Morgunblaðið - 17.09.1985, Síða 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1985
Kylfingar, fulltrúar fyrirtaskja og forráðamenn GR við verölaunaafhendingu á laugardaginn. Frá vinstri eru
Jóhann Óli Guömundsson frá Securitas, ívar Hauksson, sem lék fyrir þá, Sigurður Pétursson sem sigraöi,
Jörundur Guðmundsson, Sigurður Hafsteinsson sem lék fyrir Jörund, Karl Jóhannsson, formaöur GR,
Siguröur Steinþórsson frá Gull og Silfur en Sigurður Pétursson sigraði fyrir þá í keppninni. Björgúlfur
Lúðvíksson, framkvæmdastjóri GR er lengst til hægri.
Fyrirtækjakeppni GR:
Sigurður vann fyrir
Gull og Silfur
— Ragnar tryggði sér líklega sólarlandaferð
SIGURÐUR Pétursson, Golfklúbbi
Reykjavíkur, gerir það ekki enda-
sleppt á golfmótum hérlendis.
Hann sigraði um helgina í fyrir-
tækjakeppni GR sem lauk á laug-
ardagínn, lék á 69 höggum sem
er tveimur höggum undir pari
vallaríns en það er mjög vel leikiö
hjá Sigurði, sérstaklega þegar
haft er i huga að flatimar í Graf-
arholtinu eru ekki alveg eins góð-
ar og best veröur á kosiö. Sigurö-
ur lék fyrir Gull & Silfur.
Nafni Sigurðar, Siguröur Haf-
steinsson, varö í ööru sæti á 71
einu höggi sem er par vallarins en
Siguröur lék fyrir hárgreiöslustofu
Jörundar. Þriöji varö ívar Hauks-
son, fyrir Securitas, á 76 höggum
og Ragnar Olafsson varö fjóröi á
77 höggum fyrir Hafstein Júlíusson
hf.
Þaö var nóg um aö vera i Graf-
arholtinu á iaugardaginn þegar
keppni lauk. Fulltrúar þeirra 273
fyrirtækja sem þátt tóku í mótinu
voru mættir á staöinn til aö fylgjast
meö lokabaráttunni en keppnin fer
þannig fram aö leiknar eru 18 hol-
ur meö forgjöf og eru kylfingar
dregnir saman viö fyrirtækin eftir
aö þeir hafa leikiö. Síöan eru 16
bestu skorin, sem reiknuö eru út
með forgjöf, dregin við þá
meistaraflokksmenn sem klúbbur-
inn hefur á aö skipa og þeir leika
siöan 18 holur án forgjafar. Þaö
var þessi keppni sem var á laug-
ardaginn og sem fyrr segir sigraöi
Gull & Silfur og Siguröur Péturs-
son lék fyrir fyrirtækiö. i undan-
keppninni lék Hermann Guö-
mundsson fyrir Guil & Silfur en
Jörundur Guömundsson lék sjálfur
fyrir fyrirtæki sitt, sem endaði í
ööru sæti.
Eins og áöur sagöi þá tóku alls
273 fyrirtæki þátt í þessari keppni
og er þaö metþátttaka í mótinu og
er greinilegt aö keppnin á eftir aö
hlaöa utan á sig meö árunum og
veröa enn umfangsmeiri en hingaö
til.
Siguröur Pétursson sýndi á
laugardaginn svo ekki veröur um
villst aö hann er okkar besti kylf-
ingur um þessar mundir. Þó svo
ekki hafi veriö kylfingar frá öörum
klúbbum á þessu móti þá var
styrkleiki þess eins og í meöal
stigamóti og Sigurður sigraö nokk-
uö örugglega og sýndi þegar hann
var undir hvaö mestum þrýstingi
frá nafna sínum Hafsteinssyni aö
hér var á feröinni okkar besti golf-
leikari.
Þegar hann kom á 17. holuna
vissi hann aö Siguröur Hafsteins-
son haföi leikiö völlinn á pari. Sig-
uröur Pétursson var þá einu höggi
undir pari vallarins. Teigskotið hjá
honum var aöeins of stutt og
komst ekki inn á flötina. Hann tók
þá sandjárn og lék fallega inn á
flötina og niöur í holuna rann bolt-
inn og þarmeö haföi hann tvö högg
á nafna sinn. Síðan lék hann siö-
ustu holuna á pari og sigraöi í mót-
inu.
