Morgunblaðið - 30.06.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.06.1985, Blaðsíða 3
Verkamannafélagið Dagsbrún: MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚNl 1985 B 3 Traust kaup- máttartrygg- ing í nýjum kjarasamningum FÉLAGSFUNDUR í Verkamannafé- laginu Dagsbrún haldinn 24. Júní 1985 ítrekar samþykktir aðalfundar félagsins frá 30. maí sl. Meðal ann- ars að nýir kjarasamningar verði ekki gerðir til langs tíma nema með traustri kaupmáttartryggingu. 1. Fundurinn felur stjórninni að undirbúa vel, í góðu samráði við félagsmenn, kröfur um nýtt launakerfi fyrir Dagsbrún með nýjum launastiga með 3—3,5% milli launaflokka og uppstokk- un á núverandi flokkaskipan. 2. Öll almenn yfirvinna verði greidd með 1% af mánaðar- kaupi. 3. Að reyna að tryggja sem kostur er framgang breytinga á hinum ýmsu sérsamningum í þeim fjölþættu starfsgreinum er fé- lagið á samningsaðild að. Verkamannafélagið Dagsbrún vill minna á að kaupmáttur kaup- taxta hefur rýrnað um 20—30% á sl. tveimur árum. Verkefni verka- lýðsfélaganna hlýtur að vera að endurheimta þann kaupmátt — þótt í áföngum verði — og miða samninga ekki aftur við kaupmátt 4. ársfjórðungs 1983, en þá var kaupmáttur mjög lítill. Félagsfundur Dagsbrúnar telur ekkert sjálfgefið að þessi barátta verði háð eingöngu í einhverju als- herjar samfloti ASÍ en telur æski- legt að félög innan Verkamanna- sambandsins og Landsambands iðnverkafólks haldi hópinn, því það er fólkið með lægstu launin og minnnstu réttindin. Fundurinn harmar það að ekki skuli hafa tek- ist betur að rétta hlut fiskverkun- arfólks en raun varð á. Dagsbrún heitir fiskverkunarfólki samstöðu í áframhaldandi baráttu. (Úr fréttatilkynningu.) Nýr sendi- herra íslands í Portúgal HARALDUR Kröyer sendiherra afhenti forseta Portúgal, Antonio Dos Santos Ramhalo Eanes, trún- aðarbréf sitt sem sendiherra ís- lands í Portúgal með aðsetur í París segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Afhending- in fór fra 19. júní síöastliðinn. OKKAR húsnæðissparnaðarreikningar ÐISVELTA SPARHAÐUR: skattaafsláttur • lán • húsnæði Sparnaðarreikningur sem veitir rétt á láni fyrir allt að tvöföldum sparnaði ásamt vöxtum og verðbótum. Innlánsreglur eru sniðar eftir ákvæðum um húsnæðissparnaðarreikninga frá 1. julí 1985, þar sem kveðið er á um rétt til skattafsláttar fyrir fjórðungi árlegs sparnaðar á slíkum reikningum. SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Stórkostleg sumarútsala á barnafatnaði íttur J Ármúla 1 A s. 91-68613.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.