Tíminn - 19.09.1965, Síða 14
STTTTN UDAGTJR 19. september 19fi5
14. .. ~TÍWINN
LIPPMANN
stríðið gegn fátæktinni yf-
irleitt, — að það, sem áunn-
izt hefur til þessa, er hlutfalls-
lega einna líkast grunnrissi
arkitekts að stórbyggingu,
ásamt fáeinum holum í svörð-
inn.
Erfiðasti hlutinn af starfinu
við myndun „hins mikla þjóð-
félags“ býður okkur enn óunn
inn, býður átaka forsetans,
þingsins, blaðamannanna og
kjósendanna. Enn getur ekki
talizt vizka að gera sér ljóst,
að til okkar verði gerðar alveg
einstæðar kröfur. í því er þó
upphaf vizkunnar fólgið.
LAXINN
arnir, scm hafa genglð úr sjó
í sumar inn í eldisstöðina, hafa
flestir verið fluttir í eldis-
tjöm, þar sem þeir verða
geymdir unz þeir verða kreist-
ir í klak nú í haust. Þannig
hafa verið fluttir 43 laxar, 3—
11 pd. Fyrir skömmu auglýsti
Laxeldisstöðin lax- og silungs-
seiði til sölu, og bárust pant-
anir víðsvegar að af landinu,
en ekki mun reynast unnt að
fullnægja eftirspum cftir laxa-
Bíli til sölu
Ford vörubíll, 60 módel
með krana. — Nánari upp
lýsingar gefur Finnur Ósk-
arsson í síma 146, Seyðis-
firði.
sdíðum að þessu sinnf. Afhend-
ing seiðanna fer fram þessa
dagana.
í sumar hefur verið mikið
spurt um, hve mangir laxar
hafi gengið úr sjó upp í Lax-
eldisstöðina. Þessari spumingu
hefur ekki verið hægt að sfara
fyrr en nú. Laxinm hefur verið
látinn ganga um geymslutjam-
ir stöðvarinnar upp í lónið of-
an við þær. í gær var svo lón-
ið tsfemt, og voru þá í því 36
laxar og náðist í 34 þeirra, en
9 laxar höfðu áður verið teknir
úr geymslutjömunum. Má
vænta, að enn séu nokkrir lax-
ar í lóninu og frárennsli stöðv-
arinnar, sem fellur í það. Til
samanburðar má geta þess, að
í fyrrasumar gengu úr sjó 4
laxar upp í stöðina, og voru
þeir kreistir í klak í fyrra-
haust. Munu laxar, sem komu
í sumar, einnig notaðir til
klaks í haust, eins og fyrr seg-
ir. Fjöldi sjóbirtinga af ýms-
um stærðum hefur einnig geng-
ið úr sjó inn í tjarnir stöðf-
arinnar.
Annríki hefur verið mikið í
Laxeldisstöðinni að undanfömu
við afhendingu lax og silungs.
Munu 20—30 aðilar fá fisk til
þess að sleppa í ár og vötn
út um land, og eru sumir þeirra
að rækta fisk á nýjum stöðum.
Eftirspurn eftir seiðum hefur
verið mikil svo sem áður seg-
ir. Mest hefur eftirspurnin ver
ið eftir laxaseiðum en minnst
eftir sjóbirtingsseiðum. Tölu-
verður áhugi hefur ferið á
bleikju og munu nú seldar
nokkur þúsund bleikjur
tveggja og þriggja sumra gaml-
ar, sem eru 20—40 sm að
lengd og 100—500 gr að þyngd.
Bleikjan er mjög harðger fisk-
ur og er afar meðfærilegur í
eldL.' i
_fí.i i :-----.--------------
ÞAKKARAVORP
í tilefni af 60 ára afmæli mínu 11 .þ.m. þakka ég
skyldfólki, starfsfélögum og öðrum vinum hlýtt við-
mót, blóm, skeyti, vísur og fagrar gjafir.
Minningin er merk og kær,
minni sál og brjósti hlýnar.
Flyt ég vinum fjær og nær
fagrar hjartans þakkir mínar.
Lárus Salómonsson.
Hjartanlega þakka ég börnum, tengdabörnum og
vinum, heimsóknir, stórmannlegar gjafir og skeyti á
sjötíu ára afmæli mínu 16. sept. sl.
Lifið heil.
Ásgrímur G. Þorgrímsson,
Borg.
Öllum þeim, sem sýndu mér vinsemd á fimmtugsaf-
mæli mínu þann 9. sept. s.l. með heimsóknum, kveðj-
um og gjöfum, færi ég mínar innilegustu þakkir.
