Tíminn - 19.09.1965, Síða 8

Tíminn - 19.09.1965, Síða 8
SUNNUDAGUR 19. sej&mðter 19C5 ☆ 8 TÍMSNM Snemma í vor fékk ég boð frá stjóm Búlgarska Bændaflokksins, um að heimsækja Búlgaríu og vera gestur þeirra þar í landi. Eg ákvað að taka þessu boði, þó að ég sæi að vísu þau vandkvæði á, að erfitt gæti orðið að koma því svo fyrir, að slík heimsókn yrði endurgold- in, sem þó þyrfti að verða, því þess háttar ferðir ættu að hafa þann tilgang þýðingarmestan að kynna gagnkvæmt lönd sín og viðhorf. Hefur það verið skoðun mín, að ekki ætti að standa á okkur vest- anmönnum ef austanmenn vilja auka kynni og samskipti, enda höfum við lengi gagnrýnt þá fyr- ir að loka sig inni um of. Með því að nota þetta 'tækifæri, sem bauðst, gafst mér kostur á að taka þátt í því mikla starfi, sem menn í mörgum löndum eystra og vestra leggja nú af mörkum, til þess að kynnast, skipt ast á skoðunum og reyna að auka samstarf í sem flestum greinum, en draga úr misskilningi og ótta. Fjölgar þeim aðilum, sem sjá að lítil von er um gifturíka lausn sambúðarvandamálanna á jarð- kringlu vorri, magni menn sig slíkum fítonsanda að þeira vilja ekki kynnast, ef þá greinir á um markmið og leiðir í þjóðfélags- njálum. ☆ Búlgarski Bændaflokkurinn eða Bændasambandið hefur á undan- förnum árum boðið heim fjölda stjómmálamanna og forystu- manna í félagssamtökum bænda víðsvegar um lönd þ.á.m. mörgum þekktum stjómmálamönnum á Norðurlöndum, sem hafa verið gestir þeirra og sjálfir hafa þeir þegið heimboð stjórnmálaflokka og annarra samtaka í1 þessum löndum mörgum m. a. á Norður- löndum til þess að kynnast monn- kosningar fremur en í öðram löndum eystra. , Ómögulegt er fyrir ókunnuga að meta hvaða áhrif það hefur á einstaka þætti mála eða út- færslu meginstefnunnar innan svona kerfis, að flokkar em fleiri en einn og stjórna landinu þann- ig sameiginlega. Mér er heldur ekki kunnugt um hvaða hliðstæð- ur við bændaflokkinn búlgarska er að finna í öðram þessum lönd- um. Hitt er ljóst af sögunni að bændaflokkurinn búlgarski hlýtur að eiga sterkar rætur í landinu, frá fyrri tíð, enda væri hann sjálf- sagt ekki til nú ef svo væri ekki. helztu samstarfsmenn hans einnig teknir af lífi og var það allt helzta foringjalið Bændaflokksins, utan þeir, sem tókst að forða sér úr landi. Vora ýmsir þeir, sem fyrir þessu urðu, feður, mæður, afar eða ömmur þeirra, sem nú standa fyrir málum í Bænda- flokknum. Síðan þetta gerðist mun Bænda flokkurinn hafa haft samvinnu við Kommúnista, eftir því sem ég bezt veit, enda var hin pólitíska bar- átta ekki úr því háð við kjör- borðið heldur annarsstaðar, en einstökum þáttum þeirrar sögu er ég ekki kunnugur. okaðir af Tyrkjum eða allt íram til 1878 og var þá fast að þeim sorfið^ og heiftarleg barátta oft háð. Úr þeirri raun sluppu Búlg- arar 1878 í skjóli þess að Rússar hófust handa gegn Tyrkjum og sigraðu þá, og fengu Búlgarar þá freisi sitt, en frægar sjálfboða- liðssveitir Búlgara voru í her Rússa. Því er það, að á aðaltorgi höfuðborgarinnar Sofia stendur vegleg stytta af Alexander II Rússakeisara, en á öðru torgi stendur grafhýsi Dimittroffs, kommúnistaleiðtogans. Rússar hafa bví fyrr en r.