Morgunblaðið - 30.06.1985, Page 16

Morgunblaðið - 30.06.1985, Page 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1985 Rabarbari Rabarbarinn telst til grænmetis þótt hann sé yfirleitt notaður á sama hátt og ávextir, þ.e. í grauta, sultu, bökur og vín. Ameríkanar kalla hann oft pieplant, af því að hann er mjög algengur í pie (bökur). Ein þjóð blandar rabarbara saman við kartöflur og býr til sérkennilegan grænmetisrétt, en það eru Pólverjar. Rabarbarinn er upprunninn í fjalllendi í Asíu, einkum Tíbet. Þar voru hinar gildu brúnleitu rætur jurtarinnar notaðar til lyfjagerðar í aldaraðir. Fyrstu sagnir um það eru frá um 2700 f.Kr. Það var ekki fyrr en á 18. og 19. öld að farið var að nota leggina til matar. Fyrst er rabarbarafræ skráð í frælista í Ameríku árið 1828. Rabarbari er fjölær. Hann þrífst ekki í heitu loftslagi, vegna þess að hann þarf góða vetrarhvíld til þess að hann geti sprottið á ný. Við hagstæð skilyrði geta sum afbrigði myndað geysistóra plöntu með 90 sm. langa blaðleggi eins svera og barnshandlegg. Blöðin geta orðið hátt í metra í þvermál. Mjög mikil oxalsýra er í blöðum rabarbara. Raunar er oxalsýra einnig í leggjunum, þótt í mun minna mæli sé. Maður ætti aldrei að borða mjög mikið af rabarbara, en íslendingar hafa verið duglegir að borða hann, hann er auðræktanlegur og ekki var mikið um ávexti áður fyrr og því rabarbarinn kærkominn. Margir hafa mikið dálæti á rabar- barasultu og taka hana fram yfir ávaxta- og berjasultu, sem nú er hægt að fá í miklu úrvali í hverri búð. Nú er sá tími, sem rabarbarinn er bestur, leggirnir mjúkir og safaríkir og ekki eins súrir og þeir verða síðar að sumrinu. Því þurfum við ekki eins mikinn sykur í rabarbararétti núna. Hægt er að draga úr sýrunni með því að sjóða rabarbaraleggina smástund í vatni, hella síðan vatninu af og sjóða leggina síðan í sykri. Hægt er að nota þurrkaða, malaða rótina til að lita hár gult. Flestir hafa sennilega tekið eftir því, hversu gljáandi pottarnir verða eftir rabarbarasuðu og er þar sýran í rabarbaranum að verki. Gott er að mylja blöðin og nota til að pússa með kopar og messing. Rabarbarasulta 1 kg rabarbari 1 kg sykur 1 'k msk vanillusykur 1. Skerið rabarbarann smátt, setjið í pott ásamt sykri og sjóð- ið í 2 klst. Hafið lok á pottinum. Gæta verður þess að sultan brenni ekki við, og þarf að hafa hægan hita í byrjun. Hrærið oft í sultunni. 2. Þegar sultan hefur soðið í 1 'k klst. er vanillusykur settur út í og hrært vel í. Síðan soðið áfram í 'k klst. 3. Takið froðuna ofan af. 4. Hellið sultunni í vel hreinar krukku, leggið smjörpappírs- plötu ofan á sultuna og bindið yfir krukkuna eða setjið lok á hana. Rabarbarasulta með sítrónu og engiferi 1 kg rabarbari 600 g sykur 1 stór sítróna vænn biti þurrkaður heill engi- fer (fæst víða) 1. Þvoið rabarbarann og skerið í litla bita, stráið helmingnum af sykrinum yfir og látið bíða í 24 klst. Hellið safanum af, en setjið rabarbarann í pott. 2. Þvoið sítrónuna og skerið í þunnar sneiðar, látið börkinn vera á henni. Setjið sítrónu- * /X 11 a ssb tolMMATA 11 H 8' ■ 0 sneiðarnar saman við rabarbar- ann. 3. Skerið örlítið á víð og dreif upp í engiferbitann, setjið hann síðan saman við rabarbarann og sítrónuna. 4. Setjið hinn helmning sykurs út í rabarbarann og sjóðið í lok- lausum potti í 45 mínútur. Hrærið oft í og hafið ekki mjög skarpan hita. 5. Takið froðuna ofan af. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON 6. Hellið sultunni í hreinar krukkur, leggiö smjörpappírs- plötu ofan á sultuna og bindið yfir krukkuna eða setjið lok á hana. Athugið: Þessi sulta geymist ekki vel vegna hins lága sykur- magns. Helst þarf að geyma hana í kæliskáp. 7. Hellið safanum sem þið hellt- uð af rabarbaranum i krukku og notið sem drykk einan sér eða með ávaxtasafa. Rabarbarasulta með appelsínum 1 'k kg rabarbari 4 appelsínur ljós púðursykur 2 dl vatn 1. Þvoið appelsínurnar og afhýð- ið þunnt. Setjið börkinn í pott. 2. Skerið rabarbarann smátt og setjið út í pottinn. 3. Kreistið safann úr appelsín- unum og setjið út í pottinn ásamt vatni. 4. Sjóðið við vægan hita í 20 mínútur. Hrærið í svo að þetta brenni ekki við. Takið appelsínu- börkinn úr. 5. Setjið á sigti og merjið í gegn- um. Vigtið maukið. Setjið jafna þyngd af sykri og maukið vegur. Sjóðið í 20 mínútur við hægan hita, hrærið vel í á meðan. 6. Setjið sultuna í hreinar krukkur, leggið smjörpappírs- plötu ofan á sultuna og bindið yfir krukkuna eða setjið lok á hana. Athugið: Þessi sulta er mjög góð með súkkuiaðikökum eða með kexi. Léttur rabarbaradesert Handa 4 500 g rabarbari 3 dl sykur 4 dl vatn 8 blöð matarlím 1 peli þeyttur rjómi 1. Skerið rabarbarann smátt, setjið í pott ásamt sykri og vatni og sjóðið við hægan hita í 30 mínútur. Sigtið gegnum vírsigti. 2. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn í 10 mínútur, vindið upp úr vatninu og leysið upp í heitum rabarbarasafanum. 3. Kælið safann þar til hann er við að hlaupa saman. 4. Segjið safann í hrærivélar- skál og þeytið þar til þetta er orðið að þykkri froðu. 5. Hellið rabarbarafroðunni í smáskálar eða stóra skál. Setjið í kæliskáp og látið standa þar í 5 klst. 6. Þeytið rjómann og setjið ofan á rabarbarafroðuna. Þegar þið búið til rabarbara- sultu, er gott að skera hnúðinn neðan af leggjunum og nota í þennan rétt. Hnúðurinn er mild- ari en leggurinn og minnir á per- ur. Rabarbara-„perur“ meö marengs Handa 5 500 g rabarbarahnúðar 2'k dl sykur rifinn börkur af hálfri sítrónu 14 tsk kanill 3 eggjahvítur 3 dl sykur 50 g möndlur eða hnetur 1. Skerið hnúðinn neðan af leggjunum, snyrtið hann og setj- ið í pott. 2. Setjið sykur, sítrónubörk og kanil saman við. Sjóðið við hæg- an hita í 10 mínútur. 3. Hellið rabarbaranum í eld- fasta skál. 4. Þeytið eggjahvíturnar með sykrinum þar til þær eru orðnar stíftar. Smyrjið marengsinum yfir rabarbarann. 5. Saxið möndlurnar og stráið yfir marengsinn. 6. Hitið bökunarofn í 130— 140°C og bakið þetta í 40 mínút- ur. Fylgist vel með hitanum og lækkið hann, ef þetta brúnast of mikið. Einstakt tilboð til tónlistaráhugafólks Viö höfum komist yfir mikiö af rafmagnsgíturum og bössum sem seldir veröa á alveg einstaklega góðu veröi. Merkiö er Ibanez Roadstar II. Verö með kassa frá 11.900—18.900. Engin útborgun. Mánaðarlegar greiöslur allt aö 12 mán. Rafm.orgel meö skemmtara frá 35.000—97.500. 3 stk. píanó Nordiska, Ijós eik. 85.000 (áður 104.000). I sérstökum tilvikum má semja um enn betri skilmála vegna píanóa og orgela. Muniö engin útborgun þegar verslað er hjá okkur. Sendum um allt land. Hljóðfæraverslunin Gláma s«. Patreksfiröi, sími 94-1184. OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 15—21.00. Til sölu Bronco Ranger XLT árgerö 1981. Ekinn 36 þús. km. Einn med öllu í toppstandi Upplýsingar í síma 22081 milli kl. 1—6 sunnudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.