Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985 Eins og sjá má var fjölmenni á borgarafundinum í Festi. GiskuÖu menn á að u.þ.b. 200 manns hafi sótt fundinn. Morgunblaðið/Einar Falur Grindvíkingar reiðir vegna skrifa Víkurfréttæ Ætla að stefna ritstjóranum ef hann biðst ekki opinberlega afsökunar — Harðorð ályktun samþykkt á borgarafundi í Festi „ÉG ER REIÐUR. Við erum öll reið yfir þeim rógburði og ærumeiðingum, sem hafa dunið á okkur og valda munu okkur ómældu tjóni,“ sagði Kristinn Benediktsson frummælandi á borgarafundi, sem haldinn var I félagsheimilinu Festi í Grindavík sl. laugardag. Tilefni fundarins voru skrif, sem birst hafa í blaðinu Víkurfréttum í Keflavík nýlega, einkum grein sem birtist sl. fimmtudag undir fyrirsögninni „Grindavlk: Rotinn hugsunarháttur foreldra og lögreglu.“ Var á fundinum samþykkt ályktun þar sem skorað er á ritstjóra Víkurfrétta að biðjast afsökunar á skrifunum, að öðrum kosti verði leitað til dómstólanna. Kristinn Benediktsson verkstjóri mælti fyrir ályktun fundarins, sem samþykkt var samhljóða. í fyrrnefndri grein í Víkur- fréttum segir meðal annars, og er haft eftir nokkrum ónafngreind- um foreldrum í Grindavík: „Við viljum ræða fyrst og fremst um það, að siðferðiskenndin er langt fyrir neðan núll í Grindavík. Er það undirrót alls ills. Það virðist sem alls kyns afbrot, bílþjófnað- ir, innbrot, nauðganir og hvað sem er, sé ekki betra en í villta vestrinu." Síðar I greininni segir: „Ungl- ingarnir hér í Grindavík geta ekki verið til friðs eitt einasta augnablik. En af hverju er það? Alltaf kemur að sama svarinu. Það er foreldrunum og lögregl- unni að kenna. Almenningsálitið er alveg glatað og lögreglan er alveg ómöguleg." Milli 15 og 20 manns tóku til máls á fundinum í Festi, sem var fjölsóttur og voru margir harð- orðir I garð Víkurfrétta og þeirra sem eru heimildarmenn blaðsins. Fram kom að Grindvíkingar eru langþreyttir á neikvæðum skrifum um byggðarlag sitt und- anfarin ár og ekki síst þeirri rógsherferð, sem þeir telja að Víkurfréttir haldi uppi gegr, þeim um þessar mundir. „Nú er mælir- inn fullur,“ sagði Kristinn Bene- diktsson og aðrir ræðumenn tóku í sama streng. Fram kom hjá fundarmönnum að þessi skrif valdi byggðarlaginu tjóni og Grindvíkingar, einkum unglingar, verði fyrir aðkasti í öðrum byggðarlögum vegna þessa. Var nefnt sem dæmi að nóttina áður hefði verið ráðist með grjótkasti á rútu, sem flutti grindviska unglinga á ball í Keflavík. Ræðumenn voru sammála um að unglingar í Grindavík væru síst verri en annars staðar á landinu. Meðal annars sagði Sig- rún Guðmundsdóttir kennari, sem kennt hefur í Grindavík í nær 50 ár, að henni hafi aldrei líkað betur við börnin en núna. „Það er ruddalegt hvernig farið er með börnin. Það skyldi þó aldr- ei vera að gamall rígur milli Grindavíkur og Keflavíkur sé að taka sig upp aftur?" sagði Sigrún. Á fundinum var samþykkt samhljóða ályktun þar sem segir meðal annars: „Borgarafundur haldinn í Festi, Grindavík 14. september 1985 mótmælir harð- lega þeirri rógsherferð sem blað- ið Víkurfréttir, útgefið í Keflavík, hefur haldið uppi í sumar á hend- ur lögreglu, foreldrum og ungl- ingum Grindavíkur og boðar framhald á. Mælirinn fylltist þegar blaðið kom út fimmtudag- inn 12. september 1985, með 5 dálka forsíðugrein undir fyrir- sögninni „Rotinn hugsunarháttur foreldra og lögreglu I Grinda- vík“.