ú á síðustu ár- um komið við sögu Búlgara. Víða í landi rósanna er það gamall siður í sveitunum að fagna gestum með blómum og bláum klútum. um og málefnum. Að nokkru leyti samtímis mer voru þama á ferð í boði þeirra forystumenn Austurrísku bænda- samtakanna. Skilst mér sem heim- boðum sé ekki hagað eftir því hvar menn standa í pólitíkinni, nema þá helzt þannig, að þeir bjóði þeim fremur en öðrum, sem láta sig málefni bænda miklu skipta og samvinnumálefni. Bændaflokkur Búlgaríu er 60 ára gamall og hefur að baki mikla baráttusögu. Hefur hann enn mikla flokksstarfsemi á sínum vegum. En leiðandi flokkur lands- ins er Kommúnistaflokkurinn og fer það ekjcert dult, enda era þessir flokkar tengdir saman í toppinn, ef svo mætti segja, í svo- kallaðri Þjóðfylkingu og hafa sam eiginlega stefnuskrá eða stefnu- yfirlýsingu um að koma Socialism- anum á eða innleiða Kommúnism- ann, eftir því hvort orðalagið menn vilja nota Samið er um ^Vtytingu fram- bjóðenda milli flokkanna og geng- ið frá framboðum innan þjóðfylk- ingarinnar, bæði þeirra, sem vald- ir eru frá flokkunum eða úr flokk unum og þeirra, sem Þjóðfylking- in velur til framboðs meðal hinna, sem í hvoragum flokknum eru fé- lagar. Þjóðfylkingin bíður því fram ein og ekki um nein samkeppnis-. framboð að ræða né samkeppnis- Það dylst engum sem því kynnist, að flokkurinn hefur dugmiklum forystumönnum á að skipa. Um eitt skeið var Bændaflokk- urinn sterkasti flokkur landsins, tök öflugan þátt í baráttunni fyrir stríð, uppreisnum gegn einræði og skæruhemaðinum_ gegn nazist- um á stríðsáranum. í innanlands- ófriðnum hefur samvinna Bænda- flokksisn og Kommúnista myndast og hefur hún, að því er ég bezt veit, staðið aílar götur frá 1923, en þá gerðust örlagaríkir atburðir í sögu Búlgara, sem snertu mjög Bændaflokkinn. Flokkurinn hafði 1920 náð hreinum meirihluta í almennum þingkosningum, þ. e. upp úr heims styrjöldinni fyrri, því þá stóð svo um skeið, að venjulegar kosning- ar gátu farið fram, en af þeim hafa Búlgarar annars haft lítið að segja. Forustuna hafði Alexander Stramboliisky, sem frægastur hef- ur verið brautryðjenda í þessum flokki. Urðu þá hörð átök um jarð- eignaskiptingu og mörg fleiri mál- efni. Fór svo árið 1923, að gert var samsæri gegn ríkisstjórninni, með tilstyrk hers og konungsvalds, en þá hafði ríkisstjórnin einmtt fengið staðfestan meirihluta sinn í kosnngum. Formaður Bænda- flokksins, forsætisráðherrann Strambóliisky var myrtur og Dálítið mun hafa verið linað á harðræðinu í Búlgaríu í nokkur ár og Bændaflokkurinn leyfður uní skeið, ásamt öðrum flokkum, en fljótlega sótti í sama horfið, og 1934 voru affir pólitískir flokk- ar í Búlgaríu ieystir upp og bann- aðir og einræði innleitt, og því síðan beitt þannig, að landið tengdist Þýzkalandi nazismans og héldu nazistar landinu í greipum sér, unz þeir biðu ósigur í styrjöld inni. Allan þennan tíma linnti víst tæpast skærahernaði í landinu, sem magnaðist þó mest á stríðs- árunum, og hertist í þessum átök- um á samstarfi Bændaflokksins og Kommúnistaflokksins. Skæralið- arnir urðu síðan samherjar Rauða hersins, en það féll í hans hlut að fást við nazistaherinn í Búlga- ríu. ☆ Segja má að Búlgaría hafi verið vígvöllur lengst af, enda á kross- götum í átökum þjóðanna um a!d- ir. Slavnesku þjóðirnar, Búlgarar sjálfir os Rússar sóttu að norðan. Grikkir Rómverjar og Tyrkir að sui na: ýmist hefur Búlgaría ver- ið stórveldi eins og t. d. um það leyti, sem fsland var að byggjast og svo aftur löngu síðar - eða undirokuð af öðrum þjóðum I í OO ár voru Búlgarar undir-1 í Búlgaríu standa minnismerki um Rauða heriin og þátt hans í því að reka nazista út úr land- inu í síðustu styrjöld, og minnis- merki um þátt Rússahers í því að frelsa þjóðina úr klóm Tyrkja 1878. Sumstaðar standa þessi merki nálega hlið við hlið eins og t. d. í Plovdiv, sem er önnur stærsta borg landsins. Er annað minnismerkið reist 1956 en hitt 1882. Allt hefur þetta átt ríkan bátt í að móta viðhorf Búlgara til Rússa og sterk tilhneiging til samstarfs við Rússa átti langan og mikinn aðdraganda í landinu, löngu áður en hh'ðstætt stjóm- arfar hnýtti þjóðirnar saman. í samskiptum þéssara þjóða bland- ast áreiðanlega með ýmsu móti saman gamalt