Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR17. SEPTEMBER1985
Það sem er
bak við orðin
Bókmenntlr
Jóhann Hjálmarsson
Norræna húsið:
NORRÆN UÓÐLISTARHÁTÍÐ.
Ljóðakvöld:
Uffe Harder, Lars Huldén, Matthías
Johannessen, Mimmo Morina,
James Tate.
Tónlist: Ásdís Valdimarsdóttir lág-
fiðluleikari.
Þetta ljóðakvöld átti að hefjast
á lestri sænska skáldsins Lars
Forssell, en hann var hvergi sjá-
anlegur, hafði boðað forföll. Fors-
sell orti eitt sinn:
Senduð þið mig erinda
tryðuð þið aldrei frásögn minni
eins og ég legg aldrei trúnað á
orð vinar
heldur það sem er bak við orðin.
Danska skáldið Uffe Harder
hefur áður lesið úr verkum sínum
í Norræna húsinu. Nú sagði hann í
Ijóði: Textinn stendur kyrr. En text-
inn stóð ekki kyrr í þessum ágætu
Ijóðum eftir Uffe Harder, heldur
var hann á hreyfingu. Uffe Hard-
er hafði góðan boðskap að flytja:
Ottastu aldrei neitt.
Lars Huldén er orðinn eins kon-
ar þjóðskáld í Finnlandi, skarpur
athugandi hversdagslífs og um-
hverfis. Hann hefur ort mikið um
ísland og flutti ljóð um Esjuna og
hrafnana sem taka nú orðið tillit
til hans, þekkja hann. Huldén
kvað:
Dagarnir eru mikilvægir.
Dagarnir eru stuttir.
Dagarnir eru fáir.
Bandaríska skáldið James Tate
var kærkominn gestur á ljóðlist-
arhátíð. Hann yrkir frásagnar-
kennd ljóð og segir Ijóðrænar
dæmisögur úr hversdagsleikanum.
Tate er fyndinn og blátt áfram
lesari. Hann spurði m.a. í ljóðum
sínum: Hvað á að gera við okkur?
og minnti á að ókunnuglegir hlutir
þvinga okkur til að taka afstöðu.
Stundum getur hvarflað að áheyr-
anda að Tate líti á ljóð sem eins
konar brandara, en svo er ekki;
ljóðagerðin er honum mikilvaégari
en það.
Seamus Heaney flutti óvænt
Ijóð á ensku eftir Kristján Karls-
son. Kristján var ekki viðstaddur
sjálfur, en hafði vitanlega verið
kjörinn fulltrúi norrænnar ljóð-
listar á þessari hátíð. Þegar Hean-
ey var kynntur fyrir nokkrum
dögum flutti Einar Kárason þýð-
ingu eftir Kristján Karlsson á
ljóði hins írska skálds: Lýðveldi
samviskunnar. Þessi þýðing var
ein hin vandaðasta sem hljómaði í
Norræna húsinu.
Mimmo Morina er skáld frá Sik-
iley og ljóðræn tjáning hans
minnir stundum á landa hans,
Salvatore Quasimodo, sem líka
var frá Sikiley. Morina er gott
skáld eftir þeim ljóðum að dæma
sem hann flutti. Hann hefur starf-
að í Lúxemborg þar sem hann rit-
stýrir tímaritinu Nýju Evrópu.
Hann orti um eyjuna sem ekki er
til, tregaljóð um bernsku sína á
Sikiley og scirocco-vindinn marg-
fræga, þennan ótrúlega gest frá
Afríku. Thor Vilhjálmsson flutti
þýðingar sínar á ljóðum Morina og
Mimmo Morina
skildist mér á honum að það væri
mikill atburður að fá tækifæri til
að kynnast þýðingunum.
Matthías Johannessen las loka-
ljóð nýrrar útgáfu Hólmgöngu-
Ijóða, áður óbirt. Lestur Matthías-
ar þótti mér meðal helstu tíðinda
hátíðarinnar því að hann las af
meiri þrótti en flestir aðrir. Eins
og hann benti á eru yrkisefni
Hólmgönguljóða mörg hver sótt
James Tate
til fortíðar, atburðir heimfærðir
upp á okkar tíma. Hann rifjaði
upp hina snjöllu skilgreiningu Bo
Carpelans: Ljóðagerð er aðferð til
að hlusta með augunum. Matthías
las þrjú óbirt kvæði og í einu
þeirra er gerð tilraun til að gera
Gísla Súrsson að samtimamanni
okkar. Form ljóðsins var fornlegt.
Matthías flutti okkur Fóstur-
landsins Freyju, mnskot fyrir
Sorgin er asnaleg
Norræna húsið:
NORRÆN LJÓÐLISTARHÁTÍÐ:
Ljóðadagur:
Gyrðir Elíasson, Jóhamar, Elísabet
Þorgeirsdóttir, Bragi Ólafsson, Sig-
fús Bjartmarsson, Þorri Jóhannsson,
Kristján Kristjánsson, Þór Eldon, ís-
ak Harðarson, Björk Guðmunds-
dóttir, Sjón, Einar Már Guðmunds-
son.
