Morgunblaðið - 27.06.1984, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984
Vestmannaeyjar:
Verkfall hjá 50
bæjarstarfsmönnum
Ve.stmannaeyjum, 26. júní.
Á MIÐNÆTTI í nótt hófst verkfall hjá þeim starfsmönnum Vestmannaeyja-
bæjar, sem eru félagsmenn í Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja. Verkfallið
hafði verið boðað til þess að knýja á um gerð nýs sérkjarasamnings við
Vestmannaeyjabæ, en í gærkvöld slitnaði upp úr samningaviðræðunum.
Aðild að þessu verkfalli eiga um fimmtíu starfsmenn, sem starfa við ýmis
konar útivinnu á vegum bæjarins, svo sem við gatnagerð og fleiri störf.
Að undanförnu hafa staðið yfir
viðræður milli samninganefnda
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja
og bæjarsjóðs um nýjan sérkjara-
samning í stað eldri samnings,
sem féll úr gildi 1. maí sl. Sam-
komulag hafði náðst um t.d. gild-
istíma, launaflokka og önnur
minni háttar atriði. Ekki náðist
samkomulag um uppbyggingu
taxtakaups. Bæjarsjóður bauð
samning í anda samkomulags ASÍ
og VSÍ og samnings Dagsbrúnar
við Reykjavíkurborg og greiðslu
iágmarkslauna í samræmi við áð-
urnefnda samninga. Verkalýðsfé-
lagið gerði aftur á móti þá kröfu,
að lægstu taxtar miðuðust við lág-
markslaun, þannig að ekki þyrfti
að greiða láglaunauppbót á taxta-
kaupið.
Á þessu strandaði í viðræðunum
og áður boðað verkfall kom til
framkvæmda. Samninganefnd
bæjarsjóðs fór fram á það í
gærkvöld, að verkfallinu yrði
frestað. Þeirri beiðni hafnaði
verkalýðsfélagið. Nýr fundur í
vinnudeilunni hefur ekki verið
boðaður. — hkj.
Hlutafjáraukning Arnarflugs:
„Ræðum þetta
á næstunni"
— segir stjórnarformaður Flugleiða
STJÓRN Flugleiða hefur ekki tek-
ið afstöðu til þess hvort félagið
muni nýta forkaupsrétt sinn á
auknu hlutafé í Arnarflugi hf„ að
sögn Sigurðar Helgasonar, stjórn-
arformanns Flugleiða. Tillaga
stjórnar Arnarflugs um hækkun
hlutafjár með áskrift nýrra hluta
verður borin undir aðalfund fé-
lagsins 11. júlí næstkomandi. Sam-
kvæmt tillögunni er gert ráð fyrir
að hluthafar geti skráð sig fyrir
INNLENT
nýjum hlutum í réttu hlutfalli við
hlutaeign sína fyrir 15. ágúst.
„Þetta mál er svo nýtt af nál-
inni að það hefur ekkert verið
rætt hér ennþá," sagði Sigurður
Helgason í samtali við blaða-
mann Mbl. „Ég tel þó víst að það
verði rætt alveg á næstunni."
Á liðnum vetri afskrifaði
stjórn Flugleiða hlutafjáreign
félagsins í Arnarflugi, eins og þá
kom fram í fréttum. Sigurður
var spurður hvort sú staðreynd
segði ef til vill alla söguna um
afstöðu Flugleiða til hlutafjár-
aukningarinnar í Arnarflugi.
„Ekki nauðsynlega," svaraði
stjórnarformaðurinn. „Ekkert
frekar en afskrift hlutafjár
okkar í Cargolux á sínum tíma.
Það heita góðar reikningsskila-
venjur á máli endurskoðenda að
færa ekki til bókar á fullu verði
eignir, sem eru lítils eða einskis
virði.“
Nýtt safnhús Listasafns íslands. gamla íshúsið, og síðan Glaumbær, til
hægri.
Listasafnið tekur á
sig mynd í Glaumbæ
UM ÞESSAR mundir er verið að
Ijúka við frágang á glerjum, á
framhlið, hurðum o.fl. í Listasafni
íslands við Fríkirkjuveg. Að sögn
Guðmundar G. Þórarinssonar,
formanns byggingarnefndar, er
reiknað með að þessum áfanga
verði lokið í næsta mánuði. Fjár-
veitingar á þessu ári voru um 6
milljónir og er gert ráð fyrir að um
2 milljónir verði afgangs þegar
þessum framkvæmdum lýkur.
Nú standa yfir viðræður við
fjármálaráðherra um útboð á
næsta áfanga, þ.e. að gera safn-
húsið tilbúið undir tréverk. Talið
er að þær framkvæmdir kosti
um 12 milljónir.
Listasafn Islands er 100 ára á
þessu ári. Á blaðamannafundi
síðastliðið haust tilkynnti
menntamálaráðherra að gjöfin
frá ríkisstjórninni, af því tilefni,
væri sú að lokið verði við safn-
bygginguna á árunum
1985—1986. Um 40 milljónir
vantar til þess að ljúka við bygg-
inguna, en Guðmundur G. Þór-
arinsson taldi að ef vilji væri
fyrir hendi myndi dæmið ganga
upp.
Fram til þessa hafa fram-
kvæmdir aðallega verið kostaðar
af gjafafé og munar mest um
gjöf Sigurliða Kristjánssonar og
konu hans til Listasafnsins.
Séð inn í glerhúsið, sem tengir safnbygginguna og Glaumbæ
Morgunblaðið/EBB.
