Tíminn - 15.09.1965, Blaðsíða 1
Amglýsing í Tímanum
feemur daglega fyrir augu
80^-100 þúsund lesenda.
208. tbl. — Miðvikudagur 15. september 1965 — 49. árg.
Gerizt áskrifendur að
Tímanum
Hringið í sima 12323.
Verkamannaflokkurinn tapaði 6 þingsætum í norsku kosningunum
Vinstri flokkurinn og Mið-
flokkurinn aðalsigurvegarar
LeiStogar samstarfsflokkanna fjögurra ræða kosningaúrslitin í fyrrrinótt skömmu áSur en þeir komu fram í norska sjónvarpinu, en
þá var Ijóst, að nýr meirihluti yrði í næsta Stórþingi. Leiðtogarnir eru f. v. John Lyng; íhaldsflokkurinn, Kjeld Bondevik, Kristilegl
pjóðarflokkurinn, Per Borten Miðflokkurinn og Bent Röiseland Vinstri flokkurinn. (Símamynd)
STJÚRN STÉTTARSAMB. BÆNDA MÚTMÆLIR
RÉTTARSKERÐIN GU BRAÐ ABIRGÐ AL AG ANN A
Reykjavík, þriðjudag.
f dag gerði stjórn Stéttarsam-
bands bænda svofellda ályktun á
fundi sínum: „Vegna útgáfu rikis-
stjómarinnar á bráðabirgðalögum
um verðlagningu búvöra á þessu
hausti, sem staðfest voru á ríkis-
ráðsfundi síðastliðinn laugardag,
vill stjórn Stéttarsambands bænda
taka eftirfarandi fram:
Stjóm Stéttarsambands bænda
harmar það, að lögbrot miðstjórn-
ar ASÍ, er hún neitaði á síðustu
stundu að tilnefna mann í sex-
mannanefnd, hefur nú leitt til
þess að bændastéttin er svipt öll-
um samningsrétti og aðstöðu til
að hafa áhrif á verðlagningu bú-
vöru, og er þar með áhrifalaus um
ákvörðun launakjara sinna á þessu
hausti.
Stéttarsamband bænda hefur
alltaf hlýtt ákvæðum framleiðslu-
ráðslaga um verðlagningu búvöru,
enda þótt þau hafi ekki tryggt
bændastéttinni til fulls sambæri-
leg kjör við aðrar stéttir. Stjómin
vill minna á, að bændastéttin var
um lahgt árabil eina stétt þjóð-1 nefnd. Stéttarsambandið og Fram-1 birgðalögum Ósk um það var bor
arinnar, sem sætti sig við gerðar- leiðsluráð landbúnaðarins var enn in fram við landbúnaðarráðherra
dóm eða úrskurð yfirnefndar um reiðubúið að láta afurðaverðið í bréfi, dagsettu 31. ágúst síðast
kjör sín í hvert sinn, sem ekki ganga til úrskurðar í yfirnefnd, ef liðinn.
náðust samningar í sexmanna- > hún yrði gerð virk með bráða-1 Framhald á bls. 12.
KOMIÐ GJAFALOFORÐ
FYRIR 2500 KESTUM
MB-Reykjavík, þriðjudag.
Nú hafa borizt svör frá rúm-
lega helmingi þeirra búnaðarfé-
laga, seni leitað var til um hey
gjafir til bænda á kalsvæðinu
eystra. Ætla má að þeir, sem
eftir eiga að svara, muni ekki
treystast til að Iáta eins mikið
af hendi rakna, en þeir. sem
hafa svarað lofa eða gef?
ádrátt um nálega 2500 hest-
burði, auk þess sem sumir bjóð
,ast til að gefa peninga til hey-
kaupa ef óskað verður. Margir
láta í Ijós óánægju vegna þess.
hve seint aðstoðar var leitað.
Má því telja nær fullvíst, að
mikið vanti á að þeir 10 þúsund
hestburðir gjafaheys fáist, sem
kalnefndin svokallaða gerði ráð
fyrir i kostnaðaráætlun sinni
um aðstoð við bændur á kal-
svæðinu.
Blaðið spurði i dag dr. Hall-
dór Pálsson, búnaðarmála-
stjóra. frétta af þessum málum.
Hann skýrði svo frá. að Búnað
arfélag íslands hefði skrifað
flestum búnaðarfélögunum á
svæðinu' frá Mýrdalssandi norð
ur i Dalasýslu, að ósk landbún
Framiald a bls 12
EJ—Reykjavík, NTB, þriðjudag.
Úrslit norsku þingkosning-
anna, sem stóðu yfir á snnnudag
og mánudag, urðu þau, að nýr
meirihluti myndaðist f norska
Stórþinginu, og mun ríkisstjóm
Verkamannaflokksins því fara
frá vöidum, þegar þingið kemur
saman í októbermánuði. Vinstri
fiokkurinn vann glæsilegastan
sigur, hvað fjölgun þingmanna
snertir. Bætti hann við sig fjór-
um þingsætum og hefur nú 18
þingmenn. Miðfiokkurinn vann
einnig góðan sigur og bætti við
sig tveimur þingsætum og hefur
nú einmig 18 þingmenn. íhalds-
flokkurinn bætti einnig við sig
tveimur þingsætum og hefur nú
31 þingmann. Sósfalistíski þjóðar
fiokkurinn (SF) bætti við sig
mestu atkvæðamagni, eða um 70
—80 þúsund atkvæðum, eo vann
ekkert nýtt þingsæti og hefur þvf
2 þingmenn eftir sem áður. Verka
mannaflokkurinn beið mikinn 6-
sigur, þótt hann bætti við sig
nokkrum atkvæðum, missti sex
þitigsæti og hefur því aðeins 68
þingmenn. Kristilegi þjóðarflokk
urinn tapaði einnig aUverulega
og missti tvö þingsæti og hefur
nú 13 þingmenn. Samtals bafa
samstarfsflokkamir fjórir, sem
ætla að mynda nýja rfkisstjóm,
80 þingmenn í norska Stórþing-
inu, en Verkamannafloteurinn
og SF hafa samanlagt 70 þing-
menn. Kommúnistar biðu mlkið
afhroð og hafa engan þingmann.
Þó hafa þessir þrír flokkar meiri
hluta norskra kjósenda á bak við
sig, og þótt hin tiýja rfldsstjóm
komi til me3 að hafa 10 þing-
manna meirihluta í þinginu, hefur
hún ekki meirihluta kjósenda á
bak við sig.
Leiðtogar flokkanna fjögurra
munu strax hefja viðræður um
myndun nýrrar stjórnar, og mun
ríkisstjórn sú taka við í næsta
mánuði, þegar þing kemur sam
an að aýju, en þá segir Gerhard-
sen af sér. Á umræðufundi í
kvöld ræddu fulltrúar flokkanna
úrslitin. Talsmaður Kristilega
þjóðarflokksins taldi líklegast, að
Bent Röiseland frá Vinstri flokkn
um yrði forsætisráðherra í nýju
stjórninni. Trygv^ Bratteli, for-
maður Verkamannaflokksins. lof
aði því. að hin nýja stjómarand-
staða skyldi sjá svo um, að hin
nýja stjórn skyldi ekki verða út-
slitin og þreytt á stjómarsam-
starfinu, eins og þeir ásökuðu
núverandi stjórn um að vera.
Flokkarnir væru ólíkir, og gætu
ekki i lengd staðið saman sem
einn flokkur.
Helge Seip, hinn nýi þingmaður
Vinstrimanna í Osló, sagði, að
ekki væri hægt að komast hjá
þeirri staðreynd að breytingarn-
Framhald á bls. 2.