Morgunblaðið - 27.06.1984, Side 26

Morgunblaðið - 27.06.1984, Side 26
rs?26 **>i M0RGUN8LAÐlÐ;4HÐVHÍUDAGUiR.í!7.'JÍlNk 1984 + Dóttir min. ÁSTA LOVÍSA LEIFSDÓTTIR, HAtúni 12, Reykjavfk, andðist í Landspítalanum 24. júní. Útförin veröur gerö frá Áskirkju föstudaginn 29. júní kl. 15.00. Fyrir hönd barna og systra hinnar látnu, Leifur Steinarsson, Ingibjörg Brynjólfsdóttir. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, LÁRUS ÁGÚSTSSON, Hótúni 12, Reykjavík, lést á heimili sinu 15. júní. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Sjöfn Lárusdóttir, Herdis Lárusdóttir, Kai Storgárd, Lára Sif Lárusdóttir, Ólafur Lange, Ágústa Hrefna Lárusdóttir, Kristján Guömundsson, Björg Lárusdóttir, Siguröur Þorbjörnsson, Anna Málfríður Lárusdóttir, Björn Guömundsson, Sigríöur H. Lárusdóttir og barnabörn. t Elskulegur eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, LÚDVÍK ÁGÚST NORDGULEN, fyrrverandi símaverkstjóri, Brávallagötu 8, lést 25. júní. Jaröarförin auglýst síöar. Þórunn R. Nordgulen, Lúóvík Sigurður Nordgulen, Sigríður Einarsdóttir, Ásta Lúövíksd. Nordgulen, Ásgeir Karlsson og barnabörn. + Móöir okkar, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, er lóst 19. þessa mánaöar veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. júní kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aöstandenda, Jóhanna Guðjónsdóttir, Haukur Guöjónsson. + Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, STEINUNNAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Skólavöróustig 28, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 28. júní kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent á Styrktarsjóö Landakotsspítala. Halldór Magnússon, Jóhanna Guömundsdóttir, Sigríöur Magnúsdóttir, Höröur Ágústsson, Magnús Magnússon, Helga V. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. + Faöir minn. KRISTJÁN MATTHÍAS RÖGNVALDSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28. júní kl. 13.30. Fyrir hönd bræöra minna og annarra vandamanna, Sveinborg Kristjánsdóttir. + Ástkær eiginmaöur mirvn, faöir, tengdafaöir og afi, ÁRNI JÓHANNSSON, vélstjóri, Faxatúni 3, Garóabæ, veröur jarösunginn frá Garöakirkju fimmtudaginn 28. júní kl. 13.30. Þeím sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á Krabbameins- félag islands. Björg Helgadóttir, Margrát B. Árnadóttir, Markús M. Árnason, Hafsteinn V. Árnason, Auóur Árnadóttir, Helgi Sigurgeirsson, og barnabörn. Oddný Ágústsdóttir, Jón G. Gíslason, Karen Haraldsdóttir, Guömunda Valdimarsdóttir, Haraldur Árnason, Sæbjörg Einarsdóttir Unnur Jónsdótt- ir - Minningarorð Fædd 10. igúst 1912 Dáin 19. júní 1984 Þrátt fyrir að ég vissi, að í mörg ár hafði Unnur Jónsdóttir barist hetjulegri baráttu við veikindi, kom andlát hennar mér á óvart og svo mun um fleiri. Ég hafði verið með henni hressri og kátri 17. júní og þar var haft orð á batnandi heilsu og áform voru um ýmislegt næstu daga. Unnur barðist i mörg ár við erfið veikindi, oft var mjótt á munum hvort hefði sigur, líf eða dauði, en lífið hafði yfirhöndina. Styrkur og glaðlyndi Unnar vó þar þungt á metaskálum. Unnur kom hingað frá Reykjavík. Um 50 ára skeið var hún Hólmari, starfaði í mörgum félögum og var jafnan dugleg að hverju sem hún gekk. Hún rak um skeið gistihús hér á staðnum, þegar aðrir höfðu gefist upp, og gerði það bæði vel og myndarlega. Með þeim sem bágt áttu fann hún til. Lá ekki á liði sínu þegar hún vissi að góð mál- efni óskuðu krafta hennar. Ævi hennar var baráttusaga eins og svo margra annarra á hennar manndómsárum. Hún stjórnaði stóru heimili og gaf börnum sín- um gott veganesti út í lífið. Hún var gift Eiríki Helgasyni raf- virkjameistara, sem lést í haust, þau áttu mannvænleg l)örn, sem bera foreldrum fagurt vitni. Að þeim gróðri hlúði Unnur vel og ekki spillti hennar ágæti maður. Ég var samferðamaður þeirra í rúm 40 ár og sú samleið var góð. Ég sakna þeirra og fyrir svo margt er ég þeim hjónum þakklát- ur. Um leið og ég bið Unni guðs blessunar á nýjum leiðum, endur- tek ég þðkk mína tii þeirra hjóna. Minningin lifir í þakklátum huga. Árni Helgason Þegar hverfa af sjónarsviðinu þeir sem okkur eru kærir sækir að okkur söknuður og allt er tóm- legra en áður. Hún skreppur frá svo björt og glöð eins og engill, eftir örstutta stund er hún farin lengra en til stóð. Við áttum margt sameiginlegt og því margar góðar samveru- stundir sem sækja á hugann. Hún stóð sig eins og hetja í veikindum sínum. Hún vildi