Morgunblaðið - 17.09.1985, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1985
Okkur tókst að gera
Akureyrarvöll að kirkju-
garði sunnlenskra liða
— segir Jóhannes Atlason þjálfari Þórs
Veröur ekki áfram meö liöiö
„ÞAÐ er gaman aö enda svona. Ég held aö þetta sé eini leikurínn í
sumar þar sem ég hef getaö slappaö af á bekknum. „Dælan“ hefur
oft gengiö hratt í leikjum sumarsins," sagöi Jóhannes Atlason,
þjálfari Þórs é Akureyri, í samtali viö blaöamann Morgunblaösins,
eftir leikinn viö FH.
Ég spurði Jóhannes hvort þetta heföi veriö besti leikur Þórsliösins
i sumar:
„Besti leikurinn hans Dóra sennilega! Nei, ég er ekki viss um aö
þetta hafi veriö besti leikurinn okkar í heildina. En fyrri hálfleikurinn
var mjög góöur. Viö spiluöum líka feikivel í fyrri hálfleiknum gegn KR
hérna heima. FH-ingar voru nú kannski meö svolitla tilraunastarfsemi
í dag, en viö lékum engu aö síöur vel.“
Jóhannes sagöi aö menn heföu talaö um aö breiddin væri lítil hjá
Þórsurum, „en viö erum búnir aö veröa fyrir ansi miklum skakkaföll-
um. Hópurinn minnkaöi um tvo menn frá því í fyrra og síöan var Einar
Arason, fastur miövöröur í fyrra, ekkert meö í sumar vegna meiösla,
Bjarni Sveinbjörnsson meiddist á miöju keppnistímabili — og ég hef
ekki nokkra trú á ööru en hann heföi oröiö markakóngur ef hann heföi
leikið út mótiö, miöaö viö þaö hve hinir stoppuöu ... Hlynur, sem
kom inn í liöiö fyrir Bjarna, hefur staöiö sig mjög vel þó hann hafi ekki
náö aö skora mark, og vítin hafa hætt aö fást sem Bjarni fiskaöi. En
hinir strákarnir hafa bætt viö sig. Ég fékk góöan mannskap upp í
hendurnar þegar ég kom en þaö sem mér hefur kannski tekist aö
breyta er aö menn hafa öllu meiri trú nú.
Eg sagöi í leikskránni okkar í vor aö viö ættum aö stefna aö því aö
gera Akureyrarvöll aö kirkjugaröi sunnlenskra liöa og ég held aö þaö
hafi tekist. Viö höfum gert eitt jafntefli á heimavelli í sumar, unniö alla
hina leikina. Fengiö 25 stig af 27 mögulegum.”
Þórsliðiö er ungt — meöalaldurinn aöeins 21 ár. „Við spilum meö
tvo leikmenn úr 2. flokki, liöiö er ungt, en strákarnir eru nú búnir aö
sanna fyrir sjálfum sér aö þeir eru eitt af toppliöunum."
Nú þegar Evrópusæti er gengió ykkur úr greipum — séróu ekki
eftir Þróttarstigunum?
„Ég sé nú eiginlega meir eftir Víöisstigunum — jafnteflinu hérna
heima. Af þessum 35 stigum sem viö fengum í sumar held ég aö ekki
hafi verið heppnisstimpill í einu einasta. i sigurleikjunum hér heima
höfum viö einfaldlega veriö betri aöilinn. Líka i Víöisleiknum fyrir
sunnan og Víkingsleiknum — sem viö unnum. En maöur heföi alveg
getaö þegiö svolitla heppni líka. Á móti ÍA á Skaganum, KR og Fram í
Reykjavík og báöir jafnteflisleikirnir."
Verður þú áfram hjá Þór næsta sumar?
„Nei. Fyrir tveimur árum ákvaö ég aö taka mér gott sumarfrí næsta
ár. Eg á 20 ára þjálfunarafmæli núna — byrjaöi 1965, meö yngri
flokka aö vísu, en í öll þessi ár hef ég aldrei tekiö mér almennilegt
sumarfrí. Ég verö aö segja aö maður skilur náttúrulega ekki viö þetta
meö glöðu geöi. Þetta er í eitt af fáum skiptum sem mann langar
virkilega til aö halda áfram, en þessu veröur ekki breytt. En þaö
kemur ár eftir þetta ár. Mér líöur vel hér á Akureyri og hefur gert öll
þau sex ár sem ég hef þjálfaö hér. Eg gæti vel hugsaö mér aö koma
hér aftur. Ég vona bara aö strákarnir haldi áfram á sömu braut — og
held aö þaö sé aöeins spurning um herslumun aö klára þetta al-
veg..." sagöi Jóhannes.
• Siguróur Pétursson kampakátur eftir sigurinn á laugardaginn. Aga-
nefndín veitti honum áminningu í vikunni en hann fer ekki í keppnis-
banfl. MargunblaðiA/Friðþj6fur
• Halldór Áskelsson skorar hér fimmta mark sitt gegn FH á laugardaginn. Halldór var óstöóvandi í
leiknum.
Halldór skoraði fimm
— stórgóðir Þórsarar kafsigldu FH
HALLDÓR Áskelsson fór heldur
betur á kostum, eins og flestir fé-
lagar hans reyndar líka, á laug-
ardaginn er Þór á Akureyri sigr-
aói FH 6:1 í 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Halldór skoraöi hvorki
fleiri né færri en fimm mörk í
leiknum. Nói Björnsson, fyrirliði
Þórsliösins, skoraöi eitt mark.
Þór endar því í 3. sæti deildarinn-
ar og hefói komist í Evrópu-
keppni næsta vetur heföu Akur-
nesingar ekki sigraö Fram. „Ég er
hálf ruglaöur ennþá. Þaó tekur
sinn tíma aö átta sig á þessu,“
sagði Halldór í samtali viö blm.
Morgunblaósins eftir leikinn.
Þórsarar léku mjög vel í leikn-
um. Liösheildin var geysisterk og
knötturinn gekk vel milli manna.
FH-ingar áttu ekki mikla mögu-
leika.
Fyrsta mark leiksins kom strax á
fyrstu mínútunni:
1:0... Halldór fékk knöttinn
skammt utan vítateigs, fékk nógan
tíma til aö athafna sig og sendi
siðan þrumfleyg með vinstra fæti
efst í markhorniö fjær. Stórglæsi-
legt mark. Eitt þaö glæsilegasta
sem undirritaöur hefur séö i
sumar.
2:0 ... Eftir aö FH-ingar höföu sótt
nokkuö stíft í fimmtán mínútur
skoraöi Halldór aftur. Aödragandi
marksins var óvenjulegur Siguróli
Kristjánsson var meö boltann utan
teigs, sótt var aö honum og datt
hann en gat þó sent boltann frá
sér. Þar sem Siguróli sat á vellin-
um barst boltinn til hans aftur — á
lofti — hann skallaöi þá (sitjandi)
til Halldórs, sem lék til hliöar og
þrumaði aftur í netiö frá vítateig.
3:0... Eftir fyrirgjöf Kristjáns
Kristjánssonar skoraöi Halldór af
öryggi af markateig. Haföi nógan
tíma til aö taka knöttinn niöur og
senda hann í netið. Skömmu fyrir
markiö haföi Halldór veriö j dauða-
Þór — FH
6:1
Texti og myndir:
Skapti Hallgrimsson
færi eftir frábæra sendingu Sigur-
óla en Úlfar FH-markvöröur varöi
snilldarlega.
Baldvin Þórs-markvöröur varöi
mjög vel frá Heröi Magnússyni
sem komst einn inn fyrir, stuttu
eftir þriöja markiö, og hinum meg-
in varöi Úlfar mjög vel er Jónas
Róbertsson komst í dauöafæri eft-
ir undirbúning Halldórs.
Kristján og Halldór voru aftur á
feröinni — Úlfar varði mjög vel frá
Halldóri og siöan þrumaöi hann í
stöng frá vítateigslínu eftir send-
ingu Hlyns. Eins og sjá má heföu
mörkin getaö oröiö enn fleiri.
4:0... Kristján Kristjánsson óö
upp vinstra megin, sendi inn á Nóa
sem var dauöafrír á vítateignum og
hann skoraöi auöveldlega í mark-
horniö.
4:1 ... Kristján Gíslason skoraöi
eina mark FH á 55. mín. Hann náöi
knettinum viö miölínu vallarins, lék
á hvern varnarmann Þórs á fætur
öörum, komst inn á vítateig og
renndi knettinum i fjærhorniö án
þess aö Baldvin næöi aö verja.
Fyrri hluti síöari hálfleiksins var
ekki sérlega skemmtilegur enda
rigndi mikiö um tíma. Síöan rættist
úr.
5:1... Á 75. mín. sendi Kristján
fyrir frá vinstri á Halldór sem var
rétt innan teigs. Hann tók knöttinn
niður og þrumaöi á markiö. Úlfar
varöi en hélt ekki knettinum sem
hrökk aftur til Halldórs og þá uröu
honum ekki á nein mistök. Boltinn
lenti í netinu.
6:1... Fjórum mín. fyrir leikslok
var Kristján Kristjánsson enn á
feröinni upp vinstri vænginn og gaf
fyrir, Úlfar sló boltann frá — Hall-
dór náöi honum (hver annar) og
skoraöi örugglega af stuttu færi.
Leikurinn var flautaöur af stuttu
siöar og fögnuöurinn á Akureyr-
arvelli var mikill. Þórsarar höföu
sannaö rækilega hvers þeir eru
megnugir.
í mjög góöu Þórsliöi voru þeir
Halldór og Kristján bestir. Léku
báöir frábærlega en aðrir stóöu
þeim ekki langt aö baki.
Hjá FH var fátt um fína drætti.
Þess ber aö geta aö Ingi Björn gaf
fáeinum varamönnum tækifæri
sem taka munu við hjá FH í fram-
tíðinni.
I STUTTU MÁLI:
Akureyrarvöllur 1. delld
Þór-FH 6:1(4:0)
Mörk Þóre: Halldór Áskelsson 5 (á 1., 16., 26.,
75. og 86. mín.) og Nól Björnsson á 43 mín.
Marfc FH: Kristján Gíslason á 55. mín.
Ámínnmgar: Sigurbjörn Viöarsson, Þór, fókk
gula spjaldiö.
Áhorfendur 650.
Dómari: Þorvaröur Björnsson og stóö sig
mjög vel
EINKUNNAGJÖFIN:
Þór. Baldvin Guömundsson 4, Sigurbjörn Viö-
arsson 4, Siguróli Kristjánsson 4, Árni Stef-
ánsson 4, Óskar Gunnarsson 4, Nói Björnsson
4, Halldór Áskelsson 5, Kristján Kristjánsson
5, Jónas Róbertsson 4, Júlíus Tryggvason 4,
Hlynur Birgisson 3, Siguröur Pálsson (vm) lók
of stutt.
FH: Úlfar Danielsson 2, Viöar Tryggvason 1,
Höröur Magnússon 1, Guömundur Hilmarsson
1, Dýri Guömundsson 1, Kristján Gislason 2,
Leifur Garöarsson 1, Janus Guölaugsson 1,
Jón Erling Ragnarsson 2, Þóröur Sveinsson 1,
ólafur Kristjánsson 2, Magnús Pálsson (vm á
63. mín) 1, Udo Lucas (vm) lók of stutt.
Sigurður fer ekki
í keppnisbann
EINS og viö skýróum frá síöasta
þriójudag var Siguróur Péturs-
son, íslandsmeistari í golfi úr GR,
kæröur fyrir óíþróttamannslega
hegöun í sveitakeppni GSÍ sem
fram fór á golfvelli Keilismanna í
Hafnarfirði um síóustu helgi. Mál-
ið var tekiö fyrir hjá Aganefnd
GSÍ í vikunni og komst hún aö
þeirri niöurstööu aö Sigurði
skyldi veitt áminning.
Þessi úrskuröur þýðir aö Sig-
urður getur tekiö þétt í „World
Cup“ sem fram fer í Portúgal
17.—20. október en þaö er undan-
keppni. Islendingar komust síöast í
úrslitakeppni og aétla sér aö
endurtaka þaö núna en aö þessu
sinni fer úrslitakeppni fram í Kalif-
orníu 18,—24. nóvember og þar
leika 12 þjóöir.
I niöurstööu Aganefndar segir
ennfremur aö ef til þess komi aö
Siguröur veröi kæröur aftur þá eigi
hann yfir höföi sér keppnisbann
um einhvern tíma.