Þjóðarátak í trjárækt:
Ríkisstjórn-
in hefur enga
ákvöröun tekið
— segir Steingrím-
ur Hermannsson
„RÍKISSTJÓRNIN hefur ekki tekið
neina ákvörðun um átak í trjárækt í
þessu sambandi. Hins vegar hef ég
verið beðinn að beita mér fyrir slíku
átaki og ég hef út af fyrir sig mikinn
áhuga á því. Hins vegar verður
svona átak að vera meira en orðin
tóm,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, er hann var
inntur eftir því hvort tekið yrði á
trjárækt á 40 ára afmæli lýðveldis-
ins. Tillaga til þingsályktunar þar að
lútandi fékkst ekki afgreidd á síð-
asta þingi.
Steingrímur sagði ennfremur,
að það væri orðið fullseint á þessu
sumri að hefja gróðursetningu.
Þess vegna væri það sín skoðun,
að átak sem þetta yrði að undir-
búa mjög vel. Ekkert framlag í
þessu skyni væri á gildandi fjár-
lögum og því hefði hann ráðlagt að
þetta yrði skoðað sem allra bezt
áður en skrefið yrði stigið. Talað
hefði verið um stofnun nefndar,
sem beitti sér fyrir fyrir kynn-
ingarstarfsemi meðal almennings
og opinberra aðila fyrir aukinni
skógrækt. Málið væri gott, en það
þyrfti bara að undirbúa það sem
bezt.
Siglufjörður:
Skortur á
vinnuafli
mjög mikill
Mikill vinnuaflsskortur er nú á
Siglufirði, bæði vegna sumarleyfa
starfsmanna og mikillar veiði. Siglu-
vík kom sl. mánudag með 100 tonn
að landi þar af voru 70 tonn þorskur
en hitt grálúða. Þá kom Stálvíkin
með fullfermi, samtals 140 tonn, allt
þorskur. Að sögn sjómanna er mikið
líf í sjónum útaf Norðurlandi.
Ekki er Ijóst til hvaða aðgerða
verður gripið, en að óbreyttu er
ekki mannafli fyrir hendi til að
vinna allan fiskinn. Þá hefur einn-
ig verið mikið að gera hjá Sigló-
síld í rækjuvinnslu og er unnið á
vöktum allan sólarhringinn. Von
er á 50—60 tonnum af rækju og
hefur veiði verið góð, komið
10—20 tonn að landi daglega.
Beint og óbeint eiga
þeir þessa peninga
— segir Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður, um Sameinaða verktaka
„SAMKVÆMT þeim upplýsing-
um, sem ég hef fengið, eiga ís-
lenskir aðalverktakar, sem Sam-
einaðir verktakar eiga að hálfu,
en ríkið og SÍS-fyrirtækið Reginn
að einum Ijórða hluta hvort,
eitthvað á sjöunda hundrað millj.
kr. í bönkum og verðbréfum ef
upphæðin er þá ekki orðin hærri.
Þar með hljóta Sameinaðir verk-
takar að eiga a.m.k. „á fjórða
hundrað millj. í beinhörðum pen-
ingum“ ... „beint og óbeint“
eins og ég kemst að orði í grein
minni,“ sagði Eyjólfur Konráð
Jónsson, alþingismaður, er blaða-
maður Mbl. bar undir hann um-
mæli Thors Ó. Thors, fram-
kvæmdastjóra Sameinaðra verk-
taka hf„ í blaðinu í gær. Þar neit-
aði Thor því að Sameinaðir verk-
takar ættu í beinhörðum pening-
um jafn miklar fjárhæðir og Eyj-
ólfur Konráð hélt fram í grein í
Mbl. sl. sunnudag.
„Séu þessar upplýsingar
rangar verður það auðvitað
leiðrétt og ég hlyti að biðjast
afsökunar á að hafa trúað
þeim,“ sagði Eyjólfur Konráð.
„Nú kemur þetta hinsvegar
allt fram í dagsljósið því að
utanríkisráðherra lagði á Al-
þingi fram hina merkustu
skýrslu um verktakastarfsemi
á Keflavíkurflugvelli, sem rædd
verður í utanríkismálanefnd
áður en langt um líður. Og ég
mun, sem formaður utanrík-
ismálanefndar, að sjálfsögðu
óska eftir nýjustu reikningum
Sameinaðra verktaka og Regins
hf„ en ekki síst reikningum að-
alverktaka og öllum nauðsyn-
legum upplýsingum, svo að ekk-
ert fari á milli mála enda ríkið
aðili að þeim félagsskap," sagði
þingmaðurinn.
— Þú talaðir einnig um
„valdasvindl" í Sameinuðum
verktökum. Við hvað átt þú
með þvi?
„Ég sagði „angi af valda-
svindli". Það skýri ég raunar
óbeint annars staðar í grein-
inni. Þar á ég við það að menn
eiga ekki að byggja völd sín á
eignum annarra. Um þetta segi
ég ekki meira á þessu stigi, en
vil þó taka skýrt fram, að þar á
ég ekki við Thor ó. Thors,"
sagði Eyjólfur Konráð Jónsson,
aiþingismaður.
Morgunblaðið/Kári.
Miklar framkvæmdir hjá
Hitaveitu Sauðárkróks
Þessa dagana standa yfir miklar framkvæmdir hjá Hitaveitu Sauðárkróks.
Veriö er að endurnýja aðalleiðslur í Skagfirðingabraut og Aðalgötu. Með-
fylgjandi mynd er af þeim framkvæmdum.