“ Síðar í ályktuninni segir. „Með birtingu þessarar greinar er þetta litla friðsæla bæjarfélag í einni svipan orðið í augum lands- manna ribbaldabæli líkt og f Villta vestrinu eða versta glæpa- hverfi í stórborg erlendis, þar sem rán, gripdeildir og nauðganir eiga að vera daglegt brauð. Ástæðan er tilhæfulaus óhróð- ur 2—3 foreldra, sem hafa fengið í lið með sér ritstjóra Vlkurfrétta til að draga unglinga og foreldra f bænum, sem engan hlut eiga að máli, niður í svaðið. Afleiðingin er að Grindvíkingar verða dæmd- ir sem óalandi lýður. Börn og unglingar eiga eftir að sæta að- kasti af jafnöldrum sfnum hvar sem þeir fara.“ í niðurlagi ályktunarinnar seg- ir siðan: „Fundurinn krefst þess að ritstjóri (EPJ) biðjist afsökun- ar á þessum skrifum í næsta blaði svo og dagblöðum og rfkis- fjölmiðlum svo að tryggt sé að þessi rógur sem lætt hefur verið inn hjá landsmönnum verði leið- réttur hið fyrsta. Verði ritstjórar ekki við kröf- um fundarins munum við leita til dómstóla um rannsókn á þeim staðhæfingum sem fram hafa komið í blaðinu á hendur lögreglu og unglingum svo dæma megi þessi skrif dauð og ómerk.“ í lok fundarins var kosin þriggja manna nefnd til að fylgja ályktuninni eftir. í henni eiga sæti Berta Grétarsdóttir formað- ur foreldrafélags grunnskólans, Jón Gröndal kennari og Kristinn Benediktsson verkstjóri. Peningamarkaðurinn r \ GENGIS- SKRANING Nr. 174 - 16. september 1985 Kr. Kr. Toll- Kin.KL 09.15 Kaup Sala Dollari 42,460 42,580 41,060 SLpund 56,478 56,638 57281 Kan.dollari 30,919 31,007 30,169 Dönskkr. 4,0390 4,0504 4,0743 Norsk kr. 5,0050 5,0192 5,0040 Stpn.sk kr. 4,9748 4,9889 4,9625 Fi. mark 6,9272 6,9467 6,9440 Fr. franki 4,7950 4,8086 42446 Belg. franki 0,7236 0,7257 0,7305 Sv.franki 17,7323 17,7824 18,0523 HolL gyllini 13,0086 13,0453 13,1468 V-þ. mark 14,6149 14,6562 14,7937 ÍLlíra 0,02182 0,02188 0,02204 Austnrr. srh. 2,0809 2,0867 2,1059 Portescudo 0,2461 02468 02465 Sp. peseti 02471 02478 02512 Jap.yen 0,17578 0,17628 0,17326 Irsktpund 45,441 45,569 46,063 SDR(SérsL 4.3,2998 422785 dráttarr.) 43,1779 Belg. franki 0,7173 0,7193 v y INNLÁNSVEXTIR: Sparisjóðsbakur________________ 22,00% Spahsjóðsraikningar m«ð 3ja mánaóa upptögn Alþýöubankinn.............. 25,00% Búnaöarbankinn............. 25,00% Iðnaöarbankinn............. 23,00% Landsbankinn............... 23,00% Samvinnubankinn............ 25,00% Sparisjóöir................ 25,00% Ufvegsbankinn.............. 23,00% Verzlunarbankinn........... 25,00% maó 6 mánaða uppsögn Alþýöubankinn.............. 30,00% Búnaöarbankinn............. 28,00% lönaöarbankinn.............. 28,00% Samvinnubankinn............. 30,00% Sparisjóöir................. 28,00% Útvegsbankinn.............. 29,00% Verzlunarbankinn............ 31,00% mað 12 mánaða upptögn Alþýöubankinn.............. 32,00% Landsbankinn................31,00% Útvegsbankinn.............. 32,00% mað 18 mánaða uppsögn Búnaðarbankinn............... 36,00% Innlánsskútaini Samvinnubankinn.............. 29,50% Sparisjóöir.................. 28,00% Varðtryggðir reikningar miöað við lánskjaravísitölu með 3ja mánaða uppsögn Alþýðubankinn................. 1,50% Búnaöarbankinn................ 1,00% lönaðarbankinn................ 1,00% Landsbankinn.................. 1,00% Samvinnubankinn............... 1,00% Sparisjóöir.................. 1,00% Útvegsbankinn................. 