Morgunblaðið - 27.07.1984, Síða 5

Morgunblaðið - 27.07.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1984 37 TEXTI: HILDUR EINARSDÓTTIR Mála undir Guörún Tryggvadóttir, er þetta hún? — Komdu sæl, eg heiti ... (svo kom þessi venjulega kynning). Ég ætlaöi alltaf að hringja í þig i fyrra, þegar þú varst valin nemandi ársins viö iistaakademi- una í Munchen og heyra í þér hljóöiö, en svo varö ekkert úr þvi, en betra er seint en aldrei... Hvernig hefur þú þaö? „Fínt nema, ég á engan pening." — Er dýrt aö búa í Munchen? „Já, ég leigi til dæmis 60 fm herbergi, sem er ágætis vinnustofa, á 430 mörk á mánuði. En viö megum ekki búa þar, en gerum þaö samt, svo viö verðum stundum aö vera í hálf- geröum feiuleik. Viö sofum til dæmis á dýnum, sem viö getum rúllað upp í flýti, ef húseigand- inn skyldi birtast. Fötin okkar felum viö líka. Þetta húsnæöi er þannig tilkomiö, aö viö vor- um nokkur, sem tókum á leigu 250 fm hús- næöi. Viö skiþtum því niöur í þrjár vinnustofur fyrir málara og eina stóra vinnustofu fyrir 25 arkitekta. Og þegar viö förum á klósettiö á morgnana veröum viö aö ganga í gegnum vinnustofu þessara 25 arkitekta og hlusta á athugasemdir þeirra eins og „ógurlega eruö þið syfjuleg". Það getur veriö erfitt aö búa svona þröngt.“ — Hver erum við? „Ég og sambýlismaður minn, Bob Becker óperusöngvari, en hann kom til íslands síö- astliöinn vetur og söng í óperunni Toska meö Sinf óníuhl jómsveit i nni. “ — Ég var aö heyra aö þú heföir eignast velgjöröarmann þarna ytra? „Þaö er eitthvaö til í því. Eftir sýninguna í desember hringdi til mín efnaöur Munchen- búi, Engelhorn Stiftung aö nafni, sem styrkt hefur fjölda listamanna og rekur gallerí hérna í Munchen og bauöst hann til aö greiöa fyrir mig allan efniskostnaö. Þáöi ég þaö meö þökkum. Þaö munar um það.“ — Hvernig hefur þór svo vegnaö eftir að þú laukst námi? „Þaö var á vissan hátt erfitt aö hætta í skólanum, því hann veitir manni einhverja ör- yggistilfinningu. Nú er ég orðin ein í vinnustofu úti í bæ. Og ég er í rauninni aö byrja upp á nýtt fyrir sjálfa mig, læra þaö sem ég læröi aldrei í skólanum — þessi litlu leyndarmál, sem eru svo mikilvæg, ef þú ætlar aö fá fram eitthvaö sérstakt. En þaö er líka gott að vera byrjandi, þaö felst í því ákveöinn frumkraftur.“ — Meöan þú varst hér heima i málara- deildinni og einnig meðan þú varst í Beaux Arts-listaskólanum í París málaöir þú mikiö í olíu, gerir þú þaö ennþá? „Ég hætti í nokkur ár aö mála i olíu, því mér fannst efniö halda aftur af mér. Fyrstu árin hór í Múnchen fékkst ég aöallega viö concept-list. Ég fór aö nota hausinn. Reyndi aö setja skyn- samlega niður þaö sem ég var aö hugsa, út- skýra þaö sem mér fannst um allt. Ég notaöi mikiö Ijósmyndir af sjálfri mér í alls konar út- gáfum. Ég sat öllum stundum viö skrifboröiö í vinnustofunni minni í skólanum og vann. Svo fór ég aö hafa þaö á tilfinningunni aö vinnu- stofan væri oröin eins og skrifstofa. Þá byrjaöi óg aö mála aftur. Ég vann myndirnar mínar á stórt karton og ég notaöi bara venjulega málningu. Þetta var í fyrsta skipti, sem mér fannst ég reglulega geta gert þaö sem ég vildi. Þaö hentar mér ágætlega aö mála stórar myndir, ég er til dæmis núna aö mála mynd, sem er 4x3 metrar aö stærö.