Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.09.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. SEPTEMBER1985 29 írland: Varað við að taka krafta- verkastyttur of hátíðlega Killala, irludi, 15. aeatenber. AP. RÓMANSK KATOLSKUR biskup hvatti sóknarbörn sín á sunnudag til að taka sögusögnum um styttur, sem hreyfa sig, og öörum trúarlegum vitrunum með varúð. 33 slíkar sýnir hafa verið skráðar í írskar kirkjubækur frá því í febrúar og eru kirkjuyfirvöld farin að hafa áhyggjur af þessum síendurteknu sögum. „Allar þessar vitranir verður að skrifa á reikning hins sál- ræna, þar til órækar sannanir um yfirnáttúrulega krafta hafa fundist," segir Thomas McDonn- ell, biskup í Killala, þorpi i Mayo-héraði á norðvesturhluta írlands. „Fólkið sem hefur séð þessa hluti er á engan hátt óvenjulegt eða móðursjúkt," sagði hann í messu, „en vera má að það geri sér ekki grein fyrir hvaða afleið- ingar vonin um kraftaverk getur haft á mannshugann." McDonnell gaf viðvörun sína sama dag og verið var að skipu- leggja för 10.000 manns í næstu sókn á stað þar sem fjórar ungl- ingsstúlkur héldu fram að María mey og heilög Bernadetta hefðu vitrast sér. Svipaðir bænafundir eru haldnir nánast daglega i þorpum og bæjum á írlandi þar sem frést hefur um vitranir og taka tugir þúsunda manna þátt í athöfnun- um. Annálaðasta sýnin átti sér stað í þorpinu Ballinspittle í Cork-héraði í júlí, en sagt var að stytta af Maríu mey hefði bylt sér og vaggað. Upp frá því hafa verið farnar sérferðir áætlunarbifreiða að sjá kraftaverkastyttuna og bæði sal- erni og símaklefar verið sett upp til að anna þeim fólksfjölda, sem drífur að styttunni. Það var i febrúar á þessu ári að greint var frá fyrstu krafta- verkastyttunni. Hópur barna hélt því fram að hafa séð styttu Maríu meyjar í Asdee opna aug- un og hreyfa hendurnar. Nú er til vitnisburður um að styttur hafi hreyfst í 15 sýslum af 26 í írska lýðveldinu. Opinber stefna kirkjuyfir- valda hefur verið að lofa hina guðhræddu fyrir að biðja, en í anda McDonnells er áhersla lögð á að sýna aðgát í þessu máli. „Þetta er gott fólk og enginn hefur rétt til þess að lita niður á það,“ sagði McDonnell. „Það eru ekki hinir trúhræddu sem fylla fangelsin og eiga sök á vanda- málum okkar." Minningar njósnara bannaðar Sydney, 16. september. AP. HÆSTIRÉTTUR í London staðfesti í dag bann til að hindra útgáfu minn- inga Peters Wright, fyrrverandi njósnara hjá bresku gagnnjósna- þjónustunni, MI-5. Breska stjórnin sótti málið á þeirri forsendu að útgáfa bókar- innar væri brot á trúnaðareiði þeim, sem Wright sór, þegar hann kom til starfa hjá leyniþjónust- unni. Bókaforlagið, sem ætlaði að gefa bókina út, er ástralskt og hef- ur lýst því yfir að það muni gera allt, sem í þess valdi stendur, til að fá dóminum breytt. Wright starfaði hjá gagn- njósnaþjónustunni frá 1955 til 1976 og ræktar nú hesta í Tasm- aníu. Hann neitar að segja nokkuð um málið. Sri Lanka: Skæruliðar á sáttafundi Nýju Delhi, Indlandi, 16. setitember. AP. LEÍÐTOGAR fjögurra skæruliða- hópa Tamila á Sri Lanka hafa sam- þykkt að eiga fund með Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands, til að ræða tillögur til lausnar inn- anlandsátökunum á Sri Lanka, að því er indverskar fréttastofur greindu frá í gær, sunnudag. Er þetta enn ein tilraun Indlandsstjórn- ar til að miðla málum í deilu þessari, en síðasta sáttatilraun fór út um þúf- ur í ágústmánuði. Fréttastofan UNI sagði, að skæruliðaleiðtogarnir kæmu til Nýju Delhi í kvöld og yrði fundur þeirra og Gandhis e.t.v. á morgun, þriðjudag. Ferðafrelsi takmarkað SameinuAu þjóAunum, 14. september. AP. Bandaríkjamenn hafa ákveðið að takmarka ferðafrelsi sovékzra, kúb- anskra, iíbýskra, víetnamskra, afg- anskra og íranskra manna, sem starfa hjá Sameinuðu þjóðunum. Er þetta gert vegna meintra njósna þegna þessara ríkja og annarra undirróðursstarfa. Sovétmenn hafa reiðst þessari ákvörðun Bandaríkjamanna, sem kemur til framkvæmda á morgun, sunnudag. Javier Perez de Cuellar, framkvæmdastjóri SÞ, hefur einn- ig beðið Bandaríkjastjórn að „end- urskoða" ákvörðunina. Samkvæmt ákvörðuninni verða viðkomandi að gera grein fyrir ferðalögum í erindum stofnunar- innar út fyrir 40 km radíus frá höfuðstöðvum SÞ með minnst tveggja daga fyrirvara, sækja um leyfi fyrir ferðalögum í einkaer- indum og skipuleggja þau í sam- ráði við bandariska utanríkisráðu- neytið. Sendifulltrúar ríkjanna sex hafa um skeið orðið að lúta reglum af þessu tagi. ORION 2A 33.900* ORION 2A er myndbandstæki sem hefur allt sem þú þarft, úrvalsgóða mynd, fullkomna tækni og trausta byggingu. VHS-tæki á aðeins 33.900 krónur. ..- «oí»o i *WK** mmmmmmm^mmmmrnmmmmm^mmmmmmm BOBO m^mmmmm XEN0N4B 39.900* XENON 4B hefur alla sömu eiginleika og 3CN tækið, auk þess, sem það hefur 12 stöðva forval, enn vfðtækara móttökusvið og stjórnborð af allra nýjustu gerð. Stórglæsilegt tæki á aðeins 39.900 krónur. XEN0N3CN 36.900* XENON 3CN er enn fullkomnara og fjölbreyttara, með sjálfvirkri upptöku fyrir fjórar stöðvar og óllka dagskrárliði, minni og þráðlausri fjarstýringu, auk venjulegra eiginleika. Glæsilegt tæki á aðeins 36.900 krónur. ORIONYM 47.900 ORION VM fjölnota myndbandstækið er hvort tveggja f senn fullkomið heimilismyndbandstæki og ferðatæki með afnotarétti af myndtökuvél til upptöku á eigin myndefni. Bráðsnjöll frambúðarlausn, sem hittir hvar- vetna í mark, á aðeins 47.900 krónur. * Stgr. *.r» LAUGAVEGI10 m.@) SÍMI27788 /7W'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.