Ragnar Ólafsson lék vel á 16.
holunni en þar eru verölaun frá Út-
sýn í boöi, sólarlandaferö fyrir þá
tvo kylfinga sem næst komast hol-
unni í tveimur höggum. Ragnar
komst í annaö sætiö í þeirri keppni
á laugardaginn meö því aö leika
kúlunni aöeins 59 sentimetra frá
holunni. Björn Morthens hefur
komist næst holunni í keppni í
sumar, 49 sentimetra, og eru mikl-
ar líkur á því aö þeir tveir hreppi
sólarlandaferöirnar.
Óskabyrjun
hjá Essen
— Sigurður og félagar hjá Lemgo unnu Kiel
Frá Jóhanni Inga Gunnaraayni, fréttamanni Morgunblaðaina í Þýakalandi.
BUNDESLIGAN í handknattleik
fór af stað í Þýskalandi um helg-
ina. Essen, lið Alfreðs Gíslasonar,
fékk óskabyrjun, sigraði meistar-
ana Gummersbach. Lemgo, liðiö
sem Sigurður Sveinsson leikur
með, vann Kiel, lið Jóhanns Inga
Gunnarssonar á heimavelli. Atli
og félagar hjá GUnzburg unnu
sigur á Rein frá Berlín.
Bundesligan fór vel af staö hjá
þeim liöum sem íslendingar leika
meö. Siguröur Sveinsson skoraöi
fimm mörk fyrir Lemgo gegn Keil,
sem haföi yfir í leiknum lengst af,
staðan í hálfleik var 13—10, fyrir
Kiel, en Lemgo náöi aö vinna naum-
lega, 24—23.
Þetta var mikilvægur sigur fyrir
Lemgo og aftur áfall fyrir Kiel aö
tapa í Lemgo. Mjög erfitt er aö leika
í Lemgo þar sem áhorfendur þar
eru mjög vel meö á nótunum.
Siguröur átti ágætan leik þó
hann væri lítilsháttar meiddur, þaö
telst til tíöinda aö þessi vinstrihand-
ar skytta geröi eitt mark meö hægri
hendi.
Essen, liö Alfreðs Gíslasonar,
vann sannfærandi sigur á Gumm-
ersbach, 18—15, áútivelli. Þaöeru
einhver álög yfir leik þessara liöa
því Essen hefur unniö þá á heima-
velli síöustu þrjú árin. Alfreö gekk
ekki heill til leiksins, þar sem hann
hefur veriö bólginn á fæti, hann
skoraöi aöeins eitt mark í leiknum.
Hetja Essen var hornamaðurinn,
skemmtilegi, Fraadz, sem skoraöi
10 mörk, eins átti markvörður liðs-
ins, Hecker, mjög góöan leik og
varöi 17 skot. En sigur Essen var
mjög mikilvægur þar sem þetta
veröa liöin sem koma til meö aö
berjast um meistaratitilinn.
Gunzburg, liöiö sem Alti Hilm-
arsson leikur meö, vann sigur í
Berlín, 23—18, og var Atli Hilmars-
son maöurinn á bak viö þennan
mikilvæga sigur í fyrsta leik. Atli
skoraöi fimm mörk í leiknum og þar
af tvö síöustu mörkin. Hann hefur
falliö mjög vel inn í leik liösina og á
örugglega eftir aö gera góöa hluti í
vetur.
Göpþingen vann Dankersen,
29—21. Páll Ólafsson lék ekkí með
Dankersen í þessum leik og er hann
hættur aö leika meö liöinu þar sem
forráðamenn liösins gátu ekki staö-
iö viö þá samninga sem geröir voru.
Allt er óvíst um hvaö Páll gerir,
annaðhvort kemur hann heim eöa
leikur meö einhverju liöi í 2. deild.
Loks sigraöi Groswallstadt Hof-
• Sigurður Sveinsson lék vel í
sínum fyrsta leik með Lemgo á
keppnistímabilinu
weier á heimavelli stórt, 27—10.
Einn leikur fór fram á föstudags-
kvöld eins og við sögöum frá í blaö-
inu á laugardag, þá geröu Dort-
mund og Dusseldorf jafntefli,
10—10.
Nantes
tapaði
PARÍS er nú efst í 1. deildar-
keppninni í Frakklandi eftir leiki
helgarinnar, París vann Le Havre
2—1 á útivelli og hefur nú hlotið
20 stig í deildinni, fimm stigum
meira en Bordeaux og Nantes.
