Tíminn - 19.09.1965, Blaðsíða 16
f
r-r' -•
..ý:>
ý ?;r;'
EKIÐ Á MANN
INN VID TUNGU
Liggur nú óþekktur
KJiReykjavík, laogardag.
Á Landakotsspítala liggur nú
meðvitundarlaus og mikið slasað-
ur ungur maður, sem varð fyrir
bíl á Laugaveginum í nótt. Bar
bann ekki á sér nein skilríki, og
veit enginn ennþá hver þessi ungi
maður er.
Slysið varð um klukkan hálf
f jögur, á rnóts við Tungu. Merce-
des Benz bifreið var á leið vestur
Langaveginn, er bifreiðarstjórinn
kom skyndilega auga á mann
fram undan bílnum, sem gekk í
sömu átt og bítnum var ekið. Snar
bemiaði ökumaðurinn, en það var
um seinan því bölinn leniti aftan
á manninum sem kastaðist upp á
vélariiúsið, lenti síðan hægra meg-
in á franmiðunni, er brotnaði, og
drðst síðan með bægri blð bilsins
þar fH bann stöðvaðist. Var mað-
urinn mjög mikið slasaður, skoar-
inn og brotinn, og erfitt að geta
sér til xun aldur bans vegna meiðsl
anna, þó er taEð að bann sé 20—
30 ára. Faiið var með hinn slas-
aða á Slysavarðstofuna og síðan á
Landakot, þar sem hann Uggur nú
óþekktur. Engin sfciilríki fundust
á honum, en hann var með silfur-
hring á hægri hendi sem á eru
grafnir stafimir BS. Klæddur var
hann dökkgráum jafckafötum og
frakkalaus. Þeir sem kynnu að
Ársþing GLÍ
Ársþing Glímusambands íslands
1965 verður haldið sunnudaginn
24. okt. n.k. og hefst kl. 10 ár-
degis í húsakynnum fþróttasam-
bands íslands.
49. árg.
á Landakoti
geta áttað sig á þessari ófull-
komnu lýsingu á manninum, eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna.
Er slysið varð, var skyggpi
slæmt, rigning og náttmyrkur. Öku
maður bílsins var ungur maður,
sem fengið hafði bílinn að láni,
og með honum voru nokkrir ungl-
ingar. Ekki er talið að bílnum
hafi verið ekið mjög hratt, en
allar aðstæður voru slæmar, gatan
sleip og náttmyrkur.
Myndina tók A.Þ. af þelm
Tryggva Einarssyni frá Miðdal,
Einari Tryggvasyni og Skúla
Skarphéðinssyni, er þelr höfðu
lokið tveggja daga veiði við
Vatnsdalsá. Á þessum tveimur
dögum veiddu þeir hvorki meira
né minna en 94 laxa.
LAXVEIÐBNNl ER LOKIÐ f ÁR
FB-Reykjavík, laugardag.
Undanfarið hefur laxveiði-
timinn verið að renna út í
veiðiám um allt land. Veiði er
heimil um þriggja mánaða
skeið í hverri á, og þar sem
hún hefst ekki alls staðar á
sama tíma lýkur henni heldur
ekki samtímis alls staðar. Ölf-
usár—Hvítár vatnasvæðið er
síðast, og lýkur veiðitímanum
á því svæði 20. seþtémber, eðá
á mánudaginn.
Veiðimálaskrifstofunni geng
ur allilla að safna saman veiði-
skýrslum frá laxveiðiánum, og
eru eftirlitsmenn að því er
virðist nokkuð tregir að koma
skýrslunum til skrifstofunnar.
Þegar blaðið hafði samband
við veiðimálastjóra í dag var
aðeins vitað um endanlegar
tölur í þrem ám, en von var
til að brátt bærust lokatölur
frá fleirum.
í sumar veiddust í Elliðaán-
um 830 laxar, og vitað var, að
2566 laxar höfðu farið í gegn-
um laxateljarann í ánum. Úr
Miðfjarðará höfðu komið á
land 957 laxar í lok veiðitím-
ans, og á veiðisvæði Blöndu og
Svartár samanlagt veiddust
um tólf hundruð laxar í sumar.
Veiðimálastjóri sagði, að
veiði í net hefði verið nokkuð
góð og jöfn, en veiði á stöng
hefði verið mun misjafnari og
lélegri á sumum stöðum en
undanfarin ár.
Þá hefur blaðinu borizt eftir-
farandi fréttatilkynning um
laxeldisstöðina í Kollafirði:
í Laxeldisstöð ríkisins i
Kollafirði er þessa dagana ver
ið að ljúka sumarverkum. Lax-
Kramhan ’ •<* ■'*
-■V\
GENGIÐ VERÐUR HART EFTIR
JARÐRASK VIÐ VEGI VERÐIBÆT
>
Tillögur frá sambandsaðilum,
sem óskast lagðar fyrir ársþingið
þurfa að hafa borizt stjóminni
þrem vikum fyrir þingið.
(Stjórnin.)
MB-Reykjavík, laugardagur.
