Morgunblaðið - 27.07.1984, Side 30

Morgunblaðið - 27.07.1984, Side 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1984 ’Jrausiur c-'ms og klettur og léttur efns og Jjo3ur." Ást er... ■i-io llu'-O ... að hjálpa henni að velja nýjan kjól TM Rea U.S Pat Ott — all rights reserved «1984 Los Angeles Times Syndicate Og hvað kostar að lagfæra gítar- inn? [D^£5S£S HÖGNI HREKKVlSI Þessir hringdu . . . Umdeilanleg úrslit í öku- leiknikeppni Guömundur Ólafsson hringdi: Sl. þriðjudagskvöld var haldin ökuleiknikeppni í Garðinum og var ég þar meðal keppenda mér til ánægju. Framkvæmd keppn- innar var þó með þeim hætti að mig langar að koma á framfæri eftirfarandi spurningum: Hver er ástæðan fyrir því að keppandi er látinn sjá um tíma- töku annarra keppenda í braut- inni? í þessari keppni voru að- stoðarmenn stjórnanda meðal keppenda. Þeir hafa óneitanlega meiri möguleika á að kynna sér keppnisreglur og hafa áhrif á keppnina? Væri ekki eðlilegra að keppnin væri svæðisbundin? 1 þessari keppni voru þrír efstu menn ekki af Reykjanessvæðinu sem ég tel óeðlilegt. Það skal tekið fram að ég er ekki að bera brigður á heiðar- leika þessara manna en ég tel framgang keppninnar afar óeðli- legan og í mínum huga er Hans V. Bragason sigurvegari í þess- ari keppni enda þótt hann hafn- aði í 4. sæti. Hans ók 20 manna rútu og fékk 204 refsistig og þar af 70 í spurningunum sem hann svaraði rangt úti í bíl ökuleikni- manna við lúðraþyt. Með fyrirfram þakklæti um greið svör. Vel heppnuð Rokkhátfð J.S. hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Ég var stödd á Patreksfirði laugardaginn 21. júlí sl. og var þar saman komin Rokkhátíðin ’84. Dagskráin var sérstaklega skemmtileg og var stemmningin öll eins og best verður á kosið. Ég veit að Rokkhátíðin er á leið norður um land og um leið og ég þakka fyrir þessa frábæru skemmtun, vil ég hvetja fólk til að láta hana ekki fram hjá sér fara. í litlu samræmi við launakjör almennings í landinu Neytandi hringdi og hafði eftir- farandi að segja: Það hefur ekki farið framhjá neinum að undanförnu hvað ýmsum milliliðum hefur tekist að ráðast út í stórar og miklar fjárfestingar á sama tima og undirstöðuatvinnuvegir þjóðar- innar, sjávarútvegur og fisk- vinnsla, eru að stöðvast vegna taprekstrar og fjárskorts. Góð dæmi um þetta eru hinar hrikalegu byggingar bensín- stöðva, mjólkurstöðva, slátur- húsa og bankahalla. Er furðulegt hvernig þessir milliliðir hafa getað rakað saman fé í alls kon- ar sérsjóði sem virðist hafa farið fram hjá skattakerfinu og stjórnvöldum. Þessar stofnanir, sem eiga að vera þjónustustofn- anir almennings, hafa brugðist hlutverkum sínum á erfiðum tímum í þjóðfélaginu og hafa með fjárfestingabramboltinu af- hjúpað gróðastarfsemi sína. Stjórnendur þessara fyrirtækja virðast hafa ótrúlega mikið í laun. Sumir hverjir hafa jafnvel þjóna til að opna fyrir sig hurðir og aka drossium á milli laxánna. Er þetta í litlu samræmi við launakjör almennings í landinu. Miklu fé er varið til verðkann- ana og verðlagseftirlits, sem er góðra gjalda vert, en sú starf- semi beinist aðallega að vörum eins og kaffi og sykri. Er nú ekki kominn tími til að Verðlagseft- irlitið fylgist með verðmyndun þeirrar þjónustu sem ofangreind fyrirtæki selja okkur, og skipta allan almenning geysilega miklu máli? Auðvelt að komast hjá sóöaskapnum Kristin hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: Mig langar