og nýtt. Þegar Kruhsjov heimsótti Búlgaríu, lét hann gefa gull á þak aðalkirkj- unnar í Sofia. En sú 'cirkja er nefnd eftir Alexander Nevski, rússneskri striðshetju, sem tekin var á sínum tíma í heilagra manna tölu. Þessi fáu orð um einstaka þætti úr mikilli sögu Búlgara gefa lé- lega mynd það veit ég vel, en þó ætti að mega af þessu sjá bet- ur ýmislegt i samhengi, og sumt af þessu hygg ég nauðsynlegt að hafa mjög fast í huga til þess að i skilja það, sem er að gerast og I gerzt hefur Búlgara. Allar voru móttökur í Búlgawi með ágætum og má skipta í tvo þætti því, sem gerðist í ferðinni. Annars vegar dvöl í Sofia og he msókn í höfuðstöðvar Bænda- fiokksins og viðræður þar. Hinsvegar ferðalag um landið, til þess að kynnast því og fólkinu, eftir því sem við varð komið, og stýrði dómsmálaráðherrann, Peter Tanchev ferðinni, en hann er einti af leiðtogum Bændaflokksins og einn af ráðherrum hans í stjóm- inni. Ekið var um landið endilangt frá Sofia til Burgas við Svarta- hafið og þaðan norður á bóginn til Varna, þar sem er athafna- stöð mikil einnig við Svartahafið, en flogið aftur til Sofia. Ferðalag þetta fór fram með mikilli rausn og var fólki stefnt til móts við okkur í þeim hér- uðum, sem leiðin lá um. Hittum við þannig fjölda fólks úr mörg- um stéttum. Var þar margt leið- toga í héruðum, þingmenn, for- ráðamenn fyrirtækja, verksmiðja og samyrkjubúa, og starfsfólk samyrkjubúa, fiskimenn o.s.fm. Fannst okkur mikið til um hve mottökurnar voru alúðlegar og fólkið blátt áfram. Fólk- ið er glaðvært og hlý- legt — og suðrænt í fasi. Það ann söng og músik og þjóð- dansar era ofarlega á baugi. Það dylst heldur engum, sem hittir þetta fólk, að það er fullt af áhuga um framkvæmdir sínar og engir veifiskatar, enda margt af því hert við þungar raunir og mikil átök — ekki sízt skæruhernað stríðs- áranna. Því verður tíðrætt um verkefni sín og friðinn, því það hafi fengið meira en nóg af styrjöldum og baráttu, og hefur einnig mikinn áhuga á að heyra hvað annarsstaðar er verið að gera. Auðvitað er með öllu óhugs- andi að hægt sé að kynnast þann- ig á nokkram dögum kjöram al- mennings, aðbúnaði og viðhorfum með heilli þjóð, að hægt sé að gefa af heildarmynd, hvað þá að koma við samanburði við aðra, enda dettur mér ekki hug að reyna slkt. En yfirleitt var sterk- ur framfarablær á því, sem fyrir augu bar. Eitt liggur m.a. svo í augum uppi að ekki verður um villzt eftir langt ferðalag og margar viðkom- ur. f Búlgara eiga sér stað rajög miklar framkvæmdir og afar miklu hefur verið komið í framkvæmd á fáum áram. Ennfremur getur það ekki farið framhjá mönnum, að á 'stuttum tíma hefur orðið að vinna upp langvinna vanrækslu. Á hinn bóginn njóta menn ekki þess frelsis, sem við teljum lífs- nauðsyn, fremur en með öðram hliðstæðum þjóðum þar eystra. En menn bera vafalaust bað, sem menn nú búa við, saman við það, þessi þjóð hefur búið við um aid- ir, en það var örbirgð almenn- ings, linnulaus þrældómur og harðstjórn. ☆ Búlgarar leggja nú mesta áherzlu á iðnvæðingu, enda sáum við margar nýjar verksmiðjur og sumar %far stórar í smíðum eins og t. d. Stálver, þar sem eiga að vinna 20 þús. manns, þegar öllu er komið í kring. Ennfremur mikl- ar aflstöðvar fyrir iðnaðinn. Fjár- festingu sína kváðust þeir kosta af eigin fé og lánum frá Sovét- mönnum með 2% vöxtum. Á að leggja mikla áherzlu á framleiðslu véla, því vélvæðing er þar aðai- lausnarorð eins og víðar. Landbúnaður hefur lengi verið mesti atvinnuvegur Búlgara og a að verða framvegis mikil atvinnu- grein ásamt iðnaði Landið ei af- argott landbúnaðarland. Allt flýt- ur þar í ávöxtiun. Tóbak er þeirra

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.