Borgarnesi 15.. sept. 1965,
Halldór E. Sigurðsson.
Andrés Johnson,
Ásbúð,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirk.iunni í Hafnarfirði mánudag-
inn 20. sept. kl. 10.30. AtHöfninni verður útvarpað Blóm vin-
samlega afþökkuð, en líknarstofnanir njóM minninswgiafa.
Siguriín Davíðsdóttir
Faðir okkar,
Sveinbjörn Kristjánsson
byggingameistari,
andaðist a3 heimili sinu, Samtúni 2, föstudaginn 17. þ m.
Sigurðúr Sveinbjörnsson,
Óskar Sveinbjörnsson,
Júlrus Sveinbiörnsson,
Erla Sveinbjörnsdóttir.
Myndin var tekin nú fyrir skömmu þegar Johnson, forseti, og J. A. Gronuski, fyrrv. póstmálastjóri og nú-
verandi sendlherra Bandaríkjanna í Pólandl, sýndu hiS nýja frímerkl sem gefa á út til rninnlngar um
Adlai E. Stevenson, sendiherra hjá Sþ. Konan vi3 hliðina á forsetanum er frú Ernest lves; systir hins látna
stjórnmálamanns. Synir Stevensons þeir Adlai yngri og Borden voru einnig við athöfnina. 'Frímerkið kemur
á markaðinn þann 23. október n. k.
JARÐRASK
Framhald aí 16. siðu.
Það er því miður sorgarsaga, hvern
ig vegagerðarmenn hafa farið að
ráði sínu á undanförnum árum,
og það eru víða komin mikil og
hættuleg sár í gróðurlendi okkar
af þeim völdum.
BÚSTOFN
Framhald af bls. 1
heybirgðir eru metnar. Eftir góð
sumur, þegar lítið hefur hitnað í
heyjunum og eins vegna tilkomu
súgþurrkunarinnar, virðast birgð-
irnar oft meiri en þær raunveru-
lega eru, vegna þess að heyið er
lausara í sér í hlöðunum.
— Hafið þið fengið loforð um
meiri fieygjafir en þegar við rædd-
um við þig fyrr í vikunni?
— Já, það hafa nú borizt svör
frá búnaðarfélögum í rúmlega 40
sveitarfélögum. Við höfum nú
fengið ákveðin loforð fyrir um
2700 hestburðum af heyi úr þess-
um hreppum og að auki tilboð
um að gefa um 50 þúsund krón-
ur í peningum til heykaupa, ef
óskað er. Auk þess eru nokkur
búnaðarfélög, sem hafa gefið góð
fyrirheit um heygjafir, en geta
ekki enn. tilgreint ákveðna tölu
og ég veit að frá sumum þeirra,
sem ekki hafa enn svarað munu
koma myndarlegar gjafir.
Svo hafa og enn önnur búnaðar-
félög tilkynnt, að ef farið verði
fram á almenn fjárframlög til
heykaupa, þá munu bændur ekki
skorast undan því, þótt þeir hafi
ekki heyaflið. Ef tel því nær fuíl-
víst að nú í fyrstu lotu muni fást
um 5 þúsund hestburðir af heyi,
eða andvirði þeirra, gefins og ég
tel það ágætan árangur.
— Veiztu um vænleika fjárins
nú í haust?
— Upplýsingar um það eru eðli
lega enn af skornum skammti, en
eftir því sem óg hefi heyrt á mönn
um mun fé vera í góðu meðallagi,
ekki hvað sízt norðanlands, t. d.
í Þingeyjarsýslum.
KASTRUP
Framhald at bls 1
liggja, benda til þess að Tárn
by-lögreglumennivnir sem
fyrst voru myrtir, hafi fylgt
áðurnefndum bíl. sem þeir
töldu vera Simca og talið. að
hér væri líklega um stolinn
bíl að ræða. Hafi þeír neytt
hvíta bílinn ti! þess að stanza
við Prags Boulevard en þegar
þeir -tigu ut úr bifreið sinni
voru þeir þegar í stað skotnir
með vélbyssu. Hinir lögreglu
mennirnir tveir munu einnig
hafa stöðvað hvíta bílinn, að
þessu sinni við Kastrup. Þeir
munu einnig hafa verið skotnir
um leið og þeir komu út úr
bifreið sinni. Enginn lögreglu
mannanna hafði tækifæri til
að grípa til byssu sinnar,
og virðist því sem þeir hafi
ekki talið neitt óvenjulegt við
þessa bifreið annað en þáð, að
hún gæti verið stolin.