1,00% Verzlunarbankinn.............. 2,00% mað 6 mánaða uppsögn Alþýóubankinn................. 3,50% Búnaöarbankinn................ 3,50% lönaöarbankinn................ 3,50% Landsbankinn.................. 3,00% Samvinnubankinn............... 3,00% Sparisjóöir.................... 3J»% Utvegsbankinn................. 3,00% Verzlunarbankinn.............. 3,50% Ávisana- og hlaupareikningar: Alþýöubankinn — ávisanareikningar......... 17,00% — hlaupareikningar...........10,00% Búnaöarbankinn................ 8,00% lönaðarbankinn................ 8,00% Landsbankinn..................10,00% Samvinnubankinn................8,00% Sparisjóöir.................. 10,00% Útvegsbankinn................. 8,00% Verzlunarbankinn............. 10,00% Stjömuraikningar I, II, III Alþýöubankinn..................9,00% Safnlán — heimilislán — IB-lán — plútlán mað 3ja til 5 mánaða bindingu Iðnaóarbankinn............... 23,00% Landsbankinn................. 23,00% Sparisjóöir.................. 25,00% Samvinnubankinn.............. 23,00% Útvegsbankinn................ 26,00% Verzlunarbankinn............. 25,00% 6 mánaða bindingu aða lengur lónaöarbankinn............... 26,00% Landsbankinn................. 23,00% Sparisjóöir.................. 28,00% Útvegsbankinn................ 29,00% Innlandir gjaldayrisreikningar: Bandaríkjadollar Alþýöubankinn..................8,00% Búnaöarbankinn.................7,50% lónaöarbankinn.................7,00% Landsbankinn................. 7,50% Samvinnubankinn................7,50% Sparisjóóir....................8,00% Útvegsbankinn................. 7,50% Verzlunarbankinn...............7,50% Startingspund Alþýöubankinn................ 11,50% Búnaöarbankinn............... 11,00% lönaöarbankinn............... 11,00% Landsbankinn..................11,50% Samvinnubankinn.............. 11,50% Sparisjóöir.................. 11,50% Útvegsbankinn................ 11,00% Verzlunarbankinn............. 11,50% Vestur-þýsk mörk Alþýöubankinn................ 4,50% Búnaöarbankinn..................425% lönaöarbankinn.................4,00% Landsbankinn...................4,50% Samvinnubankinn................4,50% Sparisjóöir....................5,00% Utvegsbankinn..................4,50% Verzlunarbankinn...............5,00% Danskar krónur Alþýöubankinn................. 9,50% Búnaöarbankinn................ 8,00% lönaóarbankinn................ 8,00% Landsbankinn.................. 9,00% Samvinnubankinn............... 9,00% Sparisjóöir................... 9,00% Útvegsbankinn................ 9,00% Verzlunarbankinn............. 10,00% ÚTLÁNSVEXTIR: Almannir vfxlar, forvextir: Landsbankinn................. 30,00% Útvegsbankinn................ 30,00% Búnaöarbankinn............... 30,00% Iðnaöarbankinn............... 30,00% Verzlunarbankinn............. 30,00% Samvinnubankinn.............. 30,00% Alþýöubankinn................ 37,00% Sparisjóöirnir............... 30,00% Viðskiptavíxlar Alþýðubankinn................ 32,50% Landsbankinn................. 32,50% Búnaöarbankinn............... 32,50% Sparisjóöir...................31,50% Yfirdráttarlán af hlaupareikningum: Landsbankinn................. 31,50% Útvegsbankinn.................31,50% Búnaóarbankinn............... 31,50% lönaðarbankinn................31,50% Verzlunarbankinn............. 31,50% Samvinnubankinn...............31,50% Alþýöubankinn.................31,50% Sparisjóöirnir.............:.. 