Okkar verk hafa gengið ágæt-
lega í sumar, sagði hinn nýskip-
aði Landgræðslustjóri, Páll Sveins-
son, í stuttu símaviðtali við blað-
V/LJA LÆKKA
SÆTAGJÖLDIN
þar eð sjónvarpið sé að drepa kvikmyndahúsin
EJ—Reykjavík, laugardag.
Félag kvikmyndahúsaeiig-
e«da hefur farið fram á það
f bréfi til borgarstjóraar
Reykjavíkur, að gjald af kvik
myndasýningum verði lækkað.
Blaðið hafði í dag samband
við Friðfinn Ólafsson, formann
félagsins, og sagði hann, að
faér væri um að ræða hið svo
kallaða sætagjald, sem nú er
9%.
Friðfinnur sagði það álit
kvikmyndahúsaeigenda að þeir
gætu aðeins í hæsta lagi greitt
5% sætagjald. Sagði hann, að
sjónvarpið væri að drepa kvik
myndahúsin, og þróunin í öðr
um löndum hefði verið sú, að
þegar sjónvörp hafa komið
upp, hafa skattar á kvikmynda
sýningum verið lækkaðir, og
teldi hann sjálfsagt, að sama
þróun yrði hér.
ið í dag, — og ég er bjartsýnn
á framtíðina, bætti hann við. Við
erum búnir að sigra uppfokið á
Hólssandí, búnir að ná undirtök-
unum á Landeyjarsvæðinu og við
erum á góðri Ieið með Þeistareyki.
Stærsta verkefnið okkar núna er
Haukadalsheiðin og eftir 8—10
ár verðum við búnir að hefta allt
fok þar, ef allt fer að óskum.
Megnið af Haukadalsheiðinni er
örfoka land og svæðið þar er 5—
6 þúsund hektarar. Við höfum sett
þar upp skjólborð úr timbri, sem
er um 50 þúsund fet á lengd.
Haukadalsheiðin er langstærsta
uppfokssvæðið hér sunnanlands.
— Sáðuð þið í mikið landsvæði
í vor?
— Já, við sáðum í mörg hundr-
uð hektara. Aðalathafnasvæði okk-
ar nú eru Þeistareykir. Nýhóll á
Hólsfjöllum Landeyjar og svo
Haukadaisheiðin. Við áttum í
miklum vandræðum í Landeyjum,
vegna vatnságangs, en nú er sá
vándi yfirstiginn, þvi við eruni
lok- búnir að koma 'auunu oun
Þótt mikið af því landsvæði,
sem við berjumst við sandfokið á
sé þegar orðið örfoka land, -?r því
tksi að neita að við leggjum =kk
ein? mikla áherzlu á slíkt -væði
oa það, sem er að blása upp.
Fyrsr og fremst verður að soma
í veg fyrir uppblásturinn, koma
í veg fyrir að landsvæði leggist
í auðn. En við verðum einmg «ð
leggja áherzlu á að rækta gpp ór
foka landið. Það er einnig gróður-
vernd, því út frá þeim berst fos
ið til annarra landsvæða. Og upp-
ur örfoka iöndum má rækta nytia-
land. sem getur orðið ómeian-
legt fyrir heilar sveitir, eins 'g
ræktunin á Skógarsandi bezr. sýn
ii Þannig verður allt að haidast
i hendur, svo vel fari.
— Hvað viltu segja ’unf ; j-
rask það, sem verður af vöidi, n
vegagerðar?
— Það er tiltölulep.. nýt; \ w a
mál í gróðurvernd okkar. _ei e t
að síður mjög alvarlegt í lun’ n
nýju vegalögum er kveðið íkvn
á um að vegagerðarmenn - ve ði
að sjá um að bæta allt rask spm
verður vegna vegagerðar Það er
óhjákvæmilegt að fylgja þessum
ákvæðum vel eftir, og ég mun
ganga ríkt eftir því í framtíðinni.
Framhalfi a bls i4
3000. sýning í
Þjóðleikhúsinu
í kvöld, sunnudagskvöld, verð-
ur 3000. leiksýningin í Þjóðleik-
húsinu. Á þeim rúmlcga 15 árum,
sem Þjóðleikhúsið hefur starfað,
liefur það tekið til nieðferðar 166
verkefmi, og eru þar meðtaldir er-
Iendir gestaleikir.
Leikritið, sem sýnt verður í
kvöld i Þjóðleikhúsinu er hinn
vinsæli söngleikur þeirra bræðra
Jónasar og Jóns Múla Árnasona,
Járnhausinn, og er það fyrsta
sýningin á Járnhausnum á þessu
leikári. Leikurinn var sem kunn-
ugt er sýndur 25 sinnum á s.l. leik
ári og ávallt fyrir fullu húsi. Þóra
Friðriksdóttir hefur nú tekið við
hlutverki því, er Kristbjörg Kjeld
lék áður. Hljómsveitarstjóri er
Magnús Blöndal Jóhannsson. en
leikstjóri er Baldvin Halldórsson.