Tíminn - 19.09.1965, Page 1
7 V O F A L.T
EINANORUNAR
z'-.ir n i«• y nv;in
r-»f»r h*no-s
NTB—H<mg Kong og Nýju Delhi,
laugardag.
Indverska varnarmálaráðuneyt-
I?S tilkynnti í morgun, að kín-
verskt herlið hefði verið flutt til
ýmissa staða nálægt indversksí
vemdarsvæðinu Sikkim, en landa-
mæri þess liggja að Kína. Þá upp
lýsti ráðuneytið einnig, að kín-
verskt herlið hefði einnig verið
sent til Demchok-svæðisihs í La-
dakh á vesturhlið Himalayalanda-
mæranna, en þar börðust Indverj-
ar við Kínverja, þegar Kínverjar
gerðu árás 1962. Ekki er Ijóst,
hversu mikið herlið er um að
aæða.
Þá ákærði Dagblað Alþýðunnar
í Peking Sovétríkin í dag fyrir
að reyna að blása á eld deilunnar
miiri fndlamds og Pakistans.
Leiðtogar margra ríkja eru
mjög uggandi vegna úrslitakosta
þeirra, sem Kínverjar sendu Ind-
verjum aðfaranótt föstudagsins,
en fresturinn, sem þeim var gef-'
inn til þess að rifa niður' her-
stöðvar sínar á landamærunum,
rennur út á sunnudagsnóttina.
Eru flestir á þeirri skoðun, að orð
sending Kínverja sé meira en
orðin tóm, og að Kínverjar muni
líka hefja einhverjar takmarkaðar
aðgerðir. Aftur á móti telja flest-
ir, að Kína vilji komast hjá deilu
eða hernaðarátökum við Banda-
rikin — en það gæti einmitt orðið
afleiðingin af víðtækri árás Kin-
verja á Indland.
Stjórnir Bretlands og Banda-
ríkjanna hafa náið samband við
hvora aðra um þessi mál, og eru
mjög uggandi út af ógnun Kín-
verja.
Lögreglan leitar aS skothylkjum
á morðstaðnum við Værmlands-
gade, en þar voru tveir lögreglu
mannanna myrtir. Ttl vtnstri er
lögreglubifreiðin. (Sfmamynd).
Fjórir lögreglumenn
skotnir við Kastrup
Víðtækustu mannaveiðar í sögu Kaupmannahafnarlögreglu standa yfir
NTB—Kaupmannah., laugard.
Fjórir danskir lögreglumenn
voru skotnir til bana stiemma
í morgun á Amager fyrir sunn
an Kaupmannahöfn, skammt
frá Kastrup-flughöfninni. Ekki
er enn vitað, hvers vegna lög
reglumemnirnir, sem líklega
voru skotnir með vélbyssu,
voru myrtir, né heldur hefur
lögreglan annað spor að fara
eftir í málinu en það, að glæpa
Bændur halda bústofni
sínum í horfinu í haust
MB-Reykjavík, laugardag.
Líkur eru til þess að bændur
muni yfirleitt halda bústofni sín-
um í horfinu í haust. Horfur eru
á því að bændur austanlands muni
ekki þurfa að fækka bústofni sín-
um að ráði, en nauðsynlegt cr
að brýna fyrir mönnum um allt
land að setja mjög varlega á í
haust, þar eð búast má við að
miklum erfiðleikum verði bundið
að fá nokkurt hey keypt, þegar
líður á veturinn. Nú hafa fengizt
loforð fyrir um 5000 hestburðum
af gjafaheyi eða andvirði þeirra.
Þetta kom fram í viðtali,' sem
blaðið átti við dr. Halldór Páls-
son, Búnaðarmálastjóra, í dag.
Við spurðum dr. Halldór um horf-
ur í búnaðarmálum nú á haust-
nóttum.
— Hvernig eru horfur um ásetn
ing í haust hjá bændum almennt?
— Ég geri ráð fyrir að bændur
reyni að halda hústofni sínum. Ég
geri varla ráð fyrir að mikill
áhugi verði fyrir fjölgun fénaðar,
en heyskapur hefur verið góður
á meginhluta landsins, en erfiður,
eins og öllum er kunnugt, aust-
anlands vegna kals og grasleysis,
en nú er unnið að því af kappi
að útvega hey, handa þeim sem
þess óska austanlands. En þetta
verður til þess, að fénaðareigend-
ur, hvort heldur þeir eiga heima
í sveitum eða kaupstöðum, hér á
sunnan og vestanverðu landinu,
verða að vera mjög fyrirhyggju-
samir á þessu hausti og mega und-
ir engum kringumstæðum setja á í
óvissu. Venjan hefur verið sú, að
nokkrir menn hafa haft hey af-
lögu og sumir beinlínis framleiða
hey til sölu. En n.ú má búast við
því aö þorri slíkra manna selji öll
sín umframhey í haust, þannig að
þeir menn, sem ekki verða nógu
fyrirhyggjusamir til þess að
birgja sig upp með hey nú á haust-
nóttum, geta orðið í mikilli hættu
í vetur. Þess vegna vildi ég mæl
ast til þess við alla þá, sem eiga
skepnur, hvort heldur eru bændur
eða búlausir, í sveit eða kaupstað,
að þeir gæti þess fyrst og fremst
að setja ekki illa á og treysti
þyí ekki, að einhver og einhver
verði til bjargar, ef illa fer.
— Telurðu horfur á því að bænd
ur á þeim svæðum, sem heyskap-
ur gekk bezt á hér suðvestanlands,
muni fjölga fé að ráði?
— Ég held að ekki verði mikið
um það, sumir fjölga, en aðrir
fækka eitthvað.
— En heldurðu að bændur á
Austurlandi þori, nú þegar slátr-
un er hafin, að treysta svo á að-
stoð eða heykaup, í hverri mynd
sem það nú verður, að þeir haldi
við bústofni sínum?
— Þessu er ekki unnt að svara
á þessu stigi málsins, vegna þess
að sláturtíðin tekur langan tíma
fyrir austan. verður ekki lokið
fyrr en 10.—20. október, og ég
geri ráð fyrir að kalnefndin svo-
kallaða verði búin að ganga úr
skugga um það þá, hve mikið hey
verður fáanlegt hér. Annars er
mér ekki fullkunnugt um það,
hvaða viðhorf bændur eystra hafa
til þessara mála, hvort þeir ætla
að kaupa allt það fóður sem þeir
þurfa til að viðhalda öllum bú-
stofninum, eða hvort þeir kannski
fara bil beggja og fækki eitthvað
en reyni að halda sæmilegum bú-
stofni. Þykir mér ekki óliklegt, að
þeir muni margir velja seinni kost
inn.
— Álíturðu að heybirgðir í land
inu í heild séu í meðallagi eða
meira?
— Ég er nú ekki rétti aðilinn
til þess að svara þessari spurn-
ingu á þessu stigi málsins, en ég
hygg að þær séu í góðu meðallagi.
Þetta mál skýrist samt ekki til
fulls, fyrr en skýrslur forðagæzlu
manna liggja fyrir. En það er ým-
islegt, sem þarf að varast, þegar
Pramhald ó bls. 14
mennirnir hafi ekið í hvítri bif
reið, annaðhvort Simca eða
Ford Zephyr. Mestu manna-
veiðar í sögu dönsku lögregl-
. iwinar hófust þegar. Svo til
öll Kaupmannahafnarlö<greglan
tekur þátt í leitinni klædd skot
vestum og hríðskotarifflum.
Sterkur vörður er við alla vegi
og er leitað í öllum bifrciðum.
Lögreglan á Sjálandi, Lolland
—Falster og Suður-Svíþjóð er
einnig kölluð út og tekur þátt
í leitinni að morðingjanum.
Það var á fjórða tímanum
i nótt, að lögreglubifreið með
tveim lögreglumönnutm frá
TSrnby-stöðinni ók eftir göt-
um Amager, og var þá eina
lögreglubifreiðin á þeim slóð
um. Tilkynntu lögreglumenn-
irnir, að þeir væru á eftir stór
um hvítum bíl, líklegast Simca
•sem æki „grunsamlega hratt“.
Tveir lögreglubílar aðrir voru
sendir til Amager. í öðrum
þeirra voru hinir tveir lög-
reglumennirnir sem myrtir
voru. Var þetta það síðasta, er
frá TSrnby-lögreglumönnunum
heyrðjst. Hið næsta var, að
annar lögreglubíll hafði sam-
band við lögreglustöðina og
tilkynnti, að þílstjóri einn,
mjög æstur, hefði tilkynnt
þeim að lögregluþjónarnir
tveir lægju dauðir við hlið
lögreglubílsins. Maður þessi,
Ole Pemö, bóksali, sagði síðar
að hann hefði séð stóran hvít-
an bíl, líklega Ford Zephyr.
Þær upplýsingar, er fyrir
Framhalo á 14. sfðu
212. tbL — Sunnudagur 19. september 1965 — 49. árg.
ERU KlNVERJAR
AD VÍGBÚAST Á
LANDAMÆRUNUM?