31,50% Endursafjanleg lán fyrir innlandan markað_______________2625% lán í SDR vagna útflutningsframl. — 9,75% Skuldabráf, almenn: Landsbankinn.................. 32,00% Útvegsbankinn................. 32,00% Búnaöarbankinn................ 32,00% lönaöarbankinn................ 32,00% Verzlunarbankinn.............. 32,00% Samvinnubankinn............... 32,00% Alþýöubankinn................. 32,00% Sparisjóöirnir................ 32,00% Viðtkiptatkuldabrél: Landsbankinn.................. 33,50% Búnaóarbankinn................ 33,50% Sparisjóðirnir................ 33,50% Verðtnrggð lán miðað við lánskjaravísitölu í allt að Vh ár........................ 4% lengur en 2% ár........................ 5% Vanskilavextir........................ 45% Övarðtryggð skuldabréf útgefin fyrir 11.08.’84............ 32,00% Lífeyrissjódslán: Lífeyrissjóður starfsmanna rfkisins: Lánsupphæö er nú 350 þúsund krónur og er lániö vísitölubundiö meö láns- kjaravísitölu, en ársvextir eru 5%. Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö skemmri, óski lántakandi þess, og eins ef eign sú, sem veö er í er lítilfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt lánstímann. Greiöandi sjóösfélagar geta sótt um lán úr lifeyrissjóönum ef þeir hafa greitt iöngjöld til sjóösins í tvö ár og þrjá mánuöi, miöaö viö fullt starf. Biðtími eftir láni er sex mánuölr frá þvi umsókn berst sjóönum. Lítayriasjóður verzlunarmanna: Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö lifeyrissjóönum 192.000 krónur, en fyrlr hvern ársfjóröung umfram 3 ár bætast viö lániö 16.000 krónur, unz sjóösfélagi hefur náö 5 ára aöild aö sjóönum. A tímabilinu frá 5 til 10 ára sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfilegrar láns- upphæöar 8.000 krónur á hverjum árs- fjórðungi, en eftlr 10 ára sjóösaöild er lánsupphæöin oröin 480.000 krónur. Eftir 10 ára aöild bætast viö 4.000 krón- ur fyrir hvern ársfjóröung sem líöur. Þvi er i raun ekkert hámarkslán í sjóönum. Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö lánskjaravisitölu, en lánsupphæöin ber nú 5% ársvexti. Lánstíminn er 10 tll 32 ár aö vali lántakanda. Þá lánar sjóöurinn meö skllyröum sérstök lán til þeirra, sem eru eignast sína fyrstu fasteign og hafa greitt til sjóösins samfellt í 5 ár, kr. 525.000 til 37 ára. Lánskjaravísitala fyrir ágúst 1985 er 1204 stig en var fyrlr júli 1178 stig. Hækkun milli mánaöanna er 2,21%. Miöað er viö vísitöluna 100 í júní 1979. Byggingavisitala fyrir júní til ágúst 1985 er 216,25 stig og er þá miöað viö 100 i janúar 1983. Handhafaskuldabréf í fasteigna- viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú 18-20%. Sérboð Nafnvextir m.v. Hðfuðatófa- óv*rötr. verétr. V*rötrygg. f»r«lur vuti Óbundið fé kjör kjör tlmabil vaxta á ári Landsbanki, Kjörbók: 1) 7-34,0 1,0 3 mán. 1 Útvegsbanki, Ábót: 22-34,6 1.0 1 mán. 1 Búnaöarb., Sparib: 1) 7-34,0 1,0 3 mán. 1 Verzlunarb.. Kaskóreikn: 22-31,0 3.5 3 mán. 4 Samvinnub., Hávaxtareikn: 22-31,6 1-3,0 3 mán. 2 Alþýöub., Sórvaxtabók: 27-33,0 4 Sparisjoðir, Trompreikn: 32,0 3,0 1 mán. 2 lönaöarbankinn: 2) Bundið fé: 28,0 3,5 1 mán. 2 Búnaðarb., 18 mán. reikn: 36,0 3,5 6 mán. 2 1) Vaxtaleiörétting (úttektargjald) er 1,7% hjá Landsbanka og Búnaðarbanka. 2) Tvær úttektir heimilaöar á hverju sex mánaöa tímabili án, þess aö vextir lækki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.