til að taka undir orð bréfritara, sem skrifar í Velvakanda 25. júlí undir fyrir- sögninni „Óhreinlæti í Sundlaug Laugardals". Langar mig í þessu sambandi að benda starfsfólki laugarinnar á það að hægt er að komast hjá þessum sóðaskap með þvi að láta fólk alltaf fara úr skónum, áður en það fer inn i búningsklefana. Ég hef sótt sundstaði víðs vegar um landsbyggðina en aldrei orð- ið vör við sóðaskap sem þennan. Vona ég nú að breyting verði á. Ingjaldur Tómasson skrifar: Erum við farin að líta á umferð- arslysin sem sjálfsagðan hlut eða náttúrulögmál, sem enginn fær ráðið við? Þetta er spurningin sem Jón Þorgeirsson fjallar um í grein sinni i Morgunblaðinu 28. júlí sl. Hann bendir réttilega á, að of mikill hraði og slök umferðar- stjórn sé orsök hins mikla umferð- artjóns, sem bæði á sér stað á fólki og farartækjum. Er ömurlegt að sjá margt ungt fólk sem lamast hefur ævilangt eftir að hafa lent i umferðarslysi. Umferðarhraðinn er vafalaust of mikill og langt yfir löglegum hraða. Eru ekki lögbrotin að verða talinn sjálfsagður hlutur i okkar góða landi? Og til hvers að hafa 60 manna löggjafarþing, þegar lögin eru brotin jafnótt og þau eru sett? Umferðarstjórnin virðist vera f lágmarki. Varla er hægt að segja að lögreglan sjáist stjórna umferð á hættustöðum eins og oft bar við hér áður og æ sjaldnar sést lög- regla mæla hraðann og beita sekt- um fyrir of hraðan akstur. Framúrakstur á sér stað við næstum hvaða aðstæður sem er. Nýjasta dæmið um stórslys við framúrakstur er þegar ekið var framúr bíl á Hellisheiði i blind- þoku. Eins og segir í fyrrnefndri blaðagrein, er engu líkara en að menn þoli ekki að sjá bil fyrir framan sig og þvi oft áhætta tek- in, þó að ekki sjáist nema nokkrar bíllengdir vegna dimmviðris. Það er áberandi i umferðinni að stefnuljós eru gefin um leið og beygt er og svo ekki slökkt á þeim fyrr en eftir langan tíma. Fjöldi ökumanna kveikir ekki ökuljósin þótt nokkuð dimmviðri sé. Er engu líkara en að yfirvöld okkar séu i blindingsleik þegar hætta steðjar að þjóðinni á mörgum sviðum, og er þar yfirstjórn umferðarmála engin undantekning. Ég hef áður bent á að hvorki er sparað fé né fyrirhöfn til að koma i veg fyrir öll önnur slys en umferðarslys. Nefni ég í þvi sambandi sem dæmi sjóslys, flugslys, slys á ferðalögum og ekki má gleyma þvi er eitthvað fer úrskeiðis hjá hersveitinni gegn rjúpunni. Öll viðleitni Umferðarráðs, lögreglu og fleiri aðila virðist næstum árangurslaus. Stöðugt er í gangi fræðsla í „Útvarpi þjóðar- innar“ með tilheyrandi tónlist, sem er orðið vanabundið söngl sem fáir taka mark á, en kostar samt dágóðan skildinginn. Eitt er það sem Jón Þorgeirsson minntist ekki á í grein sinni sem veldur þó í það minnsta um helmingi umferð- arslysanna. Það er áfengisflóðið sem nú steypist óhindrað yfir þjóðina. Það virðist ekki vera talið nóg að nú er heimtaður áfengur bjór í ofanálag. Um daginn las ég samtal í blaði, þar sem veitinga- húsarekandi einn sagði, að nú væru fslendingar að tileinka sér hina ágætu heimsdrykkjumenn- ingu sem flestir þekktu. Nú væru fjölmargir veitingastaðir farnir að selja svokallað „bjórlíki" og fjöldi manns biði eftir leyfi til að opna samskonar veitingastaði. Er þjóðin virkilega svo djúpt sokkin í áfengisneyð, að hún vilji láta hefja bjórdrykkjumenning- una til vegs og virðingar hérlend- is? Það er eins og sumir vilji inn-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.