Ljóðskáldasalat nefnist dagskrá í
tengslum við Norrænu ljóðlistar-
hátíðina í Norræna húsinu.
En þessi dagskrá var með allt
öðrum hætti en hin virðulega há-
tíð. Hún skar sig úr m.a. fyrir það
að hér voru á ferð ung skáld sem
þarfnast kynningar, ástæða er til
að gefa gaum. Fæst þeirra eru lík-
leg til að fá inngöngu í akademíu í
bráð. En tíminn mun leiða það allt
í ljós.
Skáldin sátu að snæðingi og
drukku hóflega létt vín með.
Stjórnandi var Þór Eldon.
Fyrstur las Gyrðir Elíasson sem
er meðal þeirra ungu skálda sem
hvað mesta athygli hafa vakið á
undanförnum árum. Lestur hans
barst með tækninni frá Borgar-
firði eystra. Gyrðir drap á hengi-
flugið og það að vera viðbúinn, las
hljóðlátlega en sannfærandi.
Jóhamar tilkynnti að dyrnar
opnuðust Hann sagði að höfuð sitt
gerði lítið gagn núorðið og kom
með furðulega kenningu: Þegar ég
sé blóð líður mér vel. Hann sagðist
vera á flótta og taldi að siðmennt-
aður heimur liði undir lok. Jóham-
ar er góður upplesari og sýnis-
hornin sem hann valdi til vitnis
um að hann er að eflast í skáld-
skap sínum.
Elísabet Þorgeirsdóttir sendi
frá sér fyrir mörgum árum eitt
athyglisverðasta verk sem lengi
hefur komið frá ungu skáldi: Aug-
að í fjallinu. í því segir að sorgin sé
asnaleg.
Hún las líka úr bók sinni Salt og
rjómi og sem olli því að beðið er
með forvitni þriðju bókarinnar.
Bragði ólafsson lýsti „handfylli
af dögum“ og orti um morð í stiga-
gangi. Það sem hann las bendir til
þess að hér sé á ferð skáld sem
hafi frá mörgu að segja.
Sigfús Bjartmarsson hefur eins
og kunnugt er nýlega sent frá sér
kjarnmikla bók: Hlýju skuggana.
Úr þeirri bók las hann Berliner
Ostbahnhof, en byrjun ljóðsins er
dæmigerð fyrir tjáningu hans:
„úti í þokunni/ bifast einn og einn
hermaður/ einstöku sinnum/
áhorfanda til afþreyingar/ eins og
ég man að var títt/ um legsteina á
haustin/ í sveitinni heima."
Einar Már Guðmundsson túlk-
aði vorkvöld í Reykjavík með sín-
um hætti. Ljóð hans eru mælsk og
oft fyndin. öll völd I hendur
gleymskunnar, sagði hann bein-
skeyttur að vanda.
Þorri Jóhannesson las úr bók
sinni: Hættuleg nálægð og nýjan
prósa um bágindi gamallar konu.
Á framlag hans verður ekki lagt
mat hér.
Eftir hlé kom Kristján Krist-
jánsson, las úr bók sem hann hef-
ur gefið út og annarri væntan-
legri: Dagskrá kvöldsins. Hann til-
kynnti m.a. að tungumálið verði
ekki framar umflúið og minnti á
að varasamt er að fikta við orð
sem geta sprungið. Sigfús Daða-
Sigfús Bjartmarsson
son hefur einnig ort um það fyrir-
brigði.
Nýleg ljóð Kristjáns lofa góðu.
„Úngskáldið“ Þór las vísvitandi
lágt og varlega: ÉG. En bætti svo
um betur: Ég og svo þú.
Elísabet Þorgeirsdóttir
ísak Harðarson var á svipaðri
bylgjulengd og Þór Eldon. Hann
las ljóð sem nefnist Tvö orð og var
aðeins tvö orð. Það sem hann vildi
segja fólst í orðunum: Hó, hó, hó. 1
ljóðinu óli sá morgunsól sem er
Skólaritvélar
og léttbyggð vél sem þolir auðveldlega hnjask
og ferðalög.
Olynpla ritvélarnar eru allt í senn
skóla-, ferða- og heimilisritvélar. Ódýrar og
fáanlegar í mörgum gerðum.
Carma áreiðanleg vél, búin margs
konar vinnslu sem aðeins er á stærri ritvélum.
TraveDer de Luxe fyrirferðarlítil
Reporter rafritvel með leiðréttingarbún-
aði. Fisléttur ásláttur auk annarra kosta stórra
skrifstofuvéla þótt Reporter
sé bæði minni og ódýrari.
Ekjaran
AMAGRUSS®
pH-Rafskaut
r®, rSL
Tengi fyrir allar
gerðir pH-mæla!
Hagstætt verð!
KEmiR
SKIPMOLTI 7 ( 3 HÆO)
SIMI 91-27036