Morgunblaðið - 27.06.1984, Side 5
*
5
mi híOi .ts aaoAauxrvaiM .aiaAjaKuoaoM
MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984
Fundir heilbrigðismálaráð-
herra í læknishéruðum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu:
Næstu fundir heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, Matthí-
asar Bjarnasonar, í læknishéruð-
um eru fyrirhugaðir sem hér seg-
ir:
Á Selfossi í kvöld kl. 20.30 í
Tryggvaskála. I Vestmannaeyium
á morgun kl. 20.30 í Félagsheimil-
inu.
Ræðumenn á fundunum, auk
ráðherra, verða Guðjón Magnús-
son, aðstoðarlandlæknir, sem ræð-
ir um heilsugæslu, Steinunn M.
Lárusdóttir, framkvæmdastjóri,
sem ræðir um almannatryggingar
og Þórður Harðarson, prófessor,
sem ræðir um hjartarannsóknir
og hjartalækningar.
Fundirnir eru öllum opnir.
Helgarskákmót í Flatey
RAF- OG tölvutónleikar verða
haldnir í dag á Kjarvalsstöðum kl.
17 og aftur kl 20.30, þar sem saga
íslenskrar tæknitónlistar verður
kynnt. Tónleikarnir verða endur-
teknir á Kjarvalsstöðum 28. og 29.
júní kl. 17 og 20.30 og laugardaginn
30. júní kl. 15 og 17.
Á tónleikunum verða flutt verk
eftir Gunnar Reyni Sveinsson,
Helga Pétursson, Kjartan ólafs-
son, Lárus Grímsson, Magnús
Blöndal Jóhannsson, Snorra Sig-
fús Birgisson, Þorkel Sigur-
björnsson og Þorstein Hauksson.
Tónleikarnir verða haldnir á
tveimur stöðum i húsinu og ný
efnisskrá verður á hverjum degi,
að því er segir í frettatilkynningu.
Raf- og tölvutónleik-
ar á Kjarvalsstöðum
TÍMARITIÐ Skák og Skáksamband
fslands efna til helgarskákmóts í
Flatey á Breiðafirði 29., 30. júní og 1.
júlí. Kr þetta 24. helgarskákmótið
sem þessir aðilar standa að, og verð-
ur það nú haldið í fámennasta
byggðarlaginu til þessa.
Ýmsir þekktustu skákmeistarar
landsins verða að venju meðal
keppenda, en sem framhald helg-
armótanna hefur tímaritið Skák
staðið fyrir tveimur alþjóðamót-
um, í Grindavík og Neskaupstað.
Flogið verður til Stykkishólms
að morgni föstudags 29. júní kl.
níu og þaðan farið meö flóabátn-
um Baldri til Flateyjar. Frá Flat-
ey verður síðan farið á sunnu-
dagskvöld. í eyjunni er ekki að-
staða til gistingar og verða kepp-
endur og gestir þvi að tjalda, að
því er segir í fréttatilkynningu
tímaritsins Skák.
Nokkrir styrkþegar ásamt fulltrúum úr stjórn Vísindasjóðs. Talið frá vinstri: Sigurður Stefánsson, Gunnar
Sigurðsson, Eggert Ó. Jóhannsson, Haukur Kristjánsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Jóhannes Pálmason,
Sverrir Þórðarson.
Styrkjum úr Vísindasjóði
Borgarsjúkrahússins úthlutað
NÝVERIÐ VAR úthlutað styrkjum
úr Vísindasjóði Borgarsjúkrahúss-
ins. Að þessu sinni var úthlutað
alls kr. 350.000, en 5 umsóknir
bárust um styrk alls að upphæð kr.
656.000. Eftirtaldir aðilar hlutu
styrki:
1. Dr. Kristján Ingvarsson verk-
fræðingur kr. 135.000, til að
standa undir efniskaupum og
aðkeyptri vinnu við gerð
tölvustýrðs heyrnarmælis.
2. Dr. Eggert ó. Jóhannsson yf-
irlæknir, dr. Gunnar Sigurðs-
son yfirlæknir og Jóhanna
Ragnarsson læknir kr. 115.000
til að taka þátt í fjölþjóða-
rannsóknum á tengslum salt-
inntöku og blóðþrýstings,
„Intersalt Study“.
3. Haukur Kristjánsson fyrrv.
yfirlæknir slysadeildar kr.
100.000 til rannsókna á sjúkl-
ingum sem komu á slysadeild
1983 vegna vinnuslysa. Er til-
gangurinn m.a. að fá yfirlit
yfir fjölda vinnuslysa með til-
liti til aldurs og kyns i hinum
ýmsu störfum og leita
áhættuþátta í störfunum.
Eins og kunnugt er var Vís-
indasjóður Borgarsjúkrahússins
stofnaður 1963 til minningar um
þá Þórð Sveinsson lækni og Þórð
Úlfarsson flugmann. Tilgangur
sjóðsins er að örva og styrkja
vísindalegar athuganir, rann-
sóknir og tilraunir sem fram
fara á Borgarspitalanum eða i
náinni samvinnu við hann.
(Fréttatilkynning)
Wang PC tölvan er tvímælalaust einn besti valkostur þeirr;
fyrirtækja, sem eru að hefja tölvuvæðingu.
Wang PC býður í senn fullkomið ritvinnslu- og bókhaldsker
og örugga möguleika til stækkunar og aukningar með
tengslum við stærri tölvueiningar. Þar að auki er Wang PC
lang hraðvirkasti PC-inn á íslenskum markaði.
Heimilistæki hafa selt og þjónustað Wang tölvur í 7 ár me
árangri sem fjöldi ánægðra viðskiptavina staðfestir.
Þú lendir ekki í blindgötu með Wang!
Heimilistæki hf
TÖLVUDEILD-SÆTÚNI8-SÍMI27500
Það er ekki auðvelt að rata um tölvuheiminn og því miður
hafa allt of margir lent inní blindgötu þegar þeir hafa ætlað
stytta sér leið eða spara sér tíma og fé.
(WANG )
Við verðum hérna líka á morgun!