ekk- ert lof eftir þetta líf, en mig lang- aði til að skrifa kveðjuorð til hennar. Guð blessi Unni og hafi hún þökk fyrir allt. Ég votta börn- um hennar, barnabörnum og lang- ömmubörnum samúð mína. Elísabet Magnúsdóttir Látin er í Stykkishólmi Unnur Jónsdóttir húsfreyja, ekkja Eiríks Helgasonar rafvirkjameistara sem lést síðastliðið haust. Er þá lokið ævistarfi þessara kátu og dugmiklu hjóna sem settu svip sinn á Stykkishólm þar sem þau bjuggu i blóma ævi sinnar og munu nú bera bein sín. Með þeim eru gengnir góðir fulltrúar þeirrar kynslóðar sem lifði og starfaði, byggði upp og bætti á öndverðri og miðri þessari öld og skilar nú eft- irkomendum sínum miklum arfi. Unnur Jónsdóttir var fædd í + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför ADALSTEINS HALLSSONAR. Hanna Aöalateinsdóttir, Valur Fannar, Anna Þorgrímadóttir. + Innilegar þakkir til allra sem vottuöu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför JÓNS SNORRA HALLDÓRSSONAR. Ása borsteinsdóttir Kristensen, Halldór J. Jónsson, Gyóa Thorsteinsson. + Þökkum auösýnda hluttekningu og vinarhug viö fráfall og jaröarför móöur okkar og tengdamóöur, ÞORGERÐAR SIGURGEIRSDÓTTUR, Sólvallagötu 24, sem lést hinn 15. júní sl. Sigurgeir Guömannsson, Elín Guömannsdóttir, Jón Ingimarsson, Gunnar Guömannsson, Anna Guðmundsdóttir, Bára Guömannsdóttir, Magnús Karlsson, Alda Guömannsdóttir, Bjargmundur Albertsson. Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. I minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Reykjavík 10. ágúst 1912 og var því liðlega sjötug er hún lést. For- eldrar hennar voru Jónína Þ. Þor- steinsdóttir og Jón Magnússon skipstjóri og síðar seglasaumari frá Miðseli i Reykjavík. Foreldrar Unnar giftust ekki en eignuðust tvö börn, Unni og Aðalstein, lög- regluþjón, fæddan 10. sept. 1906, dáinn 6. febrúar 1950. Unnur ólst upp með móður sinni og mun hafa haft lítil kynni af föðurfólki sínu fyrr en hún var uppkomin og kynni tókust í gegnum mægðir eins og síðar verður að vikið. Unnur giftist 30. október 1931 Eiríki Helgasyni rafvirkja. Hófu þau búskap í Reykjavík, en árið 1938 fluttust þau til Stykkishólms. Ingibjörg Helgadóttir, systir Ei- ríks, var þá búsett í Stykkishólmi, en 1923 hafði hún gifst Sigurði Ágústssyni verslunarmanni þar. Sigurður rak síðar verslun, útgerð og fiskvinnslu í Stykkishólmi og var þingmaður Snæfellinga og síð- ar Vestlendinga. Mun Eiríkur fyrst hafa starfað hjá Sigurði mági sínum en síðar hóf hann eig- in atvinnurekstur. Munu ófáar rafstöðvarnar sem Eiríkur setti upp á Snæfellsnesinu og átti hann sitt stóra hlutverk í því ævintýri sem rafvæðing íslenskra byggða var fyrir og um miðbik þessarar aldar var. Þegar Unnur og Eiríkur fluttu til Stykkishólms áttu þau þrjú börn, en alls urðu börnin sex á nítján árum. Þau eru: Auður Lella, fædd 1932, gift Benedikt Sigurðssyni, búsett í Garðabæ, Nína Erna, fædd 1935, gift Þor- valdi ólafssyni, búsett í Stykkis- hólmi, Helgi, fæddur 1936, kvænt- ur Elínborgu Karlsdóttur, búsett- ur í Stykkishólmi, Sesselja, fædd 1941, gift Óla Jósefssyni, búsett í Reykjavík, Þorsteinn, fæddur 1945, kvæntur Jóhönnu Gunnars- dóttur, búsettur í Reykjavík, Að- alheiður, fædd 1951, gift Erni Al- exanderssyni, búsett í Ólafsvík. Öll börnin eiga afkomendur, bðrn og barnabörn, og er ættbogi þeirra Unnar og Eiríks orðinn stór. Hin síðari ár voru brúðkaup og barnsskírnir tíðir viðburðir i fjölskyldunni og alltaf var Unnur að útbúa eitthvað fallegt handa ungu hjónunum og litlu börnun- um. Án efa hefur verið erfitt að koma upp svona stórum barnahópi á erfiðum tímum, en Unnur og Eiríkur uppskáru laun erfiðis síns í miklu barnaláni. Eftir að heilsu þeirra fór að hnigna báru bðrnin þau á höndum sér. Síðast sá ég til Unnar á sjúkrahúsi káta og hressa þrátt fyrir bágborna heilsu um- kringda ömmubörnum og lang- ömmubörnum sem voru boðin og búin að styðja hana þegar með þurfti. Líf þeirra Unnar og Eiríks ein- kenndist af dugnaði og glaðværð. Þrátt fyrir eril á stóru heimili tók Unnur að sér ýmis störf, m.a. rak hún gistihús í Stykkishólmi um skeið og um tíma vann hún á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Þá aðstoðaði hún Eirík dyggilega í starfi hans og annaðist bókhald og innheimtu. Fyrst og fremst var hún þó húsmóðir sem naut þess að taka á móti gestum og þeir voru fjölmargir. Veitingarnar sem hún bar fram voru ekki bara góðar heldur líka fallegar og girnilegar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.