“ — Hefur þú einhverja skýringu á því af- hverju þér finnst gott aö mála stórt? óperusöng Gunna — Slegiö á þráöinn til myndlistarkonunnar GuÖ- rúnar Tryggvadóttur, sem búsett er í Munchen og spurst frétta. Reyndar kallar hún sig bara Gunnu þarna ytra. — Hvernig er svo aö selja verkin? „Ég hef ekkert veriö aö reyna aö selja, og ég á dobíu af myndum. Ég kann ekki aö verö- leggja. Ef einhver sþyr hvað mynd hjá mér kostar, þá vil ég helst gefa hana , þ.e.a.s. ef viökomandi finnst hún góö. Ef ég haga mér eins og á aö haga sér finnst mér ég vera einhver kúkalabbi. Maöur fer ekki aö selja fyrr en maöur er kominn innundir hjá stærstu gall- eríunum.“ Gestir é sýningunni. „Ég syndi mikiö og hef gaman af því aö dansa. Til þessa þarf gott svigrúm. Og þaö sama má segja er ég mála, ég þarf rými. Ég hef oftast gaman af líkama mínum og vil aö hann sé hluti af því, sem ég er aö gera. Ég dansa til að fá ákveðinn kraft og stundum dansa óg meðan ég mála og þá er eins og maöur máli meö sjálfri sór. Veröi eins konar framlenging á þenslinum. Þetta er líka spurn- ing um aö vera frjáls." — Pabbi þinn sagöi mér aö þú byggir til olíulitina þina sjálf? „Já, ég geri þaö. Ég kaupi original litaduft og blanda þaö meö línolíum og býflugnavaxi. Þaö er æöisleg vinna viö þetta. Þaö tók mig 2 mánuöi aö blanda 50—60 kíló af málningu, 24 liti. En þetta er lærdómsríkt, því óg skynja litina miklu betur en áöur. — Rauöur er ekki lengur bara rauður. Núna hafa litirnir mismun- andi áhrif á mig, til dæmis hefur fjólublátt þau áhrif að ég verö mjög „aggressive", en aðrir litir hafa róandi áhrif og sumir geta orkaö svo sterkt aö ég verö þræll fjeirra." — Viltu flokka verk þin undir eitthvaö sér- stakt, til dæmis nýja málverkiö? „Bull, þaö hjálpar mér ekkert aö flokka niöur þaö sem ég geri, því þaö veröur aöeins til þess aö maöur skoðar hlutinn ekki nógu vel. Ég mála þaö sem mig dreymir. En þaö getur verið erfitt því tímaskeiöiö er allt annaö. Mig dreymir oft stórbrotna drauma. Þaö getur ver- iö gott aö horfa á drauma sína og finna kraft- inn í því sem er aö gerast, og mér finnst ég verða aö miöla honum." — Er það erfitt? „Já, því til þess aö komast áfram þarf maö- ur aö koma sér í mjúkinn hjá vissu fólki. En ég er enginn rassasleikir. Ég segi þaö sem mér býr í brjósti hverju sinni... Ég er ekkert al- mennileg." — Hvernig er þetta hér heima? „Þaö er á annan hátt en svipaö sarnt." — Langar þig ekki til aö vinna á islandi? „Ég só ekki hvernig ég gæti þaö. Þar hefur fólk engan áhuga á þvi sem ég er aö gera. Þaö vill bara sjá þaö, sem því þykir sætt. Hér er meira svigrúm og hór er eitthvaö aö gerast. Markaöurinn er líka svo lítill heima og mögu- leikarnir engir til aö selja. Mig langar til aö selja, því óg vil ekki þurfa aö veröa frístunda- málari." — Hvernig lífi lifir þú svo? „Ég reyni aö komast í gegnum dagiega erf- iöleika og mála. Lífiö snýst um þaö, aö vinna og það er ekki mikiö um huggulegheit. Maöur- inn minn hefur æft mjög mikiö í vetur. Þaö má segja aö ég hafi málaö undir óperusöng á hverjum degi. Hann fékk styrk til náms hjá afar góöum kennara, sem hefur veriö aö breyta rödd hans úr bariton yfir í bassa. Því þaö uppgötvaöist einn góöan veöurdag, aö þar lægi rödd hans. Hann syngur ofboöslega vel. Viö eigum marga góöa vini hér og erum komin í hljómsveit. Ég er farin aö spila á trommur og tek tíma í trommuleik. Maöurinn minn spilar á gítar. Svo ég er líka komin út í tónlistina. — Þaö er ýmislegt aö gerast."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.