Lögreglumennirnir tveir,
sem myrtir voru á Værmlands
gade við Prags Boulevard,
fundust fyrst, þegar verka-
menn frá bakaríi einu þar ná-
lægt komu á staðinn. Annar
lögregluþjónanna hafði augsjá
anlega ekki haft tma til þess
að komast alveg út úr bifreið
inni, því fætur hans voru enn
inni í henni, en hinn lá úti á
götunni.
Þeir, sem myrtir voru við
Kastrup, höfðu farið þangað
í Volvo-bifreið. Annar þeirra
lá á götunni við hlið lögreglu-
bifreiðarinnar, en hinn við trjá
runna á vegarbrúninni, og lítur
út fyrir, að hann hafi ætlað
að leita skjóls þar, þegar skot
hríðin hófst.
Strax og fréttin barst um
morðin, voru vopnaðir lög-
regluþjónar settir við alla vegi
og brátt hófust umfangsmestu
mannaveiðar í sögu dönsku lög
reglunnar, og var allt lögreglu
iið, sem til er, kvatt út til þess
að taka þátt í leitinni að morð
ingjunum. Allar bifreiðir frá
Amager til Kaupmannahafnar
voru stöðvaðar og í þeim leit
að. Vopnaður lögregluvörður
er á öllum helztu umferðar-
svæðum, og í öllum ferjuhöfn
um þar sem ferjan yfir Eyra-
sund kemur við. Lögreglan
á Sjálandi, Lálandi og Falstri
og Suður-Svíþjóð hefur einnig
verið kölluð út til þess að taka
þátt í leitinni.
Lögreglan hefur girt morð-
staðinn af, og sjónarvottar
við Kastrup segja, að þeir hafi
séð mörg skothylki og glerbrot
innan girðingarinnar. Ungur
maður fann einnig skothylki
fyrir utan girðlnguna, en hann
afhenti lögreglunni það sam-
stundis og gat ekki gefið nein
ar upplýsingar um, hvaða kali
ber um var að ræða.
Þá segja sjónarvottar frá
Værmlandsgade, að þar hafi i
einnig fundizt mörg skothyiki
Einn sjónarvottur sá a.m.k.
15 skothylki.
Talið er, að lögreglumennirn
ir hafi verið drepnir með 9
mm byssu. Hafa sumir sett
það í samband við atburð, sem
gerðist síðastliðna nótt, en þá
skutu óþekktir menn með 9
mm byssu á ungan mann. Hann
var læknastúdent, og kom
hann tveim þjófum á óvart, er
þeir voru að reyna innbrot á
Kastrup. Hann reyndi að hand
taka þá, en þeir skutu á hann
með 9 mm byssu þar til hann
gafst upp og hætti eftirförinni.
Þessir glæpamenn hafa enn
ekki verið handteknir.
Um kl. 6 í morgun að þar-
lendum tíma var lögreglan
kölluð til Kastrup-flughafnar-
innar. Þar fyrir utan eldhús-
bygginguna í flughöfninni var
Simca-bifreið. Afturgluggi
hennar var allur mölbrotinn.
Annars virðist sem lögreglan
hafi lítið til að fara eftir í mál
inu enn sem komið er, bæði
um morðingjana og bifreiðina.
Sumir telja sig hafa séð tvo
menn í umræddri bifreið, en
aðrir segja, að fleiri hafi ver
ið henni.
Um bifreiðina vita þeir það
eitt, sem Tárnby-lögreglumenn
irnir tilkynntu lögreglustöð-
inni áður en þeir voru myrtir,
og sem nokkrir sjónarvottar
hafa sagt. Hefur lögreglan
því engar öruggar upplýsingar
um morðingjana né bifreiðina.
Löreglumennirnir, sem myrt
ir voru, voru allir kvæntir. í
bifreiðinni frá Támby voru
þeir Gert Söndergaard og
Henning Skov Jensen, en hinir
tveir, Elmer Jörgensen og
Aksel Andersen, voru frá aðal
deild Kaupmannahafnarlögregl
unnar. Þeir þrír fyrstnefndu
voru 24 ára gamlir, en Ander-
sen var 28 ára.
Lögreglustjórinn hefur lofað
30.000 íslenzkra króna í laun
fyrir upplýsingar, sem leitt
geti til lausnar málsins og
handtöku glæpamannanna.
Einnig upplýsti lögreglan, að
hún hefði ekkert spor í mál
inu, og engar upplýsingar um
hvaðan hvíta bifreiðin væri
komin. Ekki hefur verið til-
kynnt til lögreglunnar, að bif
reið, er ber saman við lýsing-
una, hafi verið stolið.