvelli að viðstöddum sendi-
herra Bandaríkjanna, Marshall
Brement, og fulltrúum frá Land-
helgisgæslunni, Flugbjörgunar-
sveitinni, Hjálparsveit skáta,
Slysavarnafélagi íslands, Al-
mannavarnaráði og Flugmálayf-
irvöldum.
Athöfnin hófst klukkan tíu með
því að þjóðsöngvar íslands og
Bandaríkjanna voru leiknir og síð-
an flutti yfirmaður varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli, Ronald
Narmi aðmíráll, stutt ávarp. Að
því loknu flutti Geir Hallgrímsson
ræðu þar sem m.a. kom fram að í
meira en 12 ár höfum við íslend-
ingar verið þess aðnjótandi að
þyrlusveitin hafi verið hér til taks
til að láta í té mikilvæga aðstoð
við björgunar- og leitarstarfsemi.
Sagði hann að liðsmenn þyrlu-
björgunarsveitarinnar hefðu vak-
ið aðdáun og þakklæti íslendinga
fyrir dugnað þegar slys eða
skyndileg veikindi hefði borið að
höndum og íslensk yfirvöld hefðu
óskað eftir aðstoð.
Aðstoð sveitarinnar hefði ávallt
verið til reiðu og til fyrirmyndar
og liðsmenn hefðu oft lagt sig í
hættu við sín störf. Þá kom fram í
ræðu utanríkisráðherra að þyrlu-
Joseph M. Nall færir Geir Hallgrímssyni
innar sem eflaust hefúr komiA viA sögu í I
Einn liAsmanna sveitarinnar skoAar hér minjagrip sem þeim var færAur aA gjöf
vegna veru og starfa sveitarinnar hér á landi.
Morgunblaðið sigraði
á Lækjartorgsmótinu
MORGUNBLAÐIÐ sigraði á
þriðja útiskákmóti Skáksam-
bands íslands sem haldið var á
Lækjartorgi í gær. Keppandi
Morgunblaösins var Margeir
Pétursson, alþjóðlegur meistari,
hann hlaut sex vinninga af sjö
mögulegum, en næst urðu fyrir-
tækin Dentalia, keppandi Ás-
geirs Ásbjörnsson og Visa ís-
land, keppandi Jón L. Árnason,
alþjóðlegur meistari. Keppnin
fór fram í blíðskaparveðri á
Lækjartorgi í gær og fylgdist
fjöldi vegfarenda með mótinu,
sem tók þrjár klukkustundir.
Tefldar voru sjö umferðir eftir
Monrad-kerfi og hafði hver kepp-
andi sjö mínútur á skákina.
Margir af okkar beztu skák-
mönnum voru með á mótinu,
þ.á m. fjórir af titilhöfunum. Ás-
geir P. Ásbjörnsson náði snemma
forystunni fyrir Dentalia en tap-
aði í síðustu umferð fyrir Jóni L.
Árnasyni og Margeir Pétursson
náði þar með efsta sætinu fyrir
Morgunblaðið með því að vinna
Hilmar Karlsson sem tefldi fyrir
Arnarflug. Helgi Ólafsson, sem
hefur sigrað í flestum Lækjar-
torgsmótunum lék herfilega af
sér í fyrstu umferð og náði sér
síðan ekki fyllilega á strik.
Margeir Pétursson vann fimm
skákir og gerði tvö jafntefli við þá
Guðmund Sigurjónsson, stór-
meistara, sem tefldi fyrir BM
Vallá og Ásgeir Ásbjörnsson.
Margeir Pétursson, keppandi Morg-
unblaðsins meA Tímabikarinn sem
teflt er um á Lækjartorgsmótinu.
Heildarúrslit mótsins urðu þessi:
1. Morgunblaðið (Margeir Pét-
ursson) 6 v.
2. -3. Dentalia (Ásgeir Ás-
björnsson) og Visa ísland (Jón L.
Árnason) 5‘Æ v.
4.-7. Arnarflug (Hilmar
Karlsson), Landsbankinn A (Jó-
hann Örn Sigurjónsson), Guð-
mundur Arason, heildverslun
(Stefán Briem) og Nútíminn
(Helgi Ólafsson).
8.-9. BM Vallá (Guðmundur
Sigurjónsson) og Brunabótafélag
íslands (Kristján Guðmundsson)
4lÆ v.
10.—19. Eimskip (Björgvin
Jónsson), Plastprent (Gunnar
Gunnarsson), Þýzk-íslenska
verzlunarfélagið B (Davíð Ólafs-
son), Björgun hf., (Þorsteinn
Þorsteinsson), Hafskip hf.,
(Þröstur Þórhallsson), Dag-
blaðið-Vísir (ögmundur Kristins-
son), Þjóðviljinn (Lárus
Jóhannesson), Tímaritið Skák
(Jóhann Þórir Jónsson), Flugleið-
ir (Stefán Þórisson) og Skákhúsið
(Benóný Benediktsson) 4 v.
20.—28. Sælgætisgerðin Freyja
(Guðlaug Þorsteinsdóttir), Ut-
vegsbankinn (Björn Þor-
steinsson), Samvinnubankinn
(Árni Á. Árnason), Hampiðjan
(Snorri Bergsson), Vörumerking
hf, (Andri Áss Grétarsson),
Þýzk-íslenska verslunarfélagið Á
(Sveinn Kristinsson), Sjóvá (Dan
Hansson), Álafoss (Georg Páll
Skúlason), og Ferðaskrifstofan
Útsýn (Páll Þórhallsson) 3 v.
29. Búnaðarbankinn (Tómas
Björnsson) 2‘Æ v.
30. —33. Verzlunarbankinn
(Óttar Felix Hauksson), Eva,
Laugavegi 42, (Sigurlaug Frið-
þjófsdóttir), Skáksamband Is-