Nantes sem Valur leikur gegn í
dag tapaöi á útivelli gegn Bordeaux
2—1. Úrslit leikja I Frakklandi uröu
þessi:
Marseille — Rennes 1—2
Auxerre — Strasbourg 2—0
Nice — Sochaux 2—0
Brest — Toulon 2— 1
Nancy — Lens 2— 1
T oulouse — Ðastia 3—1
Lille — Monaco 2—2
Bordeaux — Nantes 2— 1
Laval —Metz 1—1
Le Havre — Paris S.G. 1 —2
Sundknattleikur á Siglufirði
KA sigraði KS, 2—1 á mjög svo
blautum knattspyrnuvelli á Siglu-
firði á laugardag. Knattspyrnunni
mátti helst líkja við sundknattleik
og var ekki mikiö um góða
knattspyrnu enda ekki hægt að
sýna hana vegna þess hve völlur-
inn var blautur, leikmenn óðu
polla lengst af. Staðan í leikhléi
var 1—0 fyrir KA.
Leiknum var upphaflega frestaö
um hálftíma þar sem reynt var aö
ná vatni af vellinum, hann var yfir
aö líta eins og yfirborö á sundlaug.
Þaö átti hreiniega aö fresta
þessum leik vegna þess aö aö-
stæöur voru ekki bjóöandi, en
leikmenn beggja liöa vildu spila.
Jafnræöi var á meö liðunum til aö
byrja meö og mest um miöjuþóf. Á
13. mín. kom fyrsta markiö á frek-
ar furöulegan hátt, markvöröur
KS — KA
12
KS, spyrnti frá marki og kom
knötturinn niöur á miöju vallarins
og þar var Tryggvi Gunnarsson
fyrstur og spyrnti til baka frá miöju
og fleytti knötturinn kerlingar i
pollinum beint í markiö. Þarna
voru pollarnir hjálplegir KA-
mönnum.
Þaö sem eftir var hálfleiksins
sóttu Siglfiröingar meira og kom-
ust bæöi Höröur Júlíusson, Óli
Agnasson einir inn fyrir en létu
verja frá sér.
í seinni hálfleik áttu Siglfiröingar
tvö skot í þverslá eftir hornspyrnur
á fyrstu mínútunum.
KA skorapi síöan fallegt mark á
67. mín. Þá kom góð fyrirgjöf frá
hliöarlínu og Þorvaldur Þorvalds-
son kom á fullri ferö og skoraöi
gott mark. Staöan þvi oröin 2—0.
Siglfiröingar skoruöu eina mark
sitt á 75. mínútu, Óli Agnarsson
tók þá hornspyrnu og gaf stuttan
bolta aö marki KA sem var síöan
framlengdur meö skalla inn í miöj-
an vítateig og þar var Colin Tacker
mættur og skoraöi af stuttu færi.
Eftir markiö sóttu heimamenn
heldur meira en KA-menn vöröust
vel. Mikil harka var i leikmönnum
er líöa tók á og var sjö leik-
mönnum sýnt gula spjaldiö, þrír úr
KS og fjórir úr liði KA.
Bestir í liði KS voru þeir Mark
Duffieid og Colin Tacker, hjá KA
voru Erling Kristjánsson og Njáll
Eiðsson bestir.
Undirritaöur hefur aldrei séö
leikiö viö slíkar aöstæöur eins og
voru á Siglufiröi á laugardaginn.
KA hafnaöi í þriöja sæti í deild-
inni og kemst því ekki í 1. deild aö
ári, þar sem UBK vann Völsung á
Húsavík. Vestmanneyingar uröu
sigurvegarar í 2. deild meö 39 stig,
Breiöablik varö í ööru sæti meö 37
stig og KA meö 36 stig í þriöja.
- Rl'
Atta lið
tryggt
þátttöku
ÁTTA lið hafa nú þegar tryggt sér
þátttökurétt í úrslitum heims-
meístarakeppninnar í knatt-
spyrnu, sem fram fer í Mexíkó é
næsta ári.
Þjóöirnar sem tryggt hafa sér
þátttöku eru efiirfarandi: Argent-
ína, Brasiiía, Kanada, Ungverja-
land, Pólland, Uruguay, heima-
menn, Mexíkó og heimsmeistar-
arnirfráþví 1982, ítalía.
16 liö komast í lokakeppnina og
kemur þaö meö aö skýrast á næst-
unni hvaða átta lið þetta veröa sem
komasttilviöbótar.
Keppnin hefst 31. maí á næsta
ári og lýkur með úrslitaleik um
heimsmeistaratitilinn 28. júní. Leik-
iö veröur í 12 borgum